Þjóðviljinn - 06.12.1961, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 06.12.1961, Blaðsíða 11
Budd Schulberg: O O (The harder fhey fall) að hann er hræddur um að þetta verði önnur Lennert-keppni?“ sagði ég. ..Bara að svo væri; ég vona að minnsta kosti að Það sé á- stæðan,‘‘ sagði Doxi. Pepe kom inn með nokkra af vinum sirium frá Argentínu. Þeir gerðu ahir mikið stáss að Toro, föðmuðu hann að sér. sögðu honum frá veðmálum sín- um og fóru' út tii dð horfa á siðustu aukakeppnirnar. Það var hlátur og gleði og ánægia allt saman. Toro talaði ekki orð við þá. Þetta var alveg eins og Georg hafði sagt: Hann var alls ekki með hugann við þetta. Nick kom inn ásamt Slátrar- anum og Barney Winch. Þeir voru allir klæddir klæðskera- saumuðum kamelullarfrökkum. Toro sat á nuddborðinu og Doxi neri á honum bakið. Nick sett- ist niður fyrir framan Toro. „Hlustaðu á hvað ég segi, del- inn þinn,“ sagði hann lágt en hörkulega. „Ég ætla bara að iáta þig vita eitt. ÍKonan mín er búin að segja mér allt um þig.“ Toro ieit upp og beið eftir högginu eins og uxi í sláturhúsi. „Hún sagði mér að þú hafir komið einn daginn og reynt að vera nærgöngull við hana. Þú ættir skilið að ég sparkaði heil- anum útúr hausnum á þér, svín- ið þitt. En ég get sparað mér fyrirhöfnina. Keppnin í kvöld er sú fyrsta þar sem þú verður að bjarga þér á eigin spýtur. Svo að ég þarf ekki að eyðileggja manikjúrið mitt á þér. Ég get bara setið í fremstu röð og horft á Stein eyðileggia á þér fésið. Ég vona að hann drepi þig.“ Hann gaf Toro rokna löðrung. Toro starði á hann galopnum munni og löngu eftir að þeir voru farnir, starði hann gapandi fram fyrir sig. Chiek Gussman sem hafði beztu aukakeppni kvöidsins, kom inn himinlifandi eftir að háfá unnið á rothögei í þriðju lotu. Hann sló kumpánlega á herðarn- ar á Toro og sagði: „Þetta ætlar að verða fínt kvöld fyrir gutt- ana hans Nicks, er það ekki lagsi.“ En Toro tók ekki einu sinni eftir honum. Aukakeppn- irnar tóku brátt enda, röðin var komin að Toro. f fýrsta skipti síðan ég mundi eftir, var Danni ekki fær um að vinna í horn- inu, svo. að Vince kom í hans stað ásamt Doxa og Georg. ,,Jæja, gangi þér vel, Toro,“ ég reyndi að vera dálítið upp- örvandi þótt rödd min væri hol og hljómlaus. Ég rétti íram höndina, Toro tók linkulega í hana og ég fann að hann titr- aði um allan kroppinn. Buddy Stein kom fyrst inn í hringinn. Áhorfendur öskruðu og góluðu af hrifningu meðan hann dansaði um í bláum silkislopp með hvítt baðhandklæði um höf- uðið. Hann rétti vafða höndina niður yfir kaðlana og heilsaði fjölda fólks, Jack Dempsey, Bing Crosby, Sherman Billingsley . . . glæsileg glókolla í þriðju ■ röð setti stút á varirnar og hann deplaði augunum til hennar. Það var meira af kvenfólki en venju- lega, því að báðir keppendurnir höfðu talsverða kvenhvlli. Stein var dökkhærður með liðað hár og óvenju fríður af boxara að vera. Hann var einn þessara herðabreiðu, miðmjóu manna með langa, glæsilega ' fótleggi. Hann vaf mjög hégómlegur og minnti mest á kvikmjmdastjörnu sem er vanur dekri og tilbeiðslu Bros hans hafði fengið mikið hrós ■ Stein-brosið kallaði fólk 'þáS ‘ — tíriytfí r'dunfririi1 ‘ v'ár þá’ð' Pastir liðir eins og venjulega. 13.00 „Við vinnuna": Tónleikar. 17.40 Frambm-ðarkennsla í dönsku og ensku. 