Þjóðviljinn - 26.02.1963, Blaðsíða 8
g SlÐA
- ÞJÓÐVILJINN
Skiptíng fiskimiða í veiðisvæði
Á síðastliðnum árum he£ ég
margoít bent á nauðsyn þess
að skipta fiskimiðum á milli
veiðiaðferða. Eg tel það þvi
tvimælalaust spor í rétta átt,
þegar nú á þessum vetri hefur
verið sett reglugerð um veiði-
svæði vestur af Reykjanesi
sem eingöngu er ætlað línu- og
færabátum. En það verður að
setja slík svæði víðar, þar sem
veiðar með net eru bannaðar
innan landhelginnar.
Það hefur valdið oss miklum
skaða, að ekki var byrjað á
þessu fyrr, og af þeim sök-
um kann að líða nokkur tími
þar til árangur af slíkri reglu-
gerð fer að sýna sig. Reglugerð-
in um hámarksfjölda neta, sem
bátamir megi leggja í sjó, er
lóka spor í rétta átt.
Hin hóflausa notkun þorska-
netanna á undanförnum árum
hefur nú þegar vaidið miklum
skaða. í fyrsta lagi höfum við
fengið lélegri og verðminni
fisk en ella hefði orðið við
hóflega netanotkun, í öðru
lagi, er lítill vafi á þvi. að
drauganetin sem liggja í botn-
inum víðsvegar um veiðisvæð-
in og halda áfram að veiða
fisk þó öll bólfæri séu af þeim
slitin. þau geta átt sinn þátt
í að fæla fiskinn frá miðun-
um, því að ég tel líklegt, að
þorskurinn, svo lyktnæmur
sem hann er, haldi sig í fjar-
lægð við þá staði þar sem rotn-
andi fiskmorkur í duldum
botnnetum setja svip sinn á
veiðisvæði.
,, Dragnótaveiðar
undir vísindalegu
eftirliti?“
Undanfarandi sumur höfum
við leyft dragnótaveiðar á að-
aluppeldisstöðvum margra fisk-
tegunda hér í Faxaflóa. Þetta
gekk undir hinu virðulega
heiti „Dragnótaveiðar undir
vísindalegu eftirliti." Árangur-
urinn er nú líka farinn að
sýna sig. því að fiskigegngd í
ílóann hefur minnkað svo ó-
trúlega mikið, að undrum sæt-
ir. Ef svo heldur áfram sem nú
horfir í þessum efnum, þá
kemur útfærsla fiskveiðiland-
helginnar að litlu gagni. þegar
fram líða stundir hér í Faxa-
flóa.
Frumvarp Jóns Árnasonar
alþingismanns um að banna
dragnótaveiðar hér í ílóanum
er því orð í tíma talað. Ef
við ætlum í framtíðinni að
hafa full not af Faxaflóa sem
uppeldisstöð. þá þýðir ekki að
le.yfa þar rányrkju. Og bann
við togveiði og dragnótaveiði
eru fyrstu skrefin á þeim vett-
vangi sem nauðsynlegt er að
stíga.
Vísindunum er enginn greiði
h '
FISKIMÁL - Eftir Jóhann J. E. Kúld
hvert. Eftir lögunum gilda
tvennskonar mælingar á síld-
inni, þannig: Frá landamærum
Svíþjóðar og norður að Þránd-
heimsfirði skal öll síld upp í
16,5 cm teljast smásíld. En frá
Þrándheimsfirði norðanverð-
um allt til landamæra Sovét-
ríkjanna skal miða smásíldina
við 15 cm. Síldin er mæld
þannig, að haus og sporðblaðka
eru með í mælingunni. Sam-
kvæmt þessum lögum hefur
nú verið gefin út reglugerð til
skýringar á lögunum, en í
henni segir að þegar um
blaðinu Fiskaren hefur orðið
vart við sjúkdóm í fiski á mið-
unum við Lófót. Þeir sem
fengizt hafa þar við fiskimerk-
ingar segja þá sögu að taisvert
magn af þorski sé veikt af sjúk-
dómi sem orsakist af svonefnd-
um „Gelle-orm“. Þó er ástand-
ið í ýsustofninum af -þessum
orsökum talið verra, því að
þar er því slegið föstu að 28%
af ýsumagninu muni deyja af
völdum sjúkdómsins. Hafrann-
sóknarstofnuninni í Björgvin
hefur nú verið falið að hefja
víðtækar rannsóknir á þorsk-
stofninum vegna þessara uggr
vænlegu tíðinda.
