Þjóðviljinn - 03.09.1961, Síða 4
Pétur SumarliSason:
Sérmenntuðum kenn-
urum íækkar stöð
Ég gat þess áður, að yfirleitt
heíði almenningur ekki látið í
ljósi miklar áhyggjui' vegna
þeirrar þróunar, sem orðið
hefur í fræðslumálunum. Satt
er það að vísu, að hæstvirt
Aiþinai tók þessi mél eitt sinn
til meðíerðar og var þá helzta
xirlausn þess, að menn skyldu
hafa leyfi til að vinna sig inn
í kennarastéttina. án þess sér-
stakt nám kæmi til greina. Á
síðastliðnum vetri fjallaði Al-
þingi okkar um skort á lærð-
um læknum í hin erfiðari
læknishéruð og þá kom ekki til
greina, að menn gætu unnið
sig inn í þá stétþ með 10 ára
xeynslu í lækniskukli. þótt
slíkt hafi reyndar lengi þjónað
mannkyninu, sé eitt elzta fyr-
irbrigði læknislistarinnar. Nú
má vera. að örkuml á sálinni
-séu öllu hættuminni samfélag-
inu, heldur en mismeðfarnir
sjúkdómar, það er að minnsta
hosti greinilegt að meiri kröfu
þarf til þeirra að gera er um-
gangast líkamann. en béirra,
er eiga að taka við lítt mót-
uðum barnssálum og hafa um-
sjón með beim um fleiri ára
bil.
Að vísu varð raunin sú, að
Alþingi felldi eða lét daga
nppi úrlausnina um réttindi
án náms og lét þar með útrætt
um þetta eíni.
Það er og l:ka eftirtektar-
vert. að það eru að mestu
lcennarar, sem halda uppi
sífri um það, að einhver hætta
sé á ferðum — að visu hafa
nokkrir merkismenn. eins og
yfirmenn menntamála lagt til
að kennaraefni þurfi að fá
dýrara húsnæði til þess að
nema i, en þar fram yfir hafa
tillögur þeirra ekki farið.
Það verður alltaf staðreynd
í hverju þjóðfélagi. að þangað
leitar fólkið, sem afkomuvonin
er bezt. Einn og einn maður
getur af hugsjónaástæðum lif-
að við þröng kjör, en heil at-
vinnustétt lifir varla á hug-
sjóninni einni saman.
Ég veit að þjóðfélagið ætlast
til þess af kennarastéttinni að
hún vinni verk sitt fyrst og
fremst af þvílíkum hugsjóna-
eldi, að henni detti aldrei í
hug. að hugsa um hvað hún
fái borgað fyrir það. Það er
varia fjarri lagi að gera ráð
fyrir, að ýmsum þyki óvið-
kunnanlegt. að teknir séu pen-
ingar fyrir að kenna börnum,
svo algerlega á þetta að vinn-
ast á hugsjónagrundvelli.
Það var líka eitt sinn töl.u-
vert mikið um þennan grund-
völl, en hann er bara ekki
lengur til staðar. Krafa nú-
tímans og mat gerir Það að
verkum. að sá er ekki mikils
metinn, sem ekki getur séð
sómasamlega fyrir sér og sín-
um. Þessvegna er það líka, að
þó ungir menn hafi á.f hug-
sjónaástæðum iokið kennara-
prófi, þá standa beir í'rammi
fyrir því, strax á fyrsta ári,
að þeir hafa ekki neitt ná-
lægt því í laun, sem þeir getav*_
fengið við flesta aðra 'vinnu.
Þessir menn hverfa pví frá
starfi og fara í annað, og oft
er þetta fólk, sem stöt'eftirsjá
er í fyrir kennarastéttiiria sem
heild. Aðrir eru fyrr að átta
sig o.g byrja aldrei, riota sína
menntun á öðrum vettvangi.
Það er til nóg af lærðum
kennurum í landinu til þéss
að gegna flestum þeim stöð-
um, sem nú eru setnar af
réttindalausum mönnum. Þeir
eru bara við önnur störf. Og
réttindalausu mönnunum
fjölgar stöðugt. Þeir eru nú
orðnir 15% af starfandi kenn-
urum í landinu.
Þessi tala segir þó ekki allt.
Starfandi barnakennarar eru
alls 800. bar af við farkennslu
63 eða 7,8°0; við fasta skóla
eru 737.
Við farkennsiu; Án réttinda
48 eða 76%, með réttindum 15,
eða samtals 63.
Við fasta skóla: Án réttinda
79 eða tæp 11%, með réttind-
um 658, eða samtals 737.
