Þjóðviljinn - 04.07.1962, Síða 5

Þjóðviljinn - 04.07.1962, Síða 5
Tvð þúsund fulltrúar fró Iðndum ó friðarþingi MOSKVU — Á friðar- og afvopnunarþinginu sem haldið verður í Moskvu dagana 9.—14. júlí verða fulltrúar frá um 100 löndum. Þetta verður fjöl- mennasta friðarþing. sem haldið hefur verið. Það mun einnig setja svip sinn á þetta þing hversu margar ólíkar stjórnmálaskoðanir munu eiga þar fulltrúa. Kaufmann Karl Kaufmann, fyrrvcrandi' heimsmethafi í 400 metra ( hlaupi og vinnandi tveggja ( silfurverðiauna é olympíu- leikunum í Róm, er sagður1 söngvari góður. Hann kemur ( á næstunni fram sem tenór-1 söngvari í óperettunni i ,,Hawa.blómið“ eftir Paul 1 Abraham á hátíðarleikjunum ( í Koblenz. Brezki vísindamaðurinn J. D. Bernal, pem er formaður und- búningsnefndar þingsins, sendi .stjórnarleiðtogum allra þeirra átján landa sem sæti eiga í af- vopnunarnefnd Sameinuðu þjóð ÉM feíSS; Endurminnlngar WASHINGTON — Hæsfiréttur Bandaríkjanna hefur kveðlð upp þann úrskurð að dagleg bænagjörð sem tíðkazt liefur í skóium í New York fylki brjóti í bága við stjórnarskrána, «n í bæn- inni var m.a. sagt: ,.;Blessaðu okkur, foreldra okkar, kennara og land okkar“. ,Hæstiréttur taldi að slíkt bænahald í opin- berum skólum væri ósamræmanlegt því ákvæði stjórnarskrár- innar sem segir að þinginu sé ólieimilt að setja lög sem geri einhver trúarbrögð að ríkistrú. Eitt þekktasta og vinsæl- asta Ijóðskáld Bandaríkja-nna, Robert Frost, varð 88 ára fyrir skömmu. Gamli maður- inn er ekki af baki dottinn þrátt fyrir háan aldur. Á af- mælisdaginn kom út ný ljóða- bók eftir hann, og geymir hún ljóð frá síðustu 15 árum*. Kvæði Frosts voru komin á þrykk áður en Faulkner- Fitzgerald-Hemingway-kyn- slóðin kom til sögunnar. Hann hefur áunnið sér virðingu og vinsældir fyrir kvæðin um land sitt og þjóð. Hann hef- ur fjórum sinnúm hlotið Pulitzer-verðlaunin og tugi annarra verðlauna og viður- kenninga fyrir skáldskap sinn. GALVESTON, Texas — Ungur Bandaríkjamaður, sem stökk hér út úr flugvél í 2.400 metra hæð, féll til jarðar án þess að fall- hlíf hans opnaðist, en komst samt lífs af og meiddist aðeins lítilsháttar. Hann heitir John Rodney Gard og er nemandi við Lamar tækni- stofnunina í Beaumont. Hann er mikill áhugamaður um fallhlífa- stökk og hefur oft áður stokkið til jarðar án nokkurra óhappa. Hann hafði farið til Galvest'on til að stunda æfingar í flug- klúbbnum þar. „Þegar flugvélin var komin upp í 2.400 metra hæð, stökk ég úr henni. Ég lét mig falla frjálsgt falli fyrstu 1.700 metrana, eins og gert hafði verið ráð fyrir í ælingaskránni. Þá tók ég í snúr- una sem fallhlífin er opnuð með. En hún opnaðist ekki. Þá reyndi ég varafallhlífina, en það fór á sömu leið. Þá þóttist ég vita að öllu væri lokið“.' En svo var ekki. Card féll niður í hrísgrjónaakur og mýr- lendið dró svo úr högginu, að hann hlaut aðeins minniháttar meiðsl sem fljótlega var gert að i sjúkrahúsi í nágrenninu. anna tilmæli um að þeir kæmu á þingið og gerðu því grein fyrir sjónarmiðum ríikisstjórna sinna í afvopnunarmálunum. Krústjcff, forsætisráðherra Sov- étríkjanna, hefur nú svarað þeim tilmælum og kveðst reiðu- búinn að verða við þeim. Próf- essor Bernal