Þjóðviljinn - 03.04.1963, Blaðsíða 5
T
7
Miðvikudagur 3. apríl 1963
ÞJÓÐVILJINN
SÍÐA
Söguleg úrslit í II. deild
Ármann upp í fyrstu
deild í handknattleik
Dómarinn slítur leik 3 mín. fyrir leikslok
Þau tíðindi gerðust í úrslitaleiknum í ann-
arri deild, að dómarinn, Gunnlaugur Hjálmr
arsson, sleit leiknum 2—3 mín. fyrir leiks-
lok. — Stóðu leikar þá 24—22 fyrir Ármann.
Aðspurður sagði Gunnlaugur
að ástæðan fyrir þvi að hann
hefði stöðvað leikinn, hefði ver-
ið sú að þegar markmaður Vals
varði vítakast frá Herði, hefði
hann ekki verið 3 m.. frá víta-
kastmerkinu og því hefði hann
ætlað að láta endurtaka það.
Þá hefði Birgir B.iömsson þjálf-
ari Vals komið inn á völlinn og
mótmælt því og taldi sig benda
á staðinn sem markmaðurinn
hefðu verið.
— Ég óskaði þá að Birgir
yfirgæfi völlinn þegar í stað, en
hann tók því ekki vel. Sagði
ég honum þá að fara þegar úr
húsinu en hann neitaði, og var
þá ekkert fyrir mig annað að
gera en að slíta leiknum.
Fljótfæmi?
Þó segja megi að þýðingar-
laust hafi verið að mótmæla
þessum dómi Gunnlaugs, verður
ekki annað sagt en að það hafi
verið svolitið mannlegt í þess-
um jafna leik að Birgir skyldi
reyna að fá því afstýrt að víta-
kastið yrði endurtekið, þar sem
hann þóttist viss um að mark-
maðurinn hefði verið sína 3 m.
frá vítakastmerkinu. En að
sjálfsögðu er það dómarinn sem
þar er alls ráðandi. Það er líka
skiljanlegt að dómarinn vilji
ekki að verið sé að blanda sér
inn í þær ákvarðanir sem hann
tekur á ieikvelli. Hér virðist
sem Gunnlaugur hafi þó ekki
skynjað til fulls það mannlega.
þvi ef hann hefði gert það,
hefði hann gefið Birgi tækifæri
til að átta sig svolítið betur á
hlutunum. og gefið honum svo
sem i mínútu til að yfirgefa
völlinn. Ef það hefði ekki dug-
að. gat Gunnlaugur tekið til
sinna ráða. En þetta gerðist. allt
í einni svipan, og róleg yfir-
vegun komst bar ekki að, en
með slíkum viðbrögðum dómara
hefði vafalaust verið hægt að
leysa þetta leiðindamál þegar í
stað.
Nú má gera ráð fyrir að þetta
verði dómsmál gegn Birgi. og
svo verði liðin Ármann og Val-
ur að leika annan leik. þar sem
leiknum var slitið áður en leik-
tími var á enda.
Jafn og nokkuð góðm
leikur
Leikurinn var frá upphafi
nokkuð jafn. Valsmenn byrjuðu
að skora. komust i 2:0 og á 9
mínútu voru þeir komnir í 4:1
Ármenningar voru svolítið óró
legir og misstu leikinn um d
útúr höndunum. Þeim tekst bá
að ná sér aftur. og bilið minnk
aði heldur. og munar ek’ri
nema einu til tveim mörkuo'
Á 24. mín. tekst þeim a?
íafna, og taka forustuna.
Valsmenn iafna rétt fvrir leiks
iok og þannig lauk hálfleiknuo-
10:10.
1 sfðari hálfleik voru Ár-
menningarnir ákveðnari og
höfðu forushina allan tímann.
með 2—4 merira mun. Á 24.
mín. standa ’e’kar 22:18 fyrir
Ármann. en bá tpka Valsmenn
góðan s^rett oe á 26. mínútu
sjanda leikar 23:22 fyrir Ár-
mann. Bétt á. eftir skorar Ár-
mann 24, ma.rktð. oa síðan kom.
"tvikið har;, sem Egill ver víta-
kast frá Herði. sem var upp-
hafið að hinurn leiða endi
þessa leiks,.
Yfirleitt hafði maður það á
tilfinningunni að Ármenning-
arnir væru samstilltari og að
einstaklingar þeirra væru betri.
þó þeim tækist ekki verulega
að leika eins og sá sem valdið
hefur. Þó Valsliðið væri ekki
eins samstillt, áttu þeir oft lag-
legan samleik, og komu sterk-
ari í gegnum þennan leik en
almennt mun hafa verið gert
ráð fyrir.
