Þjóðviljinn - 26.01.1963, Blaðsíða 2
2 SlÐA
— ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 26. janúar 1963
Stormur og hálka
olli banaslysun-
um í fyrrakvöld
klukkan 18.00 á Mosfellssveitar-
Eins og frá var skýrt hér í
blaöinu í gær uröu tvö banaslys
af völdum umferðar í nágrcnni
Reykjavíkur í fyrrakvöld með
aðeins þriggja klukkutima milli-
bill og mun stormur og hláka
hafa valdið báðum siysunum.
Fyrri slysið varð laust eftir
Verk efftir Þorkel
flntt á alþjóða
tónlistarhátíð
Dómnefnd sú, er valdi tónverk
til flutnings á næstu tónlistarhá-
tíð „Alþjóðasambands nútírna-
tónlisiiar1' (International Society
for Contemporary Music), sem
haldin verður í Amsterdam dag-
ana 8. til 15. júní næstkomandi,
kaus m;a til flutnings hið nýja
verk Þorkels Sigurbjörnssonar
„Flökt" er flútt var hér nýlega
á tónleikum Sinfóníuhljómsveit-
arinnar í Reykjavík.
Alþjóðahátíðir þessar eru
haldnar árlega víðs vegar um
heim til að kynna nýjustu og
nýtízkulegustu tónlist. Tón-
skáldafélkg íslands er aðili að
alþjóðasambandinu. sem heldur
hátíðirnar, og hafa þar áður ver.
ið flutt islenzk tónverk eftir Jón
Leifs (1934). Karl Runólfsson
'(1952), Leif Þórarinsson (1956)
og Fjölni Siefánsson (1961).
Þorkell Sigurbjörnsson er
fæddur 1938 í Révkjavík. stund-
aði nám við Tónlistarháskólann
hér og síðar í Bandaríkjunum
1957 til 1961 og á námskeiðum
í Frakklandi og Þýzkalandi.
Tónverk hans hafa verið flutt
í Bandaríkjunum. Frakklandi og
Þýzkalandi. Hann er nú kenn-
ari við Tónlistarskólann í Rvik
og við Bamamúsíkskólann hér.
veginum á milli Korpúlfsstaða
og Blikastaða. Vildi það til með
þeim hætti, að jeppabifreið er
var á leið úr bænum snarsnérist
á veginum og skall framan á
stóra vöruflutningabifreið frá
Hvammstanga er var á leið til
Reykjavíkur. Var jeppinn nýbú-
inn að fara yfir kraparennsli er
var á veginum og er talið að við
það hafi hjól hans blotnað og
orðið hálli og ökumaðurinn því
misst vald á honum. Beið hann
þegar bana við áreksturinn. Hinn
látni hét Magnús Einarsson,
ráðunautur, Hverfisgötu 42, son-
ur Einars Ásmundssonar for-
stjóra Sindra h.f. Hann var fædd-
ur 15/9 1938, ókvæntur.
Síðara slysið varð um klukkan
21.00 á Reykjanesbraut nálægt
vegamótum Kópavogsbrautar. —
Varð telpa á 14. ári, Hildur Ól-
afsdóttir, Þinghólsbraut 47, Kópa
vogi, fyrir jeppabifreið og beið
þegar bana. Telur ökumaður
jeppans að telpuna hafi hrakið
skyndilega út á götuna undan
storminum og í veg fyrir bifreið-
ina. Foreldrar Hildar eru hjón-
in Margrét Ólafsdóttir og Ólafur
Jensson verkfræðingur í Kópa-
vogi.
Hildur Ólafsdóttir
Magnús Einarsson
544 millj. kr. 1962
1 yfirliti sem blaðinu hefur
borizt frá Útvegsbanka Islands
um rekstur bankans á sl. ári er
skýrt frá afkomu Fiskveiðasjóðs
Islands sem er sérstök deild í
bankanum en með aðskildum
fjárhag og bókhaldi og hefur
verið frá ársbyrjun 1931, en
sjóðurinn var stofnaður 1905.
Er tilgangur hans að styðja
sjávarútveg Islendinga, einkum
bátaútveginn, með hagkvæmum
stofnlánum.
Um starfsemi sjóðsins á sr.
ári og afkomu segir m.a. svo
í tilkynningunni:
Starfsemi sjóðsins hefur farið
mjög vaxandi hin síðari ár og
hafa útlán numið samtals
í árslok 1950 25 millj. kr.
