Þjóðviljinn - 13.03.1962, Síða 1

Þjóðviljinn - 13.03.1962, Síða 1
yiLIINN Þriðjudagur 13. marz 1962 — 27. árgangur — 59. tölubiað. stefnt fyrir tutt ugasta hluta smyglsins! Vilhjálmi þór ekki stefnt fyrir milljónasmygl sem skipulagt var í formannstíð hans Rannsóknardómarnir í olíumálinu skýrðu frá því á sínum tíma að Olíufélagið h.f. og Hið íslenzka stein- olíuhlutafélag hefðu stund- að stórfellt smygl alla tíð frá 1952 og hefði megin- hluti þessa ólöglega inn- flutnings numið að verð- mæti 130 þúsundum dollara á innkaupsverði eða 5.6 milljónum króna eftir nú- verandi gengi. Saksóknari ríkisins stefn- ir ráðamönnum Olíufélags- ins hins vegar aðeins fyrir að hafa „á tímabilinu frá desember 1956 til desember 1958 flutt inn 23 vörusend- ingar og tilgreint ranglega á innflutningsskilríkjum að viðtakandi vörunnar væri varnarlið Bandaríkjanna á íslandi (Iceland Air Defense Force) til þess að komast hjá greiðslu aðflutnings- gjalda“. Samkvæmt því krefst saksóknari aöeins „upptöku á andvirði ólög- lega innfluttrar vöru að fjárhæð samtals kr. 280.826, 00“. Það er þannig EKKI stefnt fyrir ólöglegan inn- flutning á tímabilinu 1952 —1956, en helming þess tíma var Vilhjálmur Þór formaður Olíufélagsins. Og smygl sem nemur að verð- Framhald á 11. síðu. Bætti eigið heimsmet Norðmaðurinn Ewandt keppti * hér um helgina sem gestlr á | innanhússmóti ÍR. Hann setti 1 heimsmet í langstökki án ; atrennu, í stað þess að setja S það í -hástökki án atrennu, : eins og búizt hafði verið við. * A íþróttasíðu er skýrt ítar- S fega frá gangi mótsins. — 5 (Ljósm. Bj. Bj.). Öfœr leið að láta bátaflotann standa undir togaraútgerðinni Talsmenn beggja stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi, Lúðvík Jósepsson og Eysteinn Jónsson, lögðust báðir eindregið gegn þeirri fyrirætlun rík- isstjórnarinnar að skattleggja stórlega allan báta- flota landsmanna til þess að styrkja togaraútgerð- ma. Fyrsta umræða um stjórnar- frumvarpið um aflatryggingar- sjóð sjávarútvegsins fór fram í neðri deild í gær, og var mál- inu í fundarlok vísað til 2. um- ræðu og sj.ávarútvegsmálanefnd- ar. Framsögu hafði Emil Jóns- son sjávarútvegsmálaráðherra og auk hans töluðu Eysteinn Jóns- son og Lúðvík Jósepsson. Lúðvík kvað ekki mundi um það deilt að aðalefni frum- varpsins væri að veita togara- útgerðinni fjárhagslegan stuðn- VILHJÁLMUR ÞÓR í NEW YORK ÞJÓDVILJINN TELUR sig nú hafa öruggar heimildir fyrir því að Vilhjálmur Þór, seðla- bankastjóri og sakborningur í olíumálinu, hafi farið til New Yqrk. Vilhjálmur fór utan fyrra Iaugardag, eftir að hann vissi að sak- sóknari hafði ákveðið málshöfðun, og Seðla- bankinn neitaði að gefa upp hvcrt hann liefði farið og hverra erinda. EINS OG RAKIÐ hefur verið hér í blaðinu hef- ur saksóknari ríkisins ákært Vilhjálm Þór fyrir að hafa ráðstafað 6,2 milljónum króna ólöglcga árið 1954. Þau gjaldeyrissvik áttu sér stað i New York. Er ef til vill ennþá hægt að hagræða sönnunargögnunum? ing. Þeim tilgangi væri héi blandað við alls óskilt mál, Hlutatryggingasjóð bátaútvegs- ins. Tillögur ríkisstjórnarinnar væru byggðar á starfi nefndar, sem á vegum ríkisstjórnarinnar hefði athugað afkomu togara- flotans og skilað áliti nokkru fyrir áramótin. Átaldi Lúðvík að málið skyldi lagt fyrir Al- þingi án þess að niðurstöður nefndarinnar fylgdu með, þing- mönnum til leiðbeiningar, og óskaði eftjr að skýrsla nefndar- innar yfði lögð fram í meðferð málsins. ★ Þarf að Ieita víðar fanga Um það væri ekki deilt, að togaraútgerðin ætti nú við fjár- hagslega örðugleika að stríða. En málið yrði ekki einfaldlega skýrt eða afgreitt með því að vitna í minnkandi afla, heldur kæmi fleira til. Afli íslenzku togaranna hefði dregizt saman, en það væri að sáralitlu leyti vegna stækkunar landhelginnar, eins og mjög hefði verjð haft ái orði. En hins vegar virtust ekki fullreynd úrræði sem aðraB þjóðir hefðu gripið tjl, svo seit9 að leita meira af heimamiðunv íslenzku togurunum hefði þessl siðustu ár að langmestu leytf verið haldið á aflaleysissvæðun» um kringum ísland, á samS tíma og aðrar fiskveiðaþjóðij} hefðu leitað víðar fanga. Nauðsyn væri á að breyt# skipunum nokkuð svo þau ættlj hægra með að sækja til Græn* lands eða á Nýfundnalandsmið^ t.d. með því að gera ráðstafan* Framhald á 4. síðu. Kvikmyndin sem j um er talað er ! Aktion J.—Sýnd i dag — Sjá 3. síðu FJÖLSÓTTUR LOKAFUNDUR Menningarviku hernáms- andstæðinga lauk á sunnudag- inn. Listsýningunni í Lista- mannaskálanum var lokað þá um kvöldið, en fyrr um dag- inn hafði verið haldinn fjöl- sóttur lokafundur í Austur- bæjarbíói. Þar var m.a. flutt samfelld dagskrá úr Islands- sögunni 1944—62 er þeir höfðu tekið saman Jón Ilelgason rit- stjóri og Þorsteinn frá Hamri skáld. Flytjendur dagskrár- innar sjást hér á myndinni, en þeir voru: Alþýðukórinn undir stjórn dr. Hallgríms Helgasonar (við hljóðfærið yzt til vinstri), Jón Múli Árnason, Þorsteinn Ö. Stephensen.l Magnús Bjarnfreðsson, Ragnar^ Arnalds og Gísli Halldórsson (sitjandi, frá vinstri til hægri). Aðrir sem fram komu á fund- inum voru Ilanna Bjarnadótt- ir söngkona, sem söng lög eft- ir Fjölni Stefánsson við undir- leik Jórunnar Viðar, Sigurður Örn Steingrímsson fiðluleikari og Kristinn Gestsson píanó- leikari sem léku sónötu eftir Mozart og Þóroddur Gnð- mundsson skáhl, sem flutti lokaorð. Kynnir var Pétur Pétursson. :

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.