Þjóðviljinn - 30.11.1962, Page 5

Þjóðviljinn - 30.11.1962, Page 5
Föstudágur 30. nóvember 1962 ÞJÓÐVILJINN Snjóhjólbarðar Eigum fyrirliggjandi snjó- hjólbarða fyrir: Moskwitch og Rússajeppa 560x15 á kr. 635,— 650x16 á kr. 995,— Barðinn h.f. Sími 14131. Gúmmí h.f. Sími 32960. Snjóhjólbarðar Eigum fyrirliggjandi slöngu- lausa snjóhjólbarða fyrir: Opel Rccord Opel Caravan Opel Kapitan 590x13 á kr. 595,— 640x13 á kr. 695,— 670x13 á kr. 815,— 700x14 á kr. 895,— Barðinn h.f. Sími 14131. Gúmmí h.f. Sími 32960. Snjóhjólbarðar Eigum fyrirliggjandi slöngu- lausa snjóhjólbarða fyrir: Consul og Taunus 590x13 á kr. 595,— 640x13 á kr. 695,— Barðinn h.f. Sími 14131. Gúmmí h.f. Sími 32960. Snjóhjólbarðar Eigum fyrirliggjandi slöngu- láusa snjóhjólbarða fyrir: Volkswagen 560x15 á kr. 635,— 640x15 á kr. 795,— Barðinn h.f. Sími 14131. Gúmmí h.f. Sími 32960. Snjóhjólbarðar Eigum fyrirliggjandi slöngu- lausa snjóhjólbarða fyrir: Volvo fólksbílinn og stationbílinn 590x15 á kr. 695,— 600x15 á kr. 785,— 640x15 á kr. 795,— Barðinn h.f. Sími 14131. Gúmmí h.f. Sími 32960. Snjóhjólbarðar Eigum fyrirliggjandi snjó- hjólbarða fyrir: Renault Dauphine 500x15 á kr. 635,— Estafette 550x16 á kr. 735,— Barðinn h.f. Sími 14131. Gúmm? h.f. Sími 32960. Snjóhiólharðar ligum fyrirliggjandi snjö- hjólbarða fyrir: Skoda bifreiðir og eldri árganga 550x15 á kr. 635, — 600x15 á kr. 785,— 600x16 á kr. 885,— Barðinn h.f. Simi 14131. Gúm^í hi. Sími 32960. Gagnkvæm réttíndi Ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um fullgildingu á tveim bráðabirgða- samþykktum Evrópuríkja um félagslegt öryggi og sam- þykkt Evrópuríkja um framfærsluhjálp og læknishjálp ÞINCSjÁ ÞIÓDVILIANS Þingsályktunartillagan er svo- hljóðandi: „Alþingi ályktar að veita rík- isstjórninni heimild til þess að fuligilda fyrir íslands hönd: a. Bráðabirgðasamning Evrópu- ríkja um félagsieg trygginga- lög varðandi elli, örorku og eftirlifendur. b. Bráðabirgðasamning Evrópu- ríkja um félagsleg trygginga- lög önnur en þau, er varða elli, örorku og eftirlifendur c. Samþykkt Evrópuríkja um framfærsluhjálp og læknis- hjálp, ásamt viðaukum eins og þessir gjörningar ligg.ia fyrir á fylgiskjölum þeim sem prentuð eru með ályki- un þessari“. 1 greinargerð fyrir tillögunni er frá því skýrt, að samningar þessir séu samdir af Alþjóða- vinnumálastofnuninni (ILOI að frumkvæði Evrópuráðsins. og segir m. a. svo í greinargerð: ,,Að því er ísland varðar taka þeir (samningamir) til eft- irtalinna trygginga: ellilífeyris, örorkulífeyris. barnalífeyris, ekk.julífeyris. læknishjálpar. sjúkradagpeninga. fæðingar- styrks og ekkjubóta. slysatrygg- inga, fiölskyldubóta oe mæðra- iauna.” Af hálfu Islands hefur þó verið gerður svohljóðandi fyrir- vari við samninainn: „Ákvæði almannatrygginga- ’aganna nr. 55/1946 um fjöl- skyldubætur skulu undanþegin samningunum, nema í gildi sé i hlutaðeigandi ríki ákvæði um fjölskyldubæt.ur. sem islenzkir begnar geti notið góðs af.” » RIKIÐ aðstoði við gerð var- anlegra vega í kauptúnum Karl Guðjónsson fylgdi í gær úr hlaði frum- varpi sínu um breytingar á vegalögum, þess efn- is, að ríkið taki þátt í kostnaði við viðhald vega og gerð vega úr varanlegu efni, þar sem þjóð- vegir liggja gegnum þorp og kauptún. Efni frum- varpsins hefur áður verið rakið rækilega hér í blaðinu. í upphafi ræðu sinnar ’minnti