1955
1960
1961
1962
80 millj. kr.
376 millj. kr.
482 millj. kr.
544 millj. kr.
Eigið fé sjóðsins er nú 327
millj. kr. þar af hefur ríkis-
sjóður lagt fram tæp 12% en
að öðru leyti er höfuðstóll
sjóðsins byggður upp með hluta
af útflutningsgjaldi af sjávar-
afurðum.
Því miður vantar mikið á að
Fiskveiðasjóður geti veitt báta-
útveginum og öðrum þeim
framkvæmdum, sem honum eru
tengdar, nægjanleg stofnlán.
Verður sýnilega vöntun fjár
til aukningar smíði stærri fiski-
skipa innanlands, svo og til
ýmisg konar vinnslustöðva,
fasteigna og fyrirtækja, sem að-
kallandi er fyrir útveginn að
komið verði upp.
Vélbátaábyrgiar-
Isfirðinga
ÍSAFIRÐI 24/1. — I dag eru
liðin 60 ár frá stofnun Vélbáta-
ábyrgðarfélags Isfirðinga og
minnist félagið afmælisins með
hófi í kvöld að Eyrarveri og er
boðið þangað skiipaeigendum,
sem tryggingar eiga hjá félag-
inu og fleiri gestum.
Forsaga að stofnun félagsins
er sú, að árið 1851 var stofnað
á Isafirði félag er nefndist Þil-
skipafélag Isfirðinga, Stofnendur
voru Ásgeir Ásgeirsson skip-
herra. Eiríkur Ormsson verzlun-
arstjóri og Torfi Halldórsson F’.at_
eyri. Var stofnfé þess 6000 ríkis-
dalir sem var geipifé á þeim
tíma. Þetta félag gaf fyrsta árs-
arðinn, 383 ríkisdali til stofnun-
ar ábyrgðarsjóðs þilskipa. Var
sjóðurinn stofnaður 1854 og
starfaði til 1872 er hann lagð-
ist niður. Er talið öruggt að
þetta sé fyrsta skipaábyrgðar-
félag á Islandi.
Ábyrgðarfélagið lá nú niðri
til 24. janúar 1903 að stofnað
var Bátatryggingarfélag Isfirð-
inga en nafni þess var síðar
breytt í Vélbátaábyrgðarfélag Is-
firðinga. Fyrsta árið var félags-
svæðið aðeins Isafjarðardjúp en
það var brátt stækkað og Vest-
ur-ísafjarðarsýslu bætt við. 1948
var samkvæmt heimild í lögum
félagssvæðið ákveðið frá Látra-
bjargi að Skaga, þ.e. allir Vest-
firðir með Strandasýslu og hluti
af Húnavatnssýlu.
Árið 1904 er félagið var árs-
gamalt var því afhent spari-
sjóðsbók af F. R. Wendel verzi-
unarstjóra á Þingeyri og voru
í henni kr. 5695.17, eftirstöðvar
af eignum gamla ábyrgðarfélags-
ins.
Fyrstu stjórn félagsins skip-
uðu Jón Laxdal verzlunarstjóri,
formaður, S. J. Níelsen fram-
kvæmdastjóri, féhirðir, og Ámi
Sveinsson kaupmaður, ritari.
Árið 1907 var skuldlaus eign
félagsins kr. 12.625.37 en í árs-
lok 1924 var hún 136.731.95 kr.
báíra í Képavogi
Félag óháðra kjósenda í
Kópavogi minnir stuðningsfólk
sitt á kaffikvöldið í Þinghól á
mánudaginn, þar sem tækifæri
gefst til að rabba við einhvem
bæjarfulltrúann um áhugamálin.
Rabbfundir þessir eru valið
tækifæri fyrir þá, sem liggur
eitthvað á hjarta að koma því
á framfæri og drekka um leið
afbragðskaffi með ennþá betra
meðlæti. Húsið er opnað kl. 8.30.
Árið eftir minnkaði hún þó nið-
ur í 80 þúsund krónur vegna
mikilla bótagreiðslna á því ári
en þá urðu miklir skipaskaðar
hér vestra. 1948 var skuldlaus
eign félagsin 225 þús. kr. og í
árslok 1961 var hún 3 millj.
638 þús. kr.
Nú á síðasta ári vom 170 skip
á tryggingarskrá hjá félaginu að
verðmæti (matsverð) samtals kr.
