Þjóðviljinn - 31.01.1963, Page 12
Icelandic Children
Oh. Sunday, January 13, some
35 to 40 children from Eeykjavik
visited Naval Station Keflavik in
a tour sponsored by the news-
Paper,Vlsir.
The trip was awarded to these
children for selling’ a certain
number of papers. ‘While they
were here, they had a complete
tour of the installation, hitting
such high spots as the Armed
Forces Radio and Television Sta-
tion, Fire Department, Air Force
and Navy Hangars, and one of
the Navy Galleys;to eat with.the
Navymen.
The children arrived aboard the
base at 12 p.m. and went immedia
Vísir lýsir verndarana
rakalausa lygara og ekki
starfi sínu vaxna!
í,Vísir“ ber harðlega á móti
því í gser að söluibörnum
blaðsins hafi á dögunium ver-
ið boðið í viðurkenningar-
skyni suður á Keflavílkurflug-
völl til að skoða þar hvers-
konar tsekja- og herútbúnað
bandaríska bemámsliðsins.
Um þeitta segir svo í ramma-
klausu á baksíðu blaðsins í
gær:
„Þjóðviljinn skýrir frá því
á forsíðu í dag að Viísir hafi
boðið sölubömum sínum á
hersýningu á Keflavíkurflug-
velli og hneykslast blaðið
mjög á þvi tiltæki.
Enn einu sinni sýnir það sig
hve erfið Þjóðviljanum reyn-
ist sambúðin við sannledkann.
því fréttin er uppspuni frá
rótum. Aftur á móti mun eitt
vikublaðið í baenum hafa
boðið sölubömum sínum i
slíkt ferðalag. Ætti Þjóðvilj-
inn að fá sér nýjan fréttarit-
ara í vamarstöðinni, því nú-
verandi fréttaritari blaðsins
þar er greinlillega ekki starfi
sínu vaxinn."
Svo mörg eru þau hógvaeru
orð Vísis. Við Þjóðviljamenn
kippum okkur ekki orðið upp
upp við þó kolfegamir við
Visi sendi okkur tóninn og
viðhafi þá orðbragð sem þeit
hafa vanizt, en skyldi bless-
uðum „vemdurunum" á Mið-
nesheiði ekki hafa brugðið
þegar klausan var þýdd fyrir
þá, því að akki hafa þeir til
þessa vanizt þessum tón úr
Vísis-áttinmi: að skoðunarflerð
í herstöðina sé nefnt „til
tsebi'“ sem ástæða sé talin til
að bera af sér umsvifalaust;
né haldur hitt, að hermenn-
imir í „vamarstöðinni“ séu
„greinilega ekki starfli sínu
vaxnir". Þjóðviljinn hafði,
greinilega tekið fram í frétt-
inni J gær, — umrædda frétt
eftir vifcublaði bandaríska
hemámsliðsins á Is'liandi
„Hvíta fálkanum" — Whiite
Falcon, sbr. úrklippuna sem
birt er með þessum línum.
En, batnandi manni er bezt
að Iifa — og við tökum Vísi
fremur trúanlegan hér eftir
en blað hemámsliðsins. Spum-
ingin er þá bara þessi: Hvaða
vikublað bauð sölubömum
sínum til hersýningarinnar?
Híð nýja skip Eimskips
hlaut nafnið Mánafoss
Hið nýja skip Eimskipafélagsins, Mánafoss, en það hét áður
Kitty Danielson.
Nýtt laxaeldishús
reist við EHiðaár
Agætur afli í
Tálknafirði
Tálknafirði — Fram undir síð-
ustu helgi var ágætur afli hjá
bátunum tveimur, sem héðan róa,
Guðmundi á Sveinseyri og
Tálknfirðingi. Síðan hefur verið
minni afli en reytingur þó. Bát-
amir sækja út í Víkurál, 7 tíma
siglingu undan Blakk. Mest hafa
þei raflað 18—20 tonn í róðri.
Sæfari og Sæúlfur eru enn á
síld. JóE
Askornn fri
Atthagafélagi
Strandamanna
Ejns og kunnugt er af frétt-
um og orðsendingum frá Rauða
krossj íslands í dagblöðunum
urðu tvær fjölskyldur á Hólma-
vík fyrir tilfinnanlegu tjóni í
húsbruna fyrir nokkru.
