Þjóðviljinn - 21.08.1960, Síða 12
Fimm Eyjabátar sviptirþlÓÐVIUINN
leyfum til humarveiða
Sunnudagur 21. .ágúst 1960 — 25, árgangur — 185. tölublað.
Þrir bátanna eru i eigu Einars rika Sig.
Vestmannaeyjum. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Fimm af þeim x'úmlega 20 Vestmannaeyjabátum, sem
fengu í vor leyfi tU aö stunda humarveið'ar, hafa nú
verið sviptir leyfunum vegna misnotkunar. Þrír þess-
ara fimm báta eru í eigu Einars ríka Sigurðssonar út-
geröarmanns.
Fiskifélag Islands hefur sér-
stakan eftirlitsmann hér í Eyj-
um sem fylgist með aflabrögð-
um humarveiðibátanna. Þótti
ekki annað fært en taka í
taumana, er bátarnir komu að
landi með 20—30 tonna afla
sem nær eingöngu var bol-
fiskur, jafnvel örsmá ýsa.
Um 20 enn við
humarveiðar
iBátarnir fimm, sem sviptir
hafa verið humarveiðileyfum,
eru þessir: Gammur, Kári,
Andvari, Hilmir og Kap. Þrír
þeir fyrsttöldu eru í eigu Ein-
ars ríka Sigurðssonar útgerð-
armanns.
Vestmannaeyjabátarnir sem
halda enn áfram humarveiðun-
um eru um tuttugu talsins.
Humaraflinn hefur nokkuð
m
tregðast upp á síðkastið, var
allgóður þegar veiðarnar hóf-
ust fyrst í sumar.
Yfir 30 fundir herstöðvaand-
stæðinga hafa nú verið haldnir
Ágætur fundur í Hrútafirði í fyrrakvöld
Fi’am til þessa hafa hernámsandstæöingar haldiö, að
frumkvæöi framkvæmdaráðs Þingvallafundar, alls á
fjói’öa tug funda víösvegar um NorÖur- og Austurland.
I þessari viku munu hefjast fundahöld á Suöur- og
Vesturlandi.
fundurinn
Framkvæmdaráð Þingvalla-
fundarins biður hernámsand-
slæðinga úti um land að hraða
sem mest skipun héraðsnefnda
og vali fulltrúa á fundinn, en
fulltrúafundurinn hefst 9. sept-
ember og því stuttur tími til
stefnu.
Fundahöld á Suðurlandi og
Vesturlandi hefjast væntanlega
í næstu viku og um aðra helgi,
en búið en nú að lialda fundi
um alla Austfirði, Vestfirði og
mcginhluta Norðurlands.
Fjársöfnun til undirbúnings
Þingvallafundarins er nú í full-
uin gangi. Þeir, sem eiga eftir
að gera skil fyrir ritinu um
Keflavíkurgönguna geri það
sem fyrst. Ritið er nú að verða
uppselt og því áríðandi, ef
einhverjir liggja með óseld ein-
tök, að þeir komi þeim á skrif-
stofuna í Mjóstræti 3, sími
23647.
í fyrrakvöld var fundur hald-
inn að Borgun í Hrútafirði. Var
fundurinn vel sóttur og mjög góð
ur rómur gerður að ræðum
manna. Fundarstjóri var Stein-
grímur Pálsson, stöðvarstjóri,
Brú, Hrútafirði, en málshefjend-
ur þeir Jónas Árnason rithöf-
undur Skúli Benediktsson kenn-
ari, Reykjaskóla, Björn Þor-
steinsson sagnfræðingur og Skúli
Guðjónsson bóndi Ljótunnar-
stöðum. Auk frummælenda tók til
máls Jónas Jónsson, bóndi Mel-
um. Flutti hann skelegga ræðu
gegn hernáminu og ræddi þó
einkum landhelgismálið.
Níu manna héraðsnefnd kjörin.
Á fundinum var einróma sam-
þykkt ávarp það til íslendinga,
sem framkvæmdaráð Þingvalla-
fundar hafði samið, svo ályktun
í landhelgismálinu, sem birt er
annarstaðar í blaðinu. Kjörin var
niu manna héraðsneínd hernáms-
andstæðinga fyrir Bæjahrepp í
Strandasýslu. í nefndinni eiga
sæti: Jónas Jónsson bóndi Melum
Skúli Guðjónsson bóndi Ljót-
unnarstöðum, Sæmundur G"-*
jónsson hreppstjóri Borðeyri, Ei-
ríkur Sigfússon bóndi Litlu-
Hvalsá, Lára Helgadóttir hús-
freyja Brú, Steingrímur Pálsson
stöðvarstjóri Brú, Jón Kristjáns
son bóndi Kjörseyri, Þorbjörn
Bjarnason skólastjóri Borðeyri
og Þorbjörg Kvaran húsfreyja
Brú.
35. fundurinn annað kvöld.
Kl. 5 síðdegis í gær hófst fund
ur hernámsandstæðinga á Skaga-
strönd, en í dag verða fundir á
Blönduósi og Hvammstanga.
Hefst fundurinn á Blönduósi kl.