Beztu menn Ármanns vor j
Hörður Kristinsson, Árni, Hans
og Lúðvík.
Beztu menn Vals: Sigurður
Dagsson, öm Ingólfsson og Eg-
ill í markinu. Bergur var full
skotgráðugur og skaut í tíma
og ótíma, og allra manna ör-
uggastur með vítaköst.
Gunnlaugur dæmdi yfirleitt
vel, en gaf sér ekki nægan tíma
þegar mest á reyndi, ög því fór
sem fór.
Keflvíkingar mættu ekki
leiks
Keflvíkingar áttu að keppa
við Breiðablik í annarri deild-
inni, en það fór sem oft áður
að þeir mættu ekki til leiks.
Var lið Breiðabliks látið bíða
tiltekinn tíma inni á leikvang-
inum, og síðan var þeim gefið
Framhald á 2. síðu.
k Eins og frá hefur verið
skýrt, stökk Bandaríkjamað-
jrjnn John Pennel 4,95 m-
i stangarstökki utanhúss fyr-
ir skömmu. Árangurinn verð-
ur samt ekki staðfestur sem
heimsmet, vegna þess að
Pennel lét fyrst hækka úr
4,90 í 5,05. Honum tókst ekki
að komast yfir 5.05 og lét þá
ækfka í 4,95. Pennel segist
kæra sig kollóttan um það
ívort met hans verði stað-
fest eður ei. Hann eigi áreið-
anlega eftir að stökkva enn
hærra. Pennel, sem er 22ja
ára, notar glerfiberstöng.
— ★ —
■k Heimsmeistararnir í knatt-
spyrnu — lið Brasilíu — tap-
aði tveim leikjum á meistara-
móti Suður-Ameríku í knatt-
spyrnu. Fyrst töpuðu þeir
fyrir Paraguay 0:2 og síðan
fyrir Argentínu með 0:3. í liði
Srasilíu eru nokkrir nýir
nenn. Það er athyglisvert að
Brasilia hefur ekki orðið Suð-
ur-Ameríkumeistari síðan
1949.
— ★ —
★ Bandaríska innanhússmeist-
j aramótið í frjálsum íþróttum
fór fram í New York fyrir
skömmu. Sovézku frjáls-
iþróttamennirnir, sem verið
iafa á löngu keppniferðalagi
i USA, tóku þátt í mótinu.
Valeri Brumel sigraði í há-
stökki — 2,22 m. og stökk
9 sm. hærra en helzti keppi-
aauturinn. John Thomas
(USA). Igor Ter-Ovanesjan
/ann langstökkið með 8.09.
★ Norski skíðastökkvarinn
Toralf Engan sigraði í alþjóð-
legri stökkkeppni sem háð var
í fyrradag í Rugtvedkollen
við Porsgrunn í Noregi. Engan
sem aðeins náði 18. sæti á
Holmenkollenmótinu, sigraði
nú helztu kappana sem sigr-
uðu hann þá.
Cr úrslitalciknum í II. deild í fyrrakvöld. Hörður Kristinsson
(Ármanni) skýtur að marki Vals, en Emi Ingólfssyni tekzt að
hafa hönd á knettinum. (Ljósm. Sv. Þormóðsson).
<$>-
Frjálsar íþróttir
12 heimsmet
LONDON 28/3 — Alþjóða-
frjálsíþróttasamb. staðfesti
í dag 42 ný heimsmet í
frjálsum íþróttum. Banda-
rískt frjálsíþróttafólk setti
15 þeirra, en sovézkt 10.
Þessi met voru nær öll sett
á árinu 1962. en nokkur voru
bó frá árunum 1961 og 1960
Sumum af þeim metum. sem
hér um ræðir, hefur nú vérið
hnekkt. Meðal metanna er.i
þessi:
100 jardar: Harry Jerome (Kan-
ada) 9.2 sek.
200 m. bein braut: Frank Budd
(USA) 20.0 sek.
800 m. hlaup: Peter Sne’.i
(Nýja Sjál.) 1.44.3 mín.
Míluhlaup: Peter Snell 3.54,4 m.
3000 m. hlaup: Michel Jazy
(Frakkland) 7.49,2 mín.
4xllð jarda boðhl: Oregon-há-
skóli (USA) 40.0 sek.
,ft0 m. grindahl.: Salvatore
Morale (Italíu) 49.2 sek.
"’stökk: Valeri Brumel (Sov-
étr.) 2.25 m. — 2.26 m. —
2 27 m.
Langstökk: Igor Ter-Ovanesian
(Sovétr.) 8.31 m.
