Þjóðviljinn - 12.01.1963, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.01.1963, Blaðsíða 3
Langardagur 12. janúar I&63 ÞJÓÐVILJINN SlÐA § Lokaáfangi viðræðnanna að hefjast Dregur til úrslita um EBE- BRUSSEL 11/1 — Margt þykir benda til þess að úr því verði skorið á næstunni hvort nokkuð verð- ur úr aðild Bretlands að Efnahagsbandalagi Evr- ópu. Viðræður hefjast að nýju á mánudaginn milli ráðherra Bretlands og bandalagsríkjanna og má telja víst að aðild Breta að bandalaginu verði undir því komin, hvort þá miðar nokkuð áleiðis til samkomulags eða ekki. Vetrarríki enn á meginlandinu Macmillan, forsætisráðherra Bretlands, sagði í sjónvarpsvið- tali í gærkvöld, að nú mættu viðræðumar um brezka aðild að EBE ekki dragast meira á lang- inn og má ráða af þeim ummæl- um hans að brezka stjómin sé orðin óþolinmóð að bíða eftir þeim tilslökunum af hálfu banda- lagsins, sem hún hefur sett sem skilyrði fyrir inngöngu í það. Þar er einkum um að ræða sér- stök fríðindi fyrir brezkan land- búnað meðan hann væri að laga sig að þeirri skipan landbúnað- armála sem tekin hefWr verið upp í bandalaginu og hefur brezka stjómin hingað til þver- tekið fyrir að eitt verði látið ganga yfir brezka bændur og bændur meginlandsins eftir á- kveðið árabil, en bandalagið hef- ur sett það sem algert skilyrði að aðlögunartíminn verði ekki lengri en til ánsins 1970. Erfiðar viðræður í París Aðalsamningamaður Breta við EBE, Heath ráðherra, kom til Parísar í dag og ræddi við Couve de Murville utanríkisráðherra til undirbúnings fundinum í Brussel sem hefst á mánudag. Þeir rædd- ust við í tvær klulkkustundir og er haft fyrir satt að viðræður þeirra hafi verið erfiðar. Það Jcemur ekki á óvart, því að vitað er að franska stjórnin hefur sett fram þau skilyrði sem Bretum þykja óaðgengileg og leikur grunur á, að þar liggi meira að baki en aðeins hags- munir franskra bænda, heldur vilji de Gaulle helzt ekki hleypa Bretum í bandalagið. „Ekki grundvallaratriði” Heath sagði að loknum við- ræðunum við de Murville, ?ð hann hefði enn ítrekað að Bret- ar hefðu fallizt á Rómarsamn- inginn og einnig á skipan banda- lagsins í landbúnaðarmálum. Á- greiningurinn væri ekki um nein grundvallaratriði, heldur um ein- staka ákvæði varðandi aðlögun- artímann. Heath er sagður hafa lagt á það áherzlu við de Mur- ville að kröfur Breta brjóti á engan hátt í bága við ákvæði Rómarsamningsins né viðtekna skipan landbúnaðarmála íbanda- lagslöndunum en franska stjóm- in mun vera á annarri skoðun. Luns farinn á stúfana Luns, utenríkisráðherra Hol- lands, fer á sufnnudag til Brussel til að reyna að koma í veg fyrir að samningaviðræðumar við Breta fari út um þúfur, eins og Reutersfréttastofan brezka kemst að orði. Hann mun ræða við Heath og Spaak, utanríkisráð- herra Belgíu, áður en hinar formlegu samningaviðræður hefj- ast. Hollendingar og Belgar hafa ásamt ítölum verið þess mest hvetjandi að Bretum yrði hleypt í bandalagið. Hótar de Gaulle að fara úr EBE? Rómarblaðið II Messagero sagði í dag að við því mætti búast að de Gaulle myndi leysa frá skjóð- unni varðandi afstöðu frönsku stjórnarinnar til brezkrar aðildar að EBE á fujndi sínum með blaðamönnum á mánudág, og kynni hann þá að hóta því að Frakkar myndu fara úr Efna- havsbandalaginu ef Bretum yrði í það. Maó og Líú CASABLANCA 11/1 — Verk- lýðsfulltrúar frá löndum í Afr- íku. Asíu o.g Rómönsku Atner- ku hafa nú eftir þriggja daga samningaviðræður ákveðið að kalla saman þing verklýðssam- banda með þátttöku hlutlausra ríkja. Einnig var samþykkt að auka samvinnu við öll verk- lýðssambönd hvort sem þau væru í einhverju alþjóðasam- bandi eða ekki. Enn eru miklar frosthörkur víða á meginlandinu og hefur kuldinn valdið miklupi vandræðum, flugvellir hafa lokazt vegna ísingar, umferð stöðvazt um vegi og járnbrautir og fljót og sund hefur lagt. Myndin sýnir hverniig umhorfs er í höfninni í Hamborg. Kuldinn eykst uei hverjum degi