Þjóðviljinn - 23.02.1963, Blaðsíða 1
FrambjóBendur A —Hstans í
Trésmiðaíélági Reykjávíkur
A-listinn við stjórnarkjörið
í Trésmiðafélagi Reykjavíkur
(aðalstjórn) er þannig skip-
aður; talið frá vinstri: For-
maður: Jón Snorri Þorleifs-
son, varaformaður: Sturia II.
Sæmundsson, ritari: Þórður
Gíslason, vararitari: Hólmar
Magnússon og gjaldkeri: As-
björn Pálsson.
Nöfn varamanna í stjórn eru
birt á öðrum stað í blaðinu.
Malínovskí í rœðu í Moskvu:
menn / fríði!
Margoft hafa Eíandaríkjamenn sýnt að þeir hafa
í hyggju að ráðast á Kúbumenn og svipta þá
frelsi. Mönnum er í fersku minnj innrásin í apríl
1961 og umsátrið í haust. Þá tókst að koma vit-
inu fyrir þá og forða stórátökum. í dag hélt Malín-
ovskí, landvarnaráðherra Sovétríkjanna, ræðu og
sagði að til heimsstyrjaldar myndi koma ef Banda-
ríkin réðust á Kúbu. — Sjá frétt á 3. síðu.
Trésmiðirnir kjósa samhenta
og sókndjarfa félagsstjórn
Myndin er tekin á Húsavík um síðustu helgi og sýnir hún neðsta hluta Norðurlandsborsins með öll-
um tilheyrandi utbúnaði. — I.jósm. Þ. J. Akureyri).
Viðræðufundir kjararáðs !
B.S.R.B. og samninganefnd-
ay ríkisstjórnarinnar hafa
legið niðri þar til í fyrra- 1
dag að halclinn var örstutt- j
ur fundur. Annar fundur
var svo haldinn síðdcgis
í gær. |
Umræðufundu Smdentafélags
Reykjavíkur um bókmenntir og
listir hefst kl. 2 siðdegis i dag
í Lidó. Frummælendur verða
Björn Th. Björnsson listfræðing-
ur, sem ræðir um myndlist. og
Sigurður A, Magnússon blaða-
maður sem ræðir um bókmennt-
ir, Öllum er heimi’d aðgangur að
fundinum.
Hitinn i borhol-
unni lækkaði nið-
ur í 74 stig í gær
Á höfða einum austan við Húsavík gnæfir Norðurlands-
borinn við himinn og vísar eins og eldflaug til lofts með
rautt ljós í toppinum og malar niður dag og nótt, þolin-
móður eins og eilífðin sjálf. Borinn er nú kominn 930
metra niður í þingeyska fold og lækkaði hitastigið í gær
allt í einu niður í 74 gráður og þykir það ekki boða
gott um árangur. í ráði er að hætta við þessa fyrstu holu
og taka aðra holu hundrað metra austan við og verður
farið til þess mjög á næstunni. Húsvíkingar binda mikl-
ar vonir um að finna heitt vatn á þessum slóðum og er
ætlunin að byggjia hita-veitu fyrir kaupstaðinn. Áður
starfaði borinn á Ólafsfirði og náði þar góðum árangri.
særðust
en þásundir
jarðskl 'Bf
Sjá síðu @
með því að fylkja sér um A-LISTANN
Trésmiðirnir í Reykjavík og nágrenni ganga
til kosninga í dag og á morgun í félagi sínu, Tré-
smiðafélagi Reykjavíkur, fjölmennasta sveinafé-
lagi íslenzkra iðnaðarmanna.
Þeir eiga þar að segja til með atkvæði sínu
hvort þeir kjósi að sókndjörf og traust sveit for-
ysfumanna félagsins haldi áfram undir for-
mennsku Jóns Snorra Þorleifssonar að vinna að
hagsmunamálum og réttindamálum trésmiða á
þann árangursríka hátt sem gert hefur verið und-
anfarin þrjú ár. ......
Eða hvort þeir vilji bera ábyrgð á því að af-
henda stjórn félagsins hópi íhaldsmanna, sem
reynzt hafa bæði tómlátir um allt starf félagsins
og broslega vankunnandi um hagsmunamál 'félags-
manna, íhaldsstjórn sem væntanlega er ætlað að
stjórna Trésmiðafélaginu samkvæmt þeirri yfir-
lýstu stefnu Sjálfstæðisflokksins að iðnaðarmenn
megi engar kjarabæfur ’fá, hvernig sem óðaverð-
bólga ríkisstjórnarinnar ærist.
Kosið verður__í skrifstofu fé-
lagsins að Laufásvegi 8 og hefst
kosningin í dag, laugardag, kl.
2 og stendur til kl. 10 í kvöld.
Á morgun, sunnudag, verður kos-
ið klukkan 10—12 f.h. og klukkan
1—10 e.h. og lýkur þá kosningu.
Listi vinstri manna er A-listi.
Hann er skipaður þessum mönn-
um:
Fcsrmaður: Jón Snorri Þorleifs-
son.
Varaformaður: Sturla H. Sæ-
mundsson.
Ritari: Þórður Gíslason.
Vararitari: Hólmar Magnússon.
Gjaldkeri: Ásbjörn Pálsson.
Varastjórn: Sigurjón Pétursson,
Framhald á 2. síðu.
ÓveniumiklS
frost é Jan
Mayen í gœr
Mikljr kuldar hafa ver.
ið á Jan Mayen að undan-
förnu en í gær náði frost-
ið liámarki, komst upp í
28 gráður. Var þá norðan.
átt þarna á eyjunni. Að
sögn veðurfræðinga er
þetta óvenju mikill kuldi á
þessum slóðum og þykir
benda til þess að hafísinn
sé nú með meira móti
norðurundan eins og athug-
anir hafa einnig sýnt.
Hér cr Norðurlandsborinn að verkti á Húsavík og gnæfir hann hátt yfir snæviþakið umhverfið —-
(Ljósm. Þ. J. Akureyri).