Þjóðviljinn - 27.05.1962, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 27.05.1962, Qupperneq 3
Vaxandi þjóðfélagslegt vandamál og mannú ðarmál: Viðtal við Alfreð Gíslason Eœkni i Alfreð Gíslason læknir. Fáir imunu hafa meiri reynslu í því að hlynna að þeim, sem minnst mega sín í iþjóðfélaginu, eink- um þeim, sem orðið hafa ill- um örlögum að bráð, fórnar- löimibum áfengisins. Hann var frumkvöðull að stofnun félags til baráttu gegn skæðasta sjúk- dómi nútímans, krabbameininu. Nú síðast hefur hann einbeitt sér að því að leggja á ráðin um það, hvernig þjóðfélagið geti búið gamla fólkinu sem fegurst og bezt ævikvöld, þeg- ar kraftarriir þrjóta. Aliþýðu- bandalagið vandar val þeirra, sem það býður fram til starfa í borgarstjórn. Þess' vegna er það engin tilviljun, að Alfreð Gíslason er annar maður á lista þess, í borgarstjómarkosn- ingunum í dag. Hefur þú alltaf verið Reyk- víkingur Alfreð? Já, ég er fæddur hér 12. des. 1905 og ólst hér upp hjá kjör- foreldrum mínum, Gísla Gísla- syni sjómanni og konu hans Guðrúnu Þorsteinsdóttur. Og þau hafa látið þig ganga1 menntaveginn? nýlega skilað áliti. Þetta er sívaxandi þjóðfélagslegt vanda- mál og mannúðarmál. Sá hundraðshluti þjóðarinnar, sem er eldri en 65 ára, verur sífellt stærri og stærri. Það er neyðarbrauð að senda gamalt fólk á stofnanir, það hlýtur hver að skilja, sem lit- ur í eiginn barm. Ráðin til þess að hindra það eru þau helzt að útbúa íbúðir sérstaklega við hæfi gamalmenna, svo að þau geti sem lengst haldið eigið heimili; stofnsetja vinnumiðlun til þess að útvega- gatnalrhenn- um stijj-f yið.ih^fi, hvers og • eins; eh éínnfé ..f<?iu«Jlvki sízt þarf.hið opinbera áð híynna að þessu fólki meO heimilishjálo og hjúþrun. Minna nná ekki vera fyrir þá, sem lengst hafa þjónað þjóðfélaginu. En þetta er ekki nóg, heldur er einnig brýn nauðsyn að koma á fót sérstakri heilsuvernd gamal- menna, t.d. með sérstakri deild við Heilsuverndarstöðina. Rétt mataræði er til dæmis oft mjög þýðingarmikið til þess að tefja ýmsa hrörnunarsjúkdórna. Þessar, tillögur eru engin van- hugsuð kosningaslagorð. Þessi breyttu viðhorf gagnvart gam- almennum eru þegar farin að hafa áhrif á framkvæmdir í nágrannalöndum okkar, þar sem heilbrigðisþjónusta er bezt. Og við þurfum að fylgjast með því, semhezt gerist annars stað- ar, segir Alfreð Gíslason að lokum. Við kveðjum Alfreð Gislason, hinn trausta og nýta málsvara smælingjanna í þjóðfélaginu, og þökkum honum fyrir viðtalið. Eináng krefst karlekaups Verkakvennaféiagið Ein- ing á Akureyri hefur nú lagt fram kröfur sínar um breytingar á kvennakaup- inu, 02 eru heiztu kröf- urnar þessar: Karlakaup verði greitt fyrir hreingerningar — fyr- ir alla vinnu í hraðfrysti- húsum, nema við snyrtingu og pökkun — fyrir alla vinnu við skreið og salt- fisk — fyrir alla vinnu í sláturhúsum — fvrir hvers- konar síldarvinnu, nema unnin sé. í ákvæðisvinnu — fyrir alla vinnu við niður- suðu fiskafurða, neriía nið- urlagningu á sardínum og smjörsíld. Einnig verði greitt karimannskaup við upptöku á kartöflum. Að öðru leyti er almenna kvennakaupið . á Akure.vri nú 21,75 á klukkustund í dagvinnu. Karlakaupið á Akureyri er