Þjóðviljinn - 15.02.1963, Page 4
1 SÍÐA
f»,TÓÐVIL JINN
Föstudagur 15. február 1963
>:■': •■•:—;...•<• •■■;■•■••—--;.y
^»f*M<Ww»««4WW
Skíðaíþróttin
(fr's/Zf fírmakeppni
Jósefsdal 17. þ.m.
Landsliöiö í handknattieik heidur utan í fyrramálið og leikur Iandsleik í París á laugardag og í Bilbao á þriðjudag, og í þeim
leik maeta íslenzkir handknattleiksmenn Spánverjum í fyrsta sinn. — Myndina hér að ofan tók Sveinn Þormóðsson á einni síðustu
æfingu landliðsins. Fremri röð, talið frá vinstri: Birgir Björnsson, Karl Benediktsson, fyrirliði; Ragnar Jónsson; öm Hallsteinsson
og Karl Jóhannsson. — Atari röð: Karl Marx Jónsson; Rósmundur Jónsson; Gunnlaugur Hjálmarsson; Ingólfur Óskarsson; Pétur
Antonsson; Krlstján Stefánsson; Einar Sigurðsson; Matthías Asgeirsson og Hjalti Einarsson.
Landsleikir í handknattleik
Leikið við Frakka á morgun
og vií Spánverja þriðjudag
íslenzka Ianclsli0ið í
handknattleik heldur
utan í dag. Ferðinni er
heitið til Frakklands og
Spánar, en þar verða
leiknir landsleikir við
Frakka á laugardag og
Spánverja á þriðjudag.
—o—
Leikmennimir fljúga beint til
Parísar, og koma þangað kl.
6.30 s.d. Annað kvöld verður
svo landsleikurinn við Frakka
háður, og hefst hann klukkan
10.30 eftir frönskum tíma (kl.
8.30 eftir ísl. tíma).
Á sunnudagsmorgun fara
handknattleiksmennirnir með
lest til Bordeux, og keppa bar
síðdegis við liðið „Guyenne".
Spánverjar senda langferðabíl
eftir leikmönnunum og flytja
þá til Bilbao, og á þriðjudags-
kvöld klukkan 21 hefst lands-
leikurinn við Spánverja.
Á fimmtudagskvöld verður
annar leikur við Spánverja, og
að' þessu’ sinni við úrvalslið frá
an Sebastian. Þaðan verður far-
ið með lest til Parísar, og á
laugardagsmorgun lýkur lands-
Tiðsferðinni " formlega þar í
borg.
Xil allra átta
Landsliðsmennirnir dreifast
til ýmsra átta frá París. Sumir
fara beint heim, aðrir leggja
leið sína um England og enn
aðrir um Danmörku.
I landsliðinu eru 8 Hafnfirð-
ingar, og fara þeir ásamt þjálf-
ara sínum Hallsteini Hinriks-
syni til V-Þýzkalands. Þar
verða FH-menn á vegum Essl-
ingen, sem hingað kom í boði
FH í fyrra.
Hvað um úrslit?
Forráðamenn Handknattleiks-
samtakanna ræddu við blaða-
menn i fyrradag í tilefni utan-
ferðarinnar. Engu vildu beir
spá um úrslitin. í fslenzka lið-
inu eru 10 menn sem léku í
landsliðinu fyrir tveim érum.
Liðið er þó talið vera jafn-
betra nú og fleiri skyttur. Það
var einmitt fyrir tveim árum
sem ísland og Frakkal. msett-
ust í landsleik, og þá unnu Is-
lendingar — 20:13. Síðan hefur
Frökkum farið mikið fram í í-
þróttinni. í vetur hafa þeirunn-
ið Dani — 22:19 og gjörsigrað
Hollendinga.
Spánverjar hafa líka sýnt
miklar framfarir í handknatt-
leik undanfarið, og geta orðið
erfiðir andstæðingar.