munu einnig hafa borizt svör frá Nehru, forisætis- ráðherra Indlands, og Macmill- an, forsætisráðherra Bretlands, en ókunnugt er enn um inni- hald þeirra. Margvíslegar skcðanir Enda þótt líklegt megi telja að fæstir þeirra þjóðarleiðtoga sem boðið hefur verið á þingið muni þiggja það boð. er víst að umræður munu verða þar fjör- i'.gar og jafnvel deilt af kappi, þar eð fulltrúar á þingið hafa valizt þannig, að mörg og ólík sjónarmið munu koma þar fram. Um meginatriðið munu þeir þó flestir verða sammála: Nauðsyn þess að hafizt sé handa um allsherjarafvopnun og þct:s að alþýða manna um allan heim sameinist um að fylgja eftir þeirri kröfu. 150 fulltrúar frá Banda- ríkjunum Fulltrúar munu verða á þriðja þúsund. til dæmis má nefna að frá Bandaríkjunum munu koma 150 fu.lltrúar, um hundrað íulltrúar frá Bretlandi, jafnstórir hópar frá Frakk- landi og Japan. Meðal 'fúllfrúa verða margir heimskunnir menn, svo sem Jean-Paul Sar- tre frá Frakklandi og Linus Pauling frá Bandaríkjunum. Brezki heimspekingurinn Bert- rand Russell hefur lýst stuðn- ingi sínum við þingið og mun senda þangað ræðu, sem hann hefur talað á segúlband. Sjálf- ur kemst hann ekki að heiman sökum helsuleysis. Fimm fulltrúar munu sitja þingið frá Islandi, þau Sig- ríður Eiríksdóttir, Ása Ottesen, Þóra Vigfúsdóttir, Kristinn E. Andrésson og Guðni Jónss'on prófessor. ekki birtsr TEL AVIV 16/6 — Ríkisstjórn Israels mun ekki afhenda til birt ingar skráðar endurminningar Adolfs Eichmanns í hendur erf- ingja hans eða nokkurs annars aðila. Eichmann mun hafa skráð all- langt mál um endurminningar sinar meðan hann sat í fang- elsi í Israel. Framvegis mun fangelsisstjórnin varðveita hand- rit hans. Verjandi Eichmanns, Servatius, krafðist þess að handritið yrði afhent, þannig að hann gæti not- að ágóðann af útgáfu endurminn- lnganna til að fá greidd laun sín við vörn Eichmanns. 18 dögum eftir aftöku fjölda- morðingjans Adolfs Eichmanns, hófust réttarhöld í máli sam- starfsmanns hans, Otto Hunsche, í Frankfurt. Hunsohe var skrifstofustjóri í hinni svpkölluðu ríkisöryggis- stofnun stormsveita nazista á valdatímum Hitlers. Hann er tsakaður um morð á 1200 ung- verskum gyðingum í Kistarcsa- fangabúðunum. Hunsche hefur verið í gæzlu- varðhaldi síðan í nóvember 1960, en iþá var hánn handtekinn í Datteln í Westfalen. Hann hafði starfað sem logfræðingur þar síðan stríði lauk. !e aeB B y sfjorn i ANKARA 26,'6 — I gærkveldi var birt formleg tilkynning um myndun nýrrar samsteypustjórn- a Tyrklandi. Þrír stjórnmála- flokkar standa að stjórninni: Repúblikanaflokkurinn. Nýi tyrkneski flokkurinn og Bænda- flokkurinn. Hinn svokallaði Rétt- lætisflokkur (fylgismenn Mend- <eres) er nú í stjórnarandstöðu. Harður dómur um brezka auglýsingasjónvarpi LONDON — Tólf manna nelnd sem í tvö ár hefur kynnt sér sjónvarp og útvarp í Brct- landi og þó sérílagi auglýs- ingasjónvarpið sem stofnsett var til samkeppni við brezka ríkisúívarpið (BBC) og - sjón- varpsdeild þess hefur kveðið upp harðan dóm yfir auglýs- ingasjónvarpinu. Nefndin gagnrýnir mjög harðlega rekstur iþess og leggur til að gagngerar breyt- ingar verði gerðar á slkipu- lagningu þess. Nefndinni, sem bæði var ,skip- uð