Stangarstökk: Davies (USA)
4.83 m., Uelses (USA) 4.89 m.
Tork (USA) 4.93 m., Nikula
(Finnl.) 4.94 m.
Kúluvarp: Dallas Long (USA)
20.07 m.
Kringlukast: A1 Oerter (USA)
61.10 m., Vv Trusenev (Sov-
étr.) 61.64 m„ Oerter 62.45 m.
Sleggjukast: Hal Connolly
(USA) 70.67 m.
Af staðfestum, nýjum
kvennametum má nefna t.d.
80 m. grindahlaup: Betty Moor*
(Ástralíu) 10.5 sek.
Langstökk: Valentina Sjelkan
ova (Sovétr.) 6.53 m.
Kúluvarp: Tamara Press (Sov-
étr.) 18.55 m.
Kringlukast: Tamara Press
58.06 m.
Körfuknattleiks-
mötið í kvöld
I kvöld kl. 20.15 verður næst-
síðasta keppniskvöldið í Meist-
aramóti Islands í körfuknatt-
leik.
Leiknir verða tveir leikir og
verður sá fyrri milli IR og
b-liðs Ármenninga í VI. flokki.
Síðari leikurinn verður svo
leikur KRinga og KFR í meist-
araflokki og má þar gera ráð
fyrir skemmtilegum leik.
Knattspyrna
HMhefstá
næsta ári
Stanley Rous, formaður AI-
þjóða-knattspyrnusambandsins
(FIFA) hefur gefið blaðamönn-
um upplýsingar um næshx
heimsmeistarakeppni í knatt-
1966.
— Allt mótið verður miðað
við sjónvarp, sagði Rous, en
við vitum ekki enn hvaða vell-
ir verða notaðir Fyrst verð-
ur að athuga sjónvarpsaðstæð-
ur á hverjum stað. Aðeins er
ákveðið að það skuli ekki háð-
ur nema einn leikur á dag,
þannig að fólk geti fylgzt með
þeim öllum í sjónvarpinu. ^
Rous skýrði ennfremur frá''
því, að FIFA hefði gert samn-
ing við Evrópusjónvarpið (Euro-
vision) um að úrslitaleiknum
skuli sjónvarpað um alla
Evrópu. Samningar standa enn
yfir við sjónvarps- og útvarps-
stöðvar í öðrum hlutum heims.
Undankeppi hefst
á næsta ári
Heimsmeistarakeppnin verður
háð á 8 leikvöllum. Áformað
er að úrslitaleikurinn verði háð-
ur á Wembley-leikvanginum í
London 30. jiilí. Ef til þess
kemur áð létká þútfi' annan
urslitaleik til viðbótar, mun
hann fara fram 1. ágúst.
Allir leikir á mótinu verða
leiknir að kvöldlagi við flóð-
lýsingu.
Hinum ýmsu leikjum verður
dreift á Norðvestur-England,
Norðaustur-England, Mið-Eng-
land og London.
Undankeppnin, sem háð er
til að skera úr um það hvaða
Iönd komast í aðalkeppnina,
fer fram á tímabilinu 1. maí
1964 til 31 desember 1965.
Frestur til þátttökutilkynn
inga rennur út 31. des. í ár.
Ákveðið er að núverandi
heimsmeistarar, Brasilía, og
gestgjafalandið England, þurfi
ekki að taka þátt í imdan-
keppninni.
Ef Iið tveggja landa fá jafn-
mörg stig í einhverjum svæða-
riðli, verður ekki leikið til ún-
slita, heldur sker markahltrb-
fallið úr um það hvort E®ð
kemst í aðalkeppnina.
Rugby hættu-
legru en
hnefuleikur
„Dauðinn í hringnturf* hafcaí
verið á dagskrá undanfárið,
vegna fráfaHs bandarnsfea
hnefaleikarans Davey Maare
fyrir skömmu.
í nýrri bandarískri skýrsfa
kemur í Ijós, að hnefaleíkar <gsa
alls ekki mannskæðasta. fþrSön
þar í landL Bandarfskur áfk>ga=
knattleikur hefur krafizt helm-
ingi fleiri mannfóma á siðasta
ári.
Árið 1962 létust 26 memj í
USA vegna áverka á áflngaJ
knattledk (rugbyý. 13 báðu batca
vegna slysa í hnefaleikjum (þar
af 10 atvinnumenn). Þá léto óg
fimm menn lífið vegna elysa l
eftirlætisíþrótt Bandaríkja-
manna — basebalL
Engin af ofangreindum fötrrrri
getur talizt há, miðað vfð «2ya
af öllu tagi í Bandarfