Þjóðviljinn - 24.10.1962, Side 10
J0 SÍÐA
ÞJOÐVILJINN
Miðvikudagur 24. október 1962
Skáldsaga eftir RICHARD CONDON
Bæði pörin böfðu hlakkað svo
rnjög til að hittast að bílamir
runnu imn á bílastæðið fyrir
framan Commodore veitingahús-
ið samtímis og á nákvæmlega
tilsettum tíma. Konumar iiðu
upp á við í lyftunni, sem rauð-
hærði og freknótti stráksnáðinn
stjómaði.
Karlmennimir gengu stigana.
Svo settust allir umhverfis
þungt, kringlótt borð fyrir fram-
an opinn gluggann og báðu um
Martini-kokkteila með vodka
eins og það væri hluti af ' á-
kveðnu ritúali í sérstakri trúar-
athöfn. Englar flugu um herberg-
ið. Hertogafrúin talaði katal-
ónsku við vínþjóninn og þrír
þjónar með síðar svuntur stóðu
vörð um ísinn.
„Ég er svo hamingjusöm,“
sagði hertogafrúin, „að ég hefði
fúslega viljað panta heila her-
deild af skozkum sekkj apípuleik-
ttrum til að þramma gegnum
veitingahúsið og spila eitthvað
skelfilegt. >ú ert ósköp magur,
Jaime.“
,,Það getur vei verið,“ svar-
aði Bourne. „En þú lítur að
minnsta kosti ljómandi vel út,
hvað svo sem þú hefur verið að
aðhafast.“
„Vertu ekki að þessu,“ sagði
hertogafrúin. „Þú gerir Cayet-
ano feiminn.“
„Ég hef ekki þrek til að vera
feiminn lengur,“ sagði Cayetano.
„Hafið þið séð nokkuð til Pick-
etthjónanna?“ spurði Boume.
hann sé ekki kominn heilu
og höldnu tii Washington. Hann
er alveg óður eftir að hann upp-
götvaði þessi Rubens-áhrif.
Hann sagði að það væri það
stórkostlegasta sem fyrir hann
hefði komið.“
Eva rauf allt í einu loftbrúna
af martinikokkteilnum með
vodka og iagði frá sér glasið án
þess að hafa augun af hertoga-
frúnni. Boume sat grafkyrr.
Hertogafrúin hélt áfram:
„Eitthvert bandarískt blað send-
ír hingað Ijósmyndara og Piek-
ett sárbænir mig um að hleypa
þeim ixm á Dos Cortes. Það líð-
ur ekki á löngu áður en heims-
pressan sýnir Pickett, Velazquez
og Rubens takast í hendur með
fjálgleik. Hver skollinn verður
af kampavíninu?“
í þeim töluðum orðum stik-
aði vínþjónninn mn með magn-
umflöskumar og ómerkilegt fyr-
irbrigði á borð við martinikokk-
teila með vodka tilheyrðu for-
tíðinni. Á nákvæmlega réttu
andartaki var ymprað á matar-
pöntun og stungið upp á ein-
hverju frá Costa Brava. Her-
togafrúin kinkaði náðarsamleg-
ast kolli.
Cayetano sagði allt í einu:
„Tími kraftaverkanna er enn
ekki Jiðinn. Getið þið hver ætl-
ar á nautaat í fyrsta sinn á
ævinni?“
Hertogafrúin var ekki í nein-
um vafa; „Frændi minn, doktor
Victoriano Munoz. markgreifi af
Villalba,“ sönglaði hún nefmælt
með rödd Victorianos og allir
hlógu.
„Frændi þinn?“ sagði Boume.
„En Jaime þó! Hann er ekki
svo afleitur. Hann hatar bara
nautaat og flest af því sem
venjulegu fólki þykir skemmti-
legt. Og svo em allir skyldir
ölum samkvæmt kenningunni um
Adam og Evu“.
,,Það er heiður fyrir nautaat-
ið ef þessi náungi kemur til að
horfa á,“ tautaði Cayetano.
„Hann hringdi í morgun og
spurði hvort ég gæti ekki af-
greitt fyrsta nautið mitt fyrir
framan Tendido tvö í næstu
viku, því að hann hefði ekki
getað fengið önnur sæti og hann
hefði lofað að fara með frú
Pickett og hann var hræddur
um að hún þyldi ekki nema
eitt naut. Hann bað mig að
gera þetta sem æðisgengnast og
kála nautinu fyrir framan nef-
ið á henni, svo að það liði yfir
hana eða henni yrði óglatt og
þau gætu farið strax.“
„Hann er skýr í hugsun hann
frændi minn. Hverjum öðrum
dytti í hug að kippa lagskonu
sinni úr umferð á þennan hátt?“
„Það er nú ekki öldungis víst
að það líði yfir kvenmanninn,“
sagði Bourne.
„Jú, jú,“ sagði Cayetano ör-
uggur. „Auðvitað gæti ég slegið
vindhögg með sverðinu tíl ör-
yggis.“
„Hættu þessu,“ sagði Eva. „Eg
verð alveg ringluð."
