Þjóðviljinn - 13.05.1962, Blaðsíða 1
Stjórnar-
kreppa & ný í
Argentínu
BUENOS AIRES 12/5 — Sterk-
ur órðrómur er uppi um það í
Buenos Aires að ný stjórnar-
kreppa sé í uppsiglingu í Argen-
tínu. Fullyrt er að 4 ráðherrar
muni segja aí sér, innanríkis-
ráðherrann, utanríkisráðherr-
ann, varnarmálaráðherrann og
| menntamálaráðherrann.
Ástaéðan fyrir stjórnarkrepp-
unni á að. vera hinn mikli á-
greiningur innan ríkisstjórnar-
nnar um það hvort efna skuli
til nýrra kosninga og hvernig
eigi að framkvæma bær. Juan
Baptista Lo.za hermálaráðherra
gaf í gær út yfirlýsingu um það,
að herinn hafi skuldbundið sig
til að styðja ríkisstjórnina.
Jarðskjólfti
olli skelfingu
MEXICO CITY 12/5 — Fimm
manns fórust Og 50 meiddust í
miklum jarðskiálfta, sem varð
hér í gær. Skelfing greip um
sig meðal borgarbúa, sem þustu
út undir bert loft. Tveir menn
sem fórust í höfuðborginni dóu
báðir af hjartaslagi.
Sagt er að myndast hafi eld-
fjall hjá bænum Luzco og sé
það afleiðing af jarðskjálftun-
um.
-------------------------<$>
■ív:
■
mmmmÉM
Andi borgarstjórans svífur yfir bröggunum
Myndin, scm hér birtist, cr
„leyniniynd“ úr fórum borg-
arstjórnarmcirihluta íhalds-
ins. Mun hún hafa átt að
birtast í Bláu bókinni í ár cn
því miður fallið niður í
prcntuninni af einhvcrjum
dularfullum ástæðum og
komst Þjóðviljinn yfir hana.
Myndin mun hafa átt að birt-
ast í þcim kafla Bláu bókar-
innar, sem f jallar um „orð,
efndir og framtíðarverkefni“
borgarstjórnarmeirihlutans í
sambandi viö útrýmingu
bragga og annars heilsuspill-
andi húsnæðis í Kcykjavík. Et
flett er Bláu bókum undan-
farandi kosningaára geta
menn fundið orðin. Mcðfylgj-
andi mynd er hins vcgar eitt
af táknrænum dæmum um
efndirnar. Þess vcgna er það
cnn eitt af framtíðarverkefn-
um borgarstjórnarmeirihluta
íhaldsins undir foruslu Geirs
Hallgrímssonar að brúa djúp-
ið milli orða og cfnda, ekki
aðeins í þcssu máli- heldur
og mörgum öðrum. Það er
von, að borgarstjórinn sé
alvörugefin og ábyrgðarfullur
á myndinni, þegar andi hans
svífur yfir borginni, yfir
bröggum, skúrum, ógerðum
götum o.s.frv. o.s.frv., og sér
allt, sem er vanrækt og ógert.
1»
<>
f
Við úthlutun listamanna-
fjár 1962 hefur veriö geng-
iö fram hjá mörgum kunn-
um listamönnum, og lýsti
fulltrúi Alþýöubandalags-
ins í nefndinni sig ósam-
þykkan úthlutuninni, meö
þeim rökstuöningi aö ENG-
[N breytingatillagna hans
um tilfærslur eöa nýja
menn heföu náð samþykki,
og væri hann einnig and-
vígur mörgum öörum ráð-
stöfunum meirihluta nefnd-
arinnar.
Helztu breytingarnar frá út-
hlutun 1961 eru þær að Guð-
mundur Ingi Kristjánsson, Jó-
hann Briem, Sígurður Einarsson
(!), og Þorvalcíur Skúlason flytj-
ast í næstefsta ílokkinn. Úr
næsta flokki voru m.a. felldir
Gunnar M. Magnúss, Hanncs
Sigfússon og .íón Dan. Listi yfir
úthlutunina í heild er birtur á 2.
síðu.
