Þjóðviljinn - 10.11.1962, Blaðsíða 10
JQ SfÐA
ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 10. nóvember Í&&
Skáldsaga eftir RICHARD C0ND0N
„Nei“.
„Hvemig fer það?“
„Verjandanum tekst sjálfsagt
að leggja fram svo sterk gagn-
rök að Jaime sleppi sennilega
'með þrjátíu ár og einn dag,
heldur saksóknarinn."
„Og ekkert er hægt að gera?“
„Ekki neitt.“
„Fyrir mörgum mánuðum,"
sagði Eva með hægð. „þegar við
uppgötvuðum i París. að mynd-
unum, sem við höfðum stolið frá
þér, hafði verið stolið frá okk-
ur — fann Jim leið til að ná
sambandi við spænskan glæpa-
hring. Hann þurfti aðstoð til að
komast að því hvað orðið hefði
af myndunum. Rétt eins og
þarna væri um venjulegan þjófn-
að að ræða!“
Tveir þjónar komu inn með
teborðið. Hertogafrúin benti þeim
að fara og hellti sjálf tei i boll-
. -ana. Eva hélt áfram:
„Maðurinn var einmitt að segja
mér, að þú hefðir sagt rfkis-
stjórninni hvar Goyamálverkið
væri falið. Hann sagðist eigin-
lega ekki hafa ætlað að segja
mér það. en hefði séð sig um
hönd, vegna þess að honum
fannst ég verða að vita hverjir
óvinir mínir voru. Ég fór frá
honum í sömu trú. Allt í einu
jskildJi ég að það varst þú sem
myrtir Victoriano Munoz. Og
þegar þú spurðir hvort ég hefði
ekki gért hið sama i þínum
sporum og sagt ríkisstjóminni
'frá málverkinu. ef það hefði
verið Jim sem myrtur var. þá
varð mér ljóst að þetta yrði
bara allt ennþá vonlausara. ef
ég liti á þig sem óvin. Nú finn
ég á mér, að Jim veit hvað
komið hefur fyrir okkur öll os
hann skilur hvað hefur verið
gert og hvers vegna það var gert
og honum mun Þykja enrf vænna
um þig en áður, vegna þess að
hann átti sinn þátt í að leiða
yfir þig þessa sorg. Mér þykir
lika vænt um þig, vegna þess
að ég tók þátt í sumu af þvi
sem leiddi yfir þig hörmung-
amar. Nú stend ég við hliðina
á þér með helming af því sem
ég á eftir. Við getum ekki flúið
frá eymd okkar og þvi verð éa
einhvern veginn að reyna að
finna frið handa þér og þú verð-
ur að reyna að finna frið handa
mér, því að við getum aldrei
bjargazt einar. Hefðum við bara
getað byrjað upp á nýtt. en með
þeirri reynslu sem við nú höf-
um og vitandi það að við get-
um ekki lifað nema hvert fyrir
annað . .. þá hefði Cayetano lif-
að og Jim verið frjáls. En þann-
ig átti það ekki að fara og.við
erum tvær einar eftir . . og við
einar þekkjum sannleikann. Þeg-
ar ég fór hingað í dag, þá vissi
ég að þú vissir eitthvað sem
ég skildi ekki, vegna þess að þú
hefur haft vitneskju um allt
þetta hræðilega miklu lengur en
ég. Ég vissi að þú hafðir eitt-
hvað sem þú fannst þig knúða
til að gefa mér — eins o.g þeg-
ar trúin var boðin fram í fyrsta
sinn. Þú vissir ekki hvort ég
væri reiðubúin að veita þvi við-
töku. og bú hafðir enga ástæðu
til að ætla að ég myndi vita
hvað það var. fyrr en þú færð-
' ir mér það. Við erum ein heild —
' af líkama og sál — þú ert ég
og ég er þú, og hvað höfum við
| gert hvor annarri?"
Stíflurnar innaní hertogafrúnni
| brustu. Tárin sem hún hafði
i leitað að, frá því að hún var
: kornung en henni hafði verið
: synjað um, fossuðu nú fram án
hindrunar. Hún grét stjórnlaust.
en fagnandi og óþvingað, meðan
Eva drakk te og hvarf til öm-
urleikans aftur.
Hún fór aí stað 5 Dalmler-
bílnum snemma næsta morgun.
Þau voru komin til Xrún klukkan
tíu mínútuf yfir átta. Vegabréf-
ið vá’r stiníplað með lötningu j
og þau runnu hindrunarlaust yf- !
ir brúna og yfir til Frakklánds. j
Hún borðaði morgunverð í
Eayonne. Meðan hún borðaði hom
og drakk café au lait Jas hún að
Jean Marie hefði hengt sig í
fangaklefanum. Hún mundi bara
Faðirvorið og hún sat með hend-
ur fyrir andliti og bað Faðirvor
einu sinni, tvisvar, þrisvar.
Hún gisti í Vendemeog kom
til Parísar snemma um morg-
uninn. Hún hafði drukkið allan
tímann, en eiginlega drukkin var
hún ekki.
íbúðin sem hún og Bourne
höfðu búið i, virtist framandi
o.g bre.ytt. Hana Jangaði í drykk.
Vínkaraflan var tóm. Hún leit-
aði í stofunni. í eldhúsinu. Loks
opnaði hún kjallaradymar. Ó-
þefur gaus upp á móti henni.
Hún leit niður. Köld og dauð
höndin á Chern teygði sig í átt j
til hennar Óþekkjanlegt andlit-1
ið starði á hana. Hún æpti. Hún
æoti aftur. Hún gat ekki hætt
að aepa
ENDIR.
Ingólfur Jénssn svar-
ar verkfræðingum
Athugasemd við greinar-
gerð Félags verkfræðinga frá
Ingólfi Jónssyni, samgöngu-
málaráðherra.
1 greinargerð frá Félagi
verkfræðinga, sem birt var í
blöðum nýlega er véfengt að
réttur sé sá samanburður, sem
gerður hefur verið á hækkun
þóknunar fyrir ákveðið verk,
eins og það var samkvæmt
gjaldskránni frá 1955 og eins
og það hefði orðið samkvæmt
þeirri gjaldskrá, sem taka átti
gildi hinn 1. maí s.l. 1 greinar-
gerðinni segir, að rangt sé að
bera saman „lágmarkstíma-
gjald fyrir útselda vinnu al-
mennra verkfræðinga, eins og
það var árið 1960, kr. 116.72,
við tímagjald verkfræðings með
reynslu og mikla kunnáttu á
sínu sviði, að viðbættum 40%
kostnaði af efnarannsóknar-
stofu, en þann kostnað skyldi
reikna aukalega samkvæmt
sömu gjaldskránni“.
Við þetta er ýmislegt að at-
huga, og þá fyrst, að í dæmi
þvi, sem tekið var, er um að
ræða lágmarkstímagjald í báð-v*>
um tilvikum, en ekki aðeins í
öðru, eins og fram virðist koma
í greinargerð félagsins. 1 öðru
lagi er um að ræða verkfræð-
ing með reynslu og mikia
kunnáttu í báðum tilfellum, en
ekki aðeins í öðru, svo sem fé-
lagið virðist gefa í skyn.
Ákvæði 24. gr. gömlu gjald-
skrárinnar, þar sem tímagjald
er ákveðið kr. 82,50 pr. kist.
(sem með vísitöluhækkunum
var komið upp í kr. 116.72 ár-
ið 1960), gilda um verkfræðinga
almennt, án tillits til sérstakr-
ar reynslu eða kunnáttu. 1
þriðja lagi er í hinni tilvitnuðii
málsgrein í greinargerð verk-
fræðinganna gefið í skyn, að
'rangt sé að bera saman tíma-
kaupið samkvæmt gömlu gjald-
skránni, kr. 116.72 við kr.
350+40% eða alls kr. 490,—
sem það hefði orðið samkvæmt,
nýju gjaldskránni, af þeirri á-
stæðu, að kostnað af efnarann-
sóknastofu skyldi reikna auka-
lega samkvæmt gömlu gjald-
skránni. 1 gömlu gjaldskránni
er ekki að finna nein slík á-
kvæði varðandi efnaverkfræð-
inga sérstaklega, en hins vegar
í 13. gr. skilgreiningu á ýmis-
konar aukakostnaði öðrum en
kostnaði við rannsóknastofu,
sem greiða skal eftir reikningi.
Það stendur því óhaggað, að
efnaverkfræðingur, sem tekið
hefði gjald fyrir venjulegt verk
eftir tímakaupi samkvæmt
gömlu gjaldskránni, hefði
reiknað sér á grundvelli henn-
ar kr. 116.72 á tímann, en kr.
490.— samkvæmt þeirri nýju,
ef hann hefði lagt sér til starfs-
aðstöðu í báðum tilfellum, og
að sú hækkun nemur 320%.
Athyglisvert nýmæli er það í
þessu sambandi, að sem hluta
af þóknun verkfræðinga, þeg-
ar unnið er eftir tímakaupi.
skuli reikna gjald á klukku-
stund, fyrir „annað starfsfólk“,
sem vinnur að verkefninu, er
nemur 1.2%o af árslaunum.
