Þjóðviljinn - 09.02.1963, Blaðsíða 3
Laugardagur 9. febrúar 1963
ÞJÓÐVILJINN
SÍÐA 3
Byltingarmenn
ráða lögum og
BAGDAD og LONDON 8/2 — í morgun var gerð
bylting í Irak. í fréttum frá Bagdad-útvarpinu seg-
ir að Karim Kassem forsætisráðherra hafi látið
lífið er sprengjuárás var gerð á byggingu land-
varnaráðuneytisins í borginni. Byltingarmenn
hafa stofnað ráð til að stjórna ríkinu til bráða-
birgða og var fyrsta verk þess að skipa ofurstann
Karim Mostafa yfirmann hersins.
Bagdad-útvarpiið tilkynnti síð-
degis í dag að 600 hermenn úr
stjórnarliðinu hefðu fallið cr
uppreisnarmennirnir gerðu árás
á aðalbækistöðvar Kasscm for-
sætisráðherra. Öll mótspyrna
gegn byltingunni hefur verið
barin niður, segir útvarpið.
Bagdad-útvarpið hefur skýrt
frá því að herliðið á hinum
mikla Habbaniya-flugvelli um
80 kílómetra frá Bagdad hafi
gengið í lið með byltingarmönn-
um. Sömuleiðis mun stúdenta-
sambandið í Irak hafa lýst yfir
stuðningi við byltinguna. Sam-
kvæmt upplýsingum frá erlend-
um sendiráðum í Tel Aviv ganga
æ fleiri herflokkar í lið með
byltingarmönnum og Kúrdar
munu styðja þá.
Ekki öruggt
um afdrif Kassems
Samkvæmt fréttum frá AFP-
fréttastofunni hefur enn ekki
fengizt örugg staðfesting á því
að Kassem forsætisráðherra hafi
fallið er sprcngjuárásin var gerð
á Iandvarnaráðuneytið í dögun.
Um hádegi í dag var svo gerð
önnur sprengjuárás á ráðuneyt-
isbygginguna en þar hefur Kass-
em aðsetur. Bagdad-útvarpið
fullyrðir að hann liggi nú dauð-
ur og grafinn undir rústum
byggingarinnar.
Enn mun vera barizt úti fyr-
ir Bagdad en hinsvegar hafa
byltingarmenn borgina sjálfa al-
gjörlega á sínu valdi. Milli þess
sem útvarpið sendir út tilkynn-
ingar frá uppreisnarmönnum eru
leiknir egypzkir byltingasöngv-
ar. Heimildarmenn í Bagdad og
Kaíró fullyrða að byltingarmenn-
imir séu stuðningsmenn Nassers
forseta í Egyptalandi.
Einvaldur frá 1958
Uppreisnin var gerð öllum að
óvörum og voru engar ráðstaf-
anir gerðar til þess að tryggja
öryggi Kassems eða annarra ráð-
herra.
Abdul Karim Kassem komst
til valda í írak hinn 14. júií
1958 er hann gekkst fyrir upp-
rcisn gegn konunginum og
steypti honum af stóli. Hann
varð forsætisráðherra að nafn-
bót en raunar var hann ein-
valdur í landin.
Hann lýsti því yfir að sér hefði
heppnast byltingin vegna þess að
hann hefði áður kynnt sér vand-
lega aðferðir Nassers í Egypta-
landi. En brátt skarst í odda
með Nasser, meðal annars vegna
þess að Kassem reyndi að sölsa
undir sig forystu Arabalandanna.
Lærði hermennsku
í Bretlandi
Kassem varð 48 ára. Hann
fæddist í Bagdad og var í her-
skóla í æsku. Síðar hlaut hahn
liðsforingjamenntun í Bretlandi
og frá árinu 1956 gegndi hann
háum stöðum innap hersins,
Éftir að hann kom til valda
sagði írak upp Bagdad-sáttmá-
anum við Tyrkland, Persíu, Pak-
istan, Bretland og Frakkland.
Hann þrengdi þó ekki að hin-
um vestrænu fyrirtækjum sem
nytja olíulindirnar í Irak og
ANDUTSSNYRTING
Kennsla í snyrtingu.
Franskar snyrtivörur.
Upplýsingar í síma
2-05-65
Skólavörðustíg 23.
