Þjóðviljinn - 28.02.1963, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 28. febrúar 1963 — 28. árgangur — 50. tölublað.
Merktur
af ís
Islenzkt leikrít
frumsýntígærkvöld
Axel i Rafha ákœrcSur:
Bókhaldsóregla
og misnotkun aðstöðu
í gær barst Þjóðyiljanum svohljóðandi fréttatilkynning frá sak-
sóknara ríkisins:
„Að lokinni athugun hins svonefnda „Brimnes-
máls,“ um útgerð togarans Brimnes NS—14 á ár-
um 1959 og 1960, hefir saksóknari ríkisins hinn 26.
þ. m. höfðað opinbert mál á hendur Axel Krist-
jánssyni, framkvæmdas.tjóra, Bæjarhvammi 2, og
Sigurði Lárusi Eiríkssyni, Flokagötu 1, báðum í
Hafnarfirði, fyrir óreglusemi og vanrækslu í bók-
haldi útgerðar togarans, og ennfremur fyrir mis-
notkun á aðstöðu með f járreiður útgerðarinnar að
því er varðar kaup á skrúfu á skipið, en togarjnn
var á þessum árum gerður út í umboði fjármála-
ráðuneytisins og var Axel forstjóri útgerðarjnnar,
en Sigurður bókhaldari hennar.“
Eins og kunnugt er fyrirskip-
aði dómsmálaráðuneytið rann-
sókn í Brimnesmálinu rétt fyrir
bæjarstjómarkosningamar sl.
vor í hita kosningabaráttunnar,
þótt að flokkur hans hefði áður
komið í veg fyrir það á Alþingi
oftar en einu sinni, að tillögur
þingmanna Alþýðubandalagsins
um opinbera rannsókn á við-
skiptum Axels í Bafha og ríkis-
sjóðs vegna Brimnesútgerðarinn-
ar næðu fram að ganga.
Eftir að rannsókn loks hafði
verið fyrirskipuð var Logi Ein-
arsson yfirsakadómari skipaður
setudómari í málinu og hófst
rannsókn þess í júní, reyndist
hún allumfangsmikil sem vænta
mátti og lauk henni ekki fyrr
en í desembermánuði sl. og voru
saksóknara ríkisins til meðferðar.
Hefur saksóknari nú kannað öll
málsgögn og að þeirri athugun
Axel Kristjánsson
lokinni fyrirskipað málshöfðun
eins og framan greinir.
Ákvörðun saksóknara um
málsokn sýnir svo að ekki verð-
um um villzt, að kröfur þing-
manna Alþýðubandalagsins um
rannsókn á viðskiptum Axels í
Rafha við ríkissjóð vegna Brim-
nesútgerðarinnar voru á rökum
reistar, þótt meirihluti Alþingis
léti þær sem vind um eyrun
þjóta.
Þeíta er síe’fnið á tog-
aranum Pétri Halldórs-
syni, eins og það leit út
þegar hann kom úr sigl-
ingu á sunnudaginn.
Málningin er skröpuð af
uppá miðjar síður og
eru það verksummerki
íssins á siglingaleið-
inni frá Þýzkalandi.
Skipverjar höfðu við
orð, að það væri nú
munur að koma hingað
„suður“ í sólskinið.
(Ljósm. Þjóðv. G.O.).
Nýtt íslenzkt leiklit
var frumsýnt í Þjóðleik-
húsinu í gærkvöld, mið-
vikudag, „Dimmuborgir"
eftir Sigurð Róbertsson.
Leikstjóri er Gunnar
Eyjólfsson, en með aðal-
hlutverk fer Ævar Kvar-
an. Sést hann hér á
myndinni í hlutverki
sínu ásamt Bryndísi Pét-
ursdóttur, sem einnig fer
með veigamikið hlut-
verk í leiknum. Dómur
um leikritið mun vænt-
anlega birtast einhvern
næstu daga hér í blaðinu.
