Þjóðviljinn - 09.03.1962, Blaðsíða 12
Tveir dómkvaddir mcnn frá
Atvinnudeild háskólans eru nú
að rannsaka skcmmdirnar, -sem
orðið hafa á saltfiski í verstöðv-
um á Suðurnesjum. Þeir voru
þar syðra í fyrradag að taka
sýnishorn, sem þeir hafa vænt-
anlega unnið úr í gær. Búizt var
við að niðurstöður rannsóknar-
innar lægju fyrir í dag.
Fyrir um það bil 10 árum varð
það upplýst að kopar veldur þeim
skemmdum í salti að sá fiskur
sem úr því er saltaður verður
gulur eða brúnn. Fiskur. sem
þannig er útlítandi er óseljan-
leg vara á venjulegum markaði.
en skaðlaus til neýzlu. Þegar
-þetta varð Ijóst gerði fyrirtæk-
ið Kol og Sa'lt ráðstafanir til þess
að saltið væri skoðað og efna-
•greint við afhendingu, þannig að
v-tryggt veéri að það færi galla-
iaust í skipið. Nú hefur það hins
vegar komið á daginn. að þessi
varnagli du.gði ekki. til.
Um miðían s’ðasta mánuð. kom
•ilam-kt skin til Keflavíkur með
•saltfarm. sem dreift var í all-
íir verstöðvar á Suðurnesjum.
Skömmu eftir að farið var að
motn þetta salt fór að bera á
guluskemmdum í fiskinum og
■foárust böndin fljótlega að salt-
inu. enda upplýstist að skipið.
Áxel Sif. hafði túrinn á undan
flutt kopar eða eír, og jlla
‘hreinsaðar lestar þess smitað
saltfarminn. Nú er svo komið
málum að fyrirsjáanlegt er millj-
onatjón á fiski sem þetta salt
•hefur verið notað í.
Fiskimatsstjóri kvaðst í við-
"tali við blaðið. ekki geta fullyrt
um hve miklar endanlegar
skemmdir yrðu. en gulan er ekki
enn komin út á þeim fiski. sem
nýsaltaðúr er. en hann sagði að
það kærni sér ekki á ðvart þó
2—300 tonn skemmdust
Fiskur sá sem hér um ræðir
18.000 tonn
crf fiskflök-
um til Sovét
í gær var undirritaður
hér í Reykjavík samningur
um sölu á 18 þúsund lest-
um . af hraðfrystum fisk-
flökum til Sovétríkjanna.
Gert er ráð fyrir að af-
greidd verði 13 þús. tonn
þorskflaka og 5 þús. tonn
karfaflaka. Heimilt er að
afgreiða 3000 lestir af ýsu-
flökum, 1000 lestir af ufsa-
flokutn, 1000 lestir af stein-
bítsflökum og 1000 lestir af
lönguflökum í stað þorsk-
eða karfaflaka.
Sölusamningur þessi er
gerður á grundvelli við-
skiptasamnings frá 1953 og
bókunar frá 23. janúar
1960, sem gildir urn við-
skipti milli landanna.
var mikil gæðavara, línufiskur
saltaður glænýr og verður tjónið
enn tilfinnanlegra fyrir það.
Birgitte Frelsen
24. febr. sl. landaði danska
skipið Birgitte Frelsen saltfarmi
hjá Kol og Salt hér í Reykjavík,
en nú hefur komið í ljós að
einnig það skip hafði túrinn áður
eða þarnæst á undan flutt kopar-
farm. 2000 lestir a-f salti, sem
geymdar eru í geymsluhúsi fyr-
irtækisins eru því einangraðar og
ekki afgreidd af þeim ein lúka.
Er u.nnið að rannsóknum á hvort
það sé líka skemmt. Sé svo verð-
ur að öllum líkindum að aka
öllu.m haugnum í sjóinn.
Trúlegt er að Kol og Sa'lt sé
skaðabótaskylt til þeirra aðilaj
sem hafa orðið fyrir barðinu á
saltskemmdunum, en hinsvegar
mun fyrirtækið hafa tryggingu
í samningum sínum við flutn-
ingsaðila fyrir því, að kopar komi
hverai nærri farminum.
Unnið hefur verið að því í gær
og fvrradag, að henda því Salti |
sem vissa er um, eða grunur leik- blandað samanvið eldri birgðir.
ur á u.m að sé skemmt, en bar er trúleat að flevja verði mest-
sem gaúaða saltið var víða öllum saltbirgðum Suðursnes.ia.
Föstudagur 9. marz 1962 — 27. árgangur
20001 tonnum qf $q|ti Þióðviuink
hent Psjoinn
hjd Kol & Sölt
Myndin er tekin 4. þ.m. er unn-
ið var að uppskipun á salti úr
danska skipinu Birgitte Freisen,
en þetta salt er nú einangrað
hjá Kol og Salt h.f. og verður
ekki afhent kaupendum fyrr en
vissa er fyrir að það sé galla-
laust.
STEFNT I OFÆRU HEÐ
SKATTALOGGJOFINNI
Efri deild lauk í gær 2. umr.
um stjórnarfrumvarpið um tekju-
skatt og cignaskatt, en atkvæða-
greiðslu var frestað.
Björn Jónsson fiutti nú síðari
hluta ræðu sinnar en hann var
í miðri ræðu þegar fundi var
frestað sl. þriðjudag. Meginkafli
fyrri hluta ræðu Björns er birt-
ur í dag I oonu.