Stjóm Átthagafélags Síranda-
manna vill hér með beina þeim
tilmælum til Strandamanna bú-
settra í Reykjavík og nágrenni,
svo og annarra góðra borgara,
að hlaupa undir bagga hjá hinu
bágstadda fólki með einhverjum
fjárframlögum.
Fjársöfnunarljstar liggja
frammi hjá Magnúsj Sigurjóns-
syni, Laugavegi 45 og á auglýs-
ingaafgreiðslum Morgunblaðsins.
Tímans og Þjóðviljans. Tekjð
verður á móti framlögum til 9.
febrúar.
Alþýðubandalags- j j
fólk Akranesi!
Hinn árlegi þorrablótsfagn-
aður Alþýðubandalagsins á
Akranesi verður haldiinn í
Rein laugardaginn 2. febrú-
ar. Aðgöngumiðar óskast
sóttir í Rein frá kl. 8—9
f kvöld, fimmtudag.
Skemmtinefndin.
1 gær var Eimskipafélagi fs-
lands afhent skip það er félagið
festi nýverið kaup á í Danmörku.
Fór afhendingin fram í Freder-
ishavn og hlaut skipið nafnið
Mánafoss. Skipið hét áður Ketty
Danielsen.
Frá Frederishavn mun skipið
halda 2. febrúar til Gautaborgar
og Kaupmannahafnar þar sem
það mun ferma vörur til ls-
lands og er áætlað að fyrsta
affermingarhöfn þess verði Ak-
ureyri. Frá Akureyri mun skip-
ið fara til Dalvíkur og Ólafs-
fjarðar, Vestmannaeyja og Faxa-
flóahafna. Að affermingu lok-
inni tekur skipið vörur í Reykja-
vík til flutnings á vestur- og
norðurlandshafnir. Er ætlun
Eimskipafélagsins að nota þetta
nýja skip til þess að auka og
bæta þjónustuna í innanlands-
flutningum.
Foss sá, Mánafoss, er skipið
dregur nafn af er í Laxá í
Austur-Húnavatnssýslu.
Ágætt veður
en engln
síldveiðl
★ Síldarbátamir fóru út í fyrra-
dag eftir langvarandi ógæftir og
undir Jökul. Veður var hið bezta
en síldin lét ekki sjá sig. Bát-
amir voru aftur famir að kasta
í gærmorgun og munu væntan-
lega reyna í nótt ef veður spill-
ist ekki. Nóg mun vera af síld
í sjónum, en hún gefur bara ekki
færi á sér.
Á fundi borgarráðs í fyrradag
var samþykkt tillaga frá raf-
magnsstjóra um stækkun iaxeld-
isstöðvanna við Elliðaár og að
reisa þar nýtt eldishús.
Eins og kunnugt er annast
Rafmagnsveita Reykjavíkur laxa-
eldið í Elliðaánum og rekstur
ánna og hefur hún leigt Stanga-
veiðifélaginu veiðiréttinn. Vid
ámar er gamalt eldishús en það
er orðið ófullnægjandi og er
þar að auki illa staðsett.
Nýja húsið á að vera einlyft
timburhús á steyptum grunni,
10x23 m að flatarmáli. Eiga eld-
isþræmar að vera innanhúss og
hægt að hita upp vatnið í þeim
til þess að bjarga seiðunum yfir
veturinn. Verður húsið reist við
hliðina á útieldisþrónum hjá raf-
stöðinni. Verður húsið væntan-
lega byggt í vor eða sumar.
Með þessum framkvæmdum
við Elliðaámar er ætlunin að
gera rekstur þeirra arðvænlegri
og tryggja betur en nú er laxa-
gengd í þær. Fylgdu tillögum
rafmagnsstjóra er hann lagði fyr-
ir borgarráð meðmæli veiðimála-
stjóra með fyrirtæki þessu.
Rafmagnsveitan hefur látið
reikna út væntanlegan kostnað
við byggingarframkvæmdir þess-
ar og er hann áætlaður um 1
millj. króna.
Grafarnesi 26/1 — Verkalýðsfé-
lagið Stjarnan hefur fengið sam-
þykkta 5% kauphækkun eins og
annars staðar.
