Þjóðviljinn - 09.03.1962, Page 5
Framlacfið í atvinnu-
bétasféð alítof lágt í
Nóg lið gegn 0 AS
meginkrafa Serkja
EVIAN 8/3 — Fulltrúar Serkja
og Frakka sem nú eru í Evian
til að ganga frá samnángum um
vopnahlé í Alsír héldu með sér
tvo fundi í dag og stóðu þeir
i fimm og hálfa klukkustund.
Fréttastofa, Serkja í Túnis til-
kynnti í dag að enn væri eft-
ir að koma sér saman um fá-
ein atriði og væru þau erfið
viðureignar. Ef Frakkar sam-
þykkja ekki að Serkir fái, eftir
að vopnahléi verður komið á,
leyfi til að hafa í Alsír nægi-
lega fjölmennt gæzlulið til að
gera fasista óvirka, þá hafa
þeir ákveðið að halda stríðinu
áfram, segir í fréttinni.
E1 Moudrahiad, blað Þjóð-
frelsishreyfingar Serkja segir að
í gæzluliði því sem um er að
ræða yrðu ungir Alsírmenn á
herskyldualdri undir stjórn
serkneskra liðsforingja. — Það
32 farast í
bílslysi
MEXIKOBORG 8/3. — Alls biðu
32 menn bana og 26 særðust
þegar áætlunarbifreið rakst á
hamravegg í námunda við ferða-
mannabæinn Cueranavaca í gær.
Hemlamir brugðust þegar bif-
reiðinni var ekið á miklum hraða
niður langa brekku og rakst hún
fyrst á vörubíl en síðan á
hamravegginn. Meðal þeirra sem
Jétust voru tólf böm.
er deginum ijósara, segir blað-
ið, að trygging fyrir röð og
reglu í Alsír er ein höfuðkrafa
okkar.
Eftir því sem blaðið segir,
hafa Frakkar í uppkastinu sam-
þykkt að kalla heim her sinn
í Alsír. Frakkar hafa þó heim-
ild til að notfæra $ér herstöðv-
ar sínar í landinu í fimm ár.
Þeir munu hafa afnot af flota-
stöð sinni: í Mers-El-Kebir í 15
ár. Þó er vandlega kveðið á um
það að herstöðvar þessar má
ekki nota til árása á nokkurt
•land í Afríku, né þau lönd sem
eru í vinsamlegu sambandi við
Alsír-ríkið.
Alsír mun verða óháð og full-
alda ríkf strax og kosið hefur
verið þing sem mun semja .hina
nýju stjómarskrá landins.
í samningnum eru yfirráð Al-
sírmanna yfir Sahara viður-
kennd svo. og réttur þeirra til
að notfæra sér náttúruauðæfi
þar.
iHöfuðvaridamálið sem eftir
er að leysa er hvort lið Þjóð-
frelsjshreyfingarínnar sem nú
dvelst í Túnis og Marokkó fái
leyfi til að fara til Alsír strax
og vopnahléi hefur verið komið
ái^ til þessi aðj berjast gegn
frönskum öfgamönnum og
hermdarverkamönnum OAS-sam-
takanna.
Eínnig er deilt um hvaða að-
ferð skal við höfð við að láta
lausa u.þjb. 17.000 menn Þjóð-
frels.ishreyfingarinnar sem Frakk-
ar hafa í haldi. Af þeim hafa
um 300 verið dæmdir til dauða
eða í ævilangt fangelsi. Frakkar
vilja byrja á því að láta þá
lausa sem vægastan dóm hafa
hlotið, en Serkir öfugt.
Franska Jlandvarna:r;áð!uneyltið
tilkynnti í dag að manntjón
Serkja í Alsírstríðinu hefðj ver-
ið 141.000 menn en af Frökkum
hefðu fallið 17.250. 51.800 Frakk-
ar hafa særzt en ekki er vitað
um fjölda særðra meðal Serkja.
Herskip ráðast á
fiskibáta
KAIRO 8/3 — Egypzka dagblaðið
Gumhouria tilkynnti í dag að
flotasveit frá Saudi-Arabíu hefði
í dag ráðist á egypzka fiskibáta
á Rauðahafinu. Árásin átti sér
stað nálægt suðurodda Sinai-
skaga, á yfirráðasvæði Egypta-
lands.
1 Beirut var sagt að Sambúð
Saudi-Arabíu og Arabíska sam-
bandslýðveldisins myndi við
þennan atburð versna enn. Talið
er að árás þessi geti leitt til
þess að stjórnmálasamband milli
landanna verði rofið, pílíagríms-
ferðir múhameðstrúarmanna til
Mekka verði stöðvaðar og banda-
lagi Arabaríkjanna bannað að
halda fundi sína í Riyadh, höf-
uðborg Saudi-Arabíu.
