Þjóðviljinn - 30.11.1962, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 30.11.1962, Qupperneq 2
ClDÁ 2 - ÞJÓÐVILJINN Bœndafundur haldinn í Austur-Skaftafellssýslu 25. sýníng á „Frœnkunni ■ ■ Gamanleikurinn „Hún frænka mín” verður sýndur í Þjóðleikhús- lnu f 25. sinn annað kvöld, Iaugardag. Leikurinn verður aðeins sýndur 3 — 4 sinnum ennþá því að ákveðið er að hætta sýningum á þessum leik fyrir jól. Venjan er að sýna til 15. desember og verður þá nokkurt hlé á sýningum vegna jólaanna. Nú standa yfir æfingar á „Pétri Gaut”, og krefst sýning á því stórbrotna verkf mikils undirbúnings. Ákveðið er að frumsýna Pétur Gaut á annan í jólum. Myndin er af Stefáni Thors í hlutverki sínu f „Hún frænka mín” en þar leikur Stefán eitt aðalhlutverkið. Hinn árlegi bændafundur bún- aðarfélaganna í Austur-Skafta- fellssýslu var haldinn 17. og 18. nóv. að Mánagarði í Nesjum. Þessir fundir hafa nú verið haldnir árlega í tæpa tvo ára- tugi, og þar hafa verið reyfuð ýmis framfaramál, sem héraðið varðar. Samgöngumál. - Eins og jafnan áður voru mörg mál rædd á fundinum og ályktanir ' samþykktar svo sem um samgöngumál á landi og sjó og lofti, m.a. að hraðað verði að brúa þær ár, sem enn eru óbrúaðar innan sýslunnar. Einnig að hafizt verði handa um byggingu á nýjum flugveli við Homafjörð, með tilliti til þeirra erfiðleika, sem á því eru að komast að og frá þeim flug- velli, sem nú er. Þá lét fundurinn í ljós ó- ánægju með þá tilhögun, sem höfð er á um ferðir strand- ferðaskipanna, og taldi. að þær kæmu ekki að æskilegum notum fyrir byggðarlagið. Virkjun sé hraðað. Um raforkumál gerði fundur- inn ályktun um að hraða virkj- un Smyrlabj argaár og lét í ljós óánægju vegna greinargerðar raforkumálaráðherra til Alþing- is nú fyrir skemmstu, en þar var frá því skýrt, að virkjun Smyrlabjargaár mundi dragast enn um sinn. Taldi fundurinn. að hér væri verið að breyta 10 ára rafvæðingaráætluninni og mótmælti hann bvf harðlega. Varað við EBE. Þá varaði fundurinn við því, að teknar væru nokkrar fljót- færnislegar ákvarðanir um að- i)d fslands að Efnahagsbanda- Mótmæla lengri vínveitinga tíma og af námi „þurrs dágs' Þjóðviljinn hefur þegar getið samþykktar aðalfundar Banda- lags kvenna í Reykjavík um lokunartíma hinna svokölluðu sjoppa. Hér fara á eftir sam- þykktir fundarins um áfengis- mál: Fundurinn skorar á dómsmála- Fimm námsstyrk- ir frá OECP Efnahags- og framfarastofnun- in í París (OECD) hefur ákveðið að veita íslendingum allt að 5 styrki til framhaldsnáms í hagnýtri hagfræði, svo sem gerð þjóðhagsáætlana, þjóðhagsreikn- ir.ga og hagskýrslna, búnaðar- hagfræði og stjórnsýslu. Styrk- imir fela í sér greiðslu á ferða- kostnaði, skólagjöldum, fæði og húsnæði. Eru styrkirnir miðaðir við 3 — 24 rriánaða nám er hefj- ist haustið 1963. Geta umsækj- endur valið á milli námskeiða víð ýmsar stofnanir í Evrópu og Bandaríkjunum. Umsóknir um styrki þessa þurfa að berast ráðuneytinu fyr- ii 15. desember n.k. vegna náms í Bandaríkjunum, en fyrir 1. marz 1963 vegna náms í Evrópu. ráðherra að láta ekki að vilja veitingamanna um að lengja vín- veitingatímann um klukkustund á kvöldi og leggja niður hinn svonefnda þurra dag eins og veitingamenn vilja. Telur fund- urinn, að fenginni reynslu, að slík breyting muni aðeins auka drykkjuskap, og þau vandræði, sem honum fylgja, og draga úr starfsgetu manna. Auk þess sýn- ist ekki til of mikils mælzt, að þeir, sem ekki neyta áfengis, fái 1 dag í viku aðgang að vín- lausum veitingahúsum. Vegna þráláts orðróms skorar fundurinn á forstjóra Áfengis- verzlunar ríkisins að ganga ríkt eftir því við starfsfólk verzlunar- innar, að það selji ekki áfengi öðrum en þeim, sem samkvæmt 16. gr. áfengislaganna hafa rétt til þess að kaupa það. Beinir fundurinn því til forstjórans að hafa nefnda lagagrein á áberandi stað í vínbúðunum. svo bæði starfsfólkið og kaupendur sjái, hvað eru lög, og hverjum má ekki selja áfengi. Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir því, að Barnavemdamefnd Reykjavíkur hefur nú hafizt handa um að koma í veg fyrir útivist bama á kvöldin. Jafn- framt skorar fundurinn á for- eldra að hafa sem bezta sam- Glænw v<sa og þorskur heilt og flakað. Sólþurrkaður saltfiskur Borðið fisk og sparið. nætursaltaður fiskur. FISKHÖLLIN vinnu við nefndina um þetta mál. Ennfremur skorar fundur- inn á lögreglustjóra að herða á eftirliti með því, að unglingum verði ekki selt áfengi á skemmti- stöðum eða á útsölustöðum á- fengisverzlunarinnar. Fundurinn ítrekar erin einu sinni margendurteknar sam- þykktir sínar til Alþingis, ríkis- stjórnar og borgarstjómar um það að veita ekki áfengi í op- inberum veizlum. Telur fundur- inn, að slík ákvörðun mundi hafa hin heppilegustu áhrif á skemmt- analíf þjóðarinnar, því að enn í dag er í gildi málshátturinn gamli: „Hvað höfðingjamir haf- ast að, hinir ætla sér leyfist það.” Fundurinn vill víta þær fram- kvæmdir að staðsetja áfengis- verzlanir í sambýlishúsum sam- anber áfengisútsöluna að Laugar- ásvegi 1. Telur fundurinn furðu- legt, að eindregin mótmæli fólks- ins í næsta nágrenni, hafi ekki verið tekin til greina. Er þó augljóst, að staðsetning vínsölu við hlið mjólkur- og matvöru- verzlana hlýtur að teljast íhæsta máta óviðfelldin. laginu og taldi, að gæta yrði þess, að engir samningar yrðu gerðir, sem skaðlegir gætu orð- ið sjálfstæði íslands. Ýmsar aðrar ályktanir voru gerðar, t.d. um fyrirhleðsiur vatna, sandgræðslu, kornrækt, verðlagsmál landbúnaðarins, skólamál o.fl. Menningarsamband. Að fundi loknum var svo kvöldvaka á vegum Menning- arsambands Austur-Skaftfellinga, en það var stofnað á síðast- liðnu vori. Að þvf standa flest félagasamtök sýs)- \ 'ar svo sem Búnaðarsambandið. Kvenfélaga- sambandið, Ungmennasambandið Ulfljótur og Kaupfélag A-Skaft- fellinga. Formaður er Steinþór Þórðarson bóndi á Hala í Suð- ursveit. — ÞÞ. Langholtssöfnuð- ur ninnist 10 ára *fmælis síns Nú um helgina verða liðin 10 ár frá því kirkjulegt starf hófst í Langholtssöfnuði í Reykjavík, en hann er nú einn stærsti söfn- uður Iandsins. Hefur verið reist safnaðarheimili sem bæði er not- að sem kirkja og fyrir aðra starf- semi safnaðarins. Er starfandi innan hans kvenfélag, brrrðrafé- lag, æskulýðsfélag og barna- stúka. I tilefni af afmælinu efna safnaðarstjórn og bræðra- og kvenfélagið til þriggja kirkju- kvölda um helgina og verður hið fyrsta laugardaginn 1. des. en hin næstu kvöld. Þar munu skiptast á stutt erindi, söng- ur, hljóðfæraleikur og upplestur. Ræðumenn verða prófessoram- ir Jóhann Hannesson og Þórir Kr. Þórðarson, dr Róbert A. Ottósson söngmála- stjóri o. fl. en Guðmundur -Jóns- son óperusöngvari og fleiri lista- menn annast tónlistina ásamt kirkjukórnum. Kvenfélag safnað- arins sér um veitingar í lok dag- skrár. Allir eru velkomnir end- urgjaldslaust en tekið verður á móti afmælisgjöfum til kirkjunn- ar sem berast kunna. Helgi dansar Ivrir Ö þant Á þriðjudaginn var dansaði ballettflokkur Roberts Joffreys fyrir fulltrúa á þingi Sameinuðu þjóðanna, en í þeim flokki dans- ar nú Helgi Tómasson. Helgi sagði blaðamönnum hér frá þess- um flokki þegar hann var hér í haust; hann hefði unnið mikið undanfama mánuði og áunnið sér gott nafn. Flokkur Joffreys fer senn í dansferð um Norður- Afrfku og nálægari Austurlönd á vegum Bandaríkjastjómar. uðustu tegundar I síðasta hefti Ncytcndablaðs- ins voru m. a. birtar leiðbein- ingar um val og meðferð á