18.00 títvarpssaga barnanna: „Bakka-Knútur" eftir séra Jón Kr. ísfeld. 20.00 Tónleikar: Bela Sanders og hljómsveit hans leika valsa- syrpu. 20.20 Kvöldvaka: a) Lestur forn- rita: Grænlendinga þáttur (Dr. Kristján Eldjárn þjóð- niWjáVðrðtíf^'^-^) J J “íslenzk tdnlist: Lög xftir Þórarin Guðmundsson. c) Sigur- björn Stefánsson . flytur sigl- firzkar sagnir .skráðar af Guðlaugi Sigurðssyni. d) Jóhannes skáld úr Kötlum les úr þjóðsögum Jóns Árna- sonar. 21.45 Islenzkt mál (Jón Aðal- steinn Jónssori cand. mag.), 22.30 Upplestuir: Dean Acheson rifjar upp liðna. tíð; III: Um Ernest Bevin (Hpr- steinn Pálsson ritstjóri). 22.30 Næturhljóm’.eikar: a) „För Gullivers til Putalands", sinfónía nr. 1 eftir Edgar Stillman Kelly (Ameríku- hljómsveitin leikur; Richard Korn stjórnar). b) „Grand Canyon", svíta eftir Ferde Grofé (NBC-hljómsveitin i N.Y. leikur; Toscanini stj.). 23.30 Dagskrárlok. T __ andstyggilegt bros, bros manns sem komizt hefur að þvi hvern- ig hann getur leitt meðfædda grimmd sína inn í farvegi sem gefa eitthvað í aðra hönd. En þrátt fyrir alla stjörnu- tilbufðina var Stein hörkubar- dagamaður. hann var í mik- ilH þiáífun. Hann spigsporaði um í hrinsnum, stæltur og fjaður- mágnaður og svo fór hann að hita sia unn me'ð snöggum smá- höggum út í loftið. Það va.r tekið vingiarnlega en með hógværð á móti Toro og einstöku fuss hevrðust frá van- trúarseggjum og gömluin Lenn- ert-aðdáendum, sem trúðu því í favizku sinni að dauði þunga- vigtarmeistarans fyrrvéraridi stafaði að einhveiju leyti af gl'immúðlegum aðíörum Toros. Þegar Doxi os Georg færðu hann úr skrautlegum sloppnum, varð mér enn einu sinni ljóst hve náttúran hafði gengið langt í lélegu spaugi sínu i sambandi við þennan jötun. Hinar firna- miklu herðar, ólgandi vöðvarn- ir og breið bringan, — allt þetta virtist honum í hag gegn næstum hvaða andstæðingi sem væri — og svo innihélt þessi ógnvekj- andi kroppur ekfei annað ep ^ÓðJyndgn. '’*nPa!ls f»TISr »' bardaga- i|##IItiÍ. §#arn °g tals- vért mmpa vit á slagsmálum. Dregið var úr ljósaflóðinu. Þulurinn bað um mínútu þögn til minningar um „Gamla Gus. sannkallaða kempu sem féll í keppni meðan hinn mikli dóm- ari taldi hann inn i eilífðina.“ Öll ljós voru slökkt, óþolin- móðir áhorfendur risu á fætur og túlkuðu gervisorg sem ekki var annað en skrípaleikur með- an klukkan sló tíu, þung högg á áhrifamikinn hátt. Þegar ljósið var kveikt aftur og þulurinn var loks búinn að kynna alla hina frægu boxara fyrir áhorfendum og kynnti loks andstæðingana tvo með hinni þrotlausu mærð sem einhverra hluta vegna þykir tilheyra við þessi tækifæri, byrjaði ólgan fyrir alvöru meðal áhorfenda og villimannlegt öskur kvað við úr 80.000 kverkum'. Þulurinn hafði yfir síðustu fyrirmælin og sendi boxarana aftur í hornin sín, þar sem þeir áttu að bíða eftir klukkunni. Þegar aðstoðarmenn þeirra færðu þá úr sloppunum á siðustu stundu. kom mismun- urinn á líkömum þeirra svo skýrt í Ijós, að áhorfendur gáfu frá sér eftirvæntingarstunu, Torq var yfir tveir metrar á hæð qg næstum tvöhundruð og. áttatíu pund að þyngd og hann var í gildasta lagj um kviðinn. Hann gerði krossmark og beið stilltur og ráðvilltur eftir klukkunni. Stein var yfir einn og átta- tíu á hæð, líkami hans var stæltur sveigjanlegur og