Þjóðviljinn - 28.02.1963, Síða 12
!
!
Kauptúnið
B/ldudalur
stendur við lítinn vog með vinaleg fjöll slútandi
yfir þorpið við innanverðan Amarfjörð. >ar búa
tæplega 400 manns og hafa atvinnu sína af sjávar-
útvegi eins og önnur þorp við sjóvarsíðuna. Á Bíldu-
dal hófst þilskipaútgerð fyrir um það bil 100 árum
og voru gerð þaðan út allt að 20 skip kringum alda-
mótin. Frá Bíldudal róa nú tveir nýir bátar með
línu og fjórir smærri bátar stunda rækjuveiðar.
Allir hafa þessir bátar aflað vel á þessum vetri
og er atvinna næg sem stendur. Myndin er af Bíldu-
dal tekin yfir um voginn. Ljósmynd Benjamín
Jósefsson. Fleiri myndir af Bíldudal eru á 2 síðu
l^nyvr.v.w.;.; T.;i.y.' *i.i.V!ff:v.v:vM1T.l.'!'.v'~'.TO'yv
Bíll
hætt
kominn
Akureyri í gær. — Stór vöru-
fLutmngabíll frá KEA fór út af
öxnadalsheiðarvegi í svokölluðum
Giljareitum og hrapaði niður
átta metra spöl og skorðaðist
i gildragi. Slæm færð er á þess-
um vegarkafla og aðeins faert
stórum bílum og þó ekki meira
en svo.
Þarna rennur Heiðará í þröngu
gili tvö hundruð metra fyrir
neðan veginn og er talin mikil
mildi, að bíllinn skyldi stöðv-
ast í gildraginu. ökumaður slapp
ómeiddur.
Þýzkur togari
tók nióri
Vestmannaeyjum í gær, Þýzki
togarinn Trave frá Kiel tók
niðri hjá Faxaskerjum í morgun
og missti skrúfuna og stýrið.
Varðskipið Albert og Lóðsinn
fóru á vettvang og héldu hon-
um f vari hjá Eiðinu, en það
var ekki unnt að draga hann
til hafnar vegna austanáttar 1
dag. Þama bíður þessi þrenning
eftir leiði til Reykjavíkur og er
búizt við, að togarinn þurfi að
fara í slipp.
Stefnuyfirlýsingin um leið islands til sósíalisma
Mál sem aflir sósíalistar
kynni sér sem rækilegast
Fimmtudagur 28. febrúar 1963 — 28. árgangur — 50. tölu’ 'að.
HEIÐARLEG
blaiamennska!
Á allfjölsóttum fundi
Sósíalistafélags Reykja-
víkur í fyrrakvöld var m.
a. 'til umræðu frumvarp
það að stefnuyfirlýsingu
um leið íslands til sósíal-
ismans, sem lá fyrir þingi
Sósíalistaflokksns á sl.
hausti, en hefur nú verið
sent til umræðna í
flokksdeildunum víðs-
vegar um landið.
Brynjólfur Bjarnason flutti
ræðu um þefta mál. Taldi hann
stefnuyfjrlýsinguna, og þó sér-
staklega þann kafla hennar sem
fjallar um það hvernig sósíal-
is-minn verði framkvæmdur á
íslandi, mikils virði fyrir Sós-
íalistafloikkinn. Að visu væri
enn í fullu gildi stefnuskrá
flokksins frá 1938 og við hana
yrði staðið á allan hátt, en á
þeim árum sem liðin eru síð-
an stefnuskráin var samin hefði
margt gerzt sem skapaði breytt
viðhorf, ekki sízt það að nú væri
opin leið til friðsamlegrar valda-
töku alþýðunnar, og þess vegna
væri afar mikilsvert að menn
gerðu sér grein fyrir hvernig
hún myndi eiga sér stað.
Skoraði ræðumaður á .atla fé-
l.aga Sósíalistaflokksins að kynna
sér sem rækilegast fyrrnefnt
frumvarp að stefnuyfirlýsing-
unni, sem nú hefði verið gefið
út í bæklingsformi, og koma á
framfæri, hver 1 sinni flokks-
deild, athugasemdum sínum við
það.
Önnur mál, sem til umraeðu
voru á fundinum í fyrr.akvöld,
voru félagsmál og verkalýðs-
mál.
Kjartan Ólafsson ræddi um fé-
lagsmálin og helztu verkefni
Sósíalistafélags Reykjavíkur sem
framundan væru. Skýrði Kjart-
an m.a. frá þvi, að félagið ætl-
aði sér 300 af þeim 500 nýju
áskrifendum að Þjóðviljanum,
sem ætlunin er að safna fyrir
lok marzmánaðar á öllu landinu.