Einkennileg
tilviljun
Aflaskipið Somerset Maugham.
gerður með því að fela rán-
yrkjuna undir þeirra klæða-
faldi, eins og gert hefur verið
hin síðustu ár.
Smásíld friðuð
í Noregi
Þau tíðindi hafa nú gerzt,
að 25. janúar s.l voru gefiri út
lög í Noregi um friðun á
smásíld. Samkvæmt þessum
lögum er algjörlega bannað að’
veiða smásíld í Noregi frá 1.
febrúar til og með 30. apríl ár
-----------------------------c3>
Er þetta það
sem koma skal?
Málsvarar atvinnurekenda
hafa að undanförnu haldið því
mjög á lofti að aukin ákvæðis-
vinna myndi leysa allan vanda
í kjaramálum verkamanna.
Með því að taka upp ákvæð-
isvinnu á öllum þeim sviðum
er henni yrði við komið,
myndu afköstin aukast og tekj-
ur verkamanna að sama skapi.
svo báðir aðilar yrðu ánægðir.
Það er vissulega rétt að í
mjög mörgum tilfellum má
auka afköst verulega með
bættum vinnuaðferðum og
haganlegri aðstöðu verka-
mannsins við vinnuna, án
verulega aukins álags á verka-
manninn. Séu þessar forsendur
fyrir afkastaaukningunni á
hún vissulega rétt á sér, svo
fremi að verkamaðurinn njóti
um leið ávaxtanna af framleið-
nisaukningunni í réttu hlutfalli
Ýmsir hafa dregið í efa að
það væri þetta. er vekti fyrir
málsvörum atvinnurekenda
með skrafi þeirra um aukna
ákvæðisvinnu. heldur einfald-
lega aukin afköst ein-
ungis fengin með auknum
vinnuhraða á kostnað vinnu-
þreks verkamannsins.
S.l. laugardag birtir Vísir
viðtal við forstjóra Bílasmiðj-
unnar um reynslu hans af á-
kvæðisvinnufyrirkomulaginu.
Eftir að hafa lesið það viðtal
þarf enginn að vera í vafa um
hvað fyrir þessum atvinnurek-
anda hefur vakað, þegar hann
tók upp það fyrirkomulag.
„Okkur fannst vinnan ganga
illa“ segir forstjórinn. þess-
vegna tókum við upp ákvæð-
isvinnufyrirkomulagið og á-
rangurinn lét ekki á sér standa.
afköstin hafa aukizt meir en
um helming, en launin segir
hann aðeins „mun hærri."
Forstjórinn getur þess hvergi
í viðtalinu að aðstaðan við
vinnuna hafi í nokkru verið
bætt til að stuðla að auknum
afköstum, heldur virðast þau
eingöngu byggjast á auknum
vinnuhraða. Annað hvort hlýt-
ur því að vera, að þarna hafi
áður verið um að ræða alveg
óvenjulega léleg afköst, eða að
nú sé um að ræða óforsvaran-
legan vinnuhraða, þar sem um
meira en helmings hækkun er
að ræða. án nokkurra endur-
bóta á vinnutilhögun. Þar við
bætist svo að verkamennirnir
hafa afsalað sér samnings-
bundnum réttindum um fasta
kaffitíma og að vinnuvikan er
fimmtíu og tvær og hálf stund,
netto.
Að sjálfsögðu segir forstjór-
inn að hagur fyrirtækisins hafi
blómgazt og að hann sé mjög
ánægður með þessa ákvæðis-
vinnu; þótti engum mikið, en
hvað um verkamennina. hafa
þeir áttað sig á því hvað hér
er að gerast? Er nokkurt sam-
ræmi á milli afkastaaukningar-
innar og þeirra launa er þeir
bera úr býtum?