Enn urðu langar umræður í
neðri deild Alþingis í gær um
atvinnubótasjóð, og tóku til máls
Gisli Jónsson, Eysteinn Jónsson,
Gísli Guðmundsson, Gunnar Jó-
hannsson, Hannibal Valdimars-
son, Skúli Guðmundsson og
Halldór Asgrímsson. Þetta var 3.
umræða málsins í neðri deild og
lauk nú loks umræðunni, en at-
kvæðagreiðslu var frestað.
Lögðu þingmennirnlr úr Al-
þýðubandalagsinu og Framsókn
sem töluðu mesta áherzlu á að
framlag ríkisins til sjóðsins, 10
milljónir árléga væri alltöf
lágt, en það hefði orðið 13'/2—15
milljónir í tíð vinstri stjórnarinn-
ar og yfir 14 milljónir tvö ár eft-
ir það. Samsvarándi upphæð nú
þyrfti að vera 25—30 milljónir
króna.
Þingmenn sömu flokka töldu
að hlutverk atvinnubótasjóðsins
ætti eingöngu að vera að stuðla
Stjórnarskrá
Noregs breytt
OSLÖ 8/3. — Norska Stórþingið
samþykkti seint í kvöld tlllögu
frá meirihluta utanríkis- og
stjórnarskrárnefndar um að
bæta við nýrri grein í stjórnar-
skráná. Tillagan var samþykkt
með 115 atkvæðum gegri 35.
1 hinni nýju stjórnarskrárgrein
er kveðið á um það að Stórþing-
ið geti með þrem fjórðu hlutum
atkvæða afhent alþjóðlegum sam-
tökurry sem Noregur er eða verð-
ur aðili að, takmarkaðan hluta
yfirráða sinna, án þess að breyta
stjórnarskránni frekar.
að jafnvægi í byggð landsins.
Iiannibal Valdimarsson taldi
vanhugsuð þau ummæli Gísla
Jónssonar að þessum sjóði væri
ætlað að ráða bót á atvinnu-
leysi þar sem það kæmi upp. Til
þess væri fjármagn hans alltof'
lítið, og því verkefni gæti at-
vinnuleysistryggingasjóður betur
betur gegnt, sem nú þegar væri
orðinn 300 milljónir kr. sjóður.
Gunnar Jóliannsson flutti skrif-
lega breytingartillögu þess efnis
að leitað yrði álita Alþýðusam-
bands íslands um lánveitingar1
og taldi Gísli Jónssön sjálfsagti
að samþykkja þá tillögu.
SIGLUFIRÐI 8/3 — Brezki tog-
arinn Ross Archer virðist ekki
ætla að géra þ'að endasleppt sem
fréttamatur, því í kvöld, þegar
hann var að halda héðan frá
Siglufirði bilaði stýrisútbúnaður
hans og rak hann stjórnlaust upp
í svokallaða Staðarhólsfjöru og
strandaði þar. Siglfirzku bátarn-
ir Hringur og Hrefna komu hon-
urn brátt til aðstoðar, komu
dráttartaug um borð í togarann.
og drógu hann upp að bryggju.
Veður var sæmilegt, er þetta
gerðist, norðaustan kaldi og
éljagangur en Íítill sjór. Brottför
'togaráns mun tefjast eitthvað af
þessum sökum en ekki er vitað
hve alvarleg bilun þetta er.
Ross Árcher
sfrandðii
RÝM
INGARSALA
Til að rýma fyrir nýjum birgðum
seljum við í dag og nœstu doga
EFTIRTALDAR VÖRUR MEÐ MJÖG MIKLUM AFSLÆTTI
FYRIR KVENFÓLK: Poplínkjólar frá 445,00 Fyrir HERRA og DRENGI • •
Dragiir frá 295,00
Ullarkápur frá 595,00 Pils frá 95,00 Herra ullarfrakkar frá 685,00
Pelsar frá 3485,00 Peysur frá 95,00 Drengja ullarfrakkar frá 695,00
Poplínkápur frá 395,00 Húfur frá 30,00 Blússur frá 295,00
Úlpur frá 595,00 Treflar frá 45,00 Prjónaskyrtur frá 125,00
Apaskinnsjakkar frá 295,00 Barnakápur frá 295,00 Peysur frá 175,00
Interlockprjónakjólar frá 395.00 Bamapeysur frá 85,00 Vesti frá 295,00
FERMINGARKÁPUR FRÁ 795.00
NC ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ GERA GÖÐ KAUP F YRIR VORIÐ
Eygló Laugavegi 116
Föstudagur 9. marz 1962
ÞJÓÐVILJINN