Loks ræddu þeir Gísli Svan-
bcrgssoa og Björn Bjarnason
verkalýðsmál. Skýrðu þeir m.a.
frá því að Framsóknarflokkur-
inn hefði verið ófáanlegur til
samstarfs við aðra vinstri menn
í Iðjukosningunum nema með
úrslitaskilyrðum um formanns-
efni, sem Framsóknarmenn vissu
að ekki myndi nást samkomulag
um.
Trésntíðnféífigið:
Kommúnistar töp-
uðu fylgi
• Stjómarkosning fór fram í
Trésmiðafélagi. Reykjavikur um •
helgina. Úrslit urðu þau að A-,
listl kommúnista hlaut 290 at-
kvæði en B-Iisti iýrðræðissínna
fékk 227 atkvæði. Auðir S. ‘ ’
1 kosningum til Alþýðusam-
bandsins í haust fengu komra-
.únistar. 280 atkvæði en lýð-
ræðissinnar 197 atkvæði; Hafa
þvf iýðræðissinnar aukið lylgi
sitt um 30 atkvæði en komm-
únistar fengið'. aðeins 10 at-
kvæði fil viðbótar. Éru kosning'
’ arnar taldar verulegur sigur. fyr
ir Iýðræðissinna,- þar sem
kommúnistar' hafa JilutfaUsIegá
tapað fylgi.
íinvígi Fríðríks og
Ingahefst ámorgun
fírSi nk. þríðjudag
Ejnvígi þeirra Friðriks Ólafs-
sonar stórmeístara og Inga R.
Jóhannssonar skákmeistara Norð-
urlanda um titilinn Skákmeistari
Reykjavíkur 1963 hefst á morg-
un, föstudag kl. 8 í Snorrasal að
Laugavegi 18, en þeir urðu sem
kUnnugt er efstir og jafnir í úr-
slitakeppni meistaraflokks fyrir
skömmu.
Þeir Frjðrik og Ingi munu
tefla fjórar skákir og verður
umhugsunartími hvors um sig 2
klukkustundir á 36 leiki. Hefur
Fr-jðrik hvítt í fyrstu skákinni.
Fyrsta skákin verður eins og
áður segir tefld á morgun en
önnur á sunnudag kl. 2 e.h. Bið-
Skákir ef einhverjar verða verða
svo tefldar þriðjudaginn 5. marz.
þriðja skákin á föstudag, 8.
marz. framhald hennar, ef hún
fer í bið, á laugardag og fjórða
og síðasta skákin sunnudaginn
10. marz.
f Snorrasal verður komið fyr-
jr tveim sýningartöflum svo á-
horfendur geti fylgzt sem þezt
með skákunum. Jafnframt verð-
ökákirna- sýndar á sýninen*-
borðum '• --■’orkynnum méi"--
sveinafé'-j ins á næstu hæð fyr
ir ofan Snorrasai og munu ýmsir
færustu skákmenn landsins skýra
þar skákimar fyrir áhorfendum.
Einnig mun verða reynd sú nýj-
ung, ef fært þykir, að keppend-
ur sjálfir komi þar fram öðru
hvoru meðan á skákunum stend-
ur og skýri fyrir áhorfendum.
Sl. föstudag kom blaðið Mjöln-
ir, málgagn Alþýðubandalags-
ins í Norðurlandskjördæmi vestra
út í nýjum búningi. Blaðið er
nú prentað í 2 litum, allmikið
breytt í umbroti og útliti. Hef-
ur þessi breyting á blaðinu
mælzt mjög vel fyrir í kjördæm-
inu, en hún er hinsvegar all-
kostnaðarsöm og þegar að þar
við bætist að fyrirhuguð er aukn-
ing á útgáfudögum má reikna
með að blaðið verði í nokkurri
fjárþröng.
Til þess að ráða bót á því
er fyrirhugað að halda Mjölnis-
kvöld til útbreiðslu og fjáröfl-
unar fyrir blaðið. Dagskráin á
þessu Mjölniskvöldi verður
þannig: Ræða, Samfelld dag-
skrá; Langferð inn í myrkur
eftir Bjama Benediktsson frá
Hofteigi. Flytjendur verða þeir
Eiríkur Eiríksson, Helgi Vil-
hjálmsson, Flosi Sigurbjöms-
son o.fl. Einnig verða fleiri
skemmtiatriði.
Skemmtikvöld þetta verður
haldið n.k. þriðjudag í Alþýðu-
húsinu á Siglufirði kl. 8.30.
Velunnarar Mjölnis eru hvatt-
ir til að mæta og taka með sér
gesti.
IðRaðarlóðam við
úthlutað
Á fundi borgarráðs sl. þriðju-
dag var úthlutað nokkrum iðn-
aðarlóðum í Háaleitishverfi:
þessir aðilar hlutu úthlutun:
Ármúli — Háaleitisbraut:
Hansa h.f. og Helgi Magnús-
son & Co.
Lágmúli — Háalcitisbraut:
Bræðurnir Ormsson h.f., Gló-
bus h.f., Kristján Siggeirsson h.f.