TIZKUSKOU ANDREU
í Irak segjast
lofum í landinu
Myndiin sýnir hinn fallna einvald Kasscm og Aref sem nú hefur
verið skipaður forseti í Irak. Mynðin var tekin árið 1958 en þá
gerðu þeir félagar byltingu og steyptu konunginum af stóli. Síðan
dæmdi Kassem Aref til dauða en náðaði hann. Kassem er til
til vinstri en Aref til hægri.
Portúgaiar vilja
frelsa Alsírbúa!
gerði menningarsáttmála við
Bretland, Sömuledðis gerði hann
samninga um verzlun, menning-
arsamskipti og tæknilega aðstoð
við Sovétríkin.
Árið 1959 særðist hann lítii-
lega er tilraun var gerð til að
ráða hann af dögum. Vegna
þessa tilræðis lét hann handtaka
76 menn og voru 17 þeirra
dæmdir til dauða.
Erjur við Nasser
Opinberlega sakaði hann Nass-
er um að hafa gengizt fyrir til-
ræðinu og versnaði sambúð
Egyptalands og Iraks að mun
við þcnnan atburð. Síðan hafa
löngum verið erjur milli land-
anna, mcðal annars er Kassem
hugðist innlima hið liitla en
olíuauðuga furstadæmi Kuwait
en Nasser scndi herlið til fursta-
dæmisins til að verja það gega
hugsanlegri innrás frá trak.
„Til að tryggja
frelsi o g réttlæti“
Bagdad-útvarpið hefur í til-
kynningum sínum lagt áherzlu
á það að byltingin sé gerð til
þess að tryggja þjóðinni frelsi
og þjóðfélagslegt réttlæti. Sömu-
leiðis væri markmið byltingar-
manna að koma aftur á þvi
bandalagi Araba sem óþurftar-
menn hefðu eyðilagt. Segir það
að aðalbækistöðvar einræðis-
ins hefðu verið lagðar í rústir
með fluher og skriðdrekum til
þess að réttur þjóðarinnar, vilji
verkamanna og bænda, fengi að
njóta sín. Ennfremur tilkynnti
útvarpið að enginn mætti yfir-
gefa hús sín að kvöldlagi og-
þeir sem sæjust á götum úti á
þeim tíma yrðu skotnir án fre'i-
ari viðvörunar. öllum landa-
mærum hefur verið lokað.
Sésíalistafé-
lag Reykjavíkur
iilkynnir:
Skrifstofa fclagsins er op-
in kl. 10—12 árdegis og
5—7 síðdegiis. — Sósíalista- j
félag Reykjavíkur.
1 yfirlýsingu frá byltingarráð-
inu segir að byltingarmenn hafi
sigrast á kúgunaröflunum og
muni nú útrýma spillingunni
sem verið hafi við Iýði frá júlí-
byltingunnii 1958. Segir þar að
hinir nýju valdhafar muni gera
sitt til þess að tryggja hcims-
friðinn með því að berjast gegn
hcimsvaldastefnunni og reka
hlutlausa utanrikispólitík.
Síðustu fréttir frá írak herma
að Abdul Aref hafa verið skip-
aður forseti ríkiisins en hershöfð-
inginn Ahmed Hassem Badr
forsætisráðherra í byltingarráð-
inu í byltingunni 1958 varð Aret
varaforsætiráðherra í stjórn
Kassems. En í dcscmber sama
ár var hann dæmdur til dauða
fyrir samsæri gegn öryggi rík-
isins. Samt sem áður náðaði
Kassem hann.
Saleh Mahdy Omashy yfirlauti-
nant hefur verið skipaður land-
vamaráðherra og og Ali Haleb
el Sadi varaforsætiráðherra.
Síðustu frétti sem bandariska
utanríkisráðuneytinu bárust í
kvöld frá Bagdad herma að enn
sé skotið á landvamarráðuneyt-
ið og svo virðist sem að meiri-
háttar árás sé í undirbúningi.
Fjöldi skridreka mun vera á Ieið
til ráðuneytisbyggingarinnar.
Uppreisnarmenn hafa tögl og
halgdir á Bagdad-svæðinu og
flestir herforingjar í landinu
munu styðja byltingarráðið.
