Þjóðviljinn - 12.12.1961, Page 4
LITLI SIGGI
'r\
OG KALFLJRINN
eftir SIGURÐ JOENSEN
með 32 myndum eftir FRÍÐU í GRÓTINUM
Höfundur þessarar bókar er færeyskur mála-
flutningsma'öur við Landsréttinn í Þórshöfn.
Þessi bók er sú fyrsta af þremur, sem hann
hefur ritað fyrir börn. Litli Siggi er aðalper-
sónan í þeim öllum.
PYíða í Grótinum er þekktur listamaöur í
Færeyjum. Teikningar hennar í sögurnar um
Litla Sigga þykja einstaklega góðar.
Bækurnar um Litla Sigga hafa þegar náð
miklum vinsældum og útbreiðslu í heimaland-
inu, Færeyjum.
BÓKAÚTGÁFAN
DÍMON
RUSSNESKAR
yÖRUR
Ilmvötnin ódýru kom
in aítur, hvergi
meira úrval.
Rússneskar íuru-
nálasápur
á kr. 3.50 stk.
★
Stórmótaskákklukk.
an TÁL.
Myndavélar.
★
Rússneskt postu-
lín, gjaíverð.
★
Slæður í öllum
iitum.
RAIJÐA
MOSKVA
Aðalstræti.
FURUNO-Fiskileitartæki
Það er ekki að furða þótt skipasmíðastöðvar og báta-
eigendur velji í bátinn sinn „Furuno“-japanskt fiski-
leitartæki, sem nú í 3 ár hafa hlotið almenna viður-
kenningu, sem þau allra beztu til fiskileitar. Helztu
kostir „Furuno“ eru:
1) Þau eru helmingi ódýrari en önnur tæki,
sem hér eru í notkun.
2) Þau eru stillt fyrir það dýpi, þar sem mest
fiskigegnd er hér við land.
3) Þau senda til botnsins 134 sinnum til 268
sinnum á mínútu og sýnir myndin á tækinu
því 100% meiri möguleika til að finna fisk.
4) Þau fást einnig transistora og ná á sama
dýpi, eða allt niður á 200 faðma.
5) Ég vil vekja athygli á því, að þeir sem hafa
ætlað sér að fá. tækin með næstu skipsferð
frá Japan, léti mig vita í tíma.
Einnig hef ég jafnan á boðstólum ýmiss önnur japönsk
ciglingatæki. H
EINKAUMBOEÍ
Radíó-Raltækjavezzlun
Ázna ðlafssonaz
Sólvallagötu 27. — Sími 12409.
Islenzkur fiskiðnaðnr
og erlent einkafjármagn
til stóriðnaðar
Það hefur verið talað tals-
vert um iðnað að undanförnu,
og á Alþingi hefur sjálfur
iðnaðarmálaráðherrann gefið
fyrirheit um stóriðnað reistan
fyrir erlent einkafjármagn.
Viðbrögð stjórnarinnar á
sviði iðnaðarmála virðast
helzt beinast í bá átt að láta
reisa kísilgúrverksmiðju við
Mývatn o.g alúminíumverk-
smiðju á einhverjum öðrum
stað.
Frá sjónarhóli fólksins í
landinu hlýtur það að vera
höfuðatriði á hverium tíma,
að atvinnulegar framkvæmdir
séu miðaðar við þarfir fólks-
ins fyrir vinnu, þannig að
atvinnuleg uppbygging sé í
réttu hlutfalli við eðlilega
fólksfjölgun og atvinnulega
þörf. Ég veit ekki hvað kisil-
gúrverksmiðja við Mývatn
mundi þurfa fjölmennan hóp
verkafólks. En verði byggð
hér alúminiumverksmiðja
eitthvað í líkingu við sams-
konar verksmiðju sem byggð
var í Noregi fyrir fáum ár-
um, fyrir norskt og kanadiskt
fé, þá mun þúrfa stóran hóp
verkamanna til þeirrar frarh-
leiðslu, því í kring um norsku
verksmiðjuna hefur risið upp
það fjölmenn byggð verka.
fólks að nefndur mundi það
bær á íslandi.
í sjálfu sér er ekki nema
gott eitt um ný atvinnufyrir-
tæki að segja, ef þau eru
byggð á vegum íslendinga og
tryggt er á hverjum tíma að
íslenzkt þjóðfélag ráði algjör-
lega rekstrí þeirra. Þó verða
þær forsendur að vera fyrir
hendi, að atvinnuleg þörf sé
fyrir reksturinn. Að fyrirtæk-
in séu ekki atvinnulega séð
reist á kostnað annars at-
vinnurekstrar sem fyrir er í
landinu, eða geti orðið til
þess að hefta eðlilega fram-
þróun annars iðnaðar svo
sem fiskiðnaðar sem við höf-
um nú aðeins fengið vísi að.
En þegar farið er í alvöru
af hálfu ríkisstjórnar að ta'-a
um að verið sé að athuga á
því möguleika, að fá hingað
einkafjármagn til stóriðnaðar
þar sem svo erlendir menn
eiga að flytja úr landi þann
arð sem skapast við vinnu
íslenzks vatnsafls og íslenzkra
handa, þá mun mörgum hér
finnast. að nóg sé komið frá
hendi þessarar ríkisstjórnar,
þó þetta bætist ekki í þann
bókfærsludálk.
FiskiSnaS-
urinn
íslenzku atvinnulífi er
þannig háttað, að í sumum
bæjum úti á landi er vöntun
á atvinnu á vissum tímum
árs, þó næg vinna sé fyrir
hendi stærri hluta ársins.
Þetta á við um suma stað-
ina á Norðurlandi. Það sem
þessa staði vantar er ekki
stóriðnaður rekinn af erlend-
um auðmönnum. heldur auk-
inn síldar- og fiskiðnaður sem
gerði tvennt í senn, að fylla
hinar atvinnulegu eyður, en
auka jafnhliða og margfalda
þær gjaldeyristekjur sem
þjóðin getur haft af hinum
gamla atvinnuvegi sjávarút-
veginum. Slíka sögu er að
segja úr öðrum landshlutum,
þar sem skortur er á nægri
atvinnu allt árið, þar er það
einnig fisk- og síldariðnaður,
sem er heppilegasta lausnin.
Það er nógur timi til að
stofna til stóriðnaðar á ís-
landi. Og við eigum ekki að
stíga það spor fyr en okkur
er það atvinnuleg nauðsyn, en
þegar það verður stigið þá á
þjóðin siálf að standa að þeim
framkvæmdum, en ekki er-
lendir auðmenn og leppar
þeirra íslenzkir. Ef stóriðnað-
ur yrði byggður upp á næstu
árum af erlendum mönn-
um eða í félagi við þá, eins
og nú er boðað, þá mundu
slíkar framkvæmdir soga til
sín vinnuafl frá íslenzkum
atvinnuvegum sem fyrir eru
í landinu og þrengia stórlega
kosti þeirra. Með slíkum
framkvæmdum eins og nú
standa sakir, eru méstar lík-
ur til. að fiskveiðar og fisk-
iðnaður j'rðu harðast úti í
þeim viðskiptum. Og slíkur
stóriðnaður mundi koma í
veg fyrir, að hér yrði í ná-
inni framtíð komið upp full-
komnum sildar- og fiskiðnaði,
en það er einmitt þjóðinni
lífsnauðsyn að gert verði, og
það nú þegar. Einmitt til
sííkra ' framkvæmda ásamt
iðnáði bundnum landbúnaði,
þurfum við allt það vinnuafl
sem þióðin má missa frá öðr-
um störfum sem fvrir eru.
Við getum ekki misst neitt
vinnuafl til stóriðju eins og
stendur, það er líka þess.
vegna sem hún er langt frá
því að vera aðkallandi, séð
A .HU
frá íslenzkum hagsmunum.
Þeir menn á íslandi sem ekki
skilja þetta eru útlendingar í
eigin landi, og er hættulegt
til þess að vita, að þannig
skuli nú vera ástatt á meðal
vor. Eða er máske hugsunin
hjá þessum mönnum sú, að
•afhenda erlendum auðmönn-
um auðsuppsprettur íslands,
og gefa þeim síðan leyfi til
að flytja hingað erlent verka-
fólk til að nytja þær? Það
er ekki nema um tvennt >að
ræða, annaðhvort hlýtur sú
að vera hugmyndin, eða þá að
hér á vitandi vits að þrengja
svo kosti íslenzku atvinnuveg-
anna að þeim yrði hvorki lifs
né jákvæðrar þróunar auðið
í náinni framtíð. En báðir eru
þessir kostir slæmir, og er
ekki auðvelt að geta sér til,
hvor þeirra mundi verri reyn-
>ast.
ÞjóSin verð-
ur oð eiga
valiS
Sé málum okkar íslendinga
svo illa komið, sem að fram-
an greinir, er farið að bjóða
fram íslenzk landgæði og
landsréttindi sem verzlunar-
vöru meðal auðugra þjóða,
því stórvirkjanir og stóriðn-
aður sem reistur væri hér
fyrir erlent einkafjármagn,
eða í félagi við erlenda auð-
hringa, og rekinn með það
sjónarmið efst í huga að
þessir aðilar gætu flutt gróð-
ann úr landi, það þýðir að
láta af hendi bæði landgæði
og landsréttindi +il útlend-
inga. Slíkt sem þetta hefur
aldrei verið lagt fvrir þjóð-
ina í kosningum, og á hún
tvímælalaust siðferðilega
kröfu til að ekkert slíkt verði
aðhafzt að henni forspurðri.
Og ekkert ætti að vera sjálf-
sagðara en það, að flokkum
sem skreyta sig með lýðræði
í bak og fyrir, við öll möguleg
og ómögulee tækifæri, ætti að
vera það liúft að leggja slíkt
mál sem þetta undir dóm kjós-
enda í almennum kosningum.
Því verður heldur ekki trú-
að af almenningi að óreyndu,
að nokkur islenzk ríkisstjórn,
láti af hendi við útlendinga
íslenzk landgæði og landsrétt-
indi, án þess að hafa fengið
til þess umboð frá þjóðinni í
•almennum alþingiskosningum
þar sem málið hefði áður
verið lagt fyrir kjésendur.
. E. Kúld
4) — ÞJÓÐVILJINN ~ Þriðjudagur 12. desember 1961