Háaleitisbraut:
A A samtökin, Bláa bandið.
T résmiðaifélagiö:
Frámsóknarmenn. stúddu
kommúnista dyggilega
KOSNING fór .fram. x Trésmiða-
félaginu um helgina. Úrslit urðu
þau a3 k'ommúnistar liéldu velli:
í féláginu með stuðningi fram-
sóknarmanna. Báðir listar juku
fylgi- sitt en lýðræðissinnar þó
mun zneir. Aðeins -.10 atkvæða
munur réði úrslitúm. ^
A-listi stjórnaririnar h'laut 290
atkyæði, en , B-listi, • lýðræðis-
sinna 280 atkvæði. Við síðustú
kosningar í'felaginu lílaut stjórn
in 227 atkvæði en lýðræðissinn-
ar 197 og var þá 30 atkvæða
munur. *
• Erámsóknarmenn létu sig'hafa''
það að styðja lista-’stjórnarihnar
þótt uppistaðan £ stjórninni væri
nú línukommúnistar;
Kosningin í
Trésmiðafélaginu
Kosning í Trésmiöafélaginu
licldur áfram í skrifstofu félagsins
áð Laufásvegi 8 í dag W. 10—13 fyr
ir hádegi og 1—10 eftir hádegi.
Listi stjóritar og trúnaðarmanna
ráðs er A-listi.
Hér sést hvernig Vísir (ofar) og Morgunblað-
ið (neðar) skýrðu frá úrslitum í kosningunum í
Trésmiðafélagi Reykjavíkur, en þar fékk vins'tri
listinn hærri atkvæðatölu en nokkru sinni fyrr og
munaði 63 atkvæðum á honum og íhaldslistanum.
Litla fréttin í hominu sýnir hins vegar framlag
Tímans til kosningabaráttunnar á sunnudaginn,
og mun ýmsum hafa þótt það gæti tæpast minna
verið!
Friðrik boðinn á 8 manna
stórmót í Bandaríkiunum
3. bókamarkaður
Bóksalafélagsins
Eins og frá hefur verið skýrt
í blöðum barst Friðriki Ólafs-
syni stórmeistara boð í vetur
um þátttöku í 8 manna stór-
móti í skák er haldið verður
í Los Angeles í Bandarikjunum
í sumar og hefur hann nú þeg-
ið boðið.
Mót þetta sem nefnist Piat-
kovskys Cup verður með líku
sniði og Dallasmótið sem Frið-
rik tók þátt í fyrir nokkrum
árum. Verða keppendur 8 að
tölu og tefld tvöföld umferð.
Há peningaverðlaun munu veitt
efstu mönnum, þannig á sigur-
vegarinn að hljóta að launum
3000 dollara.
Friðrik skýrði fréttamönnum
svo frá í gær, að hann hefði
nú fregnað hverjum boðin hefði
verið þátttaka í mótinu öðrum
en honum, og eru það engir.
aukvisar. Eru það þeir Botvinnik'
og Petrosjan frá Sovétríkjun-
um Fischer og Reshewsky frá
Bandaríkjunum, Panno og Naj-
dorf frá Argentínu, og Gligoric
frá Júgóslavíu. Hann kvaðst
hins vegar ekki vita, hvort þeir
hefðu allir þegið boðið.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu verður þaxma mikið
skákmannaval samankomið og
er Friðriki mikill sómi sýndur
með boði þessu.
I 1 dag hefst í Listamannaskál-
anum bókamarkaður Bóksalafé-
j lagsins. Þar verða á boðstólum
3000 bókatitlar frá rúmlega 45
forleggjurum. Áætlað er að á
markaðinum verði a.m.k. 20—
30.000 eintök.
Þetta er þriðja árið í röð,
sem efnt er til bókamarkaðs,
sem þessa. Útgefendumir standa
sjálfir að markaðinum, en bók-
salafélagið selur í umboði þeirra.
Aigengasti afsláttur er 50—60%,
en er í mörgum tilfellum ým-
ist meiri, eða minni.
Á síðasta markaði, sem hald-
inn var í fyrra, hurfu með öllu
um 100 titlar og a.m.k. 3 bækur
seldust í um og yfir 600 eintök-
um, það voru barnabækur. Ann-
ars seldust þjóðleg fræði einna
mest.
Að þessu sinni er um auðug
an garð að gresja eins og áður.
Bókunum er raðað á borðin eft-
ir efnisflokkum og er hver
flokkur merktur þannig að kaup-
endur eiga auðvelt með að átta
sig.
Bókamarkaður þessi mun
standa í 10 daga — hálfan
mánuð.
Tákknesk-ís-
'enzka félagið
sýnir kvikmyndina um
tékknesku þjóðhetjuna
Tulfus Fucik að Þingholts-
xtræti 27 kl. 8.30 í kvöld.
Félagar fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
t
L
4,