Ný stjarna
uppgötvuð
STOKKHÓLMI 8/2. Sænskur
stjörnufrajðingur, EIis Dahlgrcn
að nafni, hefur uppgötvað nýja
stjömu milli stjömumerkjanna
Lýmnnar og Herkúlesar. Ljós-
styrkur stjörnunnar mun vera
af fjórðu gráðu.
Dahlgren uppgötvaði stjömuna
á miðvikudagskvöld og skýrði
þegar stjamfræðistofnunum t
Svíþjóð, Danmörku frá uppgötv-
un sinni. 1 nótt var svo stjam-
an athuguð frá rannsóknarstöð-
inni í Brorfelde skammt frá
Kaupmannahöfn. Ennfremur hafa
stjömufræðingar í Lundi og
Saltsjöbaden í Svíþjóð rannsakað
1 stjömuna.
LISSABON 8/2. Portúgalar eru
sem kunnugt er miklir vinir
frelsis og lýðræðis. Þeir hafa
bundizt samtökum við Islendinga
og fleiri þjóðir til þess að verja
lýðræðið og íbúamir í Angóla
hafa löngum fundið fyrir heitri
frelsisást þeirra í verki.
Það er því von að Portúgöl-
um rcnni blóðið til skyldunnar
þegar þeir sjá Alsírbúa svipta
því lýðræði og frelsi sem Frakk-
Þinghaldi EBE
lokið að sinni
STRASSBORG 8/2. Þing Efna-
hagsbandalagsins lauk í dag
samkundu sinni I Strassborg sem
staðið hefur í fimm daga. Sam-
þykkti þingið í dag að skora
á yfirvöld hinna sex EBE-Ianda
að staðfcsta hið skjótasta auka-
aðildarsamningana sem gerðir
hafa verið við 18 Iönd í Afríku,
þ.e. fyrrverandi nýlendur og nú-
verandi leppríki Frakka. Þing-
ið mun næst koma saman dag-
ana 22. til 27. marz.
Þingið skoraði einnig á fram-
kvæmdanefnd bandalagsins að
semja skýrslu um samningana
við Bretland innan þriggja vikna.
Fregnir herma að fulltrúar kristi-
legra demókrata í bandalaginu
hafi stungið upp á því að EBE-
löndin sex haldi fund æðstu
manna innan skamms. Ennfrem-
ur munu þeir hafa lagt til að
gerður verði sem fyrst bráða-
birgðaviðskiptasamningur við
Bretland.
ar tryggðu þeim um langan ald-
ur. Utanríkisráðherra þeirra,
maður að nafni Alberto Nogueira,
hélt blaðamannafund i dag og
sagði að stjórn sín væri að velta
fyrir sér hvort hún ættS ekki
að senda hergögn og vistir til
þeirra ættflokka sem berðust
frelsisbaráttu gegn harðstjórn
Bcn Bclla. Ekki tók hann fnun
um hvaða ættflokka var að ræða.
— Við erum vissir um að ætt-
flokkar og kynþættir í Alsír eru
kúgaðir af Ben Bella, sagði ut-
anríkisráðherrann, og þetta fóite
biður um aðstoð; vopn, peninga
eða sjálfboðaliða, til þess að öðl-
azt frelsi. Við veltum þvi nú
fyrir okkur hvort við ættum ekki
að bindast samtökum við oÉ<m-
ur lönd sem Alsír ógnar og
láta þessa aðstoð í té.
Þess má geta að nýlega lét
Ben Bella svo ummælt að Al-
sírbúar hefðu í huga að senda
vopn, peninga og sjálfboðaliða
til fólksins í Angóla sem ekki
vill lengur una frelsi því og
lýðræði sem Portúgalar hafa
veitt þcini af miklu örlæti.
L 0 K A Ð
til 25. febrúar.
Halldór Kristinsson,
Gullmiður.
öllum þeim, hinum mörgu, nær og fjær, sem mundu
mig sextugan og vottuðu mér hlýhug og vináttu, með
gjöfum, heimsóknum, símskeytum, bréfum og á margvís-
legan annan hátt, færi ég hugheilar þakkir og bless-
unaróskir.
Skúli Guðjónsson.
AXMINSTER Skipholti 21 sími 24676
iAuglýsiö í Þjóöviljanum