Þjóðviljinn - 23.02.1963, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.02.1963, Blaðsíða 3
Laugardr^ur 23. febrúar 1963 ÞJÖÐVILJINN SfÐÁ 3 Verði ráðizt á Kúbu, hlýzt af heimsstríð MOSKVU 22/2 — Malínovskí, landvarnaráðherra Sovétríkjanna, varaði í dag Bandaríkjamenn við því að ráðast á Kúbu. Yrði ráðizt á Kúbumenn, sagði hann í ræðu í Moskvu á afmælisdegi sov- ézka flotans, myndi af því hljótast heimsstyrjöld og í henni myndu Bandaríkjamenn verða afmáð- ir og allar þær þjóðir sem leyfa þeim herstöðvar. GENF 22/2 — Bandaríkjamerm hafa tilkynnt Sovétríkjunum að þeir séu fúsir til að hafa sjö eftirlitsferðir á staðnum að samningsgrundvclli við samning- ana um bann við kjarnorkutil- raunum. Áður hafa þeir haldið fast við a.m.k. átta til tíu eftir- litsferðir. . Sovétríkin hafa hins vegar hingað til ekki viijað fallast á fleiri en tvær til þrjár eftirlits- ferðir og lagði fulltrúi þeirra á afvopnunarráðstefnunni í Genf á það áherzlu í dag að bráð nauð- syn væri að komast að samkomu- lagi um tölu eftirlitsferða og sov- ézka tillagan um tvær til þrjár árlegar ferðiir yrðu að vera grund- völlur þess samkomulags. Ekki væri hægt að ræða aðrar hliðar kjarnavopnabannsins fyrr en samið hefði verið um þetta. Myndin hér að ofan er frá opnun afvopnunarráðstefnunnar. Ná?!i radarsam- cii PASADENA 22/2 — í dag t.ii- kynnti Tæknistofnun Kaliforníu að vísindamenn við stofnunina hefðu náð radarsambandi við reikistjörnuna Mars. Fyrsta til- raunjn sem heppnaðist var gerð 21. janúar frá Goldstone stöð- inni í Kaliforníueyðimörkinni. 2. febrúar, þegar Marz var næst jörðu. í 200 millj. km. fjarlægð. var gerð önnur til- raun Þá liðu 11,1 mínútur þang- að tj’ -’-rmerkið til Mars kom aftur 4-' stöðvarinnar. Sérstaka athygli vakti það að Malínovskí ítrekaði það sem áð- ur hefur verið fullyrt af sov- ézkum valdamönnum að Sovét- ríkin ættu nú varnarvopn sem 'vtt gætu hvers konar flugskeyt- im sem gegn þeim væru send. j Margt stórmenna var viðstatt ■^afmælisathöfnina. þeirra á með- Ofsalegur jarðskjálffi í Libyu 500 fórust, þúsundir misstu heimili sín BENGHAZI 22/2 — Meira en 500 manns biðu bana og annar eins fjöldi slasaðist í ofsalegum jarðskjálfta sem varð í gærkvöld í bænum Barce í Libyu. Yfir tólf þúsund manns misstu heimilf sín og nærri öll hús borgarlraiar hrundu eða skemmdust mikið. Fjöldi manns vinnur að því un'dír forystu innanríkisráðhérrá landsins og yfirmanns varnar- liðsins að bjarga og hjúkra hin- um sasrðu og grafa dauða og særða undan rústunum. Mikil rigning er nú í Barce og tefur björgunarstarfið. Auk innlendra björgunarsveita hefur bandaríski flugherinn sem hefur herstöð í Wheelus, tæpa 500 km frá slys- staðnum, sent hjálparsveitir á staðinn, fimm þyrlur, sjúkra- gögn og tvo sjúkrabíla. Flugher- inn hefur ennfremur komið upp sjúkraskýli við Barce. Brezkar hersveitir hafa einnig verið sendar á vettvang og brezki l ilt um efnahags' mál í Danmörku KAUPMANNAHÖFN 22/2 — Danska þingið kemur saman á sérstakan fund á mánu- daginn til að ræða tillögur dönsku stjórnarinnar sem miða að því að kveða nið- ur verðbólguna og stöðva kapphlaupið milli verðlags og launa. í dag ræddu danska ríkis- stjórnin og fulltrúar stjórnarand- stöðunnar lagatillögur Jens Otto Krag forsætisráðherra um svo- kallaða ..heildarlausn efnahags- málanna". Eftir tveggja tíma við- ræður þótti ljóst að ekki væru raunhæfir eða pólitískir mögu- leikar á frekari samningum fyrr en í næstu viku. en áður hafði stjórnin áformað að leggja tillög- urnar fyrir danska þingið á morgun. Fyrr í dag ræddi Krag forsæt isráðherra efnahagsvandamálin við fulltrúa alþýðusambandsin' og síðar einnig við fulltrúa vinnv- veitendnf'.’