Að mínu áliti er hér stefnt
inn á mjög háskalega braut í
kjaramálum verkamanna ef
launabætur fást aðeins með
takmarkalausri aukningu
vinnuhraðans án hins minsta
tillits til vinnuþreks verka-
mannsins. Verkalýðshreyfingin
verður hér að hafa á fulla gát.
Björn Bjarnason.
blandaða síld er að ræða. þá
skuli síldin dæmast smásíld sé
hún yfir 50% á því máli sem
að framan getur, og er þá
miðað við hvert einstakt kast.
Síðan koma mjög nákvæmar
reglur um rannsókn á innihaldi
í síldarnót, áður en leyfilegt er
að háfa hana um borð. Nóta-
bassar eru gerðir ábyrgir -fyrir
því, að lögunum sé framfylgt;
einnig skipstjórar sem flytja
síld af veiðisvæðum. Þegar í
land kemur með síldarfarm, þá
verður einnig rannsakað, hvort
farið hefur verið að lögum við
veiðarnar.
Brot gegn lögunum varða fé-^.
sektum, og er þá afli einnig
gerður upptækur.
Nýtt fiskverð
í Noregi
Norges Ráfisklag gaf út nýtt
ferskfiskverð 28. jan. s.l. Vald-
svæði þessarar stofnunar nær
allt frá landamærum Sovét-
rikjanna suður á Norðmæri, að
því svæði meðtöldu Innan
þessa svæðis má því segja að
séu ca. 95% af vetrarþorsk-
veiði Noregs.
Eins og jafnan áður, er hinni
löngu strandlengju skipt niður
í 9 verðlagssvæði. Hið útgefna
verð er algjört lágmarksverð
og er öllum óheimilt að selja
fisk á lægra verði. Fyrsta verð-
lagssvæði byrjar austur við
landamæri Sovétríkjanna, síð-
an er haldið suður með strönd-
inni og endað á Norðmæri sem
er 9. verðlagssvæðið.
Hér á eftir kemur sýnishorn
af fiskverðinu, og er þá miðað
við þorsk sem nær 43 cm
lengd.
1. Verðlagssvæði: í frystingu,
ísun og niðursuðu 0,90 norskar
pr. kg. fyrir hausaðan og
slægðan þorsk. Þetta gerir í ís-
lenzkum krónum 5,40. En sé
reiknað með fiski slægðum
með haus þá verður verðið kr.
4,32. Til annarra nota er verð-
ið 0,89 kr. norskar. í íslenzkum
kr. 5,34, slægður með haus,
kr. 4.33. Síðan fer verðið
hækkandi eftir því sem sunn-
ar dregur. því að á syðstu
verðlagssvæðunum er tekið til-
lit til aðstöðu til sölu á nýj-
um fiski isvörðum á markað.
Á 8. og 9. verðlagssvæði er
svo verið þetta:
í frystingu, til ísunar _og nið-
ursuðu norsk kr. 1,00. íslenzk-
um kr. 6,00. Fiskur slægður
með haus kr. 4,80. fyrir hvert
kg. Verð á þorskhrognum til
frystingar, sykursöltunar og í
niðursuðu, norskar kr. 1,10 pr.
kr„ í íslenzkum 6,60. Lélegri
hrogn 0,60 norska. í íslenzkum
peningum 3,60.
Sjúkdómur í fiski
á Lófótmiðum
Samkvaemt frétt í norska
Gamall norskur sjómaður,
sem stundað hefur fiskveiðar
í áratugi, fékk svo litla lúðu á
árinu 1932 að honum þótti ekki
borga sig að hirða hana. En
áður en h"nn kastaði lúðuseið-
inu aftur í sjóinn þá merkti
hann það. Nú er Ole Fladen
orðinn gama,ll._ en svo heitir
sjómaðurinn. í vetur þegar
hann reri einn dag heiman frá
sér til að vita hvort hann fengi
í soðið. þá kom mikill dráttur
á færið. Og þegar skepnan
kom loks upp í sjóskorpuna þá
var þetta falleg lúða. En hvað
kemur nú á daginn? Lúðuseið-
ið sem Ole kastaði fyrir borð
árið 1932 var parna komið aft-
ur og viktaði nú 98 kg. En
þegar Ole kom með lúðuna
að landi seldi hann hana á kr.
