Þjóðviljinn - 31.12.1960, Side 11
Laugardagxir 31. desember 1960
ÞJÓÐVILJINN — (11
I dag ev laugrarduRur 31. des.
ÍJ amlá rsdagur. Sylvestrimössa.
Tungl hæst á loíti. tl. vika vetr-
ar.. Árdegisháflseðj,! ihL 4.32. iSíS-
deRÍsháfla*,Öi. 16.55.
8.00—10.00 Morgunútvarp. 12.50
öskalög sjúklinga 14.30 Laugar-
dagslögin. 15.20 Ski'ikþáttur. 16.05
Bridgeþáttur. 16.30 Vikan fram-
undan. 16.45 Nýárskveðjur. 18.00
Aftansöngur i Dómkirkjunni.
Prestur: Séra Jón Auðuns dóm-
prófastur. Organleikari: dr. Páll
fsólfsson. 19.10 Isienzk alþýðulög
og álfklög. 20.00 Ávarp forsætis-
róðherra Ól. Thors. 20.20 Lúðrasv.
Reykjavíkur leikur. Páll Pamp-
íchler Pálsson stjórnar. 21.00
„Tunnan valt“: Ýmsir þjóðkunnir
Jistamenn við . hljóðnemann. —
Jóp Múii Árn|.sgg!:. og Thorolf
Sfnith íeita^t við að hafa stjórn
á 'iheiíddr 23.00 ÍHljömsveit Árna
ísleifssonar leikur gömlu dansana.
Söngkona: Margrét Örnólfsdóttir.
2á.3Ó 'Annáll' ársins (Vilhjálmur Þ.
Gis’.ason útvarpsstjóri). 23.55
Silmur. Klukknahringing. 23.55
Áramótakveðja. Þjóðsöngurinn. —
(Hlé). 00.10 Danslög, þ.á.m. leikur
danshljómsveit Árna Elfar. Söng\'-
ari Haukur Mortens. 02.00 Dag-
skrárlok..
Útvarpsdagskráin 1. og 2. janúar
er á 5. síðu.
Prentarar.
Jólatrésskemmtun Hins íslenzka
prentai-aféiags verður haldin i
Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 8.
janúar n.k.
Áttatiu og fimm ára. afmæli á í
dag Ársæll Sigurðsson, Hverfis-
götu 92C, sem um áratugá -skeið
starfaði hjá Kol og salt. .
V !k binfírnr.'i n i
J7 láJo -löri aS, I
Hvassafejli.er j.j^abq.
’ Árnarfell fór 27. þ.ni.
flfl 1 Harriboi'g á’léiðis
til Vestmanneyja.
Jökulfell fór 28. þ.m. frá Reykja-
vík áleiðis til Swinemúnde og
Ventspils. Dísarfell lestar á Norð-
urlandshöfnum. Litlafell losiar á
Norðurlandshöfnum. Hclgafell er
væntanlegt til Riga á morgun frá
Ventspils. Hamrafell fór 28. þ.m.
frá Tuapse áleiðis til Gautaborg-
Aðventkirkjan: guðsþjónusta kl.
5. s. d. á gamlársdag. Háteigs-
prestakall: Áramótamessur í há-
tíðasa.1 Sjómiannaskólans. Gaml-
ársdag aftansöngur kl. 6. Nýárs-
dag messa kl. 2. Séra Jón Þor-
varðsson.
Skugginn og tindurinn : sr
nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Happdrœtti Háskóla Islands
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Sæla Café, Brautarholti 22
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Verzlunin Björn Kristjánsson, Vesturgötu 4
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna áyinu.