á meginlandi Evrópu Krústjoff kominn til Varsjár á leió til Berlínar VARSJÁ 11/1 — Krústjoff, sem er á leið til þings Einingar- flokks sósíalista í Austur-Þýzka- landi, hélt í dag áfram viðræð- um sínum við Ieiðtoga kommún- Deilur kommúnistaflokkanna Fylgt eftir gagn- rýninni í Pravda MOSKVA 11/1 — PRAVDA, að- almálgagn Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, fylgir í dag eftir gagnrýni sinni á kommúnista- flokka Albaníu og Kína og sak- ar þá um að reyna að sundra verkalýðshreyfingunni í heimin- um. 1 Pravda er ein síða af fjórum notuð undir ummæli sem styðja það sjónarmið sem fram kom í Boðað þinff verka- Ivðssambanda DJAKARTA 11/1 — Verið get- ur að formaður Kommúnista- flokks Kína, Maó Tse-túng, eða forseti Alþýðulýðveldisins, Líú Sjaó-sí komi í opinbera heim- sókn til Indónesíu á þessu ári, sagði utanríkisráðherra Indónes- íu í gær. Hann skýrði frá þessu á fundi sem hann hafði með blaðamönnum eftir að hann hafði gefið forseta landsins, Súkarnó, skýrslu um ferð sína til Pek- ing. leiðara blaðsins sl. mánudag. Er þar m. a. útdráttur úr grein í franska kommúnistablaðinui L’Humanité þar sem tekin var afstaða gegn sundrungarstarf- semi Albana og því haldið fram að Alþýðulýðveldið Kína styddi þá starfsemi. Pravda birtir einnjg leiðara úr pólska kommúnistablaðinu Tryb- una Ludu sem studdi tillögu Jravda um allsherjarumræður kommúnistaflokkanna til að binda endi á ágreining þeirra. Forsætisráðherra Kína Sjú Enlæ sendi f dag boð til forsæt- isráðherra Albaníu, Mehmet Shehu og óskaði honum velgengni við að byggja upp sósíalístískt þjóðfélag og sigurs í barátturnni gegn heimsveldisstefnu og re- visjónistum nútímans. Kommúnistaflokkur ítalíu hef- ur nú beðið heilan mánuð eftir svari frá Kína við boði um að senda nefnd til Rómar til að ræða skoðanamun ítalskra og kínverskra kommúnista. Boðið var sent af þingi ítalska komm- únistaflokksins í desemb&r. ista í Póllandi. Krústjoff kom til Varsjár í gær í boði pólsku stjórnarinnar og tóku þeir Wladislaw Gomulka foringi pólskra kommúnista og Josef Cyrankiewicz forsætisráð- herra á móti honum á jámbraut- arstöðinni. Héldu þeir síðan all- ir áfram með lestinni til Olez- tyn héraðs í norðurhluta Iands- ins þar sem viðræðurnar fara fram. Ekki hefur verið látið uppi opinberlega um hvað viðræður þeirra Gomulka og Krústjoffs fjalla. en búizt er við að þeir ræði ágreiningsmál þau er kom- ið hafa upp innan hinnar al- þjóðlegu verklýðshreyfingar. Ekki munu þeir birta neina á- lyktun að umræðunum loknum. Berlínarmálið o.g ágreinings- mál verklýðshreyfingarinnar eru mikilvægustu málin sem rædd verða á flokksþinginu í Berlín og þar munu verða viðstaddir leiðtogar kommúnista og sósíal- ista í fjölmörgum löndum. Gífurlegur kuldi hefur að und- anförnu ríkt hvarvetna á megin- -hwdi Evrópu og enn spá veður- fræðingar vaxandi hörku næstu daga. Hefur veðurharkan víða valdið miklu tjóni og truflunum á samgöngum. Af höfuðborgum Evrópu mun vera kaldast í Moskvu þar sem er um 20 stiga frost og fer enn kólnandi. f Danmörku hafa bændur, matvöruverzlanir og póstþjónustan komið á regluleg- um flutningi yfir ísinn í stað áætlunarbílanna sem hafa stöðv- azt vegna snjóa. Frá Stokkhólmi berast þær fregnir að margar byggðir á eyjum úti fyrir strönd Svíþjóðar séu nú algerlega ein- angraðar og að hinn ofsalegi vetrarkuldi sem þar hefur herj- að undanfarnar þrjár vikur muni enn aukast. Hundruð manna sem búa á ElrfrS fleir! WASHINGTON 11/1 — Ákveðið hefur verið að senda ekki aðra eldflaug til Venusar frá Banda- ríkjunum. Þess í stað er í ráði að senda eldflaug til Marz; seg- ir í tilkynningu frá geimferða- stofnun Bandaríkjanna i gær. Ástæðan er, sagði fulltrúi geimferðastofnunarinnar, að full- kominn árangur náðist með til- rauninni með Mariner II. sem fór fram hjá Venusi í 34.650 km. fjarlægð 14. desember. Öll áherzla verður nú lögð á und- irbúning þess að senda bætta útgáfu af Mariner til