Þjóðviljinn - 14.07.1961, Síða 9

Þjóðviljinn - 14.07.1961, Síða 9
Föstudagur 14. júlí 1961 ÞJÓÐVILJINN (ft. drengirnir Eins og gclið hefur verið í fréttum bauð Knattspyrnufé- Iagið Valur hiiigað knattspyrnu- flokki — þriðja flokki — frá ' KFUM-Bo'.dklub í Kaupmanna- höfn í íiiefni af 50 ára afmæli félagsins. Þetta eru því að nokkru leyti systrafélög, þar sem ba>ði eru á vissan hátt tengd KFUM. Lið þetta fór liéðan án þess að tapa leik og kemur það ekk- ert á óvart, ef litið er á þá knattspyrnu sem þeir sýndu. Þeir Iéku hér 4 leiki og fóru þeir þannig: Valur 2:4, Fram 0:0, KR 1:4 og Valur 2:3. Höfðu gestirnir þannig sett 11 mörk, en fengið 5. Á lieimleiðinni Iéku þeir við Havnar Boltfélag i Færeyjum og unnu það 3.0. Þessir ungu menn iéku létta og leikandi knattspyrnu og Islandsmet í 3000 m hindrhí. Kristleifur Guðbjörnssion setti nýtt Islandsmet í 3000 m himlrunarlilaupi fyrri dag fjögura landa keppninnar á Bislet í fyrrakvöld. Hann hljóp .á 9.06.8, en gamla metið var 9,07,6. Kristleifur sýndi þarna mikla keppnis- hörku, því liann var rétt á eftir fyrsta manni, Norð- manninum O. Ellefsæter, sem féklr 2/10 betri tíma. sýndu Jeikni, seni ætti að vera góður lærdómur jafnöldrum þeirra hér heima. Það er at- hyglisvert. að þau tvö lið frá Danmörku, sem leikið hafa hér í sumar. og einnig má vitna í úngiingaiið frá Bagsverd sem verið haía hér áður, sýna meiri leikni og skilning’ á því hvað knattspyrna er. Þetta er at- hyglisvert fyrir þá sem ann- ast kennslu þessara flokka og þó öllu fremur fyrir þá sem leiðbeina þeim í upphafi í fimmta og fjórða flokki. Er vafalaust að þessum at- riðum er ekki nógur gaumur gefinn í knattspyrnufélögunum, og ekki lögð sú áherzla á þessi atriði sem gert er t.l. hjá Dön- um. ★ 18 unglingalið í KFUM-Boldklub í hóíi sem Valur hélt gestum sínum kvöldið áður en þeir fóru, en þeir héldu heim s.l. % laugardag, ræddi fréttamaður Iþróttasíðunnar við unglinga- leiðtoga þann. sem með drengj- unum var. Flemming Grandt. Var hann mjög ánægður með ferðina hingað og taidi að drengirnir heí'ðu séð margt sem þeir myridu lengi minnast. Þeir hefðu kunnað því' vel að búa heirna hjá jafnöldrum sínum í Val. Hann sagði ,að rnikill fjöldi . drengja æfði knattspyrnu með KFUM-Boldklub, og til marks um það . væru þar starfandi íirrim sveitir á aldrinum 10— 12 ára, fimnv. 12—14 ára og íimm 14—16 ára. Auk þess væru 3 lið í öðrum flokki 16 til 18 ára. Yfirleitt væri einn maður með hverjum flokki og stundum tveir, og það væri æskilegt, til þess að drengirn- ir fengju þá kennslu og um- önnun sem með þyrfti. Hann sagði einnig að i ald- ursflokknum 18 ára og eidri væru 7 sveitir. ★ Foreldrafélagið styrkir ferðina Hann gat þess að innan fé- lagsins staríaði svonefnt ío.r- eldrafélag, þar sem foreldrar þeirra ungu drengja. sem æfa knattspyrnu innan KFUM- Boldkjub. koma saman og ræða Framh. á 10 síðu Yngsti þáfttakandinn í mótinu, Elín Óskarsdóttir, tók á móti bikarnum fyrir Husin sem Kaupfélagið F'ram Neskaupstað