Þjóðviljinn - 22.12.1962, Side 5
Laugardagur 22. desember 1962
ÞJOÐVILJINN
SlÐA 5
(
Alþýðuflokkurinn og íhaldið á móti
landshöfn Keflavíkur og Njarðvíkur
ÞINCSIÁ Þ|ÓÐVIL|ANS
Eitt þeirra mála, sem stjórn-
árflokkarnir felldu við 2. og 3.
umræðu fjárlaganna, var heim-
ild til ríkisstjórnarinnar að taka
lán handa Landshöfn Keflavík-
ur og Njarðvíkur. Þessu máli
hafði þó einn af þingmönnum
stjómarliðsins hent inn á
þingið í vetur, og af því ver-
ið gumað í stjórnarblöðunum.
Nú hins vegar, þegar um það
var að ræða að festa þessa
lánsheimild í fjárlögunum, voru
þingmenn stjórnarflokkanna
svo handjárnaðir, að allir þing-
menn Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins (nema . Guðm.
f. sem var fjarverandi) greiddu
atkvæði gegn tillögum Geirs
Gunnarssonar um 70 milljón
kr. lánsheimild og líka vara-
tillögu hans um 35 milljónir.
báðar fluttar við 2. umr., og
méira að segja gegn tillögu
Geirs um 15 milljón króna
heimild i sama skyni, sem hann
flutti við 3. urnræð*. Þá var
einnig felld tillaga sem Jón
Skaftason og Finnbogi R.
Valdimarsson fluttu saman um
300 milljón kr. lánsheimild.
Við 2. umræðu fjárlaganna
gerði Geir Gunnársson grein
fyrir þessu máli og sagði m.a.:
„Bygging landshafnarinnar í
Keflavfií og Njarðvík hefur
verið talsvert rædd á yfirstand-
andi þingi og ekki að ástæðu-
lausu, svo brýn og aðkallandi
er orðin þörfin á, að verulegt
átak verði gert til þess að
fullkomna höfnina þar.
Fyrir þessu þingi liggur
frumvarp um breytingu á lög-
unum um landshöfn í Keflavík
og Njarðvik á þann hátt, að
hækkuð verði í 70 millj. kr.
heimild ríkissjóðs til að ábyrgj-
ast lán til landshafnarinnar,
ennfremur þingsályktunartil-
’aga, frá fulltrúa annars þing-
“lokks um útvegun lánsfjár til
'ramkvæmda þar syðra. Flutn-
ngsmaður frúmvarpsins (Ragn-
»r Guðleifsson) lagði áherziu
á nauðsyn þess að fullgera
""Ukorpna höfn á Suðurnesjum,
nú þegar bátaflotinn fer stór-
",m vaxandi, bæði að fjölda til
og meðalstærð báta, að ég sé
ekki ástæðu til að fjölyrða
frekar um það mál ofan í þá
ræðu, en vil þó ekki láta hjá
Uða að minna á og undirstrika
bá ályktun, sem samþykkt var
á sameiginlegum fundi lands-
hafnarstjórnar, bæjarstjórnar
Keflavíkur og hreppsnefndar
Njarðvíkur, sem haldinn var
í Keflavík 29. september sl„
hún er svohljóðandi:
„Fundurinn Iýsir einhuga
stuðningi við verkáætlun lands-
hafnarstjórnar frá 1959 um
byggingu hafnarinnar, þar seni
gert er ráð fyrir, að hægt verði
að afgreiða samtímis við góð
skilyrði í fyrsta lagi 3 flutn-
ingaskip, í öðru lagi 25 fiski-
báta af stærðum allt að 150
tonn, í þriðja lagi, að scð verði
fyrir geymsluplássi innan hafn-
ar fyrir allt að 150 fiskibáta i
stærðum 75—150 tonn. Fund-
urinn telur ástand í hafnar-
málum svo alvarlegt, að stefna
verði að því að Ijúka fyrr-
nefndri áætlun á næstu 4 ár-
um. Til þess að svo mcgi verða,
beinir fundurinn þeim ein-
dregnu tilmælum til hæstvirtr-
ar ríkisstjórnar, að hún taki
þetta mikla hagsmunamál
byggðarlaganna til. skjótrar úr-
lausnar og útvegi fjármagn um
50—60 millj. kr., svo að upp-
bygging hafnarinnar geti haf-
izt af fullum krafti þegar á
næsta vori“.
Þar sem á þessu þingi hefur
komið fram að almennur vilji
virðist vera fyrir hendi til þess
að eitthvað sé farið að gera
í þessu efni, en ekki látið
lengur sitja við orðin tóm, te!
ég, að tími sé til kominn að
Egilsstöðum 17/12. — Um síð-
ustu helgi var efnt hér til mann-
fagnaðar í tilefni þess, að fyrsti
áfangi að byggingu félagsheim-
ilis Héraðsbúa var orðinn fok-
heldur.