„Það er kampavínið og mart-
inikokkteilamir með vodka,“
sagði hertogafrúin. „Vertu bara
róleg, vina mín.“ Hún leit ást-
riku augnaráði á Evu. Allt í einu
glennti hún upp augun í kven-
legri glöggskyggni.
„Nei!“
„Nei. hvað?“ spurði Bourne.
„Kámpavín,“ hrópaði hertoga-
frúin fagnandi. Þjónamir komu
þjótandi.
Eva lyftl glasinu. „Herra og
frú Bourne hafa þann heiður
að bjóða ykkur í skímarveizlu
frumburðar síns eftir fimrn mán-
uði.“
Boume starðl galopnum
munni. „Hvað þá?“ sagði bann.
Hertogafrúin sagði: „þið verð-
ið að kalla hann Cayetano! Við
skulum í staðinn skíra frum-
burðinn okkar Herbert Hoover
Jiminez.“
„Eva — er þetta satt?“
Boume var á svipinn eins og
hann væri að ljúka fyrstu
kennslustund sinni sem læri-
sveinn töframannsins.
„Jaime þó! “ sagði Cayetano
og lyfti glasinu. „Skál fyrir
frumburði . okkar kæru vina“,
sagði hann og tæmdi glasið.
Glösin vom fyllt á ný.
„Skál fyrir móður hins ynd-
islega barns,“ kvakaði hertoga-
frúin og tæmdi glas sitt. Ný
áfylling.
„Skál fyrir brúðkaupi vina
minna og fæðingu bams míns.“
hrópaði Boume og hellti í sig
kampavíni. Nýr umgangur.
„Skál fyrir Pickett Troilus og
stórkostlegu yfirliði frú Pick-
ett,“ sönglaði Eva og hellti í sig
innihaldinu. Meira kampavín.
„Skál fyrir öllum oss! Megum
við lifa og elska að eilífu," söng
hertogafrúin og drakk út. Eitt-
hvað frá Costa Brava skolaðist
niður með kjölvatninu.
Þriðjudagur var vordagur vor_
daganna. Bourne og Eva drukku
kaffi fyrir galopnum svalahurð-
um, Eva alklædd, Boume í nátt-
fötum og slopp. Allt í einu var
barið og Jean Marie kom inn.
„Hamingjan sanna,“ sagði Eva.
„Það eru ósköp að sjá þig!“
„Mér líður líka bölvanlega.
Chérie, ég er miður mín alveg
niður í tær. Það er sjálfsagt af
elnhverju sem ég hef ekki borð-
að. Ha ha. Kannski ætti ég að
reyna kaffið þeirra. Ef ég gæti
bara 'fangið bita af skikkanleg-
um brioche mjmdi ég kannski
1ÍÍ8 það af. Svei attan, þessir
Spánverjar em óttalegir skít-
kokkar. En veðrið þeirra er fínt.
Æjá. í dag er síðasti dagur
brjálseminnar. Allr.a síðasti dag-
ur. Ég hefði aldrei lifað af einn
dag í viðbót. Það sver ég við
guð og Jesús og Maríu mey og
alla dýrlinga. Ég veit svei mér
ekki hvernig ég á að hafa þrek
til að halda á penslinum og láta
sem ég Ijúki við þetta helvítis
þrísklpta trompe I’oeil. Ef við
komum þeim smumingi úr landi,
skal ég svei mér hengja hann
upp í borðstofunni. Ekki vegna
þess að ég þurfi á minjagrip að
halda. Ég gleymi víst aldrei
þessu bölvaða, ekkisen skíta-
jobbi“.
Boume kom alklæddur út úr
svefnherberginu.
„Ertu tilbúinn, félagi? Hvar er
Eva?“
„Eva?“ Jean Marie snerist á
hæli eins og glópur á svip. Hún
var gufuð upp. Á næsta andar-
takj birtist hún með bakka.
„Eg skrapp niður í eldhús og
sóttj dálítið,“ sagði hún. ,,,Seztu
nú niður og borðaðu eins og
maður. Tveir gómsætir, nýir
brioches. Taktu nú til matar
þíns.“
Bourne hrukkaði ennið og las
skilaboðin frá dr. Munoz á ilm-
andi pappírnum. Honum hafði
ekki tekizt að ná sambandi við
hann undanfama fjóra daga.
Skilaboðin voru send með sendli.
þar stóð að Munoz hefði gert
■allar ráðstafanir í sambandi við
hið æðisgengna sem átti að ger-
ast milli klukkan fjögur tuttugu
og fjögur tuttugu og níu sama
daginn. Það stóð ekkert um það
hvað ætti að gerast.
Bourne tók símann og hringdi
í númer markgreifans. Ekkert
svar Hann skellti tólinu á og
leit á klukkuna. Hún var þrjú
tuttugu og fimm. Tími tH að
fara. Hann sótti lítið, grænt
glerhylki niður í skúffu, tók upp
tvær hvítar töflur og gerði sig
líklegan til að skola þeim nið-
,ur með vatni. Allt í einu heyrði
'hann hljóð og sneri sér við.