Svarar það til þess að verk-
fræðingurinn fái árslaun þessa
„annars starfsfólks" greidd í
833 vinnustundum.
Samanburður á þóknun verk-
fræðings fyrir brúarsmíði, að
gefnum tilteknum algengnum
forsendum, er réttur.
Það er kunnara en fram þurfi
að taka, að eigi eru verkfræð-
ingar einir um að búa við lægri
launakjör en viða annars stað-
ar gerist. Setning bráðabirgða-
laga til þess að hindra gildis-
töku gjaldskrár, sem stórhækk-
ar laun ákveðinnar starfsstétt-
ar, kann að virðast harkaleg
ráðstöfun gagnvart þeirri stétt,
sem í hlut á, en hitt stendur
óhaggað, að eigi væri það síður
móðgun við aðrar starfsstéttir,
sem með lögum eða samning-
um er meinað að hækka laun
sín með auglýsingu á taxta, að
leyfa einni stétt að knýja mál
sitt fram á þann hátt.
Reykjavík 5. nóv. 1962.
HJOKRUNARKONA
óskast að Slysavarðstofu Reykjavíkur. — Upplýsingar
gefur yfirhjúkrunarkonan.
SJÚKRAHCfSNEFND REYKJAVlKUR.
Orðsending til viðskiptavina
Höfum flutt lager okkar frá Hjarðarhaga 24 að
Arnnia 16 — Sími 38401
Frímerkjaklnbb-
ar á vegnm Æskn-
lýðsráðs Rvíkur
Frímerkjaklúbbur Æskulýs-
i'áðs Reykjavíkur hófu vetrar-
starf sitt fyrir nokkru. Að
þessu sinni er starfsemin að-
eins til húsa að Lindargötu 50,
og starfar þar flokkur pilta undir
leiðsögn Bjama Guðmundssonar
og Sigurður Þorsteinssonar á
miðvikudögum kl. 6 til 8 e.h.
Þeir sem hyggjast taka þátt í
starfi frímerkjaklúbbsins og
ekki hafa verið áður, ættu að
gefá sig fram þegar í upphafi
tímans svo að eðlileg leiðsögn
truflist ekki. Veitt er tilsögn í
meðferð frímerkja, greiningu,
uppsetningu „motiv-safna“ auk
fróðleiks um sögu og tilgang
frímerkja og frímerkjasöfnunar.
★ Winston Churchill hélt á
dögunum hátíðlegt 60 ára þing-
setuafmæli sitt. Hann er nú 88
ára gamall.
★ Borgarbókasafnið í Hálsing-
borg í Svíþjóð átti aldarafmæli
fyrir skömmu og í afmælisriti
þess kemur í Ijós að það hefur
mestallan aldur sinn lifað á
hundum borgarinnar. Frá 1862
til 1919 var helmingur af inn-
heimtum hundaskatti eini, fasti
tekjustofn bókasafnsins, og enn
rennur þriðjungur hundaskatts-
ins í Hálsingborg til menning-
arstofnunarinnar.
Verksmiðjustjóri Jón Tómasson.
Heimsþekkl
Niðursoðnir ávextir
Fruit Cocktail
1/1 — 1/2 — 1/4 dósir.
Ferskjur
1/1 — 1/2 — 1/4 dósir.
Perur
1/1 — 1/2 — 1/4 dósir.
og Melba.
Ananas
Sliced — Tidbit — Chttak
— Crushed.
Niðursoðið grænmeti
Mixed Salad Vegetable
Peas & Carrots
Whole Green Beans
Lima Beans
Sweet Peas
Cream Gold Com
Famsty Gold Com
Cream White Com
New Potatoes
Sweet pickles
Sweet pickle chips
Aspas Green Tipped
Tomat catsup.
Þurrkaðir ávextir
Breakfast Prunes
Medium Prunes
Aprikósur, stórar
Rúsínur.
tUUaimidi,
Aðstaða flóttafólksins virtist vonlaus en Bob og Henrv steinum. Fyrir neðan þá iá dráttarskipið. Þórður vissi,
voru ákveðnir í að selja frelsi sitt dýrt. Þeir gengu út að Homer myndi ekki fremur hlífa honum en flótta-
á háa klettanöf, er skagaði út í sjóinn, og vopnuðust fólkinu.
Sendisveinar
óskast strax. — Vinnutimi (yrir hádegi.
Þurfa að hafa hjól.
Þjóðviljinn
t
0