Þjóðviljinn - 16.05.1961, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.05.1961, Blaðsíða 3
- Þriðjudagur 16. maí 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (3 A að eyðileggja mesta og bezta markað íslendinga? Mozgunblaðið játaz að það hafi gerf sig seki urn „landráðaskrif" Um langt skeið hafa Sov- étríkin verið bezti og ör- uggasti markaður íslend- inga. Viðskiptin við þau hafa numið um 500 millj- ónum króna á ári miðað við núverandi gengi, og fyr- ir fiskafurðir okkar höfum við keypt olíu og aðrar brýnar lífsnauðsynjar sem að öðrum kosti hefðu ekki verið fáanlegar nema fyrir harðan gjaldeyri. Þennan markað viröist ríkisstjórnin nú ætla að eyðileggja; hún hefur ekki enn gert neinn viðskiptasamning fyrir þetta ár og ekki selt til Sovét- ríkjanna einn fiskugga. Á sama. tíma og ríkisstjórn- in afrækir gersamlega þennan 6tærsta. markað Islendinga get- ur liún ekki selt fiskafla þjóð- arinnar. Karfaveiðarnar hafa nú verið stöðvaðar að mestu, enda þótt mokafli hafi verið, vegna þess að ríkisstjórnin neitai' að selja aflann! Þetta gerist eftir slika vetrar- vertíð — sem rikisstjómin hefur barmað sér mikið út. af — og þetta gerist á sama tíma sem almenningur, sjávarútveg- urinn og hraðfrystihúsin þyrftu sannarlega á því að halda að fá mikil verkefni. Landráðaskrif játuð Stjórnarliðið finnur fordæm- ingu almennings hvila á sér af vaxandi þunga og viðbrögð Morgunblaðsins eru — eins og venjulega •— stjórnlaus geðbil- unarskrif. í fyrradag æpir blaðið af öllum kröftum: „Landráðaskrif Þjóðviljans: Reynir eð spilla fyrir karfasölu til Rússlands“!! Þegar betur er að gáð eru „landráð" Þjóðvilj- ans í því einu fólgin -— að vitua í Morgunblaðið. Þjóðvilj- inn hefur bent á það að eina skýringin sem Morgunblaðið hefur gefið á því að ekki hefur verið samið við Sovétríkin er þessi: „Islenzki fiskiðnaðiirirn tel- ur sig nú þuri'a að 1‘á söluverð á krafa.niun til Rússlands hælvkað verulega svo að luegt sé að gera skipin út á þessar veiðar. Er þá haft til liliðsjón- ar verðfa.U það, sem orðið hef- ur á fiskiinjöli á heimsniark- að'airm, því um 75% af karfan- um sem á Iand berst fer til ntjölvinnslu“. Maður drukknar af trillubáf út af Kjalarnestöngum Um klukkan 6 síðdegis á laug- ardaginn varð það slys út af Kjalarncstöngum, að maður féll út f trillubátnuin Örnólfur RE-33 og drukknaði. Hann var frá Akureyri og hét Valmundur Svcrrisson. Samkvæmt frásögn eiganda bátsins, Lúðvíks Árnasonar Karfavogi 39, er var með Val- mundi þegar slysið varð. hafði vél bátsins bilað er þeir voru staddir út af Kjalarnestöngum Vélstjórar I verkfalli enn Grimsby 15/5 (NTB) Rúmlega 300 vélstjórar á tog- urum írá Grimsby hafa ákveðið að halda áfram verkfalli til þess að knýja fram hæi-ri laun. Margir vélstjóranna hafa á- kveðið að reyna að fá stöður í landi, ef kauphækkunarkröfum þeirra verður ekki sinnt. Þeir gengu í dag í hóp til skrifstofu útgerðarmanna til þess að sækja skattaskírteini sín, en þau þurfa þeir að sýna nýjum vinnuveit- endum. Stéttarsamband vélstjóranna .Vtlar að beita refsingum gegn þeim félagsmönnum, sem gerð- ust verkfallsbrjótar með því að fara til veiða með togurum s.l. sunnudag. um sex leytið. Segist Lúðvik haí'a verið að íást við vélina og re.vna að koma henni i gang og ekkert vitað fyrr en hann varð þess allt í einu var, að Valmund- ur