4 síðdegis en Hvammstangafund-
urinn er í kvöld. Kl. 9 annað
kvöld. mánudag, verður svo fund-
ur haldinn á Hólmavík og er það
35. funcjurinn sem haldinn er til
undirbúnings Þingvallafundi í
næsta mánuði.
Eirls og áður var getið hefj-
j ast í þessari viku fundahöld all-
víða á Suður- og Vesturlandi og
verður nánar skýrt frá þeim
' fundum síðar.
2 mósaikmyndir unnar
ir Iðnskólann i sumar
bandið
Myndin var tekin er þeir Björn Þorsteinsson sa.gnfræðingur
ug Jónas Árnason rithöfundur voru að leggja afi stað héðan
úr Reyltjavík norður í Iand í fyrradag, en þeir eru meðal
ræðumanna á fundum heriiámsandstæðinga í Húnavatns- og
Strandasýslum þessa dagana. — (Ljósm.: Þjóðviljinn).
“rr::- uukh
að leysast
Mali-sambandið sem stofnað
var fyrir rúmlega ári síðan
virðist nú vera að leysast
upp. Lýst hefur verið yfir
hernaðarástandi í landinu.
Mali-sambandið er ríkjasam-
band landanna. Fr. Súdan og
Senega's sem áður voru fransk-
ar nýlendur. Nú hefur komið
til deilu milli þe;rra um hvort
ha'da skuli fjármálunum að-
skildum eins og Senegalmenn
krefjast en þeir eru auðugri
en fámennari þjóðin.
Senegalmenn hafa sagt s'g úr
jögum við Súdanmenn, lýst yf-
ir sjálfstæði Senegals og far-
ið fram á það við Sameinuðu
þjóðirnar að þær viðurkenni
það.
Hermenn frá Senegal hafa
tekið í sínar hendur tvær út-
varpsstöðvar í höfuðborginni,
Bamako og þeir hafa í haldi
forsætisráðherrann sem er
súdanskur, og fleiri stjórnar-
meðlimi
I suniar liefur Guðmundur
Guðmundsson Ferró unnið að
gerð tveggja mósaikmynda við
inngöngudyr á suðurhlið Iðn-
skólans. Áður liafði Ferró gert
mósaikmynd við aðalinngöngu-
dyr skólans.
Fréttamaður blaðsins náði tali
af Ferró fyrir skömmu og bað
hann um að segja lesendum
blaðsins frá þessum myndum.
— Þetta eru tvær myndir,
se“'r Ferró j- ÍUK9. 7n inrnv
» - '
mynd. Önnur er mynd af
höfði, það er að segia að ýmis
verkfæri mynda höfuð og á
hún að tákna hvað verkfærin
séu ,,mannleg“ tæki. Sú mynd
er unnin í gamla bysantíska
stílnum — allir steinar jafa-
stórir.
Hin myndir (sjá ljósmvnd)
er öll. frjálslegri i sniðum.
I Þar er fjclbreytni á stærð
j grjótsins og vinnutækni. I
| mv'’dinni eru um 20 mismun-
I ar-di steinategundir og um 80%
'■ af efninu er íslenzkt. Formin
í myndinni fylgja hringlaga
| gluagum sem ganga upp með
j gaflioum.
Sýning næsta ár?
Á bæjarstjórnarfundinum í
í fyrradag var eftirfarandi til-
laga samþykkt samhljóða:
„Bæjarstjórn telur æskilégt
að efnt verði til sýningar um
þróun Reykjavíkur í sambandi
I við 175 ára afmæli kaupstað-
arins, 18. ágiíst 1961, og felur
bæjarráði undirbúningsathug-
anir mn niálið“.
| Ferró segist vinna myndir
s'ínar þannig að fyrst sé vegg-
urinn rifinn upp og síðan lögð
blanda af sementi, kalki og
sandi, um 2 sm þykk, á vegg-
inn. Siðan vann hann um 20
fersentimetra í einu.
Hann kvaðst helzt vilja.
vinna með sem stærstu grjótí.
Ferró kvaðst mjög ánægður
með samvinnuna við skóla-
nefndina, hún hefði látið hann.
a.S - íúesni vúrrádaP uffl gerð
myndanna. ,
Ferró er á förum til útlanda
eftir u.þ.b, hálfan mánuð.
Sveit Guðmundar
Pálmasonar vann
J í fyrrakvöld fór fram sveifa-
j keppni í hraðskák, sem Taflfé-
Iag Reykjavíkur gekksl fyrir.
Teílt var í 12 4ra manna sveit-
^ um. Yiirburðasigur vann sveit
| Guðmundar Pálmasonar. hlaut
j 66% v. af 88 mögulegum. 2. varð
I sveit Gunnars Gunnarssonar með
51 v., og 3. varð sveit Björns Þor-
steinssonar með 49 % v.
Sveit Guðmundari Pálmasonar
skipuðu auk Guðmundar, þejr
Grétar Á. Sigurðsson. Vilhjálm-
ur Sigurjónsson og Þórður Sig-
| fússon.
Af 1. borðs mönnum varð eist-
■Ur Guðmundur Pálmason með
19% v. aí' 22 mögulegum. Á 2-
borði varð efstur Grétar Á. Sig-
ui-ðsson með 16% v.. á 3. borði
Magnús Gunr.arsson með 17 v. og
á 4. borði Þórður Sigíússon með
20 v.