Hallsteinn Hinriksson, lands-
liðsþjálfari. sagði að betra
hefði verið að liðin hefðu get-
að farið fyrr utan og hvílt sig
eftir ferðalagið áður en leikið
yrði. Við stæðum verr að vígi
að mæta Frökkum núna held-
ur en fyrir tveim árum, því þá
voru okkar menn búnir að
ganga í gegnum hreinsunareld
á undan, þ.e. aðra leiki í heims-
meistarakeppninni.
Styrkur fyrirtækja
Nær 100 fyrirtæki hafa styrkt
handknattleikssamtökin til bess-
arar utanfarar með auglýsing-
um í leikskrá Islandsmótsins.
Þá hefur Múlalundur og SlBS
gefið HSl 18 stórar búnings-
töskur fyrir leikmenn lands-
liðsins.
18 á ferð
í utanförinni taka þátt 18
menn samtals, þar af 14 leik-
menn. Fararstjórar verða Ás-
björn Sigurjónsson og Sigurð-
ur Jónsson. Þá verður lands-
liðsþjálfarinn, Hallsteinn Hin-
riksson, einnig með í förinni og
ennfremur Bjami Bjömsson,
fulltrúi landsliðsnefndar.
Iþróttasíðan sendir íþrótta-
mönnunum baráttukveðjur og
óskar þeim góðrar ferðar. ■’ •
Skíðaráð Reykjavík-
ur hefur undanfarnar
vikur unnið að því að
afla stuðnings fyrir-
tækja í borginni við
firmakeppnina á skíð-
um 1963.
Sú nýbreytnj hefur verið
tekin upp, að félögin fjögur,
Ármann, ÍR, KR og Víkingur
skipta með sér firmum fyrir
undanrásakeppnina þannig, að
keppni þessi hefur verið háð
við skála félaganna og aðeins
lokakeppni mun vera sameig-
inleg milli ofangreindra aðila.
Skíðadejld Ármanns mun að
þessu- sinpi annast lokakeppni
sem yænta,nlega verður háð i
Jósefsdal sunnudaginn 17.
febrúar n.k
Keppni þessi hefst klukkan
2 við ; Ármannsskálann í Jós-
efsdal og munu 30 firmu vera
í úrslitakeppninni.
Tólf bikarar
Skíðakeppepdur frá Ármanni.
ÍR, KR og Víkingi munu keppa
fyrir þessj 30 úrslitafirmu og
þar sem um forgjafakeppni er
að ræða er erfitt að spá- um.
Karf Guðmundsson róðlnn
hjó Knaftspyrnusambandinu
Karl Guðmundsson, íþrótta-
kennari hefur verið ráðinn tll
starfa hjá Knattspyrnusam-
bandí íslands á tímabilinu 1.
febrúar til 1. október 1963.
Mun hann starfa að skipulags-
og þjálfunarmálum sambands-
ins.
Tækninefnd KSl hefur nýlega
verið skipuð og eiga eftirtaldir
sæti í henni.
Karl Guðmundsson. formaður,
Reynir Karlsson, varaform.,
Ámi Njálsson, ritari.
Tækninefndin gengst fyrir
námskeiði n.k. sunnudag 17. b.
m. fyrir þjálfara félaganna í I.
og II. deild, svo og fyrir aðra
þjálfara, er ekki staría nú sem
stendur. Námskeiðið fer fram
í Gagnfræðaskóla Austurbæjar
ogjiefst n.k. sunnudag klukkan
tvö stundvíslega. Á námskeið-
inu verður flutt erindi um þjálf
un, sýndar úthaldsæfingar, sem
nú eru mjög tímabærar. Allir
nefndarmenn munu starfa að
námskeiðinu.
—O—
Unglinganefnd KSl er þannig
skipuð: Gunnar Felixson, Al-
freð Þorsteinsson, Guðjón Ein-
arsson og Jón B. Pétursson.