var horfinn úr bátnum. Lúð- vík sá Valmund hvergi í sjón- urn og varð þess ekki var, er hann fór fyrir borð. Kallaði Lúðv.'k á nálæga báta til að- stoðar og leituðu þeir Valmund- ar lengi í sjónum en árangurs- laust. Lúðvík tilkynnti lögreglunni í Reykjavík um slysig þegar er hann kom í Iand á laugardags- kvöldið. Rannnsókn málsins hefst fyrir sjórétti í dag kl. 2 e.h. Skýring Morgunblaðsins var þannig sú að ríkisstjórnin heimtaði að Rússar greiddu hærra verð fyrir karfann — vegna þess að verð á karfa- n-.jöii hef'ði lækkað á hinum vcst rænu mörkuðum! Slíkur rökstuðningur hefur aldrei heyrzt fyrr i sambandi við við- skiptasamninga, enda ko’nst Þjóðviljinn þannig að orði um þessa skýringu Morgunblaðs- ins: „Skrif Morgunblaðsins — hvort sem þau eru sönn eða login — virðast til þess birt að spilla samningunum og gera aðstöðu Islendinga tortryggi- lega“. Nú finnst Morgunblaðinu þetta ekki nógu þungur á- fellisdómur; þetta skulu hcita landráðaskrif — jafn- vel hjá þeim sem aðeins vitn- ar í þau. Og raunar m.á Morgunblaðið gerzt um það dænia. Dómur ekki umflúinn Það sýnir bezt hvernlg Morgunblaðsmenn eru á sig komnir að þeir skuli halda því fram að Þjóðviljinn reyni að spilla samningum við Sovélrík- in — hingað til hefur blaðið sannarlega haldið því fram að Þjóðviljinn væri allt of hlynnt- ur þeim viðskiptum! Enda veit hvert mannsbarn í landinu að það er afrek Sósíalistaflokksins að hafa tryggt íslenlingum hina miklu noarkaði í Sovét- ríkjunum. Og sósialislar hafa ekki aðeins Iryggt mikla mark- aði þar í lar.di heldur einnig það verð sem hæst hefur verið fáanlegt á heimsmarkaðnum. Þau viðskipti hafa tryggt Is- lendingum mun hærri gjald- eyristekjur en þeir hefðu ella haft og vegna þeirra hefur ver- ið full atvinna í landinu um langt skeið. Það eru þsssi viðskipti sem ríkisst jórnin er nú að eyði- leggja, og áfel.lisdómurimi verður ekki umflúinn hversu mjög sem Morgunblaðið gólar. I Feneyjum opnast ferðamsnniniun sýn inn, í töfraheini fornrar fcgurðar og frægðar. Knn scm fyrr eru bátar helzta sam.göngu- tækið. Þátttakendur í ferð Útsýnar s'.íga um borð í gondól i við brottför frá Feneyjum. opferðir Ötsýn- í sumar Kind við Hafravafn lá fösf í vírflœkju í nokkra daga Fyrir helgina voru tveir menn á ferð hjá Hafravatni og sáu þeir þá hvar kind lá föst i vír allhátt uppi i íjallinu. Er þeir koniu að kindinni var mjög af henni dregið og álíta þeir að hún hafi verið föst í vírnum í nokkra daga. Menn- irnir fóru að Miðdal og skýrðu írá þessu. Bóndinn í Miðdal taldi að kindin væri eign þónda, sem ætti nýþýli hjá Hafravatni og sagðist skyldi láta hann vita um kindina. Mennirnir fóru siðan til Re.vkjavíkur, en héldu síðan aítur uppeftir og þá með byssu. Er þeir komu að kindinni var búið að skjóta hana, en eig- andi hennar hafði ekki fyrir því að dysja hana, heldur lét hana liggja. Mennimir skýrðu Þjóðvilj- anum frá því að þarna um- hverfis væri mikið um vír, sem hefur legið þarna frá því her- inn haíði þarna bækistöðvar. Sögðust þeir vera forviða á því að ekki skuli vírinn enn hafa verið hreinsaður burt því hann væri stórhættulegur skepnum, ;ins og þetta dæmi sannar. Ferðafélagið íítsýn gengst að vanda fyrir hópferðum til ýinissa Evrópulanda í sumar. Auk ferða, scm skipulagðar eru fyrir ákveðna hópa, verða þrjár almennar liópferðir á mismunandi