Þjóðviljinn - 23.08.1962, Page 12
þlÓÐVILIINN
Fimmtudagur 23. ágúst 1962 — 27. árgangur — 187. tölublað
14 fórust á ðtalíu
Gífurleg skemmd
í jarðskjálftum
NAPOLI 22/8 — A. m. k. tíu
manns biðu bana og yfir 200
slösuðust í jarðskjálfta á Suður-
ítalíu í gærkvöldi. Mikil skelf-
ing greip fólk á jarðskjálfta-
svæðinu, og höfðust milljónir
manna við úti á víðavangi í nótt.
Hér var um að ræða tvo mjög
snarpa jarðskjálftakippi. 50 hinna
slösuðu hlutu alvarleg meiðsli.
Mikið umferðaröngþveiti var á
vegum í grennd við Napoli i
morgun vegna skemmda á veg-
um og öðrum mannvirkjum. Þús-
í bendu við
FH-markið -
★ Það gengur oft mikið á þeg-
★ ar stúlkur keppa í handknatt-
★ leik eins og myndin sýnir,
★ enda var jafnan fjöldi áhorf-
★ enda á Islandsmótinu í Kópa-
★ vcgi. Myndin var tekin með-
an sfcð á síðasta leik mótsins
ir m.illi FII og Ármanns í fyrra-
ic kvöld. FH sigraði eftir jafn-
fSr an cg skemmtilegan ieik og
★ er skrifað um hann á íþróíta-
★ síðu í dag. (Ljósm. Þjóðv.
★ G. O.).
Ný framhalds-
saga í dag
I dag byrjar ný framhaldssaga
í Þjóðviljanum: Að granda söng-
fugli, (To kill a mockingbird) eft-
ir bandaríska skáldsagnahöfund-
inn Harper Lee. Sagan gerist í
Suðurríkjum Bandarikjanna.
Aushirviðskiptin
Viðrœður senn við
Pólverja
• Nú í vikunni hefjast í Prag viðræður um við-
skiptamál milli fulltrúa íslands og Tékkóslóvakíu.
í byrjun næsta mánaðar hefjast svo í Varsjá við-
ræður um viðskipti milli íslands og Póllands.
Frá þessu er greint í frétt,
sem Þjóðviljanum þarst í gær
frá utanríkisráðuneytinu, svo-
hljóðandi.
Viðræður milli fulltrúa íslands
og Tékkóslóvakíu um viðskipta-
mál hefjast í Prag í þessari viku.
Af Islands hálfu taka þátt í
viðræðunum:
dr. Oddur Guðjónsson, ráðu-
neytisstjóri,
Pétur Pétursson, forstjóri,
Björn Tryggvason, skrifstofu-
sljóri og
Árni Finnþjörnsson, forstjóri.
Gert er ráð fyrir að gengið
verði frá samkomulagi um við-
skipti milli Islands og Tékkó-
slóvakíu næstu tólf mánuðina.
I þyrjun september hefjast í
Varsjá viðræður milli Islands og
Póllands um viðskipti milli land-
anna.
Taka þátt í þeim viðræðum af
Framhald á 10. siðu.
undir bfla komust ekki leiðar
sinnar.
1 Napoli var ótti og skelfing
ráðandi þegar jarðskjálftinn reið
yfir. Fólk hljóp út úr húsum aí
ótta við að þau hryndu. Þúsund-
Ir manna reyndu að komast burt
frá borginni en aðrir söfnuðust
á opin svæði. Lögreglan missti'
ctjórn á umferð og allt komst
á ringulreið.
Mest tjón mun hafa orðið i
Avellino-héraði. I mörgum þorp-
um hrundu tugir íbúðarhúsa ög:
nnnarra bygginga, og brýr, járn-
brautalínur og vegir. sködduðust.
Auk þeirra sem slösuðust, urðu
læknar að veita hjálp tugunv
manna, sem hlotið höfðu tauga-
áfall.
Jarðskjálftinn var svo sterkur,.
nð tæki jarðskjálftastöðva í
grennd við Napoli urðu óvirk..
