Þjóðviljinn - 13.03.1962, Side 12

Þjóðviljinn - 13.03.1962, Side 12
11 gagnfræðaskólaplltar hafa senn réttindi til skipstjórnar á bátum f #1 fyrradag luku 11 nemendur í Gagn- í bæðaskóla verknáms prófi í siglingafræðum, !iem veitir þeim réttindi til skipstjórnar á feátum alit að 30 tonn, er þeir hafa lokið 18 • mánaða sjómennsku. £ Eins og kunnugt er þá hafa nemendur f f Gagnfræðaskóla verknáms valfög og ósk- j uðu þessir 11 drengir eftir að fá að taka ! siglingafræði sem aukagrein. Piitstrnir höfðu • allir 2ja til 8 mánaða siglingatíma, en skil- yrði fyrir náminu er að hafa minnst 2ja ' mánaða siglingatíma. Drengirnir urðu að leggja hart að sér við námið. þar sem þetta vaV aukafag. Ing- ólfur Þórðarson, kennari við Stýrimannaskói- ann, kenndi piltunum og lét mjög vel af f'rammistöðu þeirra og sagði að þeir hefðu sýnt míkinn áhuga og dugnað. Magnús Jónsson skólastjóri Gagnfræða- I skóla verknáms, sagði við fréttamann blaðsins að skólastjóri Stýrimannaskólans hefði sýnt þessu máli mikinn áhuga og látið í té hús- næði og kennsluáhöld. ^ Vinsælasa valfagið í Gagnfræðaskóla verknáms er vélritun, en þetta er í fyirsta sinn, sem nemendur hafa lagt fyrir sig sigl- ingafræði. Q A myndinni sjáum við kennarann Ingólf Þórðarson, ásamt nemendum sínum, scm eru á aldrinum 16 til 17 ára. Forystumenn Serkja brátt látnir lausir QParIs 12/3. — Láta á lausa Jífen Bella og aðra ráðherra Serkja Vem í haldi eru í Frakklandi um !«ið og lýst hefur verið yfir yopnahléi og munu þeir þá íara flugleiðis til Rabat í Mar- •kko. AHt bendir nú til þess að Jpelta verði bráðlega. Meðal ann- íi-rs hefur öryggisviðbúnaður verið itnkinn við Aunoy-höll þar sem Jþcir eru í haldi. Ful'ltrúar stjórnar Marokkó og Ötanríkisþjónustumenn sem hafa létið mál Ben Bella til sín taka fiú ttust í sendiráði Marokkó í línorgun, augsýnilega til að ræða 'J"* . .. ....... - - 1 Sósíalistar Reykjavík písialistafélag Reykjavíkur held- siír félagsfund næstkomandi ‘^lmmtudagskvöld. Nánar getið í ílilaðinu á morgun. frekar um frelslun Ben Bella og félaga hans. Frá Rabat hafa borizt fregnir um að undirbúningur sé hafinn undir að bjóða Ben Bella og fylgdarlið hans velkomið til borg- arinnar ög frelsisins. Franska stjórnin hefur bann- að allt flug nema venjulegt á- ætlunarflug í Alsír frá og með deginum í dag. I París er talið að bann þetta sé til þess að hindra OAS í að gera loftárás þegar Ben Bella og hinum ráð- herrunum fjórum verður sleppt úr haldi, en einnig til að tryggja öryggi almennings í landinu og koma í veg fyrir að forkólfar OAS-samtakanna geti ferðast til og frá Alsír. Síðdegis í dag stöðvaði hálfr- ar stundar verkfall neðanjarðar- lestir og strætisvagna í París. Vinna féll einnig niður í mörg hundruð fyrirtækjum og skrif- stofum. Var hér um að ræða mótmælaverkfall gegn OAS sem naut stuðnings allra verkalýðs- félaga. Sprengingin í útborginni Issy-les-Molineaux hefur orð- ið til þess að æsa enn frekar upp andúð almennings á OAS-sam- tökunum. EVIAN 12/3. — Umraéðum Frakka og Serkja um frið í Alsír var haldið áfram í dag en ekki varð af næturfundi, eins og bú- ist hafði verið við, vegna þess að sendinefndirnar voru of þreyttar til að halda umræðum áfram. Umræðurnar hófust í morgun með fundi allra fulltrúanna sam- eiginlega en síðan skiptust full- trúarnir í tvær nefndir og ræddi önnur um hernaðarleg atriði samninganna en hin um þau stjórnmálalegu. Fregnir herma að samningar Framhald á 3. síðu |IIÓI)VILJINN Þriðjudagur 13. marz 1962 — 27. árgangur — 59. tölublað. VIÐ NOTKI NAVOPN MOSKVU 12 3 — Sovétríkin eru reiðubúin til að skuldbinda