Siðlausar dylgjur Ihaldsins
um sósíalista og njósnamálin
* Vísir upphefur í gær
hinar siðlausustu dylgju
um Sósíalistafél. Reykja-
víkur og formann Sósí-
alistaflokksins, með
njósnahistoríu Ragnars
Gunnarssonar sem 'til-
efni. Er þar byggt á að-
ferð nazistaáróðursins,
tilefnislaus rógur og
dylgjur látnar koma í
stað staðreynda.
* Rétt er að fram komi
að þessu gefna íilefni að
Ragnar Gunnarss. hefur
ekki um skeið verið með-
limur Sósíalistaflokksins
og að síðustu ár hans í
flokknum lá hann undir
þeim grun, eins og hann
segir sjálfur frá, að hann
væri flugumaður íhalds-
ins í samíökum sósíalista.
* Ragnar heldur því
sjálfur fram, að rúss-
neski sendiráðsmaðurinn
sem hafi falað sig til
njósna í desember í vef-
ur hafi vitað um þessar
grunsemdir um flugu-
mennsku Ragnars í Sósí-
alistaflokknum, og að
því er virðist þótt hann
sérs'taklega girnilegur til
starfans! Svo koma í-
haldsblöðin á eftir og
dylgja um sósíalista og
njósnir vegna þess að
Ragnar Gunnarsson hafi
áður verið í Sósíalista-
flokknum!
* Hvernig sem á þær
dylgjur er litið, bera þær
vot’f um pólitískt siðleysi
á hæsta stigi. Það er fár-
ánlegt að reyna að sverta
samfök sósíalista vegna
þess að maður eins og
Ragnar Gunnarsson ha'fi
játað á sig njósnir. Eða
vill Sjálfstæðisflokkur-
inn taka ábyrgð á sann-
anlegri sakaskrá þeirra
flokksmanna hans sem
dæmdir hafa verið eða
játað saknæmt athæ’fi.
Prenta varS
aukaupplag!
AFGREIBSLA Þjóðviljans haffti
meira en nóg að gera i eær,
svo mikil var eftirspamin
eftir blaðinu. Seldist Það
gjörsamlega upp á flestum
blaðsölustöðum þegar f gær-
morgun og upp úr hádegi var
því gripið til þess ráðs að
prenta viðbótarupplag til að
fullnægia eftirspum.
VIÐ VEKJTJM athygli á þessu
vegna þess að viðbótarprentun
sem þessf hefði ekki verið
möguleg, ef blaðið hefði enn
verið prentað í gömlu press-
unni. Hinn nýi vélakostur
skapar hér möguleika sem
ekki vom fyrir hendi áður.
VIÐ VILJUM jafnframt vekja
athygli á því, að öraggasta
ráðið til þess að fylgjast með
öllum skrífum Þjóðviljans í
mikilsverðum málum er að
gerast fastur áskrifandj. Og
haldi eftirsóknin eftir Þjóð-
viljanum og framlagi hans til
þeirra mála, sem efst eru á
baugi hverju sjnni, áfram að
vaxa með sama hraða og i
gær verður blaðið orðið lang.
útbrejddasta blað landsins
fyrir næstu kosningar!
Vilja 5% hækkun
Á borgarráðsfundi sl. þriðju-
dag var lagt fram exindi frá
Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar þar sem félagið fer fram
á 5% hækkun á kaupi fyrir alla
félagsmenn sína og gildi hækk-
unin frá 1. febr. sL og þar til
ný launasamþykkt hefur verið
gerð. Engin ákvörðun var tek-
in í borgarráði um erindi þetta.
I
Maðurinn hér við hliðina er ó
harða hlaupum með fyrstu tíu
áskrifendurna og fœr þá verð*
laun eitt ferðaútvarpstœki, en
spurningin er. HVER YERÐUR
FYRSTUR að hljóta hnossið.
Takmarkið er 500 nýir áskrif-
endur fyrir 1. apríl.