Eva stóð í dyrunum.
„Þarftu pillur fyrir léttasta
verk í heimi?“ spurði hún.
Hann svaraði ekki fyrr en
hann var búinn að gleypa pill-
urnar „Það er kominn tími til
að fara,“ sagði hann. Hann stóð
við hliðina á henni. Hún vildi
ekki líta á hann. Hann ýtti
handleggjum hennar að síðun-
um og kyssti hana. Hún svaraði I
ekki kossinum.
„Ég verð kominn aftur klukk- ;
an tíu mínútur yfir fimm,“ sagði;
hann. „Vertu alveg ókvíðin."
Hún gekk að skrifborðinu og
settist. Klukkan tifaði töluvert
hátt. Hún sat og starði á græna
þerripappírinn. Klukkan fjögur
opnaði hún skúffuna. Hún
gleypti tvær töflur' án vatns.
f Goya-salnum reyndi Jean
Marie að láta sem hann ynni
jafnt og þétt. En hann gat ekki
að sér gert að góna í sífellu
upp á Dos de Mayo. Drottinn
minn hvað myndin var stór! Ef
Bourne hefði en mælt skakkt, svo
að ramminn yrði of lítill! Þá
myndu þeir strita og svitna án
þess að geta nokkurn tíma kom-
ið myndinni í rammann. Og svo
kæmu varðmennimir og stæðu
þá að verki — þessir varðmenn
sem han hafði vingazt við og
svikið svo herfilega. Hann roðn-
aði af blygðun. Sá sem bara
væri kominn aftur í I.ouvre og
Delacroix safnið og á þá staði
aðra, þar sem hann hafði kópí-
erað. Það var að minnsta kosti
áhyggjulaust og öruggt líf. Það
var eins og ,að sitja í hlýjum og
Homer ávarpaði fólkið og kvaðst neyðast til þess að
skýra því frá, að meðal safnaðarins væru hættulegir
svikarar sem sætu um að vinna söfnuðinum skaða og
bað alla að hjálpa til þess að hafa hendur í hári þeirra.
Á meðan hafði vinum stúlknanna tekizt að komast inn
í höfuðstöðvamar þar sem Horner var að flytja ávarp
sitt
Námsstyrkir og námslán
Umsóknir um styrki eða lán af fé því, sem Mennta-
málaráð kemur til með að úthluta næsta vetur til ís-
lenzkra námsmanna erlendis, eiga að vera komnar til
skrifstofu Menntamálaráðs að Hverfisgötu 21 eða í póst-
hólf 1398, Reykjavík, fyrir 1. desember næstkomandi.
Til leiðbeiningar umsækjendum vill Menntamálaráð taka
þetta fram:
1. Námsstyrkir og námslán verða eingöngu veitt íslenzk-
um ríkisborgurum til náms erlendis.
2. Styrkir eða lán verða ekki veitt til þess náms, sem
auðveldlega má stunda hér á landi.
3. Umsóknir frá þeim, sem lokið hafa kandidatsprófi,
verða ekki teknar til greina.
4. Framhaldsstyrkir eða lán verða ekki veitt, nema um-
sókn fylgi vottorð frá menntastofnun þeirri, sem um-
sækjendur stunda nám við. Vottorðin eiga að vera frá
því í október eða nóvember.
5. Umsóknir skulu vera á sérstökum eyðublöðum, sem
fást í skrifstofu Menntamálaráðs og hjá sendiráðum
Islands erlendis. Prófskírteini og önnur fylgiskjöl með
umsóknum þurfa að vera staðfest eftirrit, þar eð
þau verða geymd í skjalasafni Menntamálaráðs, en
ekki endursend.
menntamAlarAð íslands.
GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON, tenór, endurtekur
SÖNCSKEMMTUN
sína í Gamlabíó næstkomandi miðvikudagskvöld kL 7J.5.
Við hljóðfærið: Atli Heimir Sveinsson.
Aðgöngumiðasala í bókabúðum Lárusar Blöndal, Skóla-
vörðustíg og Vesturveri og hjá Eymundsson, Austur-
stræti 18.
Uppselt var á söngskemmtunina á mánudagskvöldið.
Verkakveíinafélagið Framsókn
Félagsfundur fimmtudaginn 25. október næstkomandi kl.
8.30 í Iðnó uppi.
Fundarefni: Rætt um uppsögn samninga.
Konur fjölmennið á fundinn.
I
STJÓRNIN;
Verkamenn óskast strax
Byggingafélagið Brn Lf.
Borgartúni 25 — Símar 16298 og 16784.
Fyrirliggjandi
sekkja-
trillur
KRISTINN J6NSS0N
Vagna- & Bílasmiðja — Frakkastíg 12 Rvík.
Móðir mín
INGIBJÖRG FRIÐRIKSDÓTTIR
verður jarðsett frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. þ. m.
Athöfnin hefst kl. 1.30.
Sigurlaug Sigurðardóttir.
i