225.7 millj. og var tryggingar-
verð þeirra 203.3 milljónir króna.
Brúttóiðgjöld félagsins á árinu
1962 námu nálega 11 millj. krór.a
en þá hafá ekki verið dregin
frá eftirgefin iðgjöld hafnar-
legu- og uppsátursskipa.
Á síðustu 5 árum hafa verið
grejddar tjónabætur að upphæð
15.1 millj. kr. fyrir samtals 393
tjón. Félagið endurtryggir hjá
Samábyrgð Islands á fiskiskip-
um.
Lengst hefur átt sæti í stjórn
Hannes Halldórsson í 35 ár en
hann lézt í sumar. Núverandi
stjórn skipa: Guðfinnur Einars-
son framkvæmdastjóri í Bolung-
arvík, formaður, Jón Grímsson
roálflutningsmaður á Isafirði, er
setið hefur í stjórninni í 32 ár,
og Matthías Bjarnason á Isa-
firði en hann er jafnframt fram-
kvæmdastjóri félagsins.
LAUGAVEGI 18^- SIMl 1 9113
Til sölu
2, 3, 4 og 5 herb. íbúðir á
ýmsum stöðum í borginni.
Ýmiskonar aðrar fasteign-
ir til sölu
Höfum kaupendur
með miklar útborganir að
flestum stærðum íbúða.
Einnig að raðhúsi.
Hafið samband við
okkur ef þið þurfið
að selja eða kaupa
fasteignir.
* Skattaframtöl
* Innheimtur
* Lögfræðistörf
* Fasteignasala
Hcrmann G. Jónsson, bdl.
lögfræðiskrifstofa.
Skjólbraut 1. Kópavogi.
Sími 10031 kl. 2—7.
Heima 51245.
MATINN
Ný fryst ýsa — siginn fiskur — saltfiskur
— skata og reyktur fiskur.
og útsölur hennar
Iþróttir
Framhald af 4. síðu.
Guðmannsson framkvæmda-
stjóri. Tveir gamalkunnir í-
þróttafréttaritarar hafa verið
ráðnir ritstjórar blaðsins, þeir
Hallur Simonarson og öm
Eiðsson.
Fyrirhugað er að blaðið
komi út 10 sinnum á ári, þ e.
í hverjum mánuði nema í jan-
ar og júlí. Næsta hefti blaðs-
ins kemur væntanlega út um
miðjan febrúar n.k., en blaðið
hefur ekki komið út síðan 1959
af fjárhagsástæðum. Stærð
blaðsins verður fyrst um sinn
þessi: Forsíða, 14 lesmálssíður
og 5 auglýsingasíður. Brot
H fHH I
Stað-
reyndir
Undarlegt er hvað menn
endast til að klifa á sömu
kenningunum löngu eftir að
þær eru orðnar úreltar með
öllu. Þannig skýra blöðin frá
því að formannsefni íhaldsins
hafi talað um það á Dags-
brúnarfundinuin í fyrradag að
verkamenn megi ekki gleyma
því hversu miklar hagsbætur
þeir hafi haft af lækkun
beinna skatta. Hann hefði get-
að flutt þessa kenningu með
nokkrum rétti í hitteðfyrra, en
nú á hún ekki lengur við.
Samkvæmt hinni opinberu
vísitölu eru beinir skattar
vísitölufjölskyldunnar nú 10%
hserri en fyrir viðreisn, og
meira en 20% hærri en þeir
voru cftir að hin margaug-
lýsta ''ka4talækkun kom til
framkvæmda. Samkvæmt des-
emberhefti Hagtíðinda er nú
reiknað með að vísitölufjöl-
skyldan greiði kr. 10.318 í
beina skatta en í marz 1959
voru beinir skattar (hennar
kr. 9.420. Skyldi ekki vera lagt
eins á Björn frá Mannskaða-
hóli og annað fólk?
I þessu hefti Hagtíðinda er
reiknað með því að vísitölu-
fjölskyldan þurfi í árstekjur
kr. 90.101.72. I marz 1959
þurfti hún til þess að veita
sér alveg sömu nauðsynjar
sem svarar kr. 67.930.64 á ári.
Útgjöld þessarar löghelguðu
meðalfjölskyldu. hafa þannig
aukizt um kr. 22.171,08 eða því
sem næst þriðjung af völdum
viðreisnarinnar. Þetta eru allt
„raunhæfar" verðhækkanir, en
hvers vegna í ósköpunum
finnst Bimi og félögum hans
það ekki „raunhæft“ að kaup
verkamanna hækki til jafns
við útgjöldin? — Austri.