. Séu stærstu kaupstaðirnir
teknir frá, en í þeim eru engir
réttindalausir menn í stöðum,
verður hlutfallið enn alvar-
legra. Að frádregnum þessum
kaupstöðum: Reykjavík, Akur-
eyri, Hafnarfirði, Keflavík,
Vestmannaeyjum, Siglufirði,
verður hlutfallið þannig, að
réttindalausir menn í stöðum
eru 21,4% eða rúmlega
fimmti hver maður.
Það mun flestum þykja
sjálfsagt og eðlilegt, að far-
skólahéruðin verði verst úti
hvað snertir að fá réttinda-
menn til starfa. Þetta hefur
þó örugglega versnað frá því
sem áður var. Ég man svo
langt, að þegar ég útskrifað-
ist sem kennari óg bæði áður
og eftir, var okkur kennurum
sagt hreint og beint, að það
væri þýðingarlaust fyrir okk-
ur að sækja um stöður við
föstu skólana, án þess að hafa
verið 1—3 ór í farkennslú.
Það var beinlínis nokkurskon-
ar þegnskylduvinna, sem ætl-
azt var til að við ynnum, og
ílest okkar fóru eitt eða fleiri
ár í farkennsluna.
Þegar svo alvárlega fór að
fjölga við stærri skóla bæjanna.
kom það af sjálfu sér, að þeir
gátu ekki lengur sett neitt slíkt
skilyrði fyrir kennarastöðum og
nú er reyndin sú, að menn
íara beint frá prófborði í stöð-
ur við föstu skólana, enda er
það og sjálfsagt. Það er engin
ástæða til þess að farskóla-
héruðin séu nein allsherjartil-
raunasvæði fyrir nýútskrifaða
kennara.
En jafnvel það. að komast að
föstum skóla beint frá próf-
borði, dugar ekki til þess að
allir útskrifaðir kennarar hvers
árs komi fram sem starísmenn
við skólana. og eins og áður er
sagt. þó þeir kenni einn vetur.
hverfur fjöldi þeirra frá starfi
eftir eitt eða tvö ár.
Þá er og ástæða til að geta
þeirrar þróunar, að konum
fjölgar stöðugt í stéttinni. en
það sýnir, að almennt telja
karlmenn sig tæplega geta
framfleytt íjölskyldu sómasam-
lega á þeim launum er kenn-
arastárfið veitir og þar sem
þeir standa yfirleitt með nokk-
uð ,góða menntun, er þeirn
greiður aðgangur að arðmeiri
vinnuvet.tvangi.
Eins og ég gat um áður. hef-
ur kennarastéttin engin tök á
að verja starfssvið sift. því
sjálft ríkisvaldið hefur upphaf-
ið vernd sína á kennarastarfinu
sem sérgrein. Þjóðfélagið sjálft
telur það og heldur litla vinnu
að kenna börnum og er þess
fullvisst að við séum sannar-
lega fulllaunaðír fyrir ekki
meira starf. Skattstofa Reykja-
víkur, sem er auðvitað einn
angi ríkisvaldsins. telur að
kennari vinni þessa þrjá món-
uði. sem kennsluhléið varir.
Sk.attstofan gerir kennara 5000
króna tekjur fyrir þessa tvo
mánuði, hvorn um sig. en við-
urkennir að við megum hafa
mánuð í sumarfrí. Hún segir
einfaldlega. að tilgangslaust sé
að segia. að kennari vinni ekki
þessa tvo mánuði. Með hliðsjón
af þessu. verða kennarar í
Reykiavík að vinna þessa mán-
uði, hvort sem þeir vil.ia eða
ekki. Samræmi ríkisvaldsins er
ekki meira en þetta og þá er
von að allur almenningur horfi
öfundaraugum á okkar langa
frí.
En það þori ég að segia. að
betra væri að kennarar þyrftu
ek.ki almennt að vinna þessa
mánuði. Betra væri að launa-
kiörin væru þannig, að þessir
menn legðu þrek sitt og' vit
fram um það fyrst og fremst
að vinna það starf, sem stund-
um hefur verið nefnt serp,
vandamesta og göfugasta starf-
ið. sem u.nnið er í þágu upn-
vaxandi kvnslóðar. Ef þjóðin
gerir sér ekki í tíma grein fyi'-
ir þessu. þá mun m.illjónahiisið.
sem ú að verða Kennaraskóli
Islands. standa aut.t oa tómt
sem minnismerki þess fólks og
bjóðar er meinti það raunyerri-
lega, að ekki verður bókyitið
í askana látið.
ritsfjóri: Sveinn Kristinsson
ÚRSUTASKÁKBN
Eftirfarandi- skák, sem var
tefld í 7. umferð á Skákþingi
Norðurlanda í sumar var úr-
slitaskákin um efsta' sætið í
Landsliðsflokki. Norðurlanda-
meistarinn núverandi Ingi R.
