Þjóðviljinn - 30.11.1962, Síða 3

Þjóðviljinn - 30.11.1962, Síða 3
V FÖstudagur 30. nóvember 1962 ÞJÓÐVILJINN •SÍÐA 3 V - þýzka stjómin vill banna samtök férnarlamba nazista BERLÍN 29/11 — Vesturþýzka stjómin býr sig nú undir að banna samtök þeirra manna, er komust lífs af úr fangabúðum nazista í seinustu heims- styrjöld, og hefur höfðað mál fyrir dómstóli í Berlín þessu til staðfestingar. Aðgerðir þessar hafa vakið óhug manna víða um heim, enda er nú skammt stórra högga á milli af hálfu Bonnstjórn- arinnar og Spiegel-hneykslið varla liðið úr minni. Málaferlin gegn samtökum fómarlamba þýzku nazistanna hófust fyrir nokkrum dögum að frumkvæði Bonnstjómarinnar og stefna vesturþýzk yfirvöld að því að fá heimild dómsins til að banna samtökin um gjörvallt landið. Á þriðjudag boðuðu sam- tökin til fundar í Vestur Berlín til að mótmæla ’ þessum rnála- ferlum, en lögregluyfirvöld bönn- uðu fundinn. Bonnstjómin beitir sömu að- ferðum og nazistar notuðu sem mest og vill fá samtökin bönn- uð, vegna þess að „kommúnist- Ben Bella bannar fíokk kommúnista AUSÍR 29/11 — Ben Bella, for- sætisráðherra Alsír, hefur í dag bannað kommúnistaflokk Alsír og vikublað það, sem flokkurinn gefur út. Kommún- istaflokkurinn var leyfður í vor, þegar Serkir tóku við stjórn eigin mála a.f Frökkum, en áð- ur hafði hann verið bannaður í mörg ár Er Ben Bella kom til valda í sumar, tilkynnti hann, að ekki myndi þörf fleiri stjórnmála- flokka en eins í landinu, þ.e. Þjóðbyltingarflokks forsætisráð- herrans sjálfs. Ben Bella er tal- inn aðhyllast stefnu Nassers, forsætisráðherra Egyptalands, en hann hefur átt töluvert sam- starf við sósíalísku ríkin og boð- að arabískan sósíalisma. en hins vegar bannað stjórnmála- starfsemi kommúnista. Blað kommúnistaflokks Alsír, Alourra, hefur haldið uppi nokkurri gagn- rýni á stjórn Ben Bella að und- anförnu og er það m.a. talin skj'ningin á þvi, að kommún- istaflokkurinn varð fyrstur fyr- ir barðinu á fyrrnefndu banni við starfsemi annarra flokka. Fyrir nokkru var franska blaðið L’Express bannað í eitt ár í Alsír. Hið kunna vikublað hefur alltaf verið mjög vinsam- legt í garð þjóðfrelsishreyfingar Alsírbúa og hélt á sínum tíma uppi harðri gagnrýni á fram- ferði Frakka þar í landi. Fyrir nokkru birtist í blaðinu grein frá Alsír, eftir einn af starfs- mönnum blaðsins í landinu. þar sem lýst var ringulreiðinni og stjómleysjnu að undanförnu. en ritstjóm þlaðsins mótmæíö sam- tímis efni greinarinnar og mál- flutningi en sú bragarbót virðist þó ekki hafa dugað tik ar“ hafi hreiðrað um sig innan þeirra. Undanfarnar vikur hafa málaferlin gegn vikublaðinu Der Spiegel vakið heimsathygli, enda þykja starfsaðferðir stjómar Ad- enauers minna óhugnanlega mik- ið á framkomu nazista á þeim tímum er þeir voru að brjótast til valda. Þykir nú ýmsum skammt stórra högga á milli i stjómarathöfnum Adenauers og hafa fjölmörg samtök víða um heim mótmælt þessari seinustu aðför. í dag voru sendiherra Vestur- Þýzkalands í Osló fengin í hend- ur mótmæli frá Sósíaliska þjóð- arflokknum í Noregi. Er í þeim sagt, að viðbrögð stjómarinnar í Bonn verði mælikvarði á það, hvort stjómin telji það hafi ver- ið glæpsamlegt athæfi að berj- ast gegn Hitler og böðlum hans. Sovétstjómin hefur sent hem- aðaryfirvöldum Vesturveldanna í Berlín harðorð • mótmæli gegn málaferlunum og segir þar, að þau séu brot á samningum fjór- veldanna um Berlín, því að nú eigi að beita harðneskjulegum lögregluaðgerðum gegn samtök- um þeirra manna, sem urðu að þola pyntingar vegna baráttu sinnar gegn nazistum. Vilhelmína Hollands- drottning látin HAAG 28/11 — Látin er ; Hol- landi, Wilhelmína, fyrrum drottning. Hún var móðir Júlí- önu drottningar, sem tók við völdum 1948. Wilhelmína hafði