Þjóðviljinn - 09.03.1962, Side 3
BRETARNIR á Síglufírði
Þessar myndir voru 'teknar í Lögreglustöðinni á Siglufirði á þriðju-
dagskvöldið eftir að þrír skipverjar brezka togarans „Ross Archer“ voru
færðir þangað, skipstjórinn ásamt tveim hásetum. Höfðu skipsmenn fyrst
sært siglfirzkan pilt með flösku og siðan sýnt lögreglunni mótþróa und-
ir stjórn skipstjórans.
I ga?r lauk málaferlunum gegn brezku tcgaramönnunum með réttarsætt. Skipstjórinn, Alfred Hill-
dreth fékk 10 þús. kr. sekt, hásetínn Goofrey Robert, er sló piltinn með flöskunni, hlaut 3 þús. kr.
sekt og var gert að greiða 6 þús. kr. í skaðabaetur fyrir áverka, rúðubrot o.fl. Fjórir skipverjar
sluppu með réttaráminningu. Málskostnaður in solidum féll á skipstjórann og Geofrey Robert. Trygg-
ing var sett fyrir greiðslu sektanna og bjóst togarinn síðan á brott frá Sigluflrði.
Skipstjórinn vildi ekki láta mynda sig. Bragi Magnússon lögregluþjónn horfir á.
Skipstjórinn á Ieið í kjallarann. Björn Hafliðason horfir á.
■
einn piítanna sem Bretarnir réðust
Njörður Jóhannsson.
á, Sigmar Albertsson, annar brezku há-
setanna og Stefán Friðriksson lögregluþjónn.
Ruddaleg drás
á Sistamenn
Morgunblaðið ræöst í gær á ís-
lenzka listamenn með ruddaleg-
um svívirðingum. Það segir að
menningarvika sú sem þeir haía
gengizt fyrir á vegum hernáms-
andstæðinga sé „skipulögð og
framkvæmd af erindrekum
heimskommúnismans“ og heldur
áfram:
„Þótt misjafnlega sé farið með
peninga þá, sem kommúnistar fá
frá húsbændum sínum í Kreml,
skortir þá aldrei fé. Með þvi er-
lenda fé, sem þeir hafa undir
höndum til áróðursstarfsemi,
hefur þeim stundum tekizt að fá
góða menn til að ljá nöfn sín i
áróðurstilgangi, þótt það sé auð-
vitað til lítillar sæmdar, t.d.
þeim Iistamönnum, sem selja
þeim þjónustu sína.“
Sósíalistar
ORÐSENDING FRÁ
KVENFÉLAGI SÓSÍAL-
ISTA OG CARÓLÍNU-
SJÓÐSNEFND
Vift bjóðum ykkur að
faka þátt í skenuntikvöldi,
er Carólínusjóðsnefnd efn-
ir til fyrir félaga og gesti
þeirra í Tjarnargötu 20
annað kvöld, laugardag.
Skemmtikvöldið heíst með
borðhaldi kl. 8.
Skemmtiatriði; Upplestur,
stuttur leikþáttur og ým-
islegt fleira. — Dans.
Upplýsingar og aðgöngu-
miðapaiiíanir í símum
17808, 37586 og 15259. Að-
göngumiðar sækist í Tjarn-
argötu 20 milli kl. 5 og 9
síðdegis i dag, föstu-
dag.
Munið stundvíslega kl. 8.
Þarna heldur Morgunblaðið þvi
I iram að ýrnsir fremstu myndlist-
armenn þjóðarinnar, skáld, rit-
höfundar, tónskáld, hljómlistar-
menn og fræðimenn séu mútu-
þegar Rússa og kynni íslenzka
menningu fyrir austrænt gull.
Myndlist okkar og skáldskapur,
tónlist okkar og meira að segja
handritin eru að mati Morgun-
blaðsins aðeins einn angi heims-
kommúnismans og listamennirnir
starfa aðeins fyrir „húsbændur
sína í Kreml“.
Auðvitað þarf ekki að taka það
fram að listamennirnir hafa sjálf-
Matthías Joliannessen
ir haft forgöngu um menning-
arvikuna og hafa margir þeirra
unnið mikil sjálfboðaliðsstörf við
framkvæmd hennar. Auðvitað
vakir áróður fyrir þeim, sá áróð-
ur að beita íslenzkri menningu
gegn erlendum hroða.
En það er vert að vekja athygli
á því að sá sem skrifar svívirð-
ingarnar um íslenzka listamenn
heitir Matthías Johannessen.
Hann mun vera félagsmaður í
rithöfundasamtökunum og þar
meö í Bandalagi íslenzkra lista-
manna.
I Fram-
l tak einstaklingsins
I Sjálfstæðisflokkurinn segist
| sem kunnugt er hafa mikið
I dálæti á framtaki einstak-
lingsins. Það dálæti hefur að
undanfcrnu birzt í einkenni-
' legri mynd í sambandi við
| stöðuveitingar á vegum
| Reykjavíkurborgar. Fyrir
■ nokkrum dögum var Jóhannes
Zoéga, mágur formanns Sjálf-
1 stæðisflokksins, skipaður hita-
I .veitustjóri án þess að auglýsa
| mætti starfið og gefa öðrum
| kost á að keppa um það. Ekki
I er kunnugt að hann hafi meiri
bæfileika til að stjórna hita-
‘ veituframkvæmdum en fjöl-
| margir aðrir verkfræðingar;
| hins vegar heíur hann nýlega
i látið í Ijós þá skoðun að
breyta beri fyrirtækjum ríkis
og bæja í gróðafélög einstak-
linga, og þá væntanlega einn-
ig -hitaveitunni. Ekki er ýkja-
langt siðan Gústaf E. Pálsson
var skipaður borgarverkfræð-
ingur, án þess að nokkur
starísbróðir haiis ætti kost á
að sækja um starfið. Skömmu
I áður hafði Valgarð Thorodd-
sen^ bróðir varaformanns
Sjálfstæðisflokksins, verið
skipaður yfirverkfræðingur
rafveitunnar á sama hátt, í
pukri og án þess að nokkur,
fengi að keppa við hann.
Innan Sjálfstæðisflokksins
felst framtak einstaklingsins
auðsjáanlega ekki í því að
menn afli sér menntunar og
rejmslu og keppi síðan á jafn-
réttisgrundvelli um ábyrgðar-
störf í þjóðfélaginu. Fram-
takið er í því fólgið að kunna
tímanlega að velja sér rétt
sambönd.
Leitið
og þér munuð finna
Leiðtogi Mýneshreyfingar-
innar, Bergur Sigurbjörnsson,
'hefui' borið fram þá kenningu
að það beri að sundra vinstri-
mönnum í andstæða hópa út
frá því hvort einhverjir hafi
sótt kommúnistaþing úti í
löndum eða „kunni“ að gera
það á lifsleiðinni. Ef honum
hefði ekki dottið þéssi fyrir-
sláttur í hug, hefði hann trú-
lega sundurgreint menn eftir
því hvort þeir gengju með
belti eða axlabönd. — Austri,
Föstudagur 9. marz 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (3