Þjóðviljinn - 10.11.1962, Síða 3
Jjaagardagur 16. nóvember 1962
ÞJÓÐVILJINN
stoA 3
Landamæraerjur Indlands og Kína:
Sjang Kaisék ásakar USA
fyrir að styðja Indverja
TAIPEH NÝJU DELHI 9/11. — Híkisstjórn Sjang
Kaisék á Formósu hefur sent Bandaríkjastjórn
harðorða mótmælaorðsendingu vegna stuðnings
Vesturveldanna við Indverja í landamæradeilu Ind-
lands og Kína. Hinn hatrammi andkommúnisti og
Bandaríkjadindill, Sjang Kaisék, styður þannig
kínverska kommúnista, meðan indverskir komm-
únistar og Vesturveldin styðja Nehru.
Landamæraerjur Indverja og
Kínverja eru að því leyti ólíkar
Sðrum hernaðarviðskiptum á
seinni árum. að þar er ekki
um að ræða anga úr átökum
austurs og vesturs. allar póli-
tískar línur hafa brenglazt í
þessum landamæraþrætum. Sov-
étríkin hafa ekki viljað taka
neina afstöðu, en indverskir
komúnistar hafa algjörlega snú-
izt gegn skoðanabræðrum sinum
í Kína og stutt stjórn Nehrus,
forsætisráðherra í landamæraá-
tökunum.
Vesturveldin með Bandaríkin
í broddi fylkingar hafa hins veg-
ar séð sér leik á borði að vingast
við Indverja og hafa því stutt
þá f orði og verki, nú seinast með
því að senda þeim vopn. Hafa
þeir síðan rekið harðan áróður
ifyrir því, að hlutleysi Indverja
væri eiginlega úr sögunni. eftir
að þeir hefðu orðið fyrir innrás
Kínverja og þegið vopn af Vest-
urveldunum.
Indverskir ráðamenn hafa bent
á það undanfarna daga, að hlut-
leysi þeirra væri að siálfsögðu í
engu skert og myndu þeir halda
áfram á sömu hraut og ekki taka
þátt í hemaðarbandalögum aust-
urs og vesturs. Sendiherra Ind-
lands í Danmörku sagði blaða-
mönnum í þessu sambandi, að
orðið hlutleysi væri kannski
ekki nógu Ijóst til að tákna
stefnu þjóðanna. því að fyrst
og fremst væri um að ræða að
standa utan hemaðarbandalaga.
Sjang Kaisjek ræðst
á Bandaríkjamenn
Seinasta dæmið um það,
hversu fráleitt er að telja landa-
mærastríð Indlands og Kina á-
tök milli austurs og vesturs og
blanda því saman við hlutleysi
Indlands, er afstaða Sjang Kai-
sék, hershöfðingja á Formósu.
Sjang hefur um árabil verið
Asíu og þó víðar væri leitað.
I dag var upplýst, að stjóm hans
hefði sent Bandaríkjastjóm
harðorð mótmæli, vegna þess að
Bandaríkjamenn hafa stutt Ind-
verja og viðurkennt MacMahon-
línuna sem hin réttu landamæri
milli Indlands og Kína.
Sjang Kaisék segir í orðsend-
ingu sinni, að Bandaríkjastjóm
hafi ekkert tillit tekið til sögu-
legra staðreynda í afstöðu sinni
til þessara átaka.
Nehru biður Indverja
að forðast stríðsæði
Annað óvenjulegt sem nefnt
hefur verið í sambandi við
landamæraerjumar, er sú stað-
reynd, að þúsundir hermanna
hafa fallið í bardögum milli
Kínverja og Indverja, án þess að
rikin hafi slitið stjómmálasam-
bandi sín á milli eða lýst hafi
verið yfir styrjöld. Átökin hafa
verið bundin við ákveðin fjalla-
hémð og hvorugur aðilinn farið
út fyrir deilusvæðið. Kínverjar
hafa tekið mest allt það svæði,
sem þeir kröfðust en engar
nýjar fregnir bárust í dag af
bardögum.
Nehru. forsætisráðherra Ind-
AÞENA 9/11. — Dagblaðið
Ethnos í Aþenu fullyrðir í dag,
að fyrrverandi forsætisráðherra
Frakklands Georges Bidault og
þrir aðrir OAS-foringjar séu
komnir með leynd til Grikklands
og dvelji þar með falsaða papp-
íra og undir röngum nöfnum.
Eins og kunnugt er gerðist Bid-
ault einn helzti forsprakki OAS-
n.anna nokkru áður en hreyfing-
frægastur Bandaríkjadindill í 1 lands, varð fyrir miklum árásum
Spiegelmálið:
Adenauer kvartar yfir aS
sími sinn sé hleraður!
BONN 9/11. — Adenauer kansl-
ari V-Þýzkalands fullyrti í
morgun, að óviðkomandii aðilar
hlustuðu á einkasímtöl sín. Upp
á síðkastið hef ég varla þorað
að nota heimasíma minn og síma
minn í Bonn, sagði Kanslarinn,
því að ég hef orðið var við,
að einhver hlustar á símtölin.