-nhandsins. Dansk" -tjórnin hafði gert rað fyrir að 1 ':ast mætti að fá fjóra gömlu flokkana til að standa saman að þingsályktunartillög- unni um „heildarlausnina“ með stjórninni, en þessir flokkar era Ihaldsflokkurinn, Vinstri flokk- urinn og stjórnarflokkarnir tveir. sósíaldemókratar og radikalar. í tillögum stjórnarinnar um allsherjarlausn á efnahagsmálum bjóðarinnar er gert ráð fyrir banni við hækkunum á verðlagi, hlutabréfa-arði og álagningu; kjarabótum beim lægst launuða til handa, breytingum á eftir- launakerfinu og niðurskurði á skattaívilnunum. Ætlun stjórnar- innar er að skapa með þessu ró á vinnumarkaðinum og stöðva verðbólguna. Eftir að slitnaði upp úr við- ræðum stjórnar og stjómarand- stöðu og tillögurnar urðu kunnar í dag hefur alþýðusambandið lýst yfir fylgi sínu við þær, en vinnuveitendasambandið og sam- band opinberra starfsmanna hafa mælt gegn þeim. Samþykki danska þingið ekki tillöguna um „heildarlausn efna- hagsmálanna“ mun það rofið og efnt til nýrra þingkosninga 19. marz n.k. flugherinn hefur sent lækna, hjúkrunarkonur og lyf frá Kýp- ur. Jarðskjálftinn varð um kl. 16.30 eftir íslenzkum tíma og mynd- uðust þá stórar sprungur í jörð- ir.a og flest hús bæjarins hrundu. Eftir jarðskjálftann kom þrumu- veður og steypiregn svo að gjárnar og holurnar sem mynd- azt höfðu í jörðina fylltust af vatni og hefur það mjög tor- veld.að björgunarstarfið. Jarð- skjálftinn náði yfir 32 km breitt svæði. Grófust sjálfiir í rústunum Bandarískur flugmaður sem kom frá Barce til Trípolí í morg- un skýrði frá því að flokkur Líbýumanna sem leituðu að og reyndu að bjarga lifandi fólki úr rústunum, hafi sjálfir grafizt undir húsi sem hrundi skyndi- lega til grunna. Barce er við ströndina, 90 km fyrir norðaustan Benghazí, og kom mjög við sögu í heimstyrj- öldinni síðari þegar brezkar og þýzkar hersveitir börðust hvað eftir .annað um borgina 1941 og 1942. íbúar borgarinn.ar eru um 10 þús. og hafa þeir flestir orð- ið heimiljslausir í jarðskjálftun- um. Um 35 þús. búa á svæðinu umhverfis borgina. Nýtt heimsstrið yrði það síð- Björgunstarfinu er haldið á- fram, en óttazt er að enn fleiri hafi látið lífið en vitað var um í gærkvöld. Mikiar náttúruhamfarir undanfarið ár Síðasta stórslysið af völdum náttúruhamfara á undan jarö- skjálftanum í Líbýu varð 27. október í fyrra þegar fárviðii gelck yfir Thailand og varð þús- und manns að bana og olli mik- illi eyðileggingu. Mánuði fyrr fórust um 800 manns í flóðum i Barcelona háraðinu á Spáni og 1. september varð jarðskjálfti í Iran, sem náði yfir 20 þúsund ferkílómetra svæði, yfir tíu þús- und manns að bana. Mörg önnur stórslys af nátt- úrunnar völdum urðu árið 1962 og komst tala þeirra sem fórust í þeim upp í tugi þúsunda. Nægir þar að minna á t.d. hin miklu skriðuföll í Perú fyrir ári þar sem meira en 3000 manns fórust og flóðbylgjuna við strönd Norðursjávar, einkum í Hamborg, sem varð a.m.k. 500 manns að bana. al Krústjoff, og var hann að þessu sinni kiæddur hershöfðingja- klæðum, einnjg Bresnéff forseti, Báðum var vel fagnað af 6.000 gestum þegar þeir komu. Nýtt heimsstríð yrði það síð- asta, sagði Malínovskí. Auð- valdsþjóðfélagið mun þá líða undir lok. Við viljum enn einu sinni minna ráðamenn vestur- veldanna á. að við erum ó- hræddir. Við munum geta end- urgoldið hverja þá árás sem á okkur verður gerð svo að þeir sem á okkur ráðast munu hverfa í logum kjarnorkueldsins. Þess vegna gefum við þeim aðeins betta eina ráð: Gætið ykkar og haldið höndunum frá sprengju- hnöppunum sem mundu leiða af sér ragnarök ef á þá verður þrýst. Ef á Kúbumenn verður ráðizt. munu Sovétríkin verða fyrst til að koma þeim til að- stoðar. Polaris-k.afbátar Bandaríkja- manna myndu ekki reynast þeim jafngóðir og þeir herfðu haldið, sagði Malínovski. Fioti okkar og flugher geta gert ó.virkar bæði Malínovskí landstöðvar fyrir flugskeyti og kjarnorkukafbáta. Landvama- sveitir Sovétríkjanna geta með stuttum fyrirvara sett hvem þann árásarmann í spennitreyju sem áræðir að ráðast á þau. NAPOLI 22/2 — f kvöld féll mikil skriða á þorpið St. Hant- onio, skammt frá Napoli. Þorp- ið grófst undir skriðunni. sem var um 400 metra breið og misstu íbúar þess, 75 manns, þar aleigu sína. Miklar rigning- ar síðustu daga voru undanfari skriðunnar. Skriðan kom öllum að óvör- um og sátu þorpsbúar að snæð- ingi þegar hún kom veltandi nið- ur fjallið, en öllum tókst þó að forða sér. Höfum fengið tízkufeiknara og modelkjólameistara fró YÍNARBORG Hér er um að rœða þjónustu sem er algjör nýjung hér á landi Dömur sem cetla að fó kjóla fyrir vorið i við okkur sem fyrst MARKAÐUPINN Laugavegi 8f

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.