embættismönnum og fé- sýslumönnum, var falið að at- huga hver reyriúan hefði orð- ið ef auglýsingasjónvarpinu (ITV) cg hvernig það heíði staðið við þau fyrirheit sem gefin voru við stofnun þess, að samkeppni þess við BBC myndi bæta dagskrárefnið. Niðurstaðan hefur orðið önn- ur: — Yfirleitt hefur samkeppn- in ekki reynzt eins vel og ætlað var. Það varð ekki keppni um að semja góðar dagskrár, heldur um að ná í flesta áhorfendur, og marg- ir áhorfendur eru hvorki eini né bczti mælikvarðinn á að vel hafi tekizt. Þá er hægt að ná í þó þverbrotnar séu allar góðar reglur um hvernig vanda skuli sjónvarpsefnið. • Nefndin gagnrýnir einnig ýms atriði varðandi rekstur BBC, en dómur hennar um ríkissjónvarpið er þó jákvæð- ur. ITV er gagnrýnt fyrir glæpafilmur sínar, getraunir og annað lélegt efni og enn- fremur fyrir áð ofhlaða ‘dag- s|krána með auglýsin^um. Um stjórn auglýsingasjónvarpsins segir nefndin að hún „geri bæði of lítið úr hlutverki sjón- varpsins og eigin ábyrgð og áhrifavaldi, og miklu minna en við hefði mátt búast. Hún virðist telja það hlutverk isitt að endurspegla smekk alls þorra fólks. Þýðingarlaust væri að spyrja hana að hvaða gagni auglýsingasjónvarpið gæti kcmið samfélaginu". Nefndin leggur því til að aðstaða BBC í samkeppninni verði styrkt, þannig að ríkis- sjónvarpið fái að sjónvarpa nýrri dagskrá þegar á næsta ári, en auglýsmgasjónvarpinu verði ekki leyft að færa út kvíamar fyrr en í fyrsta lagi eftir fimm ár og þá því að- eins að stjórn þess bæti ráð sitt. Álitsgerð nefndarinnar hef- ur vakið miklar deilur og í- haldsblöðin hella óhróðri yfir hana, saka hana um fjand- skap við hið frjálsa framtak. Það verður næsta skiljanlegt af þeim ikafla álitsgerðarinnar sem fjállar um þá miklu pen- ingahagsmuni, sem í húfi eru. I fyrra voru hreinar tekjur auglýsingaþjónvarpsins sextíu og fjórar milljónir sterlings- punda, eða hátt í 7. milljarð króna. Haft er eftir einum stjórnanda auglýsíngasjón- varpsins að heimild til að reka slíkt sjónvarp „jafngildi leyfi til að prenta peninga- seðla“. Strax þegar álitsgerð nefnd- arinnar hafði verið birt, féllu hlutabréf í auglýsingasjón- varpsfélögum mjög í verði á kauphöllinni í London. Nikula sigrcSi í Osló í gær iFinninn Pennti var „maður dagsins" á Oslóarleikjunum í frjálsum íþróttum sem hófust þar í gær. Leikandi létt stökk hann yfir 4,85 m í stangarstökki. Landi hans Timo Koskela varð í í öðru sæti, stökk 4,60 m. Norð- maðurinn Hovik stökk 4,50 m sem ernýtt norskt met. Valbjöm Þorláksson mun hafa tekið þátt í keppninni, en ekki var þess getið í fréttastofufregnum í gær- kvöld hvar hann hefði orðið í röðinni né hversu hátt hann hefði stokkið. Anafnaði Ealióm- svslt 2,5 mif! Bruno Walter, hljómsveitar- stjórinn heimskunni sem lézt í marzmánuði í Los Angele.í ánafnaði fílharmoníuhljóm- sveitinni í Vín fjárupphæð er nemur um 2,5 milljónum 'króna. Bruno Walter var A u sturrí’k i s ma ðu r að ætt. Hann ílúði heimaland sitt, er þýzkir nazistar lögðu það und ir sig 1938. Bann sleit aldrei tengsl sín við ihljómsveitina í Vín log sýndi hug sinn i verki með þessari rausnar- legu gjöf. Miðvikudagur 4 júlí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.