Þjóðviljinn - 22.09.1962, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 22.09.1962, Blaðsíða 3
Samvinna manns og ndttúru ★ Gróðrarstöðin Alaska efnir nú til blómasýningar í annað sinn og í því tilefni kallaði Jón H. Björnsson fréttamenn á sinn fund og sýndi þeim alla dýrðina. ★ Hann gat þess í ávarpi, að ekkert væri það, sem gerði okkar norðlæga land hlýlegra og byggilegra, en einmitt gróðurinn, sem okkur tii mik_ illar gleði þrífst hér ýmist vi’.ltur, eða verndaður þeim ráðum, sem vísindi og reynsla hafa lagt okkur uppí liend- urnar. Hann gat þess rétti- lega að maður, sem ræktar sinn garð og kona, sem legg- ur alúð við pottablóinin í stofunni hjá sér, hljóta ríku- lega umbun erfiðis síns í feg_ urra, hreinlegra og hollara umhverfi og um leið fegurra mannlífi. ★ Jón kvað fjögur undir- stöðuatriði þurfa til að ná einhverjum árangri í ræktun. I fyrsta lagi að hafa góðar p'öntur og jarðveg til að setja þær í. 2. Eiga verkfæri til að viiiRa með, áburð til að örva vöxt plantnanna og lyf til að vernda þær gcgn ill- gresi og sjúkdómum. 3. Ein hvern ti'gang og markmið með ræktuninni. 4. Þekkingu í ræktun, en hún fæst með reyns’.u og reynslan nieð tím- anum. Vísindaleg þekking er jl ekki einhlýt. Reynslan kenn- f ir okkur að þekkja takmark- ^ anir og möguleika þess um- (i hverfis, sem við erum sjálf Vr Sýningin í Alaska hef- Ur sitt eigið kjörorð: Bágur er blómlaus maður. — Sýn- ingin verður opin í liálfan rninuð til kl. 10 á kvöldin, en opnunartíminn er nálægt 7 á morgnanna. AUt sem á sýn.inguniii er er til sölu og aðgangur er ókeypis. Auk gróðrarstöðvarinnar Alaska taka þátf í sýningunni Gunn- ar Björnsson blóma. og garð- yrkjubóndi að Álfafelli, enn- fremúr nokkrir garðyrkju- bændur úr Mosfellssveit og Hveragerði. Uppsetningu sýningarinnar önnuðust þeir Bóas Kristj- ánssoa, Jón R. Björgvinsson og starfsfó’.k Alaska. Kommunisiaflokkurjnn studdi framboðslistann Heybruni á Héraði í gær Egilsstöðum 21/9 — Klukkan 7 í morgun var slökkviliðið á Egilsstöðum kvatti að bænum Rirsmýri Fellahreppi. Var e!d- ur þar í 300 hesta heyhlöðu og munu um 150 hestburðir hafa eyðilagzt. Heyið var óvátryggt og er tjón bóndans, Guðmund- ar Jónssonar, miög tilfinnanlegt. Stjórn ÍSÍ skiptsr með sér verkum Hin nýkjörna framkvæmda- stjórn Iþróttasambands Islands hólt fyrsta fund sinn mánudag- inn 17. sept. Skipti hún með sér verkum á eftirfarandi hátt: Gísli Halldórsson er forseti ISÍ, kjörinn í það starf af í- þróttaþingi. Guðjón Einarsson, varaforseti. Gunnlaugur J. Briem, gjaldkeri. Axel Jónsson, fundaritari. Sveinn Björnsson, ritari. Þá var samþykkt að boða 1. varamann framkvæmdastjórn- arinnar, Þorvarð Árnason, Kópavogi, á fundi framkvæmda- stjómarinnar. Einnig var sam- þykkt að endurráða Hermann Guðmundsson sem fram- kvæmdastjóra ISÍ. UPI 16 9 — Kommúnistaflokkur, Alsír, sem franska nýiendustjórn-! in bannaði, meðan á uppreisn- J inni stóð, gaf út yfirlýsingu fyrir kosningarnar. 1 yfirlýsingunni voru landsmenn hvattir til að greiða atkvæði framboðslista stjórnarnefndarinnar. Lögð var áherzla á nauðsyn þess að tryggja frjálsa og lýðræðislega þróun stjórnarstofnana í landinu. En aðferð sú, sem viðhöfð var við Þing ÆF , Framha'.d af 12. s\ðu. stjómmálum. og þýðingu Æsku- lýðsfylkingarinnar við að hamla á móti áhrifum auðvaldsskipu- lagsins á hugsunarhátt uppvax- andi kynslóðar og rækt við hug_ sjónir sósíalismans. Eysteinn Þorvaldsson flutti þessu næst skýrslu fráfarandi sambandsstjórnar og reikningar voru lagðir fram, í dag verða umræður um skýrslu sambandsstjórnar, flutt- ar skýrslur dei’.da og fyrri um- ræða um ályktanir þingsins. Þinginu lýkur annað kvöld. val frambjóðenda var gagnrýnd og sagt, að gengið hefði verið framhjá mörgum mætum full- trúum verkalýðsstéttarinnar. AtémsprsRgingær í austrá og vestri STOKKHÓLMI — NEW YORK 20/9 — Síðastliðinni sólarhring voru sprengdar tvær kjarnorku- spengjur. Aðra sprengdu Sovét- ríkin yfir Novaja Semlja árla í dag og liina Bandarikin neij- anjarðar í Nevada-auðninni síð- degis í gær. LandmælingastofnuhTn í Stokk- hólmi varð vör við sovézku sprenginguna í morgun og er ta'.ið að hún hafi verið átta