Hef ég farið þess á leit við sam-
göngumálaráðherrann að hann
rannsaki málið.
Adenauers kanslara
Kvörtun ------------ —------- ,
in lagði upp laupana í Alsír. um símahleranir er í beinu fram- 1 d<*g’ scm haíðl ven?’
að hemaðarserfræðmgar, er ny-
lega báru vitni í málinu gegn
Der Spiegel, væru fyrrverandi
r.azistar.
Stjórnarskrárdómstóll í Karls-
ruhe hafnaði í gær tilmælum
frá tímaritinu Der Spiegel um,
að blaðið fengi aftur ráð yfir
skrifstofum sínum. Aðsetur
blaðsins hefur verið í umsjá
lögreglunnar um hálfsmánaðar-
skeið, og hefur gengið erfiðlega
að gefa blaðið út við þær að-
stæður. Dómstóllinn neitaði
einnig að aflétta ritskoðun á efni
fclaðsins, og féllst því ekki á,
að um væri að ræða brot á
lögunum um prentfrelsi.
Þingkosningar
# Færeyjum
ÞÖRSHÖFN 9/11. — Kosnmgarnar í Færeyjum urðu
sigur fyrir sósíaldemókrata og Fólkaflokkinn, sem báð-
ir juku fylgi sitt um 500 atkvæði. Sambandsflokkurinn
tapaði þingsæti og atkvæðum, og Þjóðveldisflokkurinn
einnig. Annars urðu litlar breytingar á fylgi flokkanna
í kosningunum.
Úrslit færeysku þingkosninganna urðu þessi: (í sviga
samsvarandi tölur úr seinustu kosningum):
Fólkaflokkurinn 3046 (2470)
Sambandsflokkurinn 3077 (3296)
Sósíaldemókratar 4155 (3584)
Sjálfstjórnarflokkurinn 889 (812)
Þjóðveldisflokkurinn 3261 (3329)
Framfaraflokkurinn 674 (404)
20,2% (17/78) 6 þings.
20,4% (23,63)f 6 þings.
27,5% (25,86) 8 þings.
5,9% (5,88) 2 þings.
21,6% (23,90) 6 þings.
4,4% (2,90) 1 þings.
Þinmönnum fækkaði um einn og verða nú 29 á þessu
kjörtímabili, vegna þess hvernig uppbótarsæti skiftast.
Sósíaldemókratar, Sjálfstjómarflokkurinn og Sambands-
flokkurinn mynduðu áður samsteypustjóm, en nú er
óvíst um samvinnu á þingi.
haldi af umraeðunum um mál-
eóknina gegn tímaritinu Der
Spiegel. Blaðið hefur oftsinnis
haft eftir vestur-þýzkum ráða-
mönnum ýmis umrnæli, sem þeir
hafa látið frá sér fara i einka-
v:ðræðum, án þess að þeir gætu
nokkru mótmælt. Hefur Strauss,
vamarmálaráðherra ekki hvað
sízt fengið að kenna á þessum
íurðunákvæma og dularfulla
fréttaflutningi.
Strauss mótmælti því harðlega
í Indverska þinginu í dag, er
andstæðingar stjómarinnar sök-
uðu hann um slælega frammi-
stöðu við hervæðingu Indlands
á seinni árum. Það eru fyrst og
og fremst hægri menn sem ráð-
ast að stjóminni og nota sér
þá óspart eins og víða annars
staðar, að það eru kommúnistar
í Kína sem eiga í erjum við
Indverja.
Nehru sagði á þingfundi í dag,
að hann vonaði að Indverjar
yrðu ekki striðsóðir, eins
og hann orðaði það sjálfur, ends
þótt þeir ættu i þessum deilum.
Fyrsta fómarlamb landamæra-
stríðsins var sannleikurinn, bætti
Nehm við.
Pakistanbúar eru Vest-
urveldunum erfiðir
Eins og kunnugt er hafa Pak-
istanbúar verið í hernaðarbanda-
lagi við Vesturveldin eftir stríð,
andstætt Indverjum, sem hafa
ekki viljað vera í neinu her-
bandalagi og fylgt hlutleysis-
stefnu. Fyrir nokkru fóru Vest-
urveldin fram á það við stjórn
Pakistan, að bún aðhefðist ekk-
ert í deilu sinni við Indverja
um Kasmír, meðan Indland ætti
í höggi við Kínverja.
Pakistanstjórn hefur hins veg-
ar ekki talið. að landamæradeila
Indverja kæmi kalda stríðinu
neitt við.og því hefur hún yísað
þessum tilmælum á bug. Forseti
Pakistan fór þess á leit við
Indlandsstjóm í dag, að hún
ihugaði, hvort Indverj ar • váeru
ekki reiðubúnir að semja um
lausn á Kasmirdeilunni.
