Þjóðviljinn - 20.05.1962, Page 4
Baráttusaga Hannesar
Þegar loksins eftir mikiö
staut og basl, eða gauf og
hang’s slákra manna við slök-
Viðfangsefni, bókahroða, blaða-
hroða, kemur bók sem veigur
er í og fengur að fá er það ekki
ný bók eftir nýjan mann, nei
ónei, það er gömul bók eftir
gamlan mann, dáinn fyrir 27
árum, fœddan fyrir rúmum
hundrað. Þetta er Sjálfs-
ævisaga Hannesar Þorsteins-
sonar þjóðskjalavarðar. (Ég bið
þær nýlegu bækur, sem góðar
eru að athuga. að þetta er
ekki slílað til þeirra.)
Hún sýnir sem í spegli
hvernig kjör alþýðu voru hér
á landi á þessum löngu liðna
tíma, bág kjör voru það. En
ævi þessa manns er líkari æv-
intýri en flestar aðrar, svo ö-
vænlega horfir oft fyrir hon-
um, að það líkist engu nema
kraftaverki, að hann kemst af.
Og til þess kemst hann af, að
vinna hin nytsömustu störf, og
að því er virðist, betur en aðr-
ir hefðu getað gert. Þessi ævi
hefst á því að móðir hans el-
ur hann fárveik, og milli
heims og helju, svo hann fæð-
Þorsteinssonar
ist sjúkur, og nær sér aldrei
að fullu, en þó furðanlega. Síð-
an'steðja að honum ótai hætt-
ur, mannýgt naut eltir hann
lítinn, og það verður honum til
lífs, hve lítill hann er, hann
veður Tungufljót ófært og
slampast yfir fyrir einskæra
hundaheppni, stingur sig á
ibroddstaf svo ofarlega í lær-
ið, að við liggur að hann hol-
stingi sig og iþar með helstingi
sig, kemst í opinn dauðann í
foráttuibrimi við Stokkseyrar-
sund, og aftur á reið yfir á í
ölfusi á tæpu i^aði í kola-
myrkri, en áin floðmikil. Þá
bjargar ihonum á síðasta andar-
taki mennskur maður eða ó-
mennskur, sem hann sér þeysa
yfir ána á réttum stað, en
sjálfur var hann kominn af-
vega
Svo er að sjá sem Hannes
hafi trúað því að þetta hah
ekki verið einleikið, þó hann
vilji ekki við það kannast.
Hann liggur tvær háskalegar
stórlegur í taugaveiki, og segist
hafa tapað við það minni, en
svo traustlega hefur verið um
þann hnút ibúið, að ætíð hafði
hann betra minni en aðrir
■menn. Fantur slær hann, og
nær hann sér aldrei eftir á-
verkann til fulls. Hann kemst
í hann krappan í svaðilför að
norðan, fer yfir Hvítá ú hrip-
lekum bát ásamt félaga sínum,
og fleira mætti telja þar sem
mjótt var á milli lífs og hels.
En af allri neyð, sem yfir
þennan mann gekk ungan, var
ein átakanlegust; að Já ekki
svalað hámfýsi sinni, að sjá sér
enga leið opna til nolckurs
frama, raunar mátti það heita
handvömm, að úr því varð ekki
fyrr en varð, að hann kæmist
í skóla. Séra Þorkell á Reyni-
völlum bauð föður hans að
kenna honum undir skóla, en
faðir hans, sem sjálfur hafði
orðið að fara á mis við sárþráð
nám, hafnaði þessu. Og svo
gerðist undrið: Hann stendur
nítján ára gamall á Skólablett-
inum, og skólapiltar flykkjast
að honum og finna að þessi
tötraiegi piltur hefur
undursamlegt næmi og minni,
og nú vænkast honum hagur-
inn, allir vilja hjálpa honum,
en þó þykir fólkinu í sveit
nans þetta vera firrur og jam-
vel ganga glæpi næst. Gáf-
aður unglingur umkomu-
lítill getur átt heldur vant hjá
almenningi. Taki menn eftir
iþví hve nákvæmlega ber sam-
an frásögn Árna Þórarinssonar
í í sáiarháska (skráðri af Þór-
bergi Þórðarsyni), og er þó frá-
sögn Árna tekin upp 60 árum
síðar, en frásögn Hannesar 46
eða 47 árum síðar. Af þessu
má dæma hvort nokkurt sann-
leikskom muni ekki felast í
Árnasögu, þó sú lygasaga hafi
spunnizt upp, að lygnasti mað-
ur á landinu hafi sagt hana;
hitt mun sönnu nær, að hún
beri vott um óvenjulegt stál-
minhi og hreinskilni.
Eftir þetta verður Hannesi
ævivegurinn fremur beinn og
greiðfær, hann nær aðstöðu til
að neyta hæfileika sinna, en
þó var það undarlega gert, að
hrekja hann frá húskólanum
Braque í vinnustofu sinni í París. Lcreftstjöld skyggja á ljósið að utan.
Um síðustu helgi varð franski málarinn
Georges Braque áttræður. í fimmtíu ár hefur
hann ásamt öðrum snillingum Parísar-skól-
ans mótað og breytt öllum hugmyndum okk-
ar um list. Á þeim tíma hefur Braque sífellt
endurnýjað list sína og er enn 1 fullu fjöri.
Nýjustu myndir hafts telja sumir jafnvel það
bezta sem hann hefur gert.
þjálfunar, og þær opna augu
okkar spánýju útsýni.