Vart varð við j-arðs'kjálftann á
mælum í Noregi. Um 3000 bygg-
f.ngar munu hafa gjöreyðilagzt f
jarðskjálftunum. I Ariano hrundu'
60 prósent allra bygginga.
I morgun urðu enn vægari
jarðskjálftakippir á Suður-ítalíu.
Ekki varð tjón á fólki, en mörg:
hús, sem laskazt höfðu áður,,
hrundu til grunna.
BERLIN
Framhald af 1. síðu.
herstöð, hafi reynt að nota her-
stjórn Sovétríkjanna til að koma
á framfæri óréttlátum ihlutun-
um -í innanrákismál A-Þýzka-
lands og höfuðborgar þess.
í ■gærkvöld íhöfðu ekki borizt
neinar fréttir u;m óeirðir í Vest-
ur-Ber’.in, en undanfarna daga
„Tengimót" Agnars Breið-
fjðrðs verða œ vinsœlli
ÁRIÐ 1357 fann Agnar Breið-
fjörð blikksmíðameistari upp
nýja gerð steinsteypumóta, svo
kölluð tengimót og eru þau nú
að ryðja sér æ meira til rúms,
veklur því ýmislegt hagræði af
notkun þeirra og einnig sparn-
aður. Mótin eru þannig gerð, að
uppistöðurnar eru úr stáli,
beygðu langs á tveim stöðum
og í botni uppistöðunnar eru
raufar. Þessum stálbitum er nú
stillt upp meðfram þeim vegg,
sem á að steypa, síðan er móta-
timbrinu raðað í. þó þannig að
á ni'lli livers borðs er skotið
to-m-ifestu í raufarnar og gerir
hað bvorttveggja í senn að halda
bovðunum í skorðum útvið bit-
ana og á þeim eru liök til að
I'-ggja í steypustyrktarjárnin.
Þegar mó(in eru tckin niður
eru endarnir srúnir af tengjun-
um og verða þau þvi eftir í
steypunni.
IIAGRÆÐIÐ af þessari aðferð
við að steypa upp veggi er ó-
tvírætt. Ekki þarf að reka einn
einasta nagla í uppsláttinn og
talið er að sparnaður í steypu
sé um 10%. Efnissparnaður er
mikill, því að mótatimbrið
skemmist litið sem ekkert við
þessa aðferð og uppistöðubitana
er hægt að nota niörg hundruð
sinniuni, að því er fróðir menn
segja. 7
ÞEGAR IIAFA verið byggð
allmörg stórhýsi með þessari
ný.iu aðferð Agnars, m.a. stærsta
steinhús landsins, áburðargeymsl-
an í Gufuncsi. Bæði í Kópavogi
og í Reykjavík eru að rísa stór-
hýsi steypt upp með tengimót-
um, auk' smáhýsa og einbýlis-
húsa. AUstaðar hefur raunin
orðið sú, að notkun þeirra spar-
ar mikið i tíma, efni og vinnu-
af’i og barafleiðamli mikið fé.
í NÝJASTA HEFTI Iðnaðar-
má’a, tímariti Iðnaðarmálastofn-
unar íslands, er löng og merk
grein eftir Jón Brynjólfsson
verkfræðing um hin nýju tengi-
mót. Niðurstöður greinarinnar og
á'it byggingarfróðra manna, sem
hiifundur hefur leitað til, eru
samhljóða um, að þessi steypu-
aðferð hljóti að verða aðferð
framtíðarinnar, nema eitthvað
enn betra komi til.
ÞESS MÁ GETA að síðustu,
að mjiig hefur verið spurzt fyr-
ir um mótin erlendis og liafa
erlendir aðilar beðið Iðnaðar-
málastofnunina, að senda sér sem
gleggstar upplýsingar um þau.
j Virðist ekki óhugsandi að tengi-
mótin geti rutt sér tii rúms á
Norðurlöndunum og jafnvel víð-
ar í náinni framtíð.
★ * ★
Tengimótin í notkun á húsinu
nr. 57 við Safamýri í Reykja-
i vík
1,