Hótel Skjaldbreið, Kirkjustrœíi 8
29. DAGUR.
,.Þér skiljið að það er fyrst
og fremst öryggið sem um er
að ræða.‘‘
Douglas sagði: ..En þér ætlið
þó ekki að senda ungfrú War-
ing burt vegna þess að ég er
fráskilinn og sýndi henni
skólann í gærdag?“
„Nei, og vegna þess sem þér
minntuzt á áðan, væri ef til
vill hægt að finna Jausn. Svo
íramarlega sem þér álítið það
ekki persónuleg aískipti af
yður .....“
„Þér eigið við það, að þér
viljið leyfa henni að vera, en
viljið ekki að ég hai'i samband
við hana?“
Pawley brosti • afsakandi.
..Ég er hræddur um að það
væri töluverð skerðing á per-
sónufrelsi yðar.“
..Gott og vel“. sagði Douglas.
Honum fannst hann vera býsna
meyr, en i gærkvöld hal'ði
hann verið að því kominn að
fara til Júdýar, svo að hann
átti þetta íyllilega skilið. ,,En
hal’ið þér nokkuð við það að
athuga, að ég’ fari og útskýri
þetta fyrir ungfrú Waring.
Henni kann að þykja það und-
arlegt.‘‘
.,Nei, auðvitað ekki,“ sagði
Pawley góðlátlega. Hann virt-
ist hafa gert ráð íyrir meiri
vandræðum. ,.Og mig langar til
að segja yður, að ég er feginn
því að þér komuð og rædduð
þetta við mig, — ekkert hreins-
ar loftið eins og persónulegar
viðræður."
Fyrst ætlaði hann sér aðeins
að senda Júdý skilaboð. en svo
hætti hann við það; hann ætl-
aði að íara í þessa einu leyfi-
legu heimsókn og hann írest-
aði henni þar til eftir te. Allan
dagiim var hann hálímeyr í
skapi; síðdegis urðu vandræði
útaf Silvíu og ekki bætti það
úr skák.
Síðustu dagana höfðu hin
börnin verið samtaka í fram-
kofflu sinni við Silvíu. Þau
höi'ðu haldið fund til að ræða
þaðí og komið sér saman um
að einangra hana í heila viku.
02 framkvæmdu sam-
■ 4* kktifla .méí samvizkusemi. í
skólastofunni og við matborð-
ið létu bau eins og Silvía væri
ekki til, á sama hátt og Duf-
field gagnvart Morganhjónun-
um. Silvía hafði brugðizt við
með áberandi kærulei’si. Sam-
tímis virtist hún vera að velta
fyrir sér, hvernig' hún gæti
aftur vakið á sér athygli —
henni þótti afskiptaleysið ó-
þolandi.
Hún tók þátt í kennslu-
stundinni undir beru loi'ti.
Douglas haíði byrjað á tutt-
ugu mínútna dæmum, sem
börnin tóku sem leik, en voru
þó ekki síður .lærdómsrík en
endursagnir eða stílar. Hug-
myndin var að hefja umræður
um hvernig þau brygðust við
undir ákveðnum kringumstæð-
um. ..Þið fáið að vita að fimm
sterlingspundum hefur verið
stolið af pósthúsinu í þorpinu.
Þið vitið að þjófurinn er við-
felldinn landbúnaðarverkamað-
ur, sem á bláfátæka móður
sem líður skort. Mynduð þið
tilkynna lögreglunni það?“
Þegar börnin höfðu látið í
Ijós skoðanir sínar og flest
verið andvíg því að koma upp
um þjófinn, gerði hann dæmið
flóknara með þvi að segja:
,,En setjum svo að hann hefði
ekki stolið peningunum af
pósthúsinu, heldur frá öðrum
verkamanni og móðir þess
manns myndi svelta ef hann
fengi ekki peningana aftur?“
Ef þau yrðu nú sammála um
að koma upp um þjófinn,
myndi hann gera dæmið enn
erfiðara og segja: ,.En ef móð-
ir mannsins sem stolið var frá
er hörð og grimm við barna-
börn sín, en móðir þjófsins
hefði einu sinni selt eina hatt-
inn sem hún átti til að geta
keypt jólasælgæti handa barna-
börnum sínum ....?“ Þau urðu
sjaldan sammála um hvað gera
skyldi, en þetta gerði sitt til
þess að þjálfa hugsun þeirra
og skoðanir.