gólf- teppum. Þar er því haldið fram að teppaheitin segi ekkert til um gæðin, heldur gefi einungis til kynna hvaða vefnaðaraðferð sé beitt. Nú hefur blaðinu borizt pist- ill þar sem gerðar eru athuga- semdir við þetta. Þar segir m. a.: „Axminster” er fyrst og fremst heiti á Jeppum, sem ofin eru með Axminsteraðferð. En hér á landi eru eingöngu framleidd A-1 Axminster-teppi, en í þau eru notuð hráefni vönduðustu tegundar. Botninn, eða grunn- vefnaðurinn í A-1 Axminster- gólfteppum er úr „jútugarni” og baðmull. Slitþráðurinn, sem að sjálfsögðu mæðir mest á í notk- un, er margþætt kamgarn úr 100 % íslenzkri ull, en erlendir sér- fræðingar hafa kveðið upp þann dóm, að slitþol hennar. sé frá- bært. Auk þess er þéttleiki slit- þráðanna í A-l, Axminster-gólf- teppum mun meiri en í öðrum flokkum, eða 45 uppstandandi þræðir á hvem ferþumlung tepp- Sækja um styrki Á síðasta fundi borgarráðs Reykjavíkur voru lagðar fram umsóknir eftirtalinna aðila um styrk samkvæmt fjárhagsáætlun 1963: Lúðrasveit Reykjavíkur, Lúðvík C. Magnússon vegna Guð- rúnar Á. Símonar. St. Jósefs- spítali. Leikklúbburinn Gríma. Bandalag kvenna í Reykjav'k Þjóðdansafélag Reykjavíkur. Guðmundur Einarsson Gaðmundar Irá Miðdal sýnir Guðmundur Einarsson frá Mið- dal opnaði í gær sýningu í vinnustofu sinni Skólavörðustíg 43. Guðmundur sýndi seinast fyr- ir tveim árum í Bogasalnum. Þær myndir sem nú eru upp festar hafa orðið til síðan. Þær eru fimmtíu talsins, 17 olíumál- verk og hitt eru vatnslitamynd- ir. Guðmundur Einarsson er eins og kunnugt er alls enginn nú- tímamaður í myndlist. Hann málar sem fyrr lands- lag og gömul hús, einnig fugla; þarna eru tvær rjúpnamyndir eins og búast mátti við. Nokkr- ar myndanna eru frá A-Græn-1 lemdi. Föstudagur 30. nóvember 1962 Flytur fyrir- lestra um ensk og amerísk lióðskáld Ameríski sendikennarinn við Háskóla Islands, prófessor Her- mann M. Ward, heldur vikulega fyrirlestra í vetur fyrir almenn- ing, og fjalla þeir um ensk og amerisk ljóðskáld. Fyrirlestram- ir eru fluttir á miðvikudags- kvöldum kl. 8.15 í 6. kennslustofu háskólans. Hinn fyrsti var hald- inn sl. miðvikudag og fjallaði um T. S. Eliot. Næstu fyrirlestr- ar eru: miðvikud. 5. desember: Ransom og Cummings. Miðviku- daginn 12. desember: Roethke, Bishop, Moore o.fl. Verða 0L1968 haldnir í Lyon PARlS 27/11 — Franska olym- píunefndin ákveð á fundi 1 kvöld að mæla með umsókn Lyon-borgar um að halda sum- ar-olympíuleikana 1968. 18 full- trúar greiddu atkvæði með Ly- on, en aðeins 5 með París. Endanleg ákvörðun um það hvar olympíuleikamir 1968 verða haldnir, verður teiún á fundi Alþjóða-olympíunefndar- innar í Nairobi í Kenya í okt- óbermánuði 1963. Aðrar borgir, sem sótt hafa um að halda olympíuleikana 1968 eru Detroit, Kairó, Manila (Filippseyjum), Mexico City, Buenos Aires og Vínarborg. Tilkynning Þar sem fyrirsjáanlegar eru óvenjumiklar annir í vöru- geymslum félagsins í Reykjavík eftir 10. desember, eru það vinsamleg tilmæli til viðskiptamanna vorra, að þeir sæki vörur, sem þeir eiga í vörugeymslum vorum, fyrir þann tíma. Vírðingarfyllst, H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS. Mercedes Benz eigendur Framhaldsstofnfundur verður haldinn í Breiðfirðingabúð uppi sunnudaginn 2. desember 1962 kl. 2 e.h. Mercedes Benz eigendur eru hvattir til að mæta stund- víslega STJÓRNIN. íbúð óskost Einhleyp eldri kona óskar eftir lítilli íbúð. Upplýsingar í síma 17500, eftir hádegi. Nýkomið Barnanáttföt á 2 — 7 ára. verð: kr. 56,00 Þýzkar barnapeysur, verð frá kr. 107,00 Stíf undirpils á telpur 2—10 ára. Mikið úrval af enskum bamahúfum. Verzlunin S A Skólavörðustíg 17 Sírrii 15188. «

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.