nú kr. 24.80 i aimennri vinnu, en kr. 25 í s'kipa- vinnu. '4 Alfreð Gíslason í Ráðunautur Grundar hef 1947. Elliheimilisins ég verið síðan Já, stúdentsprófi lauk ég héð- an úr Menntskólanum 1926 og síðan embættisprófi í læknis- fræði 1932. Síðan dvaldist ég í fjögur ár í Danmörku við sér- nám í geð- og taugasjúkdómum, og í þeirri grein hef ég síðan starfað, auk almennra heimilis- læknisstarfa. Við sitjum á kyrrlátu heim- ili Alfreðs í Barmahlíðinni. Tvö elztu bömin eru ekki heima, Jón, sem er í læknadeild Há- skólans, og Ragnhildur, sem er i Verzlunarskólanum. Guðrún, sem er nýlega fermd er heima ásamt móður sinni, S'gríði Þorsteinsdóttur, en hún er bor- inn og barnfæddur Reykvíking- ur eins og maður hennar. Ég spyr Alfreð, hvert sé helzta áhugamál hans. Ég hef alltaf haft áhuga fyr ir geðverndarmálum. Um tírna vann ég talsvert að samstarfi presta og lækna um þau mál, og einn af stofnendum Geð- verndarfélags Islands var ég fyrir um það bil áratug. Þú varst frumkvöðull að stofnun Krabbameinsfélagsins, var ekki svo? Jú, ég hreyfði því máli fyrst í Læknafélagi Reykjavíkur, og um alllangt skeið var ég for- maður Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Það félag hefur þýðingarmiklu hlutverki að gegna. Hvað hefur annars verið helzta viðfangsefni þitt í lækn- isstarfinu? Mest hef ég fengizt við lækn- ingu drykkjumanna, var eftir- litslæknir við drykkjumanna- hælið í Kumbaravogi á Stokks eyri meðan það starfaði þar, en síðan 1953 hef ég starfað í Áfengisvarnardeild Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur. Eins og kunnugt er hefur Alfreð Gíslason verið bæjarful!- trúi í Reykjavík síðan 1954, og Iþingmaður Reykjavíkur hefur hann verið síðan 1956. Á þingi og í borgarstjórn hefur hann mest sinnt heilbrigðis- og fé- lagsmálum. Hann hefur upp á síðkastið beitt sér einna mest fyrir aðhlynningu gamalmenna. öll vonumst við til þess að fá að kemba hærumar, njóta langra lífsdaga. Og iþótt -aðrir séu nú á því skeiði, þá er að- stoðin við gamla fólkið mál, sem öllum kemur við fyrr eða seinna. Við biðjum hann að lok- um að segja nokkur orð um það mál. Já, ég átti sæti í millþinga- nefnd, sem fjallaði um vanda- mál gamalmenna, og hefur hún ÞEGAR RULMD REIDIR VONDIHN LEGGUR PRAMSOKN NIBUR SKOTIII Einar Ágústsson, frambjóð- andi Framsóknar, var með bollaleggingar um það í út- varpsumræðunum að Fram- sókn væri eini flokkurinn sem hefði aðstöðu til að láta að sér kveða og hamla gegn ofurvaldi íhaldsins. — Og svo hóf hann að ræða um sam- spil íhaldsins og Alþýðu- bandalagsins við kosningu í Sogsvirkjunarstjóm! En hvert var samspilið? Framsókn var sjálf að reyna að hjálpa íhaltiinu til að hrifsa alla fulltrúa Reykja- víkur í stjórn Sogsvirkjunar- innar með því að stilla sév- lista sem var algerlega von- laus. FrSmsókn var að svíkja gerða samninga við Alþýðu- bandalagið úm samkosninga í nefndir á kjörtímabilinu, aðeins til að aðstoða íhaldið og votta því hollustu sína. Þegar hjálp Framsóknar bregst íhaldinu af iþví að Einar Olgeirsson fær eigi að síður 4 atkvæði við leynilega kosningu, æpir Framsókn um samspil og leyniþræði milii íhaldsins og Alþýðubandalags- ins, og það jafnt