flutningsmaður á, að frumvarp þetta væri nokkuð annars efn- i§ en flest þau frumvörp til breytinga á vegalögum. sem áð- ur hafa verið flutt. Hér væri sem sagt um það að ræða, að breyta til um hætti. sem hafðir hafa verið á um byggingu og viðhald vega í þorpum og kauptúnum, þar sem þjóðvegur liggur i gegn- um. Þessir vegir væru yfirleitt að verulegu ieyti notaðir meira af öðrum en íbúum viðkom- andi staða, en hins vegar sæju viðkomandi byggðarlög ein- göngu um viðhald og gerð þessara vega samkvæmt nú- gildandi lögum. íbúar viðkamandi staða yrðu fyrir miklu ónæði og óþæg- indum vegna vaxandi umferð- ar, svo sem vegna ryks o.fl. þess háttar. Gerð varanlegs slit- lags á vegi í gegnum þorp væri hins vegar meira' fyrir- tæki en svo. að lítil byggðar- lög gætu ráðizt í þær fram- kvæmdir. en víða væri um- férð á þessum vegum fyrir of- an það mark. að unnt gæti talizt að halda malarvegum i viðunandi ásigkomulagi. Frum- varpið gerði ráð fyrir að hið opnbera kæmi hér til móts við byggðarlögin. Að lokum minnti f'.utningsmaður á það að frumvarp þetta hefði verið Hutt á síðasta þingi, en ekki 'Votið .afgreiðslu þá. Benedikt Gröndal taldi að i þessu frumvarpi væri hreyft u vandamáli en iafn- framt vildi hann skýra frá. að undan- farið hefði v í . nefnd unnið að endurskoð- un vegalag- anna á vegum ríkisstjórnar- innar og hefði hún m.a. tek- ið þetta atriði til athugunar og mundu tillögur nefndarinn- ar varðandi þetta atriði e.t.v. ganga enn lengra en gert væri ráð fyrir j frumvarpinu. En bess mætti vænta, að álit nefndarinnar lægi fyrir þingi í vetur. Karl Guðjónsson kvaðst fagna þvi. að stjórnarvöld landsins virtust nú fallast á að hér væri um réttlætismál að ræða. og einnig myndi hann fagna þvi sérstaklega, ef þau teldu sér fært að ganga lengra en aert er ráð fyrir Cidirol! — Clairol! Hefi til sölu alla liti í Miss Clairol, — Clairol Toner. Einnig nýjung í hárskolun, Loving care Silk and Silver. HÁRGREIÐSLUSTOFAN Grettisgötu 6. Símar 24744 og 24626. í frumvarpinu og æskilegast værj, að þjóðvegir gegnum þorp væru ekki slitnir úr tengslum við vegakerfi lands- ins. — Þá teldi hann einnig , eð'.ilegt. að nefnd sú. sem fengi þetta mál til meðferðar. fengi tækifæri til þess að kynna sér tillögur þær, sem unnið hefði verið að undanfarið 'En" það væri vissulega illa farið. að núverandi ríkisstjórn hefði brugðið út af þeirri lýðræðis- iegu reglu. að láta Alþingi kjósa miiliþinganefndir til at- hugunar á svona málum. svo að þingmenn allra flokka hefðu tækifæri til þess að fylgjast með þeim störfum. Bæri að harma. að r'kisstjórnin hefði brugðið út af þeirri iýðræðis- legu reglu. sem bæði væri sjálfsögð og eðlileg. Þingfundir i gær Fundir voru í gær í báðum deildum Alþingis. 1 efri deild var aðeins eitt mál á dagskrá, frumvarp til laga um breyting- ar á lögum um almannatrygg- ingar. Emil Jónsson, félags- málaráðherra, fylgdi frumvarp- inu úr hlaði, en það felur í sér, að allt landið verði gert að einu verðlagssvæði. Málinu var vísað til annarrar umræðu og nefndar. 