Þjóðviljinn - 15.06.1961, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 15. júní 1961 — ÞJÖÐVILJINN — ífe
•JTSW6R1:
yrnumennirnir
K.S.Í. hafði í gær boð fyr-
ir fréttamenn að Hótei Borg'
og vor þar skýrt 1'rá komn
hollenzka landsliðsins. Fyrir
hönd K.S.Í. skýrði Guðmund-
ur Sveinbjörnsson frá því
að undirbúningur keppninn-
Um daginn var þess getið
að Rússinn Taran hefði sett
heimsmet á 3000 m hindrunar-
hlaupi, en á móti þessu náðu
fleiri athyglisverðum árangri.
Voru það 6 sem hlupu undir
8,45 mín. en þeir voru Nor-
odriisky 8,39,0, Sokalov, 8,40,2,
Jevdokomoff 8,40,2, Osipoff
8,43,9, og sjötti var fyrrver-
andi heimsmethafi Rhisjin
8,44,8.
ar hefði byrjað fyrir tveimur
árum og að hollenzka knatt-
spyrnusambandið væri með
elztu sambönduin í Evrópu og
stæðu að því 3—4000 félög
og virkir meðlimir væru 300
þúsund.
Hollendingarnir koma
hingað sunnudaginn 18. júní
og fara laugardaginn 24.
júní. Menntamálaráðherra
liefur ákveðið að fara með
]iá í ferffalag og bæjarráð
mun bjóða þeim til hádegis-
verðar, ennfremur hefur hol-
lenzki konsúllinn boðið þeim
í eftirmiðdagskaffi.
í förinni eru 24 menn, en
á vegum K.S.Í. eru 20 menn,
fjóra menn muiiu Hollending-
ar kosta að öllu leyti. Enn-
Þrír Hollendingamia leika
sinn fyrsta landsleik hér
Hollenzka liðið er þannig:
Van Zanten markvörður,
Quaedaekers, h. bakv.
Hersche, v. bakvörður
Libregts, h. framv.
Molenaar, miðframvörður
Zinnemers, v. framvörður
Brand, li. útherji
Hainje h. innherji
Kerens, miðframherji
Roseboom, v. innherji
Weber, v. úlherji.
Þelta er áhugamannalið
og eru leikmenn yfirleitt
ungir. E'.ztur er miðfram-
yörðurinn Molenaar, 32ja
rára, og yngstur er vinstri
útherjinn Weber, sem er 19
ára. Hægri framvörðurinn
Libregts hefur leikið
flesta lardsleiki, eða 7
alls. Þrir þeirra sem eru
í landsliðinu hafa ekki áð-
ur leikið landsleik, mark-
maðurinn, miðframherjinn
og vinstri framvörðurinn.
fremur gat Guðmundur þess
að samskipti við Hollendinga
liafi verið öll hin ánægju-
legustu, en hvort íslenzka
landsliðið myndi leika í Hol-
Iandi yrði ákveðið súðar.
HoIIendingarnir búa á
Hótel Garði meðan á dvöl
þeirra stendur.
Forsala aðgöngumiða hefst
17. júní við Útvegsbankann.
B 1913 Danmerk-
urmeistari í
knattspyrnu 1961
Dönsku knattspyrnukeppn-
j inni í fyrstu deild er nýiok-
ið og fcru leikar þannig að
1B-1913 frá Cdense sigraði, og
þar með tryggði liðið sér rétt-
inn til þess að taka þátt í
keppninni um Evrópubikarinn,
sem er orðið mikið keppikefli
til viðbótar við það að sigra
og verða meistari lands síns.
Síðasta dag keppninnar lék
B-1913 við AGF og fóru leik-
ar þannig að B-1913 vann með
3:0, og fékk sömu stigatölu og
KB eða 16 stig eftir leikina,
eii B-1913 hafði betra marka-
hlutfall. AGF varð í þriðja
sæti með 15 stig.
Síðan komu: Esbjerg 14,
B-1909, B-1903 og Fredriks-
havn 11 hvert, Köge 10, OB og
Veilje 8 og AIA og Skogs-
hoved með 6 hvort.
Keflvíkingsr
sigursælir í
yngri flokkum
í Keflavík og Njarðvíkum
var mikið fjör í knattspyrnunni
um síðustu helgi. I fyrsta lagi
leikur annarrar reildarinnar,
sem Keflavik tapaði fyrir
Þrótti heldur óvænt.
Þann sama dag komu í heim-
sókn þrír flokkar frá Hafnar-
firði og kepptu þeir við jafn-
aldra sína í Keflavík. I fimmta
flokki skildu flokkarnir jafnir,
1:1.
1 fjórða flokki sigruðu Kefl-
víkingar 3:1, og einnig í þriðja
flokki unnu Keflvíkingar 5:1.
Þá keppti B-lið Keflavikur
við A-lið Njarðvíkur og fóru
Ieikar þannig að jafntefli varð
2:2.