Það hefur ekki gefið á sjó í
tvo daga og aíiabrögð frekar lé-
leg og nemur afli hvers báts
um 4 til 6 lestum í róðri. S.B.
Ung stúlka kærir
mam fyrir nauðgun
Átján ára stúlka hér í Rvík
hefur kært 21 árs gamlan mann
fyrir að hafa ráðizt inn í her-
bergi hennar aðfaranótt sl.
þriðjudags og nauðgað henni.
Maðurinn hefur neitað ákærunni.
Samkvæmt framburði stúlk-
unnar vaknaði hún upp við það
undir morgun sl. þriðjudagsnótt,
að drepið var á dyr hjá henni
en hún býr ein í rishæð á fjög-
urra hæða húsi. Var barið á
svaladyr sem eru á herberginu.
Er stúlkan opnaði dymar var
þar útifyrir maður sem hún
kannaðist við en þekkti þó ekk-
ert náið. Virðist hann hafa klifr-
azt upp eftir svölum sem eru á
neðri hæðunum þremur og upp
á svalimar á rishæðinni. Maður-
inn sem var eitthvað undir á-
hrifum áfengis gerði sig heima-
kominn í herbergi stúlkunnar og
segir hún að hann hafi ráðist á
sig og tekið sig nauðuga. Segist
hún hafa hrópað á hjálp og hafi
maðurinn þá gripið fyrir kverk-
ar henni. Ber fólk sem býr á
miðhæð hússins, að það hafi
heyrt einhver hróp um morgun-
inn en ekki áttað sig á þvi hvað-
an þau komu.
Mál þetta er nú í rannsókn hjá
rannsóknarlögreglunni og situr
hinn ákærði í gæzluvarðhaldi.
Hefur hann neitað öllum sakar-
giftum. Viðurkennir hann að
hafa bragðað áfengi en telur að
hann hafi ekki verið neitt télj-
andi ölvaður.
Skákþing Reykjavíkur:
Björn, Jón og
Júlíus efstir hver
í sínum riðli
Lok'iö er nú undanrásum á
Skákþingi Reykjavíkur og fara
þessir menn í úrslit, 2 efstu
menn í hverjum riðli.
Úr A-riðli: Bjöm Þorsteinsson
með 5V2 vinning og Sigurður
Jónsson með 5 vinninga.
Fá síldarmjöl
með afslæiti
Vopnafirði 25/1 — Síldarmjöls-
verksmiðjan á Vopnafirði hefur
selt bændum hér í sveit síldar-
mjöl til fóðurbætis með miklum
afslætti. Kostar 450 krónur
tunnan í stað 550. Mikil búbót er
að þessu, þar sem heyfengur var
yfirleitt rýr. Vopnafjarðarhrepp-
ur á verksmiðjuna. Gunnar.
Blíða, mislincj-
ar og vega-
basl á
Vestfjörðum
Þúfum 30/1. Það sem af cr
þessu ári hcfur verið einmuna
tíðarfar, snjólítið og milt og féð
víöast hvar létt á fóðrum enn.
Mislingar hafa stungið sér nið-
ur á skólahcimilinu í Reykja-
nesi.
Á sl. ári tók hreppurinn nærri
300.000 króna lán til vegagerðar
í Vatnsfjarðarvegi upp á vænt-
anlega fjárveitingu eins og alsiða
er. En þegar fé var veitt til
Vestfjarðavega á fjárlögum 1963
fengu allir vegir í kjördæminu
fjárveitingu fyrir skuldum og
flestir meira, nema Vatnsfjarð-
arvegurinn. Það var eini vegur-
inn á öllu landinu, sem ekki
gat borgað lánið. — A.S. I
Úr B-riðli: Júlíus Loftsson með
5 vinninga, en Haukur Angan-
týsson, Jón Kristinsson og Magn-J
ús Sólmundarson urðu jafnir
með 4V2 vinning hver og verða
að tefla í millikeppm um hver
þeirra fer áfram.
Úr C-riðli: Jón Hálfdánarson
með 5V2 vinning og Jónas Þor-
valdsson með 5 vinninga.
Ilaukur Angantýsson