Mynd þessi er tekin í Angóli í Afríku og sýnir portúgalska
hermcnn, búna vopnum frá Atlanzhafsbandalaginu, handleika
fómardýr sitt: höfuð af innfæddum uppreisnarhermannL Eins
og kunnugt er hefur einræðisherrann Salazar verið að kcnna
Angólabúum að meta „vestrænt frelsi“ að undanförnu og notið
til þeirra verka hjálpar Atlanzhafsríkjanna. Það hlýtur að vera
O ú,,u Ob
ánægjulegt fyrir fslendinga að sjá samherja sína, portúgalska
hershöfðingja vemda frelsi og Iýöræði í Afríku.
ingkosningar fóm fram í
Færeyjum í gær og er
sagt frá úrslitum þeirra ann-
ars staðar hér á síðunni. Við
hringdum í einn af forystu-
mönnum Þjóðveldisflokksins,
Sigurð Joensen, lögmann í
Þórshöfn, og spurðum hann
tíðinda:
Ungfrú
ú Holknd |i
sigraði
LONDON 9/11. — Ungfrú
Holland sigraði í alþjóðlegu feg-
urðarsamkeppninni, sem hér hef-
ur staðið yfir og kennd er við
heiminn. Ungfrú Heimur hlaut
300.000 ísl. krónur í verðlaun og
samning við kvikmyndafélag.
Hún er sýningarstúlka að at-
vinnu og hefur mjög gaman að
því að aka bílum að eigin sögn.
Meðal dómenda voru brezki
leikarinn Richard Todd, banda-
ríski skopleikarinn Bob Hope,
brezkir stjómmálamenn og lista-
menn. Finnsk stúlka hlaut ann-
að sætið og Ungfrú Frakkland
varð nr. 3.
— Sannleikurinn er sá,
sagði Sigurður, að mjög litl-
ar breytingar hafa orðið á
kjörfylgi flokkanna. Við erum
áfram næststærsti flokkurinn,
enda þótt við fáum ekki
fleiri þingmenn en Fólka-
flokkurinn og Sambands-
flokkurinn. Það eru flest at-
kvæði bak við hvem okkar
þingmanna. Nokkuð af fylgi
okkar hefur farið til Fólka-
flokksins, en Sambandsflokk-
urinn hefur tapað til sósíal-
demókrata.
— Hver myndi vera skýr-
ingin á því?
— Sósíaldemókratar hafa
kannski unnið á vegna áróð-
urs sins fyrir ellilaunum.
Fylgisauki Fólkaflokksins
mun hins vegar að þakka
því, að þeir fengu vinsælan
og róttækan mann fyrir sig
í framboð í Þórshöfn. Pers-
ónur skipta ævinlega miklu
máli í kosningum hjá okkur.
Hins vegar stóðum við okkur
vel i Þórshöfn, jukum fylgi
okkar þar um 25 prósent, en
hefðum sem sagt staðið okk-
ur enn betur, ef persónuleg-
ar vinsældir frambjóðanda
Fólkaflokksins hefðu ekki
komið við sögu.
— Hvemig gekk þér og
Erlendi?
— Erlendur komst inn aft-
ur, en það munaði minnstu
því að kjördæmi hans á Sand-
ey er lítið og miklu munar
um hvert atkvæði. Ég var
einnig endurkjörinn í mínu
kjördæmi á Norður-Straumey
og bætti nokkuð við mig.
En ég vissi til þess að ég
missti af þó nokkmm atkvæð-
um vegna þess að fylgismenn
mínir voru út á sjó. En þetta
á reyndar við um allan okk-
ar flokk. Meginfylgi okkar er
meðal sjómanna og það er
ævinlega fjöldi skipa á hafi
úti þegar kosningar fara fram.
I
— En þið eruð þá sæmi- .
lega ánægðir með únslitin g
eftir atvikum?
— Já sæmilega, bara sæmi- I
lega, segir Sigurður með I?
nokkrum semingi í röddinni. I
Hins vegar er það nokkur bót k
í máli, að sjálfstæðismenn "
eru í meirihluta á þinginu:
Sambandsflokkurinn og sósí-
aldemókratar hafa aðeins 14
af 29 þingmönnum.
— Hver er þessi Framfara-
flokkur? Er hann líka sjálf-
*
!
Litlar breytingar
á þingi Færeyja
\
stæðisflolíkur?
— Já blessaður vertu. Hann
er geysilega róttækur
a.m.k. í orði kveðnu.
Erlendur Patursson, annar
aðalforingi ÞjóðfrelSisflokks-
ins færeyska
.J
— Jájájá, sérstaklega fyrir S
kosningar. Allir þessir flokk- b
ar hafa lagt mikla áherzlu J
á sjálfstæðismálin fyrir þess- B
ar kosningar, t.d. skólamálið. J
En eftir er að vita hvort ■
þeir standa við stóru orðin. k
Það var mikið um það talað I
fyrir kosningarnar að nú ættu k
allir flokkar sjálfstæðismanna ”
að taka höndum saman. Það K
getur komið til mála að úr "
því verði. Það er hugsanlegt k
Já, það er hugsanlegt.
Fastar vildi Sigurður ekki
kveða að orði.
as.
*
I