þótt for- ingjar íhaldsins í borgar- stjórn yrðu ruglaðir og lam- aðir við úrslitin og gripu að lokum til lagabrota og ofbeld- is til að reyna að eyðilegggja lögmæta leynilega kosningu. Það er ekki að furða, eða hitt þó heldur, þótt Einar ÁgústSson þyklst geta talað af yfirlæti um að efla þurfi Framsókn gegn íhaldinu. Sannleikurinn er sá, að Fram- sókn er yfirleitt haltrandi og ráðvillt í öllum meiriháttar þjóðmálum og borgarmálefn- um. Og þegar íhaldið hefur hátt eða i’eiðir vöndinn, legg- ur maddama Framsókn niður skottið og biðst auðmjúklega griða. ® Atvinna - • Húsnœði - • Hagsœld - • Menning - • - XG mýflugumynd Einhver skringilegasti at- burður sem gerzt hefur í ís- lenzkum stjórnmálum er það tiltæki Mýneshreyfingarinnar að afhenda ræðutíma sinn í útvarpsumræðunum Einari Braga sem alls ekki er í framboði o.g hefur af skiljan- legum ástæðum alltaf þver- neitað að ganga í Þjóðvarn- arflokkmn. Þeim mun kyn- legra var þetta sem Einar Bragi hafði þann einn boð- skap að flytja að sú væri brýnust nauðsyn í íslenzkum % *. s • v*.-. s vv þjóðmálum að leggja Þjóð- vamarflokkinn niður — og það þegar í þessari viku. Ekki er að efa að kjósendur vilji verða ræðumanni hjálplegir við að framkvæma þá 'hug- sjón; hitt eiga menn erfitt með að skilja hverjum til- gangi það ætti að þjóna að flokkurinn gengi síðan aftur í nýjum fötum og undir nýju nafni. Islenzkir vinstrimenn hafa nú af því sex ára reynslu að eina hlutverk Þjóðvarnarflokksins hefur verið að eyðileggja þúsundir atkvæða í hverjum kosning- um. Bæjarfulltrúi Þjóðvarn- arflokksins á síðasta kjör- tímabili var Gróa Péturs- dóttir; alþingismenn hans eru Pétur Sigurðsson og Birgir Kjaran. Tillagan um það að menn eigi að kjósa Þjóðvamarflokk- inn vegna þess að hann muni birtast í nýjum fötum í þess- ari viku minnir á ævintýrið um nýju fötin keisarans. Það skal að vísu ekki full- yrt að Gils og félagar hans birtist þjóðinni berstrípaðir — en klæðnaður þeirra verður allavegana í mýflugumynd. Hættu- leg braut Sigurður Ólafsson flug- maður tilkynnir í Vísi í gær að hann muni kjósa Sjálf- stæðisflokkinn, vegna þess að allir íslenzkir sósíalistar séu samherjar erlendra njósnara. Getsakimar halda þannig á- fram af mikilli atorkusemi, og eigi að greiða fulla upp- hæð fyrir hverja þeirra, geta reikningarnir til utanríkis- ráðunejriisins komizt upp í býsna háar upphæðir. Annars er það alvarlegasti þáttur þessa ískyggilega máls, að svo virðist sem hér eigi að taka upp þann hátt að menn geti borið hver annan hinum alvarlegustu sökum með tilvísunum í óskilgreind einkaviðtöl. Verði haldið á- fram á þeirri braut er eng- inn Islendingur óhultur framar, hvorki þú né nokkur annar. Allir geta þá átt von á því að einhver náungi brigsli þeim um að hafa mælzt til njósna f einkavið- ræðum og sýni til sanninda- merkja blýanta eða sígarettu- kveikjara eða annað það sem menn bera á sér að staðald-í, Eigj slíkur framburður e"1- irleiðis að nægja til þe^ "ð sakfella menn og br'””li- merkja er ísland e.kki róttar- ríki framar. — Austri. ALÞYÐUBANDALAGSFOLK! GERIÐ 9 KOSNINGASJOF . J \a d Sunnudagur 27. maí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.