Þjóðviljinn - 03.10.1962, Blaðsíða 1
Listi stjórnar og trún-
aðarráðs Dagsbrúnar
við kosningar til þings
ASÍ — Sjá 4. síðu
Viðsjár á Arabíuskaga
Stjórn Jemen
aras
Ólga í Mississippi
ADEN 2,10 — Byltingarstjórnin
í Jemen hefur ákveöið að
stofna sérstakar leiítur-sveitir
til að mæta hugsanlegri innrás
konungssinna frá Saudi-Arabíu,
segir í útvarpsfrétt frá höfuð-
borginni Sanaa.
Útvarpið í Sanaa skýrði enn-
fremur frá þvi, að 3000 ungir
menn hefðu þegar gerzt sjálf-
boðaliðar í þjóðarherl.ðinu, sem
stofnað var fyrir aðeins tveim
d'ögum. í fréttum frá Aden seg-
ir að hin nýja ríkisstjórn í Jem-
en undir forsæti Abdulla Sallas
vinni ötullega að því að tryggja
'»’g í sessi og gera varúðarráð-
stafanir gegn fjuhdmönnum bylt
ingarinnar. A1 Hassan, föður-
bróðir síðasta eir.vaidskonungs í
Jemen, er nú í Saudi-Arabíu og
er sagður stefna í átt. til Jemen
með 10 þús. manna herlíð.
Kosning fulitrúa
á 23, þing ASf
Verkalýðsfélag Kaldrananes-
hrepps kaus Magnús B. Andrés-
son, aðalfulltrúa, til vara Skúla
Bjarnason.
Verkalýðsfélagiö Jökull, Höfn
í Hornafirði kaus Benedikt Þor-
steinsson aðalfulltrúa, til vara
Einar Hálfdánarson.
Fulltrúar Verkakvennafélagsins
Brynju á Siglufirði á Alþýðu-
sambandsins voru sjálfkjörnar
Guðrún Albertsdóttir og Anney
Jónsdóttir. Varafulltrúar eru
Sigríður Þorleifsdóttir og Hall-
dóra Eiríksdóttir.
Vélstjórafélagið Gerpir, Nes-
kaupstað hefur kosið fulltrúa á
þing ASÍ og er aðalfulltrúi
Stefán Pétursson.
OXFORD 2/10 — Enn er
ólga og ótryggt ástand í
háskólabænum Oxford í
Mississippi. Nokkrar
róstur voru í bænum á
þriðjudagsnótt. — 10.000
manna herlið er komið
til bæjarins, þ.e. helm-
ingi fjölmennara en í-
búarnir.
Mörg hundruð fallhlífahermenn
héldu inn í Oxford fylktu liði í
gærkvöldi, og liðsauki hefur
stöðugt verið að berast til þessa.
Er herliðið nú orðið helmingi
ijölmennara en íbúarnir og bær-
! inn líkist einna helzt stórum
herbúðum.
Tugir særðra manna eru í
sjúkrahúsi eftir hin blóðugu átök
á sunnudagskvöld, m. a. 25 ríkis-
lögreglumenn og hermenn.
1 nótt gerðu ofstækismenn í
kynþáttamálum aðsúg að herliði
Bandaríkjastjórnar og kastaði í
það múrsteinum. Hermennirnir
svöruðu með táragassprengjum.
Hermenn og lögreglulið er hvar-
vetna á verði bæði dag bg nótt,
215 handteknir
1 nótt og í dag voru 34 rnenn
handteknir fyrir árásir á lögregl-
una og ólöglegan vopnaburð.
Framhald á 11. síðu.
Þrir menn biðu bana og tugir særðust í blóðugum átökum í
Oxford í Mississippi á sumiudagskvöld. Myndin sýnir liðsmenn
úr ríkislögreglu Bandaríkjanna með aivæpni, nýkomna til Ox-
ford. Ril'flarnir með stuttu hlaupunum eru táragasbyssur. Þctta
lögrcglulið heyrir undir dómsmálaráðuneytið og getur látið til
■jr sín taka hvar «cm er í Bandaríkjunum. Þetta eru mennirnir
sem sáu um ad framfylgt væri iögum og dómsúrskurði urn aft
blökkustúdcntinn James Meredith fengi aðgang að Mississippi-
háskóla. Fyrir bragðið urðu heir fyrir skotárásum og grjótkasti
4- þeirra sem viðhalda vilja kynþáttamisréttinu.
J SALISBURY 2/10 — Joshua#
f Nkomo, leiðtogi Afríska þjóð-J
f arflokksins ZAPU í Suður-J
Rhodesíu, var sviptur ferða-
frelsi í dag og fluttur í Ióg-J
reglubíl til „Plumtree“-svæð-
isins í S.-Ithodesíu.
Nkomo var í Norður-Rhod-^
esíu þegar rikisstjórnin bann-f
aði flokk hans og handtókj
. 20 flokksleiðtoga 20. sept. sl.#
i ZAPU er þriðji flokkurinnf
sem bannaður er í Iandinu.f
Þegar Nkomo kom með flug-i
vél til Salisbury í gærkvöldií
voru þar fyrir hundruðf
manna að fagna honum. Eni
t þar var einnig lögregluliði
fyrir sem flutti hann nauðug-f
an brott og yfirvöldin kyrr-J
settu hann í landinu. J
Nýja borholan kem
ÓLAFSFIRÐI 2/10 — AI-
menn ánægja ríkir hér í bæ
með árangur af verki Norð-
urlandsborsins, enda er fyrsta
borholan þegar að komast í
gagnið. Var hafizt handa í
dag að tengja hana við hita-
veitukerfi bæjarins.
Borho’.an, sem er hátt á
þriðja hundrað metra á dýpt,
gefur mikið vatnsmagn (40—
50 sekúndulítra) af 47—48
gráðu heitu vatni. Álitið er,
að borunin hafi haft áhrif á
heitavatnsuppsprettu þá, sem
fram að þessu hefur verið
notuð, komst loft í heita-
vatnskerfið; var iþá vatnið
tekið af og byrjað að tengja
hina nýju uppsprettu við
kerfið. Þessi fyrsta bo.run
þykir hafa gefið góða raun,
og er nú þegar hafinn und-
irbúningur að því að bora
aðra holu.
Veðurfar hefur verið he’d-
ur leiðigjarnt undanfarið,
norðaustan garri og súld.
Stærri bátar, þeir sem voru
á síldveiðum. eru nú senn að
hefja róðra. Mörg hús eru hér
í smíðum og atvinna mikil.
—< Fréttaritari.