gaf til keppninnar. (Ljósm. g. s: Mjólk í pelahyrnum liefur hækkað um 15 aura eða 60 aura lítrirm Eins. og. k'unnugt er hækkaði mjólkurlítrinn um 12 aura nú nýverið. Ýmsir munu hins vegar haía veitt því athygli og íurðað síg á því, að mjólkurpeiinn í hyrnum hefur hækkað um .15. aura eða 60 aura lítrinn. Þjóð- viljinn snéri sér til Mjólkursam- sölunnar í gær og spurðist. i'yr- ir um það, hvernig . stæði á þessari miklu hækkun á pelan- um af hyrnumjólk. Fékk blaðið bað svar. að vorið 1960, þegar mjólkurverðið hækkaði m.a. vegna hækkaðs umbúðakostnað- ar af völdum gengislækkunar- innar, hefði pelahyrnan ekki hækkað eins og önnur mjólk. sökum þess að Mjólkursamsalan átti þá svo mikiar gamlar byrgðir af umbúðum af þessari stærð. Síðan hefur ekki orðið hækkun á pelahyrnum, þótt gömlu umbúðirnar séu þrotnar. Var tækifærið nú notað, er mjólkin hækkaði almennt, til þess að taka umbúðahækkunina LeiSrétflng í blaðinu í gær voru taldir upp markhæstu einstaklingar í Reykjavíkurmótinu. í þessari upptalningu féll niður marka- fjöldi Helga Árnasonar Þrótti og Guðmundar Óskarssonar Fram, en þeir gerðu 3 mörk hvor. Ennfremur gerðu Ellert Schram KR og Björgvin Árnason Fram 2 mörk hvor. inn í verðið, eins óg áður haíðf verið gert við mjólk selda i öðru máli. Mjólk í pelamáli er- nú aðeins seld í hyrnum og: kostar nú kr. 1,15,' hálípottur mjólkur er hins vegar aðeins'. seldur á flöskum og kostar kr» 1.68.' Er selt það lítið af mjólk í þessum málum. að ekki svar- ar kostnaði að hafa tvenns kon,- ar umbúðir. Mjólkurpottur er- hins vegar seldur bæði í hyrn— um á kr. 3.92- og á flöskum á kr. 3.52. Eru hyrnurnar dýrari umbúðir en glerið og verðmun— urinn á pottinum því ,40 aurar. Meistaramótið haldið 20.—22. Meistaramót Islands í frjáls-- um íþróttum fer fram á Laug- ardalsvellinum í Reykjavík,. dagana 20.—22. júlí n.k. Keppnisgreinar eru: Hlaup: 100 m, 200 m, 400 m, 800 m, 1500 m, 5000 m, 110 m grinda- hlaup, 400 m grindahl., 3000 m hirdrunarhlaup, 4x100 m boð-- hlaup, 4x400 m boðhlaup, lang- stökk, þrístökk, hástökk, stang- arstökk, kúluvarp, kringlukast, spjótkast og sleggjukast svo og iimmtarþraut. Þátttökutilkynningar skulft hafa borizt í pósthólf 1099, R- vik, eða til Arnar Eiðssonar í síðasta lagi 18. júlí 1961. (Frjálsíþróttasamband ísl.)v firði.en þar er vaxandi íþrótfaáhugl Sundmót Austurlands haldið af tilhlutun U.Í.A., fór fram í sundhöll Seyðisfjarðar dagana 24. og 25. júní. íþróttafélagið Huginn á Seyðisfirði sá um mótið. Aðeins tvö félög sendu þátttakendur á mótið, Huginn á Seyðisfirði og Ungmennafélag Stöðvarfjarðar. — Keppendur voru 24. Austfjarðameistarar urðu: 100 m frjáls aðf. karla: Þorsteinn Magnússon H. 100 m baksund karla: Gunnar Guðna- sambandsþings UHFI 22. sambandsþing Ungmenna- félags íslands var haldið að Laugum í S-Þingeyjarsýslu dagana 28. og 29. júní 1961. Sambandsstjóri UMFÍ, séra Ei- ríkur J. Eiríksson setti þingið með ræðu. Gestir þingsins voru Benedikt G. Waage, for- seti ÍSÍ og Pétur Sigurðsson