lengi þjáðst af sykursýki, en sköttimú ; eftir miðnætti í nótt lézt hún, og er dánarorsökin talin hafa verið hjartabilun. Hún verður jarðsett 8. desember. lóhannes páfi sjúkur RÓM 29/11 — Jóhannes páfi XXIII liggur nú þungt haldinn á einkasjúkrahúsi en hann mun hafa ofreynt sig á kirkjuþinginu í Róm. Páfinn þjáist af sjúk- dómi í blöðruhálskirtlinum. oig er talið sennilegt að hann muni gangast undir uppskurð. Pró- fessor Gasparini, sem stundaði Píus heitinn páfa. þegar hann þjáðist af óstöðvandi hiksta, er kominn til Vatikansins. ikojan ræðir við Kennedy forseta WASHINGTON 29/11 — Anastas Mikojan, fyrsti aðstoðarforsætis- ráðherra Sovétríkjanna mun eiga fund með Kennedy forseta í kvöld. Það var Mikojan sem fór fram á, að fundur þessi yrði haldinn, og telja fréttamenn sennilegt, að hann hafi með- ferðis mikilvæg skilabo.ð til forsetans frá Sovétríkjunum og Kúbu. Mikojan kom flugleiðis til New York og hélt beint til ^>heimilis Thompsons, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu. Mikojan sagði við fréttamenn á flugvellinum, að hann áliti, að fundur þeirra Kennedys gæti orðið mjög gagn- legur fyrir sambúð Bandarikj- anna og Sovétríkjanna. Flest þykir benda til, að stór- veldin hafi nú komið sér sam- an um að endurkjósa U Þant i starf aðalritara Sameinuðu þjóð- anna. Er talið sennilegt, að alls- herjarþingið fjalli um það mál á morgun og fari kosning þá fram. Oíil/ Dpie> Ú Þant, aðalritari SÞ (í miðju vinstra megin) ræðir við leiðtoga Kúbubúa í Havana fyrir tæpum tvcimur vikurn. Vinstra mcgin viið Castro situr Raul Roa utanríkisráöherra, en hægra megin Dort- icos forseti og sendifulltrúi Kúbu hjá SÞ, Carlos Lechuga. ! I * ! ! Riddararnir, sem gefizt hafa upp og flýja af vígvellinum, eru nefndir af teiknaranum AI- menningsálitið, Verkamannaflokkurinn og Bre zka samveldið. En Macmillan geysist áfram gegnum kúlnahríðina og hrópar: Evrópa eða d auðinn! — Flest þykir nú benda til að Mac- millan sprengi hest sinn á hlaupunum og liggi sjálfur eftir í valnum, pólitiskt dauður. Evrópuveldii er reist á röngum fersendum! Ifimm norðlægum löndum, Bretlandi, íslandi, Svíþjóð, Noregi og Danmörku, er nú háð tvísýn og örlagarík bar- átta gegn inngöngu þessara þjóða í Efnahagsbandalag Evrópu. f öllum löndunum gildir hið sama: róttækir vinstri menn og sósíalistar hafa haft forystu með and- stæðingum bandalagsins og þeim hefur alls staðar stór- aukizt fylgi og styrkur, síðan ríkisstjórnir þessara landa tóku fyrir rúmu ári að stefna að einhvers konar aðild að bandalaginu. Samþykkt brezka verkamannaflokksins nú fyrir skömmu er þó líklega örlaga- ríkasti sigurinn. Röksemdir andstæðinga bandalagsins eru yfirleitt tvenns konar. Annans vegar er á það bent, að viðkomandi þjóð hafi ekki hag af að ganga í bandalagið. Er þá bent á hætturnar, sem fylgja aðild; hættuna, sem vofir yf- ir menningu og sjálfstæðri þjóðartilveru, og háskann af tilflutningi fjármagns og vinnuafls. Loks er dregið í efa, að efnahagslegur ávinn- ingur sé af inngöngu í banda- lagið. Þessar röksemdir eru auðvitað jafn ólíkar með hverri þjóð og löndin, sem hlut eiga að máli. Hin röksemdin er sameig- inleg: Menn hafa ekki trú á nýju Evrópustórveldi og telja það ekki æskilegt. Hvers vegna? F»egar stórveldi er skapað úr smáríkjum, hlýtur ástæð- an að vera ein af þessum þremur: annað hvort eiga lífs- kjör almennings að batna, skapa á hentug skilyrði fyrir auðhringa eða ætlunin er að smíða hernaðarlegt stórveldi. Forvígismenn bandalagsins hafa allar þessar ástæður í huga. En nýja Evrópustór- veldið er reist á röngum for- sendum, af því fátt bendir til þess að lífskjör almennings verði bætt hraðar, eftir stofn- un þandalagsins, en verið hefði utan þess, — af því að það er stórháskalegt