lipur. hann var hundrað niutiu og sex pund að þyngd. Eirðarlaus og óþolinmóður tvísté hann og skók axlirnar, rétt eins og hann væri kominn inn i hringinn og farinn að Þjarma að ferlíkinu, sem var andstæðingur hans. „Kálaðu honum. Buddy,“ hróp- aði glókollan í þriðju röð með óþægilega skerandi röddu. Um leið og_ hringingin kvað við, þaut Stein út úr horni sínu eins og örskot en Tor0 silaðist fram úr sínu. Toro hélt vinstri hanzka fram fyrir sig, eins og Danni hafði kennt honum. Stein þreifaði fyrir sér með varúð og vanmat engan veginn yfirburði Toros hv-að snerti þyngd og stærð. Hann sendi eldsnögg, sár högg i andlitið á Toro. miðaði með hægri og var tiLtaks með vinstri handar höggið- fræga eins og hann ætlaði að beita því, en ennþá vildi hann ekki eiga neitt á hæltu. Tor0 boxaði stirðlega, .otaði vinstri hendi að höfði Steins og hélt honum í fjarlægð. Toro hafði um síðir lært undir- stöðuatriðin i hnefaleik. en hann var klunnalegur í hreyfingum og vantaði allt fjör. Fótahreyfingar hans voru hægar en réttar og einu sinni fylgdi hann eftir vinstri handar höggi með hægra þverhöggi upp að rifium Steins. Stein brosti og rak samstundis högg að höfði Toros. Endaþótt hann væri ekki farinn að beita sér fyrir alvöru. var þetta á- hrifameira högg en það bezta hjá Tóro. Sársaukinn vakti Tor0 af dvalanum og hann reyndi fyrir sér með tvöföldu höggi. Vinstri hanzki kom upp að andlitinu á Stein, en hægrihandar höggið, síðara höggfð Várð yuntíhögg, því' að Stein vék S'ér uh'dah í' skýndi og neyddi'Toro ‘í fári'gbro'gð. Að: því er virtist gerðist ekkert ' i þeim fangbrögðum, en þegak dómarinn gékk í milli og skildi' Félag frímerkjasafnara Herbergi félagsins að Amtmanns- stíg 2 er opið félagsmönnum og almenningi miðvikudaga kl. 20—22. Ökeypis upplýsingar um fnmerki og frimerkjasöfnun. Haftð er I öllu okkar verki i-Framhald af 7. síðu. ■kennari við Stýrimarmftslídlaain, hann er-. riú að þýðá Éeifes- kringlu Snorria og' var fyristn bindið að koma út dagana, sem við dvöldum í Þórshöfn. Bjarni afhenti okkur gestunum bókina að gjöf, með áritun. ' ' — Að síðustu var svo kveðju- gildi á Hótel Hafráa kl. 5, segir Hannibal. Þar voru sám- an komnir stjórnarmeðlimir Fiskimannafélagsins ásamt eig- inkonum þeirra svo sem verið hafði, þegar tekið var á móti okkur. Það var ' skipzt á fáórð- um en hlýjum kveðjum og síð- an var okkur fylgt til skips og þar með er í raun og veru loki.ð þessari nýju Færeyinga- sögu. © Hin mikla ráðgáta — Hvað er álit ykkar um gagnsemi og framhald þessarar viðkynningar íslenzkra og fær- eyzkra verklýðssamtaka? — Það hefur um alllangt skeiö, — segir Hannibal, verið gott sámstarf milli Alþýðu- sambands Islands og Fiski- mannafélags Færeyja, en ég veit, að það múni eflast í fram- tíðinni, einnig végna þeirrar'á- nægjulegu kvnhingar' sefn nú átti sé stað. — Við áttum þess kost, segir Eðvarð, þrátt fyrir veizlur og gleði, að eiga nytsamlegar við- ræður við marga af leiðtogum færeyskra launþegasamtaka, sem vissulega munu efla gagn- kvæman skilning og styrkjá samstarfið í framtíðinni. Auk þess, sem fulltrúinn frá Norges Fiskerlag reyndist hinn ágæt- asti félagi í alla staði, höfðum við einnig frá honum mikinn fróðleik um málefni noi-skra fiskimanna, sem orðið gæti að liði hér á landi. — Já, — segir