350 norskar. sem gera í íslenzk-
um peningum kr. 2.100 ,00.
Beinlaus skarkoli
Danska félagið Rahbekfisk
hefur komið fram með nýja
aðferð við tilhögun á skarkola,
sem það lætur frysta. Öll bejn
eru tekin úr kolanum og heldur
hann þó lögun sinni sem áður,
og er sem heill væri. Þegar
að þessari aðgerð lokinni er
kolinn hraðfrystur, og er til á
pönnuna í heilu líki, beinlaus
og roðflettur. Aðferðin er al-
gjört leyndarmál félagsins
sem verst allra frétta um það,
á hvern hátt þetta sé fram-
kvæmanlegt. Þessi nýja fram-
leiðsla hefur fengið nafnið
„Fröspetter". Þessi fiskfram-
leiðsla er sögð hafa vakið á
sér mikla athygli, bæði á
heimamarkaði í Danmörku og
eins á erlendum fiskmörkuðum.
Rússar auka fisk-
veiðar við Ameríku
Síðan Rússar öðluðust að-
stöðu á Kúbu fyrir fiskiflota
sinn, hafa þeir aukið mjög
veiðar á Karabíska hafinu og
á grunnunum undan Mexíkó-
strönd. Annars má segja að
fiskveiðar Sovétríkjanna. bæði
við Norður- og Suður-Ameríku
fari vaxandi með hverju ári,
bæði Atlanzhafs- og Kyrra-
hafsmegin. Þannig er sagt. að
s.l. sumar hafi í það minnsta
200 sovézk fiskiskip verið að
veiðum á norðanverðu Kyrra-
hafi og Beringshafi. Seint í
haust voru svo 100 rússnesk
fiskiskip að veiðum undan
ströndum Alaska.
í Norðurlandablöðum er sagt
Þriðjudagur 26. febrúar 1963
frá stórum rússneskum síld-
veiðiflota sem stundað hefur
veiðar í vetur á Norðursjó,
bæði með togvörpu og reknet-
um. Þarna er sagt að Rússam-
ir hafi fengið mikla veiði í
desemberimánuði og eins i jan-
úar.
Kanadamenn vilja
12 mílna landhelgi
Þær fréttir hafa borizt frá
Kanada að æðsta stjórn fisk-
veiðimála þar í landi hafí
skorað á ríkisstjórnina að færa
fiskveiðilandhelgina út í 12
mílur. Hvaða undirtektir þessi
krafa fær hjá ríkisstjóminni er
ekki ennþá vitað. ,
Húll-togari skarar
fram úr
Hulltogarinn Somerset Maug-
ham, en eigandi hans er tog-
araútgerðarfélagið Newington
Steam Trawling Co.. hlaut afla-
verðlaun brezkra togara fyrir
árið 1962. Togarinn kom til
Hull úr veiðiferð í Hvítahafi
3. jan. sl. með 12,000 „stones"
af fiski eftir 19 daga útiveru.
Heildarafli þessa togara árið
1962 var 2870,3 tonn. Úthalds-
dagar voru 338. Verðmæti
þessa afla er talið vera 140
þúsund sterlingspund. Skip-
stjóri togarans er 30 ára gam-
ali og hejtir Bill Breltell.
Færeyingar
iðnvæðast
Snemma á þessum vetri tók
til starfa í Þórshöfn í Færeyj-
um nýtt glæsilegt hraðfrysti-
hús, búið fullkomnum tækjum.
Afkastageta hússins er 35 tonn
á dag af flökum, en frysti-
geymslan er sögð rúma 2500
tonn. Kostnaðarverð hússins
er sagt vera 4 milljónir dansk-
ar krónur. Eigandi hússins er
hlutafélagið Bacalao, sem á
undanförnum árum hefur ver-
ið einn stærsti framleiðandi á
þurrkuðum saltfiski í Færeyj-
CHAMPION
/