Jóhannsson á þar í höggi við
hættulegasta andstæðing sinn,
Jón Þorsteinsson alþingismann.
Lengi framan af er skákin tví-
sýn. Jón velur hæpið og tyí-
eggjað varnarkerfi, en Inga
tekst ekki að notfæra sér van-
kanta þess sem skyldi framan
af. Það er ekki fyrr en í mið-
taflinu, sem smátt og smátt
tekur að síga á ógæfuhlið fyr-
ir Jóni. Hann neyðist að lok-
um til að fórna peði til að
reyna að rétta sig -úr krepp-
unni. En ekki eru allar peðs-
fórnir einhlítar til sáluhjálpar,
og það fær Jón að reyna í
þessari skák. Ingi teflir af
rósemi og öryggi og notfærir
sér vel liðs- og stöðuyfirburði
sína. Eftir 40 leiki eru úrslit
skákarinnar ráðin og þar með
raunverulega úrslit mótsins.
Skýringar við skákina hefur
Norðurlandameistarinn sjálfur
vinsamlegast léð þættinum.
28. júli 1961
Hvítt: Ingi R. Jóhannsso.n
Svart: Jón Þorsteinsson
BENÓNY-VÖRN
1. d4, c5; 2. d5, d6; 3. c4, Rf6
4. Rc3, g6; 5. e4, Bg7; 6. Bd3,
0-0; 7. Bg5, Rb-d7(?);
(Nákvæmara 7. — h6 8. Bh4,
Da5, ásamt a6 og b5).
8. f4, a6; 9. a4, e5; 10. dxe6,
fxe6; 11. Rfl, Db6; 12. Dd2,
h6; 13. a5(?)
(Betra var 13. Bxf6 ásamt 0-0,
hótandi e5 og' f5).
13. — Dc7; 14. Bh4, Rh5; 15.
Bg3
(Ef 15. f5, g5; 16. fxe6 byrjar
svartur á að drepa á c3, en
leikur hinsvegar ekki 16. —
Rd-f6; 17. Bxg5, hxg5; 18. Rd5,
því þá fær hvítur yfirburða-
stöðu fyrir manninn).
15. — Rxg3; 16. hxg3, Hd8;
17. De2!
(Bezt).
17. — Rf8; 18. e5, Bd7; 19.
Re4, dxe5; 20. fxe5, Bxe5
(Önnur leið er 20. — Bc6).
21. Rxe5, Dxe5; 22. 0-0,
Svart: Jón
abcdefqh
4 IHI §11 4 s* 4 - 4
ii ■ m ■
ABCDBFOH
Hvitt: Ingi
22. — Dg7
(Ef 22. — Dd4|; 23. Kh2, Bc6;
24. Rí6t, Kg7; 25. Ha-dl. Ba4;
26. Bc2, Dxb2; 27. Hxd8, Hxd8;
28. Df3! og ef nú a) 28. —
Bxc2; 29. Re8t, Hxe8; 30. Df7f,
Kh8; 31. Dxeg og vinnur. Eða
b) 28. — Dxc2, 29. Ré4 méð
óstöðvandi sókn).
23. Rf6t, Kh8; 24. Be4, Bc6;
25. Hf2, Bxe4; 26. Dxe4, Hd4;
27. De5, Rd7; 28. Dxe6, Rxf6;
29. Hxf6, Ha-d8; 30. Hxg6„
Hd4-d6; 31. Hxg7, Hxe6; 32.
Hxb7, He2; 33. Hfl. Kg8; 34.
Hf6, Hd-d2; 35. Hg6t, Kf8; 36.
Kh2, h5
(Skárra var 36. — Hxg2t; 37.
Kh3, Hxb2; 38. Hxb2, Hxb2;
39. Hf6t! Ke7; 40. Hxh6, Hb4;
41. Hxa6, Hxc4; 42. g4 og' hvít-
ur hefur góða vinningsrrtögu-
leika, því hann getur í rhörg-
um tilfellum náð andspæninu
af svörtum).
37. Kh3, Hel; 38. g4, Hhítj
39. Kg3, h4t; 40. Kf4, Hd4t;
41. Kg5 — gefið.
TILKYNNING
öll vinna og efni borgist fyrirfram. Fólk, sem á ósótt
sængurföt hjá okkur, er vinsamlega beðið að sækja
þau sem fyrst, annars verða þau seld fyrir kostnaði,.
Dim- og íiðurhreinsunin,
Kirkjuteig 29.
— ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 3. september 1961