Hannibal, þetta var ágætur félagi og gaf okkur margvíslegar bendingar ekki hvað 'sízt um fiskverðsmálin í Noregi og samstarf fiski- manna og útgerðarmanna þar gagnvart kaupendum. Enda hefur maður það alltaf á til- finningunni að Norðmenn séu miklu nær réltmætu fisk- verði til handa sjómönnum, en bæði færeyskir og íslenzkir sjó- menn. Þetta er hin mikla ráð- gáta. — Færéyingar spyrja alveg einsog við, segir Eðvarð: — Hvernig stendur á því að við fáum ekki sama verð' fyrir fisk- ■ inn pg Norðmenn? — Þeir spyrja segir Hanni- bal: Fiskurinri, sem við lögðuija upp í Færevingahöfn og, N°rð- menn v’ið bliðiná á okkúr. — sem svo er seldurú .tilú’kömu staðft. af hverjaer harinJbrgað- ur miklu lægra ver.ði tit okkar? Hvernig stendur’ á þessu. Hvern- ig stendur á því að við fáum. miklu lægra verð fyrir fiskinn^ en Norðmenn? Svöna spyrja þeir alveg einsog menn hér á landi. ® Svárið er: Milli- liðagróði — Og hver eru svörin, sent Færeyingar hafa fundið? — Þeir hafa ekki ennþá svar- að því frekar en við, — 'ségir Eðvarð, — ekki í raun og veru. En það er enginn efi á því, að þetta liggur að mestu í milli- liðunum, — frá því að sjómað- urinn afhendir útgerðarmanniri- um fiskinn og þangað til hann 7 kemsl á endanlegan ákvörðuft- ■ arstað. ® Lög til verndar fiskimanninum — En Norges Fiskarlag herur ' aðstöðu til að fylgjast méð' bessu öllu saman, alveg frá upphafi til enda, meirá áð' segja með eigiri þátttöku afV' mjög mjk])u:!leyti. — — Og síðan lögboðna aðstö'ðu^ — segir Hannibal, — til að hafa eiginlega síðasta orðið um • verðákvörðunina. Fræðilega séð' getur ráðherra að vísu fellt úr- skurð, en til þess hefur aldrei komið. — Og hafa þeir sjálfir mcð verðuppbætur að gera? — Já, þeim uppbótum sem rikisstjórnin ákveður, deila síð- an samtökin. Og hafa þaer að lang-mestu leyti farið til byggðanna í Norður- Noregi, til að jafna aðstöðuna. — Sem sagt, þarna er ekkert á huldu um verðmætið sem fæst fyrir aflann? — Það er rakið alveg frá fvrstu til síðustu stundar, segir Hannibal. Við munum nú fá öll gögn þessu viðvíkjandi, ein- mitt um skipulagið og þá laga- legu aðstöðu, sem Norðmenn- hafa í þessum málum gegnum. Norges Fiskerlag. Það eru lög,. sem almennt ganga undir nafn- inu Fiskerens Grundlov. og eru lög um þessa aðstöðu fiski- mannasamtakanna. •k — Að síðustu báðu þeir fé- lagar. I-Iannibal og Eðvarð, fyr- ir beztu kv'eðjur til Fiski- mannafélags Færeý.iá 'og allfa," sem með gestrisni, fróðleik og skemmtan. gerðu beirn Fæ'r- eýjaför eftirminnilega — a$' Öllu góöu. st: • ■ ........ ..:> .1 — «• Deildarlæknisstaða I Kleppsspítalanum er staða deildarlæknis laus til um- sóknar frá 5. jan, -1962 'að telja. .z Laun greiðast samkvæmt launalögum. Umsóknir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf seridist til skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, Reykjavík, fyrif 1. jan. 1902. Reykjavík, 5. des. 1961. f' R SKRIFSTOFA UÍKISSPÍTALANNA. 'H Saltfiskui" Saltfiskur 1. flokks í 10 kg. pökkum unarstöð Bæjarútgerðar Reykjavíkur til sölu í fiskverk- ; við Grandaveg. Verð kr. 72.50 pakkinn. ! n BÆJARCTGERÐ REYKJAVÍKUR. . ' ! XHU:.Í 7 ' ■*w 1 ~ [V Miðvikudagur 6, desember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — QJj

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.