Þjóðviljinn - 22.09.1962, Blaðsíða 1
Stefnuyfirlýsing miðstjórnnr ASÍ
í hagsmunnmdlum launastéttana
* Þjóðviljanum barst^
í gær frá miðstjórn Al-
þýðusambands íslands
stefnuyfirlýsing um
hagsmunamál launa-
stéttanna í landinu, sem
samþykkt var einróma
á fundi miðstjórnar í
fyrradag. Er þar gerð
grein fyrir þeim baráttu-
málum verkalýðssam-
takanna, sem Alþýðu-
sambandið hefur beitt
sér fyrir og mun halda
áfram að beita sér fyrir
undir núverandi for-
ystu.
Borgarstjórn sem-
þykkir nýja hita-
veitugjaldskrá
Á fundi borgarstiórnar í gær
var gjaldiskrá hitaveitunnar til
annarrar umræðu og var hún
samiþykkt. Hin nýja gjaidskrá
felur í sér mikla hækkun á leigu
eftir mæla, einkum í minni hús.
um. svo. og á aukagjaldi fyrir
íjölgun mæla 1 húsum, og hafði
Guðmundur Vigfússon flutt við
fyrri umræðu breytingartillögur
í lækkunarátt við þessa liði,
eins og frá hefur verið skýrt
hér i blaðinu. Breytingartillög-
Framhald á 11. síðu.
* Þessi stefnuyfirlýs-
ing miðstjórnar ASÍ er
um leið svar við mál-
efnasnauðum æsinga-
skrifum og persónulegu
níði um einstaka for-
ystumenn verkalýðs-
samtakanna í blöðum
ríkisstjórnarflokkanna í
sambandi við kosning-
arnar til 28. þings ASÍ.
* Stefnuyfirlýsingin
er birt í heild á 4. síðu
blaðsins í dag.
Blémastúlka
0 Myndina af þessari fallegu
Q stúlku með blómin tók frétta-
£ maöur Þjóðviljans í gær í
£ Gróðrarstöðinni Alaska, en
9 hón efnir nó til blómasýn-
9 ingar í annað sinn.
Sjá 3. síðu
Sænska fiugvélin í Katanga
Níu komust lífs
af - einn fórst
ASf um gerðardóminn:
Gildir aðeins, þar sem
sagt vor löglega upp
Eins og kunnugt er
hafa nokkur verka-
lýðsfélög snúið sér til
ASÍ vegna uppgjörs
útgerðarmanna við
sjómenn eftir sumar-
síldveiðarnar, en deilt
er um hvort gömlu
samningarnir eigi að
gilda á þessum stöð-
um. Iiefur Alþýðu-
blaðið m.a. gefið í
skyn, að gerðardómur-
inn nái til allra staða
á landinu. að undan-
teknum Norðfirði og
Eskifirði.
I gær harst Þjóðviljanum
eftirfarandi yfirlýsing frá
Alþýðuflþmbandi íslands af
þessu filefni:
„Ad gefnu tilefni lýsir Al-
þýðusamband íslands yfir
því, að bráðabirgðalögin og
órskurður gerðardóms uni
kjör sjómanna á sumarsíld-
veiðum fyrir Norður- og
Austurlandi eru ckki i gildi
á neinu þvi fé'.agssvæði þar
ELISABETHVILLE — STOKK-
HÓLMI 21 9 — I dag komu leit-
sem eldra samningi var ckki
liiglega upsagt.
I»ar senv ótgerðarmenn a
slíkum stöðum gera upi) við
sjómer.n skv. gerðardómnum,
en ekki samkvæmt eldra
samningi, ber tafarlaust að
krefja ótgerðarmenn um hin-
ar vangreiddu upphæðir, og
mun Alþýðusambandið að-
stoða sambandsféliigin við þá
innheimtu, ef þau óska þess.
I*á vekur Alþýðusambandið
athygli sambandsfélaganna á
því, að bráðabirgðalögin og
úrskurður gerðavdómsins
kveða eimmgis á um kjör
sjómanna á sumarsíldveiðum
við Norður- og Austurland.
en þar eð þeim veiðum er nó
lokið og órskurður gerðar.
dómsins þar með ór gildi fall-
inn, er nauðsynlegt, að þau
fé'ög. sem ekki hafa gildandi
samuinua um síldveiðikjör,
liefji ekki haustsíldveiðar, án
nýrra samuinga.
Alþýðusambard íslands“.
armenn að flaki sænsku flug-
vélarinnar sem skotin var niður
yfir norðurhluta Katanga í gær.
Tíu menn höfðu v^rið um borð
í vélinni og voru níu þeirra lií-
andi en einn látinn.
Einn Svíanna er hættulega
særður, fjórir þeirra hafa orðið
fyrir smávægilegum meiðslum en
fjórir algjörlega ósærðir.
Flugvél þessi var á vegum Sam-
einuðu þjóðanna. Ekki er vitað
hver skaut hana niður. Gruna
sumir menn Tshombe „Katanga-
forseta” um að vera valdir að
óhappaverkinu en aðrir telja að
menn ór heriiði sambandsstjórn-
arinnar í Leopoldville hafi hér
verið að verki. Bæði Tshombe
og Mobutu. yfirmaður Kongóhers,
hafa neitað því að menn þeirra
hafi skotið vélina niður.
Mikil gleöi greip um sig í Sví-
þjóð eftir að fréttist að hinir níu
| væru lífs, enda höfðu allir þeir
I sem um borð voru í flugvélinnl
verið taldir af. Svíarnir níu voru
allir fiuttir til Kamina-vallarins
og liggja hinir særðu á sjúkra-
húsi þar. <