Nefndin hyggst bráðlega kalla
saman þjálfara unglingaliða í
samvinnu við tækninefnd.
sitt af hverju
•k Milt Chamberlain beitir
einn fraegasti og fræknastí
körfuknattleiksmaður Banda-
ríkjanna, og er hann atvinnu-
maður í íþróttinni. Nýiega
fékk hann sérstaka viður-
kenningu i tiiefni þess að
hann hafði skorað 10.000 stig
fyrir félag sitt. Við það tæki-
færi kom hann vinum sín-
um og öðrum á óvart með
því að segja: „Ég hefði held-
ur viljað verða olympíusig-
urvegari í hástökki“. Chamb-
erlain iðkaði fyrmm hástökk.
Hann stökk 2,06 m. árið 1956,
en tókst ekki að komast í
olympíuiið Bandaríkjanna.
Sjálfur er ha,nn 2,18 m. á hæð.
■fc Irina og Zdenek Nemee
heita tékknesk hjón sem bæð'
iðka kringlukast. Þau þykja
hafa sýnt dæmi um frábær
samræmi í hjónbandinu. f
lok keppf’istímabilsins sl.
haust setti Irina tékkneski
kvennamet — 55,33 m. Sama
dag tók Zdenek þátt í öðru
móti, — og kastaði nákvæm-
lega 55,33 m.
■&• Nýlega sögöum við frá þvi
hér á síðunni, að 15 ára göm-
ul stúíka hefði vakið atygli
með því að vera bezti leik-
maðurinn í knattspyrnumóti
drengja í Danmörku. Nú er
komin á loft kvenstjarna í
enn „karlmannlegri“ iþrótt,
nefnilega íshokkí. Hún er að-
eins 16 ára gömul og hcitir
Gessl. Hún leikur í 1. deild-
arliðinu SG Niirnberg í Vest-
ur-Þýzkalandi. Sérfróðir menn
segja, að Gessl verfti áreið-
anlega tekiin í landsliðið í ís-
hokkí innan skamms.
if Sænski skíðagöngukapp-
inn Sixten Jernberg keppir
enn af mikilli hörku. En al-
varleg hindrun er komin á
veg hans. Hann blindast i
hinni miklu birtu á snjó-
brautinni, og dugar honum
ekki lengur að nota dökk
gleraugu. Jernberg kenndi sér
þessa meins í fyrra, en hann
befur keppt nokkrum sinn-
um í vetur, og gengið síð-
ari hluta göngunnar nær þvi
blindur.
★ I Bandaríkjunum gerasi
menn atvinnumenn í skíða-
íþróttinni, sem og öðrum í-
þróttagreinum. Margir gamal-
kunnir skíðakappar frá Evr-
ópu hafa orðið atvinnu-
mennskunni að bráð þai
vestra í von um fjárgróða (og
sumir hafa hagnazt vel). Um
síðustu helgi var keppni at-
vinnumanna í Ollingwood '
Ontario, og fékk sigurvegar-
inn 2000 dollara verðlaun. Or-
slit: 1) Ernst Hinterseer, 2) A.
Molterer, 3) Christian Pravda
4) M. Moriarity, 5) P. Grams-
hammer, 6) Karl Butscher, 7)
Stein Eriksen, 8) Toni Spiss
1 keppni í stórsvigi í Aspen
Colorado, fyrir skömmu sigr-
aði Molterer á undan Pravde
og Hinterseer. Allir þrír eru
Austurríkismenn. Fjórði var
Frakkinn Adrian Duvillard og
5. Norðmaðurinn Stein Erik-
sen.
★ Dönsku handknattleiks-
meistaramir 1962 — Skov-
bakken í Árósum — sigruðu
sænsku meistarana — Heim
— í keppni í fyrradag. Urslit
voru 21:14, en í hléi stóðu
leikar 13:6. 1 fyrri leik félag-
anna í Stokkhólmi 27. janú-
ar, sigruðu Svíarnir hinsveg-
ar með 19:17. Skovbakkeri
heldur því áfram í Evrópu-
bikarkeppninni.
—O—
★ Fundur framkvæmdaráðs
Alþj óða-olympíunef ndarinnar
(CIO) var haldinn í Lausanne
sl. föstudag, og var þar m.a.
fjallað um misbeitingu póli-
tísks valds gegn íþróttafólki.