Braque var síðastur en ekki
síztur „villidýranna“ (les
Fauves) og ásamt Picasso
brautryðjandi kúbismans og
l’art décoratif. Augljós eru og
merki hinnar írönsku hefðar
í kyrrlífsmyndagerð í verkum
hans
Nýjustu myndir hans eru
— eins og síðustu verk Titi-
ans, Rambrandts og Cézannes
— ávöxtur heillar ævi list-
rænnar vizku og tæknilegrar
• Myndir og
hár grána
— Já, hár mitt hefur grán-
að en menn geta þekkt mig.
Myndir mínar hafa gránað en
menn vita að þær eru mitt
verk. Sannleik þessara orða
Braques er hægt að staðfesta
þegar bornar eru saman
myndir öldungsins við verk
hins unga byltingarsinnaða
'manns fyrir 50 árum. Hlið-
stæðurnar eru augljósar og þá
sérstaklega tilhneigingar Bra-
ques til þess tvíræða og and-
stæða.
Og í rauninni ríkja and-
stæðurnar í eðli Braques
sjálfs. Sem unglingur var
ihann þekktur fyrir hæfni sína
í hnefaleik, dansi, harmóniku-
leik og æðisgengnum bifreiða-
akstri, einnig gat hann sér
nokkurrar frægðar sem stríðs-
hetja. „En það var alltaf eitt-
hvað dularfullt við hann“,
sagði Picasso einu sinni.
„Braque hefur alltaf þjáðst
af meðfæddum andlegheitum
sem guðhræðsla konu hans
hefur síður en svo dregið
úr“
Þessi „andlegheit" munu
' vera það sem Braque sjálfur
kallar poésie og sett hefur
dulrænan svip á margar hans
beztu myndir og þá' séi'stak-
lega þær sem ihann hefur
málað síðan hann hvarf inn
í sinn einkaheim fyrir 15 ár-
um.
• „Flæðandi
ástand‘‘
Nýjustu myndir Braques
sýna gjarnan stóra fugla á
flugi. Um þær segir listamað-
urinn sjálfur að þær séu loka-
niðurstaða allrar listar hans.
Þetta á þó enn frekar við um
meistaraverk hans, atelier-
myndir hans frá 1948—’55.
Myndir þessar eru hvorki
beinlínis figúratívar né non-
fígúratívar heldur hvoru-
tveggja. Ekkert í þessurn
myndum er í rauninni það
sem það sýnist, hlutirnir eru
málaðir í nokkurs konar
„flæðandi ástandi".
Eitt er víst. Braque vill
auka á torræðuna, ekki vegna
ónáttúrulegrar ljósfælni held-
ur vegna þess að honum
finnst að „hið eina sem er
verðmætt í list er það sem
ekki er unnt að útskýra".
Þannig ver hann sig jafnvel
gegn velviljuðustu listskýr-
endum.
Hannes Þorsteinsson
nýstofnuðum, og prestsskap fær
hann engan (góðu heilli), og
meinlegt tel ég það, að hann
skyldi ekki komast í Hafnar-
háskóla, vel getur verið, að úr
hæfileikum hans hafi, þrátt
fyrir allt, orðið öllu minna en
efni stóðu til.
Þó að Hannes teljist ekki
með höfuðskörungum stjórn-
málanna hér á landi, tel ég
engan vafa á því að enginn
hafi verið honum fremri 1
blaðamennsku, og hefur farið
þar saman ágæt framsetning,
rökfimi og stilling, en þó á-
hugi og ríkir skapsmunir. And-
stæðingum sínum hefur hann
hlaðið léttilega nema e.t.v. ein-
um, Einari Hjörleifssyni Kvar-
an, hann virðist hafa verið
-honum full sleipur og háll og
er lausf við að manni detti
í hug að „líðilegt" muni hafa
verið að fást við Einar, ef
þessum skörungi (Hannesi) hef-
ur orðið við það mjórra muna
vant. (Þetta orð „líðilegt“
heyrði ég oft í æsku mirini í
Borgarfirði, og var látið tákna
nær óvinnandi verk, óg vií’ ég
gjarna endurvekja þetta
skemmtilega orð, þó að úr
tíönsku sé það komið. og
þangað úr þýzku, og hafi breytt
einkennilega um merkingu).
En ein var sú handvömm,
sem ekki fékkst bætt, og aldrei
fæst bætt, nema eilífðin fái það
gert, það var orðið sem aldrei
var talað milli hans og Höllu
Björnsdóttur, en það bar þeim
saman um, er þau hittust á
gamals aldri, að þetla orð hefði
betur verið talað; og mundi
ekki vera eftirsjá að þeim ætt-
boga sem enginn varð til sak-
ir þessarar ótilhlýðilegu þagn-
ar?
Enn mætti drepa á ótal
skemmtilega hluti, og raunar er
varla farið að drepa á neitt, en
ekki get ég stillt mig um að
geta um geð hans við guðs-
orðabókum, kverinu, sem hann
var látinn læra nauðugur, og
gleymdi jafnskjótt, víst hið
eina sem hann hefur getað
gleyrnt, guðfræðináminu, sem
var drifið í hann nauðugan
viljugan, þegar hugurinn stóð
til alls annars fremur; ef þú
hittir fyrir í bókinni orðið
„leiðinlegur", þá máttu vita að
það er haft um þessa hluti.
Það vita allir hve miklu
fremri kynslóð sú, sem nú er
uppi, er hinum eldri, hve vel
hún er að sér, hve prýði henn-
ar og vegsemd er óumdeilan-
leg. Samt gæti verið að blaða-
mönnum nútímans væri það
hollt, að skoða stíl þessa rit-
stjóra, og bera hann saman við
sjálfa sig, án hlutdrægni, at-
huga hvort þeir muni þess um-
komnir að læra svolítið af hon-
um, í stað þess að velta út af
dauðir, eins og sýnt er nú fyr-
ir þessar kosningar, að þeir
muni ætla að gera.
Málfríður Einarsdóttlr.
— ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagurinn 20. maí 1962