leiðum um sjö lönd álfunnar. Þetta er sjöunda starfsár félagsins, og liafa ferðir þess notið trausts og vinsælda, sem bezt má marka. af því, að margir hafa tekið þátt í 2—3 ferðum félagsins á þessum tíma. Sumarferðir Otsýnar eru þessar: Tólf da.ga ferð: Edinborg — London Siglt verður með Gullfossi milli landa og dvalizt viku- tima í Bretlandi. Frá Edin- borg verður ekið suður um Skotland og gegnum hið fagra Lake District í Norður-Eng- landi, gist í Buxton, en ferð- inni haldið áfram næsta dag Imn fæðingarborg Shakespeares, ; Stratford-on-Avon, háskóla- j borgina Oxford og Wirdsor til London. Þar verður gist í 4 daga, farið í kynnisferðir um jborgiiia undir leiðsögn íslenzks fararstjóra, á skemmtistaði og í verzlanir. Á heimleiðinni verð- ur dvalizt einn dag 'i Edinborg, en síðan siglt heim með Gull- fossi. I hópferðum sem þess- ari er jafnan haldi'ð uppi gleð- skap á skipinu með dansi, söng og myndasýningum. Hér er um mjög ódýra ferð að ræða, eða frá rúmum sex þúsund krón- um að meðtöldum ferðum og fullu uppihaldi. 25 daga fcrð Siglt verður með Gullfossi til Leith og Kaupmannahafnar, dvalizt 3 daga í Höfn, en síð- an ferðazt um meginlandið i dönskum largferðavagni af nýjustu gerð. Gist verður 2 nætur í Hamborg, en síðan haldi'ð suður í Rínarlönd og stanzað á mörgum fegurstu stöðum við Rín. •Þá verður haldið til Heidel- berg. hinnar glaðværu Jiáskóla- borgar og dvalizt þar einn dag. S'íðan ekið suður um Svarta- skóer. Freudenstadt og Triberg, skoðaðir Schaffhausenfossarnir í Rín. stærstu fossar Evrómx, oe: haldið til 7/irich í Sviss. Rvísis cr ern cem f vrr- p.itt eftirscttasta ferðamannaland álfumiar sakir frábærrar feg- urðar landsins og ágætar þjóxi- ustu við feðamenn. Dvalizt verður viku í Sviss og komið á marga fegurstu staði lands- ins, s.s. til Luzern, Viei’tvald- státter See, Interlaken, Bern, Lausanne og Gerif. Frá Genf verður ekið um Frakkland^ til Parísar og gist þar i 4 nætur. Skoðaðar verða merkusíu byggingar borgarinnar, heim- sctt listasöfn og skemmtistaðir og farið til Versala. Heim verð- ur haldið flugleiðis hinn 2?. ágúst, en þeir, sem óska, geta orðið eftir í París eða Losdon og komið heim með annarri ferð. 22 daga ferð í september Fyrsta Ital'íuferð 'Otsýnar Framhald á 10 s'íðu. Ráðstefnan um Laos hafin Genf 15/5 — Ráðstefr.a 14 ríkja um Laos verður formlega sett á þrið.judag kl. 16 eftir ís- lenzkum tíma, segir í opinberri tilkynningu irá utanríkisráð- herrum Sovétrikjanna óg Bret- lands, sem hafa forsæti á ráð- stefnunni. Áður hafði Dean Rusk uta.n- ríkisráðherra USA, sem er for- maður bandarísku sendinefndar- innar, tilkynnt að Bandaríkja- stjórn féllist á að fulltrúar PnthetLao-hreyfingarinnar taki þátt í ráðstefnunni. Þá tilkynnti talsmaður hægri stjórnarinnar í Vientiane að fulltrúar þeirrar stjórnar myndi ekki taka þátt í ráðstefnunni vegna nærveru íull- trúa Pathet Lao. Hjólum stoliö í fyrrinótt voru tveir menn staðnir að verki, er þeir voru að stela felgum undan bíl, er stóð v:ð bifreiðaverkstæði við Kringlumýrarveg. Þetta var um kl. þrjú urn nóttina og voru þeir settir í kjallarann. Nóttina áður var stolið íelgum og hjólbörð- um undan Chevroletfólksbifreið, sem var í bifreiðaverkstæðinu að Skipholti 37. Þar var einnig stol- ið rafmagnsslípivél.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.