Fundurinn gat ekki íundi?
neina viðunandi lausn á þesso
vandamáli. og segja erleno
blöð að fulltrúarnir hafi snú
ið vonsviknir heim. Allir vom
andvígir pólitiskri íhlutun '
málefni íþróttanna, en ekker’
samkomulag náðist um leiðn
‘il að koma í veg fyrir hana
Camberlaine réttir knöttinn í
körfuna.
úrslit keppninnar. Skíðaráð
Reykjavíkur býður einum um-
boðsmannj frá hverju firma,
sem tekur þátt í keppninni að
vera viðstaddur keppnina og
sameiginlega kaffidrykkju í
Ármannsskálanum að lokinni
keppni. Þar fer einnig fram
verðlaunaafhending Tólf silf-
urbikarar (farandbikarar) eru
•nú í umferð fyrir keppni þessa.
Upplýsingar um bílaferðir í
Jósefsdal er að fá hjá B.S.R. í
Lækjargötu. sími 11720.
Þessir tólf silfurbikarar eru
nú til sýnis í glugga Verzlun-
ar L.H. Múller í Austurstræti.
Eftirtalin 30 firmu taka þátt
í þessari firmakeppni í Jósefs-
dal. sunnudaginn 17. febrúar
1963:
Prentsmiðjan Edda h.f., Lind-
argötu 9a,
Eagle Star. tryggingafélag,
Lækjargata 6,
Blikksmiðja Magnúsar Thor-
valdss., Langagerði 26.
Heildv. Sveins Helgasonar
Lækjargata lOa.
Rakarastofa Harðar.
L.H. Múller, Austurstr. 17,
Heildv. Magnúsar Kjaran, Hafn-
arstrætli 5,
Skósalan, Laugavegi 1,
Austurver hf.. Skaftahlíð 22—.
24.
Leðurverzlun Jón Brynjólfsson-
ar. Austurstræti 3.
Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis Hverfisg. 26.
Reiðhjólaverksmiðjan Fálkinn,
Laugavegi 27.
Bæjarleiðir h.f.. Langholtsvegl
115
Timburverzlun Árna Jónsson-
ar, Laugavegi 148,
Þvottahús Adolf Smith. Berg-
staðastræti 52.
Gufubaðstofan. Kvisthaga 29,
Vátryggingafél. Skáne'/Malmö,
Lækjargafa 2,
Vinnufatagerð fslands. Vesfur-
gata 17.
Kristján Ó. Skagfjörð h'/f,
Tryggvagata 4.
Raftækjavinnust. Sig. R. Guð-
jðnssonar. Bjarnhólastíg 13,
Kópavogi.
HeHdverzlun Bjarna Björnsson-
ar, Aðalstr. 6.
SÍS. Sambandshúsinu,
Þ. Jónsson & Co, Brautarh 6,
Bifreiðar. og Landbúnaðarvél-
ar Brautarholti 18.
Borgarþvottahúsið, Borgar-
túni 3.
Flugfélag íslands, Lækjarg. 2,.
fsbúðir Dairy Queen Læk'íar-
gat;, 2,
Ullarverksmiðjan Frámtíðiii,
Frakkastig 8 .........
Byggingavöruv ísleifs Jónsson-
ar Boltolti 4.
Vogaver h.f.. Gnoðarvogi 44.
Skíðaferð
Skíðaráð Reykjavfkur hendir
skíðafólki á að tilkynna þátt-
töku í Bergenferðina sem allra
fyrst til Ferðask.rífstofunnar
SÖGU í Ingólfsstrajti. Þar eð
kostnaði við för þe%sa er mjög
stillt f hóf er æskijegt að sem
flestir geti tekið þá,tt í. henni.
Lagt verður af sía,) að morgni
"immtudaginn 21. m^irz og flog-
ð beint til Bergen og dvalið
: Solfonn bar til ef,tir helgina
og komið aftur til.'Reykjavík-
ur þriðjudaginn 26. marz.
4
i