Útvegsbankinn keypti 180
víxla á dag síðástliðið ár
í yfiriiti sem Þjóðviljanum
hefur borizt um rekstur og af-
komu Útvegsbanka íslands á
sL segir m.a.:
Inneign bankans í Seðlabank-
anum nam um áramótin 113.6
millj. króna. Þar af voru
bundnar innstæður 87 3 millj.
króna. Er þetta um 97 millj.
króna betri staða en i ársbyrj-
un 1962 og betri staða en
bankinn hefur haft við Seð'la-
bankann um langt árabil. Af-
urðavíxlar. sem voru endur-
seldir í Seðlabankanum um
síðustu áramót námu samtals
um 106 milljónum króna, og er
þetta í fyrsta sinn um langt
árabil, sem Útvegsbankinn á
hærri inneign í Seðlabankan-
um en nemur endurseldi
vúdum.
Eigið fé bankans er nú kom-
ið yfir 100 milljónir króna, og
eru þá fasteignir, innbú og á-
höld ekki talið með í þeirri
fjárhæð.
Sparisjóðsfé hjá Útvegsbank-
anum óx meira á s.l. ári en
nokkru sinni fyrr, eða um
122.8- mlij. króna, sem er 25.8
% auknng á árinu. Samanlögð
innlán bankans, þ. e. sparifé og
veltuinnlán nema nú um 745
milljónum króna. og nam
aukningiin 21.5% á árinu. Til
samanburðar má geta þess, að
lán bankans 366 millj. króna,
fyrir 5 árum námu heildarinn-
og hafa þau því meira en tvö-
faldazt á þessum árum.
Velta bankans jókst mjög á
árinu. Varð hún nær 47 millj-
arðar yfir árið og 7.2 miilljörð-
um meiri en árið 1961.
Daglegum afgreiðslum í
bankanum fer mjög fjölgandi
ár frá ári. Til dæmis má geta
þess, að tala keyptra vibda í
aðalbankanum í Reykjavík
varð á síðsta áni yfir 54 þús-
und eða sem svarar að meðal-
tali um 180 víxlum á hverjum
degi, sem bankinn er opinn.
í þessari tölu eru þó ekki tal-
in með lán til sjávarútvegs,
enda eru þau að verulegu leyti
ekki veitt í víxilformi nú orð-
ið. Mun tala keyptra víxla í
Útvegsbankanum vera hærri
en íl nokkrum öðruxn banlka
hér á landi.
Nú vinna í aðalbankanum hér
í Reykjavík 145 manns. En allt
starfsfólk Útvegsbankans að
meðtöldum útibúum er nú 179
manns.
blaðsins verður það sama og
á gamla Iþróttablaðinu.
Framkvæmdastjóm ISÍ hefur
tekizt að fá ýmis fyrirtæki
til að tryggja fjárhag blaðs-
ins í framtíðinni.
Erfið útgáfa
Útgáfa íþróttablaða á Islandi
hefur verið skrikkjótt frá upp-
hafi vegna fjárhagsörðugleika.
Fyrsta íþróttablaðið „Þróttur“
kom út 1918—1923 á vegum I-
þróttafélags Reykjavíkur. ISI
keypti síðan blaðið af IR og
byrjaði að gefa út íþrótta-
blaðið 1925, og gaf það út með
miklum erfiðismunum og hlá-
um í 4 ár. 1935 hófst útgáfan
að nýju með nýjum eiganda,
Konráði Gíslasyni, sem ritstýrði
blaðinu. 1942 var stofnað hluta-
félag um blaðaútgáfuna og var
ÍSI stærsti aðilinn. Blaðið kom
síðan út með nokkrum hléum
til 1959. Árið 1952 var um
tíma reynt að gera það að
vikublaði, en tilraunin gafst
ekki vel.
Nú hefur hlutafélagið verið
lagt niður, og blaðið verður
framvegis gefið út á ábyrgð
framkvæmdastjómar ISI.
— ★ —
Allmörg önnur íþróttablöð
hafa verið gefin út hér á landi
frá upphafi íþrótta- og ung-
mennahreyfinganna en þeim
hefur fæstum orðið langra líf-
daga auðið.
f
4