til tíu megatonn að styrk. Sprengja þessi er hin 1.2. sem Sovétrikin hafa sprengt yfir Novaja Semlja undanfarna mánuði. í nótt tilkynnti bandaríska kjamorkumálanefndin að kjarn- orkusprengja hefði verið sprengd neðanjarðar í Nevada-auðninni í gær. Er þetta 51. sprengingin sem fram fer í tilraunastöðvun- um á Nevadá síðan tilrauni'r hófust þar fyrir ári. siaruðuTékka Á Olymp.uskákmótinu í Varn-'. tef’du íslendingar við Tékka í gær og unnu með Z'/:< vinning gegn l1 Friðrik vann dr. Fil’p, Arinbjörn gerði jafntefli við Pachmann, Jón Pálsson tapaii fyrir Horst og Jónas Þorvalds- son vann Blatný. Er þetta mjög góður árangur lijá íslendingum. Önnur úrslit urðu þau, að Júgóslavía vann LúxenToorg 4:0, F nnland vann Frakkland 2' lVz, Pól and vann Kýpur 4:0 og Holland vann Uruguay 31'2: Vz Biðskákin úr leik Júgóslava og Tékka frá í fyrradag varð jafn- tefli og unnu Júgóslavar því með 2‘/2 gsgn lVz. Staðan í riðlinum er nú þessi: 1.—2. Júgóslavía og Pólland, 15 vinninga, 3. Holland 141/.), 4 Tékkóslóvakía 12%, 5. ísland IU/2, 6. Uruguay 11, 7. Finnland lOVz, 8. Frakk’.and 8'/2, 9 Lúx emborg \'/2, 10. Kýpur 0. ísland teflir næst v:ð Uruguay. í hinum þrem riðlunum eru nú efst Sovétríkin, Bandarlkir og Argentína. Sovétríkin eru langefst i slnum riðli sem vænte mátti en þar er Noregur í sjötta sæti. Tapaði Noregur í tveim síðustu umferðum fyrir Vestur- Þýzkalandi og Spáni með 2*/2: 1 Vz í bæði skiptin. Svein Johann esen gerði jafntefli við stór- meistarann Pomar frá Spáni. Lé/Sg afkoma á j t sumar HOFSOS 21 9 — Atvinna hef- ur verið mjög léleg hér í sumar og er ta’.ið að ekki hafi komið lélegra sumar hér við sjávarsíð- una síðan 1936. Atvinnulíf þorpsins byggist upp að mestu eða ö'.lu leyti á því sem úr sjé fæst. Úf voru gerðir 12—14 tril’ubátar og er hlutur á 'þeirrí sagður frá 10-^20 iþúsund frá þvi í maí í sumar. Af þessu má sjá hvað af- koma fólks hér hlýtur að veraí ’.éleg í heild. Byggingaframkvæmdir eru! hér engar og hefur verið alger'i kyrrstaða í þeim tvö sl. ár. Hey- skapartíð hefur verið sæmileg; og hey talin í góðu meðallagi. Fyrir skömmu var lokið við útsvarsá’.agningu og eru þarfip sveitarsjóðs áætlaðar 875.000 kr. Útsvör 524.000 — Aðstöðugjöld: 123.000 — Tekjur sveitarsjóðs 228.000 kr. Útsvarsstiginn vap fyrst lækkaður um 800 kr 3 a’.la gjaldendur og síðan uml 12%. Auk þess fá þeir gjald- endur 10% afs’.átt sem greiða fyrir 1. október. — V.B. Frægur strengjakvarM f:á : Bandaríkjunum heldur tónleika 1 LaSalle kvartettinn, talið frá vinstri: Walter Levin, Peter Kamn- itzer, Jack Kirstein og Henry Meyee. Eftir helgina er væntanlegur hingað til lands e;nn af þckkt- ustu strengjakvartettum Banda- ríkjanna, La Salle kvartettinn. Kemur hann hingað á vegum Tónlistarfélagsins og Kammer- músikkiúbbsins. Heldur kvart- ett'nn hér þrjá tónleika, tvo fyr- ir félaga í Tónlistarfélaginu og þann síðasta fyrir fé'aga Kamm- ermúsikklúbbsins. La Salle kvartettinn var stofn. aður árið 1946 við Julliard tón- listarháskólann í New York. Fé- lagarn'r æfðu fyrst saman í þrjú ár og komu ekki fram á opin- berum tónleikum fyrr en 1949. Flutti kvartettinn þá til Color- ado og síðar til Cincinnati ár- ið 1953. Hefur hann verið þar „residans“ kvartett við tónlisit- arskólann síðan. Kvartettinn hefur öðlazt mikla frægð og hlotið ágæta dóma gagnrýnenda bæði í Ameríku og Evrópu. La Salle kvartettinrt kemur h'ngað úr tónlistarferð til Evrópu, þar sem hann hef- ur leikið í mörgum löndum. meginlandsins. Félagarnir í kvartettinum. heita Walter Levin, sem leikur á fyrstu fiðlu, Henry Meyer á aðra f'ðlu, Peter Kamnitzer á víólu og Jack Kirstein á selló. Tónleikarnir fyrir félaga Tón- listarfélagsins verða í Austur- bæjarbíói á þriðjudags- og mið- vikudagskvöld kl. 7 e. h. og verða þá á efnisskrá kvartettar eftir Mozart, Gunther, Schuller og Brahms. Kvartettinn leikur fyrir félaga Kammermúsik- kiúibbsins í samkomusal Mela- skólans klukkan 9 á fimmtu- dagskvöld og leikur þá verk eft- ir Haydn, van Webern, Stravin- sky og Ravel. Laugardagur 22. september 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (3 ■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.