Þennan dag hafði hann ekk-
ert dæmi tilbúið, svo að hann
gaf þeim lausan tauminn fneð
hundrað þúsund pund. Ein
stúlkan, sem var ellefu ára,
ætlaði að kaupa alla Jamaica
og gera sjálfa sig að drottn-
ingu. Hann spurði hvað hún
ætlaði svo að gera. .,Ég myndi
taka allt annað kvenfólk áf
lít'i. Drengirnir tveir voru hóf-
legri. Annar ætlaði að nota alla
peningana i stórkostlega flug-
eldasýningu. Hinn lét í ljós
mannkærleika og sagðist ætla -
að kaupa risastórt hús með
lyftum í staðinn fyrir stiga
handa öllu íólki í heimi sem
vantaði annan fótinn. Ilann
spurði Silvlu, hvað hún myndi
gera við peningana og hún
sagði yíirlætislega: „Ég kæri
mig alls ekki um hundrað þús-
und pund.“ Hin börnin litu í
aðra átt og þögðu eins og hún
hefði ekkert sagt. Douglas
sagði, að ef til vill væri þetta
skynsamlegast af öllu, og hætti -
siðan umræðum um málið.
Skömmu síðar reis Silvía á
fætur.
,,Má ég fara, kennari?“
Hann spurði hvert hún þyrfti
að fara.
„Ég þarf að fara á klósettið,“
sagði hún kæruleysislega og'
brosti með yfirlæti, eins og
hún vildi undirstrika að það
væri ekki annað en fyrirslátt-
ur. Hann hikaði ög'n og sagði
síðan: „Jæja. þú mátt fara.“
Hún tók saman bækurnar
sinar og' gekk einbeitt i áttina
að stóra húsinu. Hann hélt
kennslunni áfram. Kortéri
seinna kom Silvía aftur niður
brekkuna. Hún var komin í
sparikjólinn sinn og hélt á
marglitri tösku í hendinni. Hún
gekk framhjá ' éítir stígnum
sem var svo sem tuttugu eða
þrjátíu metra frá staðnum
sem þau voru á. Stígurinn lá
niður að innganginum að skól-
anum. Hún leit ekki á þau
þegar hún gekk framhjá. en
hún hlaut þó að hafa valið
þessa Jeið til þess að eftir
henni yrðÞtekið. Það var hægt
að komast aðra leið niður að
skólahliðinu.
Ákvörðun barnanna um að
láta eins og' hún væri ekki
til, linaðist dálítið við þenn-
an gang málanna. Áhugi þeirra
á kennslunni rénaði líka að
mun. Þau störðu öll ' á eftir
henni.
' Douglas spurði: ,.Er nokkur
sem veit hvert hún er að
fara?“
Það vissi enginn, Þau vissu
það eitt. að hún hafði ekki
fengið leyfi til að iara úr skól-
anum, Þau fóru að tala hvert
upp í - aanað. Hún hlaut að
ætla að Strjúka. Nei — eí hún
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna ái’inu.
Grensáskjötbúðin, Grénsásvegi 26
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Húseigendafélag Reykjavíkur
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Kjöt & fiskur
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Binnabúð, Njálsgötu 26
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Bókabúð Lárusar Blöndal
Gleðilegt nýtt ár!
Þö'kkum viðskiptin á liðna árinu.
Eyjólfur K. Sigurjónsson og Ragnar Magnússon
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Verzlunin Fram, Klapparstíg 37
Gleðilegt nýtt ár!
Þö'kkum viðskiptin á liðna árinu.
Strœtisvagnar Kópavogs
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Gólfslípunin, Barmahlíð 33
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptih á liðna árinu.
Samband íslenzkra berklasjúklinga
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Teppi h.f., Aðalstræti 9