1 þessum áfanga er aðalsam-
komuhúsið, sem er 5425 rúm-
metrar að stærð; grunnflötur er
806 fermetrar og gólfflötur með
kjallara og svölum 1280 fer-
metrar. Heildarkostnaður við
bygginguna er nú 2.4 milljón-
ir, eða 445 krónur á rúmmetra.
Húsið á að taka 458 manns í
sæti á svölum og í sal. Mjög
góð aðstaða verður fyrir leik-
Geir Gunnarsson
Það hefur vakið athýgli, að
eina tillagan frá einstökum
þíngmönnum sem samþykkt
var við samanlagða fjárlaga-
afgreiðslu var tillaga þeirra
Einars Olgeirssonar og Geirs
Gunnarssonar að veita 60 þús.
sýningar og í kjallara verður
íúmgott pláss fyrir tómstunda-
iðju. Eftir er að byggja álmu.
þar sem verður bóka- og byggða-
safn og íbúð húsvarðar .
Eigendur hússins eru 10
hreppsfélög á Fljótsdalshéraði.
Mikill áhugi er fyrir því að
ljúka byggingunni sem fyrst, sn
við fjárhagsörðugleika er að
stríða.
Guðmundur Guðjónsson arki-
tekt teiknaði húsið, en yfir-
smiður er Sigurður Gunnarsson
húsasmíðameistari í Egilsstaða-
kauptúni. SG.
sá vilji verði sýndur í verki
og flyt þess vegna tillögu um,
að ríkisstjóminni verði heimil-
að að taka lán að upphæð allt
að 70 millj. kr„ til vara 35
millj. kr„ og endurlána lands-
höfninni til hafnarfram-
kvæmda.
★
En þegar að því kom að sýna
viljann í verki brást hver ein-
asti þingmaður stjómarflokk-
anna, líka þingmenn Reykja-
neskjördæmis, Alfreð Gíslason
bæjarfógeti, Ólafur Thórs og
Matthías Matthiesen. Þeir reynd-
ust ekki menn til að standa
með þessu mikla hagsmuna-
máli kjördæmisins og sjávar-
útvegsins.
kr. á f járlögum til að bjóða!
heim grænlenzkum stúdent eða
námsmanni til að nema ís-
lenzka tungu, sögu og bók-
menntir.
Þegar Einar Olgeirsson mæiti
fyrir þessari litlu tillögu, lét
hann þess getið að hann hefði
heldur kosið að leggja til að
meira væri að gert í þeim
málum. Hann áliti að við Há-
skóla fslands ætti að vera sér-
fræðingur, lektor eða prófessor,
í grænlenzku, grænlenzkri sögu
og þjóðháttum. Þetta ætti að
vera maður sem beitti sér að
því verkefni m.a. að rannsaka
hin fornu tengsl Islendinga og
Grænlendinga.
Stofnun slíks embættis yrði
Islendingum til sóma, gæti orð-
ið til að auðga íslenzka menn-
ingu og auka fræðslu og kynni
íslendinga af grönnum okkar á
Grænlandi. Einar taldi að slík-
ur kennslustóll hefði einnig
átt að vera við Háskólann í
færeyskri tungu, sögu og bók-
menntum.
1 ræðu sinni fór Einar við-
urkenningarorðum um hina
sérstæðu menningu grænlenzku .
þjóðarinnar og taldi eðlilegt;
að Islendingar rejmdu að sýna
lit á því að hjálpa Grænlend-
ingum í menningar- og sjálfs-
stæðisbaráttu þeirra.
Brezkur leik-
stjori hjá LH
Fyrsta áfanga lokið
Grænknzk fræði
í Háskóla Islands
HEMCÐ
IGNIS
kœliskápurinn
er tvímælalaust sá ódýrasti á mark-
aðnum miðað við stærð og gæði.
Helgi Magnússon & Co
Hafnarstræti 19. Símar 13184 — 17227.
ELZTA BYGGINGAVÖRUVERZUN LANDS1N7
í Hafnarfirði er nú staddur
enskur leikstjóri, Raymond
Witch að nafni, og vinnur hann
að því þessa dagana að setja
á svið leikrit hjá Leikfélagi
Hafnarfjarðar, Johnny Belinda
heitir verkið og er eftir Kanada-
manninn Elmer Harris. Leikritið
gerist í Kanada á „Kings Ed-
wards“ eyju og er í tveim þátt-
um á sýningunni hér, annars
í þrem. Hlutverk eru 12 og með-
al þeirra sem fara með aða!-
hlutverkin eru Svandís Jónsdótt-
ir, Bjarni Steingrímsson og
Ragnar Magnússon.