Yfirleitt eru flokkarnir efni-
legir hér og með góðri æfingu
má mikils af þeim vænta.
Mr—X.
íþróttevike FRI
er 10.-17. júní
íþróttavika FRf fer frain
dagana 10.—17. júní. Keppt er
í 100 og 800 m hlaupi, lang-
stökki og kringlukasti fyrir
karla og 100 m hlaupi, lang-
stökki og kúluvarpi kvenna.
Til að fá 1 stig er lágmarks-
árangur 16.0 — 3:00,0 3.80 og
17 fyrir karla og 18,0 — 2,60
og 4 fyrir konur.
Keppnin er-, annars vegar
milli kaupstaða og hins vegar
milli héraðssambanda. Sem
flestir ættu að taka þátl í þess-
ari f jöldaíþróttakeppni, því
fullhraust fólk ætti ekki að
vera í neinum vandræðum með
að næla sér í stig — eitt eða
fleiri í hverri grein.
Sitt af hverju
Á sama móti vann Artinjuk
1500 m á 3,45,8. Á sama móti
kepptu einnig beztu frjálsi-
þróttakonur Rússa og var ár-
angur þeirra bezti árangur i ár.
Tugþrautarmaðurinn Kuten-
ko náði 8127 stigum, og var ár-
angur hans mjög jafn og góður,
en þó beztur í stöng og sþjót-
kasti. Árargur: 11,0 — 7,17 —-
15,08 — 1,83 — 50,6 — 14,9 —
45,83 — 4,20 — 72.19 — 4,45,4.
Því er spáð p.ð það verði erfitt
fyrir Bandar'ikjamenn að sigra
Rússa í þessari grein í sumar,
eða vera á toppnum í henni,
þar sem sagt er að Rafer John-
son sé hættur keppni, og afl
Formcsu-maðurinn Chuan er
sagður í mjög góðri þjálfun.
Bandaríkjamenn hafa ekki
náð sérlega góðum árangri f
ár í tugþraut, því bezti árarg-
Ur sem frézt hefur þaðan er
7809 og þeim árangri náði ó-
bekktur tugþrautarmaður, Paul
Hermaci að nafni.
Bill Nieder er byrjaður sem
hnefaleikari og þv'i úr kúlu-
hringnum fyrir fullt og allt.
O’Briem hefur lítið gert að
því að varpa kúlunni, en hefur
mest kastað kringlu, en tekur
brátt til við keppnina, og er
hann reyndi um dagirn varpaði
hann rúman hálfan nítjánda.
metra.
Sá kúluvarparinn sem mesta.
athygli vekur af þeim sem eru
á uppleið er Silvester, og not-
ar hann hvert tækifæri til þess
að takp. þátt í henni. Hefur
hann þegar kostað nokkuð á
19. metra og kringlu hefur-
hann kastað 56,64.
utan úr heimi
VIÐUNDRID I HAFNARHRM
Framhald af Y. síðu.
Kristján. Nú er ekki verið að
fara fram á að semja um íull-
ar kröfur verkamanna, heldur
gera samninga á sama grund-
velli og Vinnumálasamband
samvinnufélaganna og bæjar-
stjórnir Húsavíkur, Akureyrar,
Siglufjarðar og Kópavogs hafa
þegar samið um. Kristján
færði síðan frekari rök að þvi
að samningar nú væru beinir
hagsmunir Hafnarfjarðarbæj-
ar og skoraði á alla fulltrúa
Alþýðuflokksins að samþykkja
að semja við Hl:f.
Kristján Andrésson krafð-
ist svara við því hvað fulltrú-
ar Alþýðuflokksins ættu við
með svari sínu, að bærinn
hefði ekki efni á að semja, á
sama tíma og þeir viðurkenndu
að samið yrði um þau kjör
sem nú stæði til boða, og hvort
það þýddi að þeir ætluðu að
segja af sér stjórnarforustu í
bænum þegar samið hefur ver-
ið við verkamenn eftir fáa
daga.
Kristinn Gunnarsson, forseti
bæjarstjórnar, sem talaði næst-
ur neitaði því að þeir ætluðu
að afsala sér fprustunni, og
færði engin rök fyrir því að
bærinn hefði betri efni á að
semja eftir nokkra daga og
gat eng'a ástæðu tilfært fyrir
því að semja þá ekki nú þegar.