að veita evrópskum auðhringum aukið svigrúm, og vegna þess að engum í heiminum er raun- verulegur greiði gerður með þv; að stofna nýtt hemaðar- stórveldi í Evrópu. Draumurinn um stórveldið EBE, sem staðið gæti jafn- fætis USA og USSR basði hernaðarlega og pólitískt, er það sem rekur áfram menn eins og Adenauer, de Gaulle og Macmillan. Þessir þrir menn hafa allir lifáð og hrærzt um áratugi með evr- ópsku afturhaldi; heimsveld- isdraumar og nýlendustefna er þeim öllum í blóð borin. Um aldamótin seinustu var Adenauer hálfþrítugur, de Gaulle var á sama aldri við upphaf fyrra stríðs, — á beztu árum sínum voru þeir allir stoltir þegnar heimsveldis. Evrópuveldin hafa glatað forystu sinni í heiminum, og nú vilja þessir þrír öldungar ná henni aftur sameiginlega. Allir telja þeir sér trú um, að föðurland þeirra muni ná undirtökum í bandalaginu. En aðeins einn þeirra er öruggur um að ná forystunni, — Þjóð- verjinn. Það er lygilegt, hve oft Þjóð- __ verjum E^jar að takast að snúa á evrópska stjómmála- menn á einum mannsaldri. Þjóðverjar eru valdir að tveimur heimsstyrjöldum, og í þriðja sinn vígbúast þeir nú af krafti. 1 þetta sinn hugga menn sig við, að þeir víg- búist ekki gegn Frökkum, sínum fomu óvinum, heldur gegn austrinu. En hvað er heimurinn bættari fyrir það? Stríðshættan er hin sama. Vestur Þjóðverjar gera stór- felldar landakröfur á hendur Pólverjum og Tékkum. Er- lendir ferðamenn fá víða á landamærum V-Þýzkalands afhent sérstakt kort, þar sem Stór-Þýzkaland er teiknað; sameinað Þýzkaland, sem unnið hefur aftur það, sem tapaðist í seinasta stríði. Og Adenauerstjórnin hamast við að koma í veg fyrir, að nú- verandi landamæri verði end- anlega staðfest af stórveldun- um. Þýzki hernaðarandinn lifir enn, og nazisminn blundar í hreiðmm sínum um allt Þýzka- land. Við skulum ekki halda að hann birtist aftur í gamla búningnum, en hann kemur, ef menn halda ekki vöku sinni. Allt sem þarf er til reiðu: nýjar landvinninga- kröfur, gróðafíknir auðhring- ar með Krupp í broddi fylk- ingar, hrokinn og hermennsku- brjálæðið og loks velviljaðir íhaldsmenn um alla Evrópu. Sameining Evrópu er nokkr- um öldum á eftir tíman- um. Evrópa er ekki lengur allur heimurinn. „Miðjarðar- hafið er að .vísu blátt, en það er ekki lengur í miðjunni!” Hagsmunir okkar spanna um allan heim, viðskiptalega og pólitískt. Sami háskinn vofir yfir öllu mannkyni. Það er vissulega furðulegt, að ríkustu þjóðir heims skuli á okkar tímum ganga £ banda- lag, sem reisir tollmúra gegn fátækustu þjóðunum. Heil- brigt skref í viðskiptamálum hefði verið að undirbúa frjáls- ari heimsverzlun, skapa Efna- hagsbandalag jarðarinnar. Margir hafa borið þá von, að Evrópuþjóðimar yrðu til að jafna andstæðumar og lina átökin milli austurs og vesturs. Von manna var bund- in við friðlýst, óvopnað svæði gegnum endilanga Evrópu, frá Svíþjóð og Finnlandi, gegnum Þýzkaland, Sviss og Austur- ríki til Tékkóslóvakíu og Júgóslavíu við Miðjarðarhaf. Hemaðar- og kjamorkustór- veldið EBE verður til að skerpa andstæðumar í Evr- ópu og stórauka stríðshættuna. Istuttu máli sagt: Róttækir vinstrimenn og sósíalistar á Norðurlöndum og Bretlandi hafa barizt gegn útvíkkun Efnahagsbandalagsins, vegna þess að nýja stórveldið er áfall fyrir friðinn og lýðræðið. Möguleikar almennings til að hafa áhrif á stjómarfarið er yfirleitt í öfugu hlutfalli við Macmillan drekkur öl £ Keflavik , stærð þjóðanna, Auk þess e: efnahagslegt lýðræði fótun troðið í stórveldi, sem ætla sér að gera óheftan kapítal isma að grundvallarhugtak sínu. Og síðast en ekki sízt með stofnun Efnahagsbanda lagsins er verið að smíð þýzka hernaðarandanun stökkpall til nýrra ógæfu verka. ra.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.