erindreki. Forseti ÍSÍ ávarp- •aði þingið og Pétur Sigurðsson flutti ræðu um bindindísmái. Forsetar þingsins voru Jón Hjartar og Ketill Þórisson, en ritavar Tómas Jónsson og Sveinn Jónsson. Helztu mól sem lágu fyrir þinginu voru: íþróttamál, starfsíþróttir, bihdindism'ál, skógræktarrþál, félagaheimilin og rekstur þeirra, félagslegt uppeldi. í dag og næstu daga verður getið um helztu samþykktir þingsins. Samvinna við héraðsskóla 22. sambandsþing UMFÍ þakkar störf héraðsskólanna og alþýðuskólans að Eiðum að málefnUrii ungmennafélaganna. Þingið hvetur ungmennafélögin að viðhalda þessari sámvinnu og eíla samstarf við aðra skóla landsins með tilliti til þess að samstarf þessara aðila verði báðum til góðs og æsku landts- ins til. uppörvunar og aúkifis þroska. Iþróttakennsla Þingið fagnar samstarfi Iþróttakennaraskóla íslands og sérsambandanna um námskeið fyrir iþróttaleiðbeinendur og vekur athygli héraðssamband- anna á þessum nýj.a þætti í- þróttastarfsins. Jafnframt hvetur þingið hér- aðssamböndin til þess áð styðja sem bezt rná verða stöðuga í- þróttakeftrislu hjá ungmenna- félögunum með umferðar- kerinsiu í samvinnu við skóla; aukinni iþróttastarfsemi með- al barna og Teiðbeiningum og iþróttamótum; námskeiðum sem standa um' nokkurt skeið; héigarnárri'skejðurri ög leiðbein- endaft.ámskéiðum. son U.S. 200 m bringusund karla: Árbjörn Magnússon H. 1000 m frjáls aðf. karla: Gest- ur Björgvineson H. 50 m frjáls aðf. kvenna: Stella Ólafsdóttir H. 50 m baksund kvenna: Jór- unn Jóhannsdóttir U.S. 100 m bringusund kvenna: Jórunn Jóhannesd. U.S. 50 m frjáls aðf. drengja: Hákon Halldórs- son H. 100 m bringusund drengja: Hákon Halldórsson H. 500 m frjáls aðf. drengja: Há- kon Halldórsson H. 50 m frjáls aðferð stúlkna: Guð- finna Gunnþórsdóttir H. 100 m bringusund stúlkna: Guðfinna Gunnþórsdóttir H. 500 m frjáls aðf. stúlkna: Guðný Kristjáns- dóttir U.S. Boðsund karla 4x50 m frjáls: Sveit Hugins. Boð- sund kvenna 4x50 m frjáls: Sv. Hugins. Mót þetta er einnig etiga- keppni milli félaga, og hefur Kaupfélagið Fram Neskaupstað gefið forkunnarfagran bikar til keppninnar, skal hann vinn- ast til eignar, ef mótið vinnst þrisvar í röð eða fimm sinnurn alls. Hlaut íþróttafélagið Hug- inn 97 stig, en Ungmeimafélag Stöðvarfjarðar 32 stig. í lok mótsins, afhenti form. UÓA, Kristján Ingólfsson, íþróttafé- laginu Hugin, bikarinn til varðveizlu í eitt ár, og tók á móti honum fyrir Hugin, yngsti þátttakandinn á mótinu,„ Elín Óskarsdóttir. Hér á Seyðisfirði hafa íþrótt- ir legið all lengi niðri, en nú fyrir skömmu hefur íþróttafé- lagið verið endurvakið með Hákon Halldórsson sigraði í þrem drengjasun dum. miklum áhuga, fyrir tilstúð’an Þorvaldar Jóhannssonar í- þróttakennara. Hér hefur um skeið dvalizt iþróttakennari fiá Frjálsíþróttasambandinu á veg- um íþróttafélagsins, og munu jnokkrir þátttakendur fara hcð- (an á iþróttamótið að Laugur.-i- (Frá fréttaritara Þjóðv. G.S.)*.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.