Hann viðurkenndi að til boða
stæðu samningar á sama
grundveili og bæjarstjórnirnar
fyrir norðan og í Kópavogi
hafa samið um, en kvað Hafn-
arfjarðarbæ hafa, nema 1955,
haft þá afstöðu að semja ekki
fyrr en Vinnuveitendasamband-
ið liefur gert sainniiiga. Þá
kvað hann núverandi rikis-
stjórn hafa tekið upp „nýjan
efnahagsgrundvöll“ (!) til að
bæta kjör verkamanna og
,,mun velta xá 'giítu verkalýðs-
íélaganna hvort þau taka tillit
til breyttra þjóðfélagshátta",
sagði hann, þ.e. hvort þau við-
urkenna ..viðreisnina", -— þ.e.
mestu kjaraskerðingu sem gerð
hefur verið. — sem kjarabót
fyrir verkamenn!! Kristinn
sneiddi hjá að ræða afstöðu
þeirra bæjarfélaga fyrir norð-
an sem þegar hafa samið, en
hreytti ónotum i Kópavogs-
kaupstað fyrir að hafa skorað
á Haínarfjarðarbæ að semja
við verkamenn! „Það er full-
komin hræsni að segja að það
sé skortur á skilningi á hags-
munum verkamanna að Al-
þýðuflokkurinn í Hafnarfirði
hefur ekki viljað semja við
verkamenn“, sagði Kristinn.
„En væri það ekki móralsk-
ur stuðningur við verkamenn
að bærinn semdi?“. „Jú vissu-
lega“, sagði Kristinn. Síðan
fimbulfambaði hann um að
ekki væri hægt að semja við
verkamenn. Væri kaupið hækk-
að meira en um 6% ógnaði
hann verkamönnum með því
að hleypt yrði af stað nýju
dýrtíðarflóði. Meginkjarninn í
þessu langa máli hans var.
eins og hann komst að orði:
Það er „fávizka“ úr verka-
mönnum að krefjast meiri
kauphækkunar en 6%. Jafn-
framt fáraðist hann yfir að
kjör bænda myndu batna við
samningana!
Jafnframt viðurkeimdi liann
að á næstunni myndi verða
samið yfirleitt við verka-
inenn á sama grundvelli og
Vinnumálasamband sam-
vinmifélaganna og bæjar-
stjórnirnar fyrir norðan og
í Kópavogi liafa þegar gert.
Og þá myndi Hafnarfjarð-
arbær vitanlega semja á
þeiin grundvelli líka (nema
þessu viðundri detti í liug
eilífðarverkfall við Hlífar-
meiuí!). Samt mátti Hafn-
arfjarðarbær með engu móti
semja nú!
Kristinn neitaði því að
það væru hagsmunir verka-
manna og hagsmunir bæjar-
félagsins að semja við
verkamenn nú — á sama
grundvelli og gert yrði síð-
ar. Það er sama að segja
að sem Iengst verkfall sé
liagsmunir hafnfirzkra
verkamanna og Ilafnarfjarð-
arbæjar!
Kristinn Gunnarsson túlkaði
sjónarmið atvinnurekenda og
íhaldsins með slíkum ágætum
að forustumaður íhaldsins í
bæjarstjórninni, Stefán Jóns-
son, þurfti ekkert að segja,
heldur sat allan tímann og
brosti í kampinn og lét Pál
V. Daníelsson lýsa yfir jái og
ameni við röksemdafærslu bæjj
arstjórnarforseta kratanna!
Fyrir fundinn höfðú einstak-
ir bæjarfulltrúar Alþýðuflokks-
ins sagt að þeir teldu rétt að
semja. Kristján Andrésson
skoraði eindregið á þá fulltrúa
að bregðast ekki málstað
verkamanna, þeirrar alþýðu
sem hefði kosið þá. En þeir
reyndust ekki menn til þess,
heldur völdu þann kost að
hlýða rikisstjórninni og Vinnu-
veitendasambandinu, því nú
lýsti Árni Gunnlaugsson yfir
því að bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins stæðu allir sem einn
maður með því að NEITA að
semja við verkainenn. — neita
að gera þá samninga nú sem
þeir viðurkenndu að yrðu-
gerðir síðar!! „Það er fullkom-
ið ábyrgðarleysi að semja nú“„
sagði Árni.
Kristján Andrésson lauk
máli sínu á fundinum á þessa:
leið: Þótt ekki verði sam'ð nú
þá hafa verkamcnn ekki beðið
ósigur, heldur tapað orustu. Ég
er kosinn af verkamönnum,
lief mestan liluta ævinnar ver-
ið verkamaður og skil þörf
þeirra á kjarabótum. Engar
ögi-anir geta fengið mig af því
að lialda uppi þeirra baráttu-
Og þótt við töpum þessari or-
ustu hljótum við alltaf að-
vinna sigurinn.
Undir þessi orð hans tóku:
Hlifarmenn í salnum með dynj
andi lófaklappi.
Að loknum umræðum var til-
lögu Kristjáns Andrésonar urrt
sérsamninga við Hlíf vísað frá.
með 8 atkvæðum krata og í-
halds gegn atkvæði Kristjáns.
Þá flutti hann tillögu um ,.að'
fela bæjarráði að taka upp’
viðræður við Hlíf með það
markmið að kjarasamningar-
verði gerðir.“
Kristinn Gunnarsson kvað;
„ekki leyfilegt“ að greiða at-
kvæði um slíka tillögu (!) og:
NEITAÐI að bera hana upp..
Var sá úrskurður hans stað-
festur af krötum og íhalcs-
mönnum gegn atkvæði Krist-
áns. J.B,