sig til að láta ekki öðrum lönduni í té kjarnorkuvopn, ef Banda- ríkin, Bretland og Frakkland taka sér sömu skuldbindingar á herða(r, segir í bréfi sem Gromy- ko utanríkisráðherra hefur sent U Thant framkvæmdastjóra SÞ. Gromyko segir að Sovétríkin telja það mjög mikilvægt að þau lönd sem enn hafa ekki kjarn- orkuvopn afli sér þeirra ekki hér . eftir. Sovétríkin eru staðráðin í að gera sitt til þess að Afríka verði kjarnorkulaust belti svo og að koma á svipuðum beltum í Mið-Evrópu, Austurlöndum, Kyrrahafssvæðinu, Balkanlönd- unum og víðsvegar um heiminn. Sovétríkin vilja gera allt sem í mannlegu valdi stendur til að skapa grundvöll undir hagstæða lausn á mikilvægasta viðfarlgs- efni okkar tíma — að koma í kring algjörri afvopnun undir ströngu alþjóðlegu eftirliti. 1 öðru bréfi til U Thants framkvæmdastjóra segir Gromy- ko að Sovétríkin leggi mikla. á- herzlu á að kvatt verði saman sérstakt þing sem ætlað sé að undirrita samning sem ba'nni notkun kjarnorkuvopna. Slíkur samningur yrði verulegt spor í átt til algjörs banns við kjarnorku- vopnum, í þá átt að þessi vopn verði fjarlægð úr vígbúnaði þjóð- anna og í átt til þess að eyði- lagðar verði allar birgðir slíkra vopna. OASverkfall AIGEIRSBORG 12/3 — OAS-sam- tökin hafa boðið til sólarhrings verkfalls eftir að vopnahléi hef- ur verið komið á í Alsír. Frönsk yfirvöld reikna með að verkfallið njóti stuðnings allra Evrópumanna í Alsír, en þeim hefur OAS fyrirskipað að halda sig heima innan lokaðra dyra og glugga. I dag var opinberum starfs- mönnum um gjörfallt Alsír fyr- írskipað að gegna störfum sín- um á meðan á verkfallinu stend- ur, sömuleiðis var starfsmönnum Algeirsborgarútvarpsins skipað að annast, útsendingar þrátt fyr- ir verkfallið og heimildir herma að tæknimenntaðir menn hafi verið fluttir frá Frakklandi tii Alsír til þess að sjá um að gas-, rafmagns- og vatnskerfið bregðist ekki þegar verkfallið skellur á. Aðalsendimaður Frakka í Alsír, Jean Morin, hefur fengið sér- stakt umboð til að handtaka hvern þann sem ekki framfylgir fyrirskipununum um að annast starf sitt þrátt fyrir verkfalls- boðun OAS. Alls voru tólf menn drepnir í Alsír í dag og tólf særðir. Tíu manna OAS-flokkur stal sjón- varpssendinum í Oran þegar ver- ið var að flytja hann til her- bækistöðvanna þar í borg í ör- yggisskyni. Þrjú rán voru framin í Alsír í dag og rænt sem svarar tveim milljónum króna. Maður bíður bana í Ytri Njarðvík Um kl. 3.30 á sunnudag varð banaslys í Ytri Njarðvík. Varð tæplcga 59 ára gamall maður, Jónas Sigurösson Suðureyri við Súgandafjörð, fyrir fólksbifreið- inni G-174 og andaðist rétt á eftir’ af afleiðingum slyssins. Slysið varð á Reykjanesbraut á milli húsanna nr. 42 og 44 við þá götu. Bifreiðarstjórinn segir að maðurinn hafi gengið þvert fyrir bifreiðina og hafi hann ekki getað afstýrt árekstri. Við árekst- urinn kastaðist maðurinn út í grjóturð utan við veginn. Hann var fluttur í sjúkrasúsið í Kefla- vík en andaðist rétt eftir að þangað kom. Við rannsókn máls- ins í gær kom í ljós, að hand- hemill bifreiðarinnar var óvirk- ur og einnig var hraðamælir bil- aður. Rannsókninni var ekki lok- ið og verður henni haldið ófram í dag. Hinn látni var starfsmað- ur á Keflavíkurflugvelli. ^RENTSMIÐJA ÞJÖÐVILJANS H.F. PRENTSMIE'JA ÞJÖÐVILJANS H.F. PRENTSMIEÍJA ÞJÖÐVILJANS H.F. PRENTSMIÐJA ÞJÖÐVILJANS H.F. PRENTSMI (fjftENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMIBiIA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMIEÍJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMI

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.