Æft hefur verið í rúma viku
og er ætlunin að frumsýningin
verði þ. 28. des. Leikritið Johnny
Belinda fjallar um daufdumba
stúlku, sem er nauðgað og hef-
ur það verið kvikmyndað með
Jane Wyman i aðalhlutverkinu
Raymond Witch er hér í þeim
reindum aðallega, að kynnast til-
vonandi tengdaforeldrum sínuri'
en hann er trúlofaður Svand'
Jónsdóttur. Sjálfur er hann leit
! ari að mennt, en hefur stjórr
^ð leikritum í ein 10 ár og ví'
ar en í Bretanldi m.a. í Ini'1
landi. Hann býr í London c
starfar nú við brezka sjónvart
ið.
Utgefandi: Samemlngarflokkur alþýðu — Sósialistafloklc-
urinn. —
Ritstjórar: Magnús Kjartansson. Magnús Torfl Olafsson,
Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjórar: Ivar H. Jónsson. Jón Bjamason.
Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja: Skólavðrðustfg 12.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 65.00 á mánuði.
Malgagn
tunglsins
^jtundum þegar maður les Morgunblaðið virðist
manni að það muni vera málgagn sem gefið
er út í einhverju fjarlægu og annarlegu landi,
jafnvel á tunglinu. Málflutningur blaðsins er svo
fjarlægur íslenzkum veruleika, að ljóst er að
ritstjórarnir hafa búið sér til einhvern hugar-
heim þar sem þeir hagræða öllum þeim mála-
vöxtum sem óþægilegir eru á því landi íslandi.
Þannig talar Morgunblaðið í gær af miklum
fjálgleik um „vinnufrið til sjávarins“ sem stafi
af þeirri ráðabreytni „að uppbótakerfið var af-
numið og allt það svindl og sá blekkingavefur,
sem því fylgdi“. Og blaðið heldur áfram: „Nú
virðist vera komið á eðlilegt jafnvægi á þessu
sviði, þannig að allir aðilar telja sig gefa sæmi-
lega við unað. Það er líka mikill munur frá því
sem áður var“ að nú fá sjómenn „aflahlut sinn
af hinu raunverulega verði.“
Jjau umskipti sem Morgunblaðið er að lýsa hafa
sannarlega ekki orðið í íslenzkum veruleika,
þvert á móti. í tíð vinstri stjórnarinnar urðu þau
umskipti að sjávarútvegur landsmanna sföðvað-
ist ekki eitt andartak vegna ágreinings um kaup
og kjör eða önnur aíriði, heldur var hver fleyta
hagnýtt. En síðan núverandi stjórnarflokkar
tóku við hefur ein stöðvunin rekið aðra vegna
ágreinings sjómanna og útvegsmanna, vegna
ágreinings útvegsmanna og fiskkaupenda o.s.’frv.,
°g jafnvel þótt ekki hafi verið um, þvílíkan
ágreining að ræða hefur verulegur hluti togara-
flotans verið bundinn langtímum saman. Það er
sannarlega einkennilegt tiltæki að tala um
„vinnufrið til sjávarins“ í lok þess árs þegar síld-
veiðiflotinn hefur tvívegis verið stöðvaður a’f
útgerðarmönnum og tugum og trúlega hundruð-
um milljóna króna hefur verið kastað á glæ.
Ekki á sú lýsing heldur við um ísland að hér
hafi verið afnumið uppbótakerfi; það kerfi
stendur enn með miklum blóma, veltir hundr-
uðum milljóna á ári og var aukið til muna með
fjárlögum þeim sem samþykkt voru í fyrradag;
m.a. eru stórfelldar fjárfúlgur greiddar til fog-
ara og bátaflota. Enginn veit heldur til þess að
hér komi raunverulegt fiskverð til skipta þegar
hlutur sjómanna er reiknaður; ríkisstjórnin he’f-
ur áður klipið af útflutningsskatta sína og
greiðir þá síðan útgerðarmönnum eftir öðrum
leiðum, einmitt til þess að svíkja sjómenn um
rétt fiskverð.
Jjað er ósköp þægilegt fyrir ritstjóra Morgun-
blaðsins að búa sér til sérstaka veröld og lýsa
henni, láta stjórnarflokkana vinna þar eitt af-
rekið öðru meira, láta þá kippa öllu í lag, tryggja
”étt fiskverð, afnema uppbætur og niðurgreiðsl-
'r og koma þannig á vinnufriði vegna þess að
úir telji sig geta sæmilega við sinn hlut unað.
'" bær upplýsingar koma íslendingum ekki við,
■•'ótt þær kunni að henta vel á ’t'unglinu velur
Viördæmi ennþá fulltrúa á Alþingi ís-
' Mjnga. — m.
k
i