Marz ár- ið 1964 Fjórir iénasar á landreyði SAN DIEGO, Kaliforníu 11/1 — Fjórir bandarískir líffræðingar fengu um daginn reiðtúr á lang- reyði og þarf varla að taka fram að það hafði ekki verið ætlun þeirra. Þeir höfðu verið á humarveið- um, en langreyðurin þvældist inn í veiðarfæri þeirra og munaði þá minnstu að hún tæki bá þeirra með sér niður í djúpið. Sáu þeir þá ekki annað ráð en að stíga á bak hvalnum og riðu þeir á honum þrjár klukkustundir þar til þeim tókst að skera af hon- um margþvældar línumar. Einn ‘þeirra tók myndir af öllu sam- an. PARÍS 11/1 — Góðar heimildir í París segja að Frakkar hafi nú hafið reglulega framleiðslu á k j arnorkusprengingum. Áætlað er að kjamasprengj- umar verði fluttar með flugvél- um af gerðinni Mirage 4. Fimm- tíu flugvélar af þeirri gerð verða tilbúnar til þessarar notkunar eftir ár. Dagblöðin í París segja í dag að franska vetnissprengjan verði líklega fullreynd eftir fimm ár. Tímaritið Minute segir að sprengja eigi fyrstu frönsku vetnissprengj- una í lok febrúar þessa árs í Hoggart eyðimörkinni, u.þ.b. 100 km fyrir norðan Sahara. önnur sprenging mun svo sennilega verða gerð stuttu síðat eyjunni Torschelling við norður- strönd Hollands hafa beðið um að þeim verði án tafar sendar matarvistir og eldiviður. segir í fréttum frá Haag. Tveir isbrjót- ar gera nú tilraun til að komast til eyjarinnar, þar sem liggur við neyðarástandi. f Vestur- Þýzkalandi mældist 27 stiga fro.st í dag og í Sviss hækkaði fönnin um hálfan m. í nótt. í Belgiu hafa margir látizt vegna kuldanna og skipaskurðir eru ísi lagðir í Hol- landi. Belgíu og Frakklandi svo að heita má að umferð um þá hafi algerlega stöðvazt. Ástandið við strendur Finn- lands verður æ verra og hafa skipaferðir víða lagzt niður. f Finnlandi mældist á föstudags- nótt 30 gráðu frost. USA - Sovét ræða stöðvun tilrauna með kjarnavopn WASHINGTON 11/1 — Ein- hvern næstu daga munu að öll- um líkindum hefjast beinar tví- hliða samningaviðræður milli Sovétríkjanna og Bandaríkj- anna um stöðvun á tlraunum með kjarnorkuvopn, sagði í op- inberri tilkynningu Bandaríkja- stjórnar dag. Fulltrúi sovézku stjómarinnar í viðræðunum verður líklega Semjon Tsarapkin og þeirrar bandarísku Charles Stelle, en þeir hafa báðir verið fúlltrúar landa sinna við afvopnunarráð- stefnumar í Genf. Sagt var i tilkynningunni að samningaviðræður þessar hafi verið ákveðnar eftir viðræður sem aðstoðamtanríkisráðherra Sovétrikjanna .Kúsnetsoff, hef- ur átt við Kennedy forseta, Dean Rusk utanríkisráðherra og fleiri bandariskn ráðherra und- anfarna daga. Kúsnetsoff var í dag boðinn til hádegisverðar hjá William Foster. ráðunauti Kenn- edys í afvopnunarmálum. Land- vamaráðherra Bandarikjanna. Robert McNamara mun einnig hafa verið viðstaddur. Brezka fréttastofan Reuter tel- ur að þessar tvihliða viðræður Bandaríkjanna og Sovétrikjanna muni hefjast mjög bráðlega og segir að brezku stjórninni muni verða tilkynnt hvað þar fer fram jafnóðum, en það vebur annars athygli að Bretum sem þriðja kjamorkuveldinu skuli ekki vera boðin þátttaka í við- ræðunum. Nýtt sovézkt gervitungl? STOKKHÓLMUR 11/1 — Starfs- menn hlustunarstöðvar f En- köping í Svíþjóð hafa í gær og í dag heyrt hljóðmerki sem þeir telja að komi frá uýju sovézku gervitungli. Merkin heyrðust tvisvar á fimmtudag, um klukkan fjögur og hálfsex eftir íslenzkum tíma. 1 dag heyrðust hljóðmerkin kl. 7.44 og voru þá mjög ógreinileg og aftiir kl. 9.20 og voru þá talsvert sterkari og stóðu í 18 mínútur. Eftir þessu hafa vís- indamenn við hlustunarstöðina reiknað út að gervitunglið muni fara á 95 mínútum kringum jörðu. Þeir segja ennfremur að ekki geti leikið vafi á að hljóðmerk- in komi frá sovézku gervitungli, því að mismunandi sendikerfi, sem auðvelt sé að greina hvort frá öðru, séu notuð í sovézkulm og bandarískum gervitunglum. Hljóðmerkin heyrast á 20,007 megacyklum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.