í ræðukafla sínum í gær ræddi
Björn einkum breytingarnar sem
frumvarpið gerir á framkvæmda-
köflum skattalaganna. . Sýndi
Björn fram á að þeir beinist að
þessu:
11 að því að stokka udd emb-
ættismannakerfið og gefa fjár-
málaráöherra tækifæri til að raða
í það að nýju eftir geðþótta sín-
um.
2) að setia fasta embættismenn
í stað skattanefndanna, sem nú
veita borgurunum nokkra lýð-
ræðislega aðild að framkvæmd
skattalaganna.
3) að því að fjölga mjög emb-
ættismönnum í kerfinu og gera
það kostnaðarsamara en áður.
Björn tók fram að hann teldi þó
sumar breytingarnar á fram-
kvæmdaköflunum engan veginn
fráleitar, og nefndi þar einkum
til skiptingu landsins í skatta-
umdæmi, en afnám skattanefnd-
anna væri varhugavert bæði
vegna kostnaðarhliðarinnar og
einnig af öðrum ástæðum.
Fárviðri veldur stórtjóni
báðummegin Atlanzhafs
NEW YORK, LONDON 8/3 —
Ægilegt fárviðri geysar nú á
Atlanzhafi. Fjöldi skipa hefur
Ient í erfiðleikum og tjón hefur
orðið á mönnum og mannvirkj-
um á ströndunum beggja megin
hafsins. Einna harðast hefur
austprströnd Bandaríkjanna <>rð-
ið úti, en þar hafa 35 menn
látið lífið og 6.000 misst heimili
sín. Tjón á mannvirkjum er
metið á meir en 100 milljónir
dala.
Raflínur og hafnarmannvirki
meðfram ströndinni hafa orðið
•fyrir miklu tjóni og í smábæj-
unum hafa hús rifnað af grunni.
Yfirvöld bæja á ströndinni frá
Carolinu til Nýja Englands. hafa
snúið sér til Hvíta hússins og
beðið um aðstoð. Kennedy for-
seti tilkynnti að hann myndi
vinda bráðan bug að því að út-
vega nauðsynlega hjálp.
Liberíska tankskipið Gem í
brotnaði í tvennt úti fyrir
strörid Norður-Carolínu. Danska
skipið Jytte Skou heyrði neyð-
armerki frá Gem og er nú reiðu-
búið að hjálpa þegar tækifæri
gefst.
Mörgum öðrum skipum hefur
hlekkst á. Timburfarmur banda-
risks flutningaskips haggaðist
svo að.skipið var í þann veginn
að velta. Tiu metra háar öldur
brutu kinnung annars skips.
Fregnir frá Lo.ndon herma að
ofviðrið hafi rofið stiflugarða á j
ströndum Cornwalls og að sjór
hefði flætt yfir smábæina Penz-
ance og Newlyn. Hundruð manna
hafa orðið að flýja hejmili sín.
Flóðið velti ljósastaurum urn
og fylltj kjallara húsanna af
sandi, Járnbrautarstöðin í Penz-
ance er undir vatn; og jám-
brautasamband við borgina r°f-
ið.
Fréttir frá París segja >að
fimmtán metra háar öldur hafi
brotið niður vatns- og rafmagns-
leiðslur á Quiberon-skaga í Bret-
agne. Veðrið er tal’ið hið versta
sem orðið hefur í 40 ár. Vind-
hraðinn náði 150 km á klukku-
stund.
Frá Belgrad hafa borizt þær
fréttir að Elva Juzna Morava
í Serbíu sé undir vatni og að
hermenn hafi orðið að aðstoða
í fleirj þorpum. Flætt hefur yf-
ir hundruð húsa og mikið af
ræktarlandi hefur algjörlega orð-
ið flóðinu að bráð
.
Nýrrar endurskoðunar þörf
Björn gagnrýndi, að ekki væri
reynt í þessurn nýju skattalögum
að bæta úr höfuðmeinsemd
Framhald á 10. síðu.
Æskulýðs-
kvöld í
Skálanum
Það er ungt fólk sem
annast dagskrá Menning-
arviku Samtaka her-
námsandstæðinga í Lista-
mannaskálanum í kvöld
Fjögur ung skáld, þau Ari
Jósefsson, Dagur Sigurðarson,
Ingibjörg Haraldsdóttir og
Jón Reynir Þórarinsson flytja
frumsaminn skáldskap. Ingi-
björg og Jón eru ennþá nem-
endur í Menntaskólanum.
Strokkvartett ungs tónlist-
arfólks flytur þátt úr kvartett
eftir Mozart. Hljóðfæraleikar-
arnir eru Hafliði Hallgríms-
son, Helga Hauksdóttir, Jakob
Hallgrímsson og Sturla
Tryggvason.
Dagskránni lýkur með er-
I indi Þorsteins Jónssonar frá
Hamri: Að trúa stáli.
Kynnir verður Ragnar Arn-
alds.
Á fimmtu og síðustu dag-
skrá Menningarvikunnar ann
að kvöld flytur dr. Jakob
Benediktsson erindi um ís-
lenzk handrit og flutt verður
sónata eftir Mozart.
Aðgöngumiðar að dagskrán-
um eru seldir fyrirfram í
skrifstofunni Mjóstræti 3,
símar 23647 og 24701, og á
sýningunni í Listamannaskál-
anum, sem er opnuð klukkan
tvö. Verð aðgöngumiða er 25
krónur.
★
Frá dagskrá menningarvik-
unnar á þriðjudagskvöld. 'Á
e?ri myndinni sjást Jórunn
Viðar (t.h.) sem þar lék á
píanó, og Björn Th. Björnsson
(annar frá vinstri) sem talaði
’ um íslenzka málaralist. A ’
neðri myndinni sér yfir á-
heyrendahópinn. (Ljósm. AK).