Þjóðviljinn - 04.10.1960, Side 5
Þriðjudagur 4. október 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Ársþing Verkamannaflokksms
brezka hafið í Scarborough
Kröfurnar um nýja land-
vinninga hljóma nú aftur
í Vestur-Þýzkalandi. Aftur
heyrast raddir um nýtt leift-
urstríð. Jafnvel guð á himji-
um er ákallaður um hjálp
í þessu skyni, t.d. á heims-
móti katólskra í Miinchen í
sumar. Þar stóðu þeir
Strauss hermálaráðherra og
nokkrir. af fyrrverandi her-
foringjum Hitlers ásamt
kardínálum og biskupum og
létu hermenn Vestur-Þýzka-
lands falla á kné og biðja
guð mn hjálp í baráttunni
gegn kommúnistum. Á stserri
myndinni sést Strauss halda
ræðu sína en honum til
beggja handa standa fyrr-
verandi kenerálar Hitlers og’
yfirmenn katólsku kirkjunn-
ar undir risastórum krossi.
Á minni myndinni sjást
vesturþýzku hermennimir
krjúpandi og biðjandi.
Ráðskona
á býli á suðurlandi. Mæitti
hafa barn eða ungling með
sér. Fámennt heimili Rafm.
og fleiri þægindi á staðn-
um.
Uppplýsingar í síma
10368.
Ársþing brezka Verkamanna-
flokksins hófst í gær í Scar-!
borough og er búizt við að
það kunni að verða hið mikil-!
vægasta lí sögu flokksins.
Það er fyrst og fremst af-
staðan til kjarnavopna og
landvarnamála sem ágreiningi
veldur á þinginu. Á þingi
brezka alþýðusambandsins í
síðasta mánuði kom í Ijós að
meirihluti verkalýðshreyfing-
arinnar vill að Bretar afsali
sér kjarnavopnum og banni
eldflaugastöðvar á landi sínu,
en sú afstaða gengur alger-
lega í berliögg við yfirlýsta
forystu Gaitskell sem meiri-
hluta hafa í flokksstjórninni.
Þar eð verkalýðsfélögin ráða
yfir miklum meirihluta at-
kvæða á flokksþinginu og
flokksdeildimar fylgja flestar
vinsitrimönnum hefur verið
talið líklegt að Gaitskell og
hans menn yrðu undir á þing-
inu, ef í odda skerst og mála-
miðlun tekst ekki.
Fyrsta samþykkt þingsins
var þó gerð einróma. Hún
fjallaði um Afríku. Var þar m.
a. lýst samþykki við aðgerðir
SÞ í Kongó.
Uppþot gegn de
Ganlle í París
Nokkur hundruð ungmenna úr
fasistasamtökunum Jeune Nation
efndu í gær til uppþots fyrir
framan embættisbústað de
Gaulle forseta í París. Hrópuðu
þeir: Alsír er franskt. Skjótið
landráðamennina, Salan til
valda, en lögregla réðst gegn
þeim með kylfur á lofti og særð-
ust um 40 menn, en margir voru
handteknir.
Kosning í Frama
Framli. af 12. síðu
Kristján Kjartansson Bæjarl.
Þorvaldur Jóhannesson
HreyfiII
Á lista ríkisstjórnarinnar eru
þessir menn: Bergsiteinn Guð-
jónsson, Andrés Sverrisson, Óli
B. Lútersson, Garðar Gíslason,
Ármann Magnússon, Jens Páls-
son og Gestur Sigurjónsson.
Þakka fyrir „viðreisnina“
Leigubílstjórar hafa sérstaka
ástæðu til þess að sameinast
um hagsmuni sína og kjör í
þessum kosningum. Allt sem
bílstj. þurfa til atvinnu sinn-
ar hefur liæ'kkað stórlega í
verði, en krappari kjör almenn-
ings gera það að verkum að
atvinna leigubílstjóra dregst
saman, og sér þess þegar
merki. Fáir menn eru jafn
háðir því að afkoma almenn-
ings sé góð og einmitt leigu-
bílstjórar, og' má telja vafa-
samit að nokkur stétt verði
eins harkalega fyrir afleiðing-
um „viðreisnarinnar“ og ein-
mitt þeir(
Þess vegna hafa leigub'íl-
stjórar hug á að þakka ríkis-
stjórninni fyrir sig á eftir-
minnilegan hátt með því að
fylkja sér um B-LISTANN.
Kosningaskrifstofa B-listans
verður í Framsóknarihúsinu
sími 12942.
Umferðarslys
Framh. af 12. síðu
Á sunnudagslivöld klukkan
20.30 var toifreið með 6 manns
á leið í bæinn hjá Leirvogsá.
Við brúna yfir ána hjá Svana-
sitöðum fór toifreiðin út í lausa-
mölina á vegarbrúninni og
missti stúlkan, sem ók, stjórn-
ina á henni og náði eklvi beygj-
unni inn á brúna. Bifreiðin
lenti á. steyptum torúarstólpa
og kastaðist afturendi hennar
inn á veginn og skall á brúar-
stólpanum hinu megin og lok-
aði alveg brúnni.
I bifreiðinni voru eins og
áður sagði sex manns, þrjár
stúlkur, er sátu fram í og
meiddust þær allar nokkuð mik-
ið. Var ein þeirra, norsk stúlka
María Hadnah, Njörvasundi 40,
flutt í sjúkrahús. Hafði hún
hloitið meiðsli á höfði. Hinar
stúJkurnar tvær voru fluttar
á slysavarðstofuna og einnig
tveir piltar, er sátu aftur í
bifreiðinni en einn pilitur slapp
ómeiddur. Voru piltarnir lítið
meiddir en stúlkumar bæði
marðar og tognaðar en óbrotn-
ar.
Bifreiðin er að sjálfsögðu
mjög illa farin eins og sést
á mynd á öðrum stað hér í
blaðinu.
Fær ekki að fara
aftur til Alsír
Franska stjórnin héíur bannað
Salan hershöfðingja, fyrrver-
andi yfirhershöfðingja Frakka í
^ Alsír, að fara
heimkvaðning-
Raoul Salan.
unni var sú, að
Salan hafði gagnrýnt Alsírstefnu
de Gaulle og' sagt að ekkert vit
væri í því að láta Alsírbúa fá
að ákveða framtíð sína.
Salan neitaði að taka gagn-
rýni sína aítur, — og hann var
kyrrsettur í París.
Reyna að etja NATO-löndunum
í efnahagsstríð við A-Þýzkal.
Vecturþýzka st’órnin lætur ræða viðskipta-
bann í faztarfiði Atlanzhafsbandalagsins
Ríkisstjórn Vestur-Þýzkalabds
ákvað á föstudaginn að riúfa
verzlunarsamninginn við Aust-
ur-Þýzkaland og hætta öllum
verzlunarviðskiptum við landið.
Segist Bonnstjórnin gera ’petta
til að mótmæla því, að Vestur-
Þjóðverjar fá ekki að fara inn
í Austur-Berlín, nema þeir sýni
vegaþréf.
Austurþýzk yfirvöld hafa bent
Bonnstjórninni á, að þetta við-
skiptástríð komi Vestur-þjóðverj-
um sjálfum verst. T.d. hefur ver-
ið kreppa í kolaiðnaði Vestur-
Þýzkalands en Austur-Þjóðverj-
ar hafa bætt úr ástándinu með
þvi að kaupa mikið af kolum
frá Vestur-Þýzkalandi. -Þýzkir
iðnaðarmenn og verzlunarmenn
hafa haldið því fram að efnahag-
ur Vestur-Þýzkalands muni bíða
stóran hnekki ef verzlunin við
Austur-Þýzkaland verður bönn-
uð.
Bandaríkin styðja
Bandaríska sendiráðið í Bonn
hefur íýst yfir fullum stuðningi
Bandaríkjastjórnar við þessar
aðgerðir vestur-þýzku stjórnar-
innar. Stjórnir Bretlands og
Frakklands eru ekki aðeins
stuðningsmenn þessa efnahags-
stríðs, heldur hafa þær beinlín-
is lagt á ráðin um þessar aðgerð-
ir.
Ætlun ráðamannanna í Bonn
er að fá fleiri lönd, og þá fyrst
og fremst NATO-löndin, til að
taka þátt í efnahagsstyrjöld
sinni gegn Austur-Þýzkalandi.
Fengu þeir fastaráð Atlanzhafs-
bandalagsins í París til að ræða
málið á laugardag og fóru þar
fram á að öll Atlanzhafsbanda-
lagsríkih settu viðskiptabann á
Austur-Þýzkaland. Ekki mun
hafa verið tekin nein sameigin-
leg ákvörðun í málinu.
Tíl bjargar
Alexei Glageley, hvalskurðarmanni á hvalveiðiskipinu „ALeut“,
virðist þykja gott að hvíla sig í skolti hvals, sem hann og
félagar hans veiddu í Suðurhöfum.
Dýrafræðingar frá Sovétríkj-
unum og nokkrum Vestur-Evr-
ópuríkjum komu saman til fund-
ar í Prag fyrir skömmu, til þess
að ræða leiðir til að bjarga
villihestunum í Asíu frá því að
deyja út. Hér er um að ræða síð-
ustu leifarnar af forfeðrum þess
húsdýrs, sem verið hefur um
aldaraðir þarfasti þjónninn með-
al margra þjóða.
Sovézku dýrafræðingarnir
skýrðu frá því á ráðstefnunni,
að þeir hyggðust gera eyju eina
í Aral-vatni að friðlandi villi-
hestanna.
Aðeins eru eftir um 100 Asíu-
villihestar á lífi. 60 þeirra eru
í dýragörðum en aðeins 40 lifa
enn villtir í Asíu. Síðustu Evr-
ópu-villihestarnir, Tarpan, voru
drepnir árið 1879.
Síðar huxur?
Hjá brezkum skátum stendur yf-
ir allsherjaratkvæðagreiðsla um
það hvort brezkir skátar megi
klæðast síðbuxum í stað stutt-
buxna.
Skátarnir hafa kvartað yfir
því að þeir líti hlægilega út í
stuttbuxum.