Sigurður Guðmundsson rit-
stjóri,. fulltrúi Alþýðubandalags-
ins í nefndinni lét bóka eftir-
farandi á síðasta íundi nefndar-
innar:
„Ég tel enn sem fyrr óliæít
með öllu núverandi fyrirkomu-
lag á úthlutun listamannafjár,
að nefnd kjörinni til eins árs er
falin úthlutunin, án þess að hafa
nokkurn lagastaf eða reglugerð
að íara eftir. Þau sextán ár, sem
þetta fyrirkomulag hefur við-
gengizt| hefur það átt að heita
til bráðabirgða og löggjöf um
málið boðuð og lofað, milliþinga-
nefndir starfað og skilað viða-
miklum álitum, frumvörp verið
lögð fyrir Alþingi, en til þessa
dags hefur Alþingi brugðizt þeirri
skyldu að koma festu á þessi
mái með skynsamlegri löggjöí.
Verður ekki lengur undan því
vikizt. Það er þó aðeins önnur
hlið vandans. Jafnframt verður
að stórauka f járveitinguno til
listamanna, því segja má að það
sé að verða háðung en ekki heið-
jr, að Alþingi skuli veita tveim-
ur höfundum einar 33 320 krónur
sem „sérstök heiðurslaun“. og
núverandi fjárveiting sníður
hvaða úthlutunaraðiia sem væri
þröngan stakk.
Um úthlutun þessa árs vil ég
taka fram, að ég tel. mig ósam-
þykkan í heild úthlutuninni,
nema í efsta flokknum sem er
óbreyttur frá sl. ári. Ber það
til, að engin einasta breytingar-
tillagna minna um tilfærslur
milli flokka og nýja menn náðu
samþykki, en þar á meðal voru
tillögur um Halldór Stefánsson,
Stefán Jónsson, Jón Helgason,
Svavar Guðnason og Karl O.
Runólfsson í 21 þús. kr. Ég er ó-
samþykkur meirihluta nefndar-
innar í því, að ganga svo frá
úthlutuninni að gengið sé fram
hjá Gunnari Benediktssynij.
Gunnari M. Magnúss, Jónasi
Árnasyni, Jakobínu Sigurðardótt-
ur, Hannesi Sigfússyni, Jóni
Óskar, Kristjáni Bender, Sig-
fúsi Daðasyni, Jóhannesi Helga,
Þorsteini Jónssyni frá Hamri,
Einari Braga, Geir Kristjánssyni,
Elíasi Mar, Jóni Dan, Sigurði
Róbertssyni, Friðjóni Stefánssynii,
Vilhjáimi frá Skáholti, Karli
Kvaran, Kjartani Guðjónssyni,
Hjörleifi Sigurðssyni, svo nokkr-
ir séu tilnefndir. Einnig tel ég
að meira rúm hefði átt að gefa
hinum efnilegustu í hópi yngstu
listamannanna.
Af þessum sökum og eins hinu,
að ég. tel ýmsar hækkanir og
samþykktir meirihlutans í hæpn-
asta lagi, tel ég mig ósamþykk-
an í heild úthlutuninni í þremur
flokkunum, enda þótt ég hafi að
sjálfsögðu greitt atkvæði með
mörgum einstaklingum þeirra, cg
und.irrita úthlutunina með þeim
fyrirvnra“.
Hörkudeilur
innan EBE
Brússel 12/5 — Mikil óeining'
er nú ríkjandi í aðalstöðvurrn
Efnahagsbandalags Evrópu S
Brússel. Verið er að ræða um-
sókn Bretlands um aðild a©-
bandalaginu, og eru miklar
deilur í ráðherranefndinni um.
það hver réttindi Bretlands.
skuli vera innan bandalagsins;
Formaður ráðherranefndarinn-
ar, Coiombo frá Ítalíu, kvaðstt
gera sér vonir um að samkomu-
lag næðist um aðild Bretlands>
fyrjr lok júlímánaðar.
Dómur í máli:
Eichmanns
TEL AVIV 12/5 — Hæstaréttar-
dómur verður kveðinn upp yf-
ir Adolf Eichmann í byrjunt.
júnímánaðar. Undanfarið hefur
kanadískur klerkur, W.lliamt
Hull að nafni, heimsótt Eich--
mann 7 sinnum í fangelsið. eni.
það er í Ramlah í nágrenni Tell.
Aviv. ,
Eichmann á að hafa sagt, a5
prestinum muni aldrei takast að'
gera sig að sannkristnum manni,
en Hu]I segist hinsvegar hafa..
góða von um að geta bjargaðS-
sál Eichmanns.