1 neðri deild fór fram at- kvæðagreiðsla um nokkur mál, sem frestað hafði verið. Frum- varpi um innflutning hvalveiði- skips var vísað til 3. umræðu, frumvarpi um kvikmyndastofn- un ríkisins var vísað til ann- arrar umræðu og nefndar, frumvarpi um lántöku vegna vatnsveituframkvæmda í Vest- mannaeyjum var vísað til 2. umræðu og nefndar og fyrsta umræða fór fram um frum- varp til laga um breytingu á vegalögum og er Karl Guðjóns- son flutningsmaður þess. Mál- inu var vísað til annarrar um- ræðu ng nefndar að umræð- unni lokinni. STÐA 5 Ctgefandi: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíatlstaflokk* urinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson. Magnús Torfi Ölaísson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjórar: tvar H Jónsson. Jón Bjarnason. Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Simi 17-500 (5 linur) Askriftarverð kr 65.00 á mánuði. Flokks- þingiö 23 flokksþingi Sósíalistaflokksins er lokið, og ákvörðunum þess er veitt mikil athygli. Al- þýðublaðið og Morgunblaðið birta í gær æsifrétt- ir um breytingar á miðstjórn og koma með hin- ar hugvitsamlegustu túlkanir, bæði þær að Moskvumönnum hafi verið útskúfað og ekki síð- ur hinar að Moskvukommúnistar hafi farið með sigur af hólmi. Það er ekki nýtt hvorki í Sósíal- istaflokknum né öðrum flokkum að ágreiningur verði um stjórnarkjör, og stjórnarblöðin munu fljót.lega komast að raun um það í verki að þau hafa sízt ástæðu til að ræða um „upplausn og sundrungu“ sósíalista. Innbyrðis ágreining munu sósíalistar leysa sjálfir innan sinna vébanda og standa saman sem einn maður í baráttu flokks- ins fyrir stefnumálum sínum. 23 Þingið fjallaði um mikilvægari málaflokka en gert hefur verið um langt skeið. Þar voru samþykktar einróma ályktanir um stjórnmálaástandið, um alþjóðamál og alþjóð- lega afstöðu flokksins um verklýðsmál, skipu- ..lagsmál Alþýðubandalagsins og um ýmsa þætti efnahagsmála og atvinnumála. En auk ákvarð- ana um stefnu flokksins í dægurbaráttunni fjall- aði þingið um ýtarlega greinargerð fyrir leið ís- lands til sósíalisma. Þar er m.a. gerð grein fyr- ir auðvaldsskipulaginu á íslandi, sósíalisma á íslandi, valdatöku og ríkisvaldi alþýðustéttanna, skilyrðum fyrir framkvæmd sósíalismans, leið- inni til alþýðuvalda og verkefnum Sósíalista- flokksins, gerð hans og eðli. Einnig þessi ýtar- lega ályktun um framtíðarverkefni sósíalista- flokksins var samþykkt einróma 1 meginatrið- um, ákveðið að um hana verði fjallað í sósíal- istafélögunum um allt land og síðan verði hún endanlega afgreidd snemma á næsta ári. Ein- hugur sósíalista jafnt um dægurbarát^una sem um framtíðarstefnumörk sín er bezta svarið við fávíslegum getsökum afturhaldsblaðanna; Sósí- alistaflokkurinn er og verður hugsjónaflokkur sem hefur málefni sín og stefnumörk ævinlega í fyrirrúmi, þótt metorðastritararnir í aftur- haldsflokkunum eigi að sjálfsögðu erfitt með að skilja þá afstöðu. gósíalistaflokkurinn hefur nú starfað og barizt í nærfellt aldarfjórðung. Hann hefur mótað þróun þjóðfélagsins í ríkum mæli á því tímabili, jafnt í sókn sem vörn, haft forustu um þær fram- kvæmdir sem hæst ber á þessu skeiði, gerbreytt lífskjörum almennings frá kreppuárunum fyrir styrjöldina og fylkt þjóðinni til sjálfstæðisbar- áttu sem þrátt fyrir allt hefur borið ríkan árang- ur. Framundan bíða ennþá stærri verkefni, og það er til marks um bjartsýni og jákvæð viðhorf íslenzkra sósíalista að þeir vísa þjóð sinni leið- ina til sósíalismans á sama tíma og afturhalds- flokkarnir leita að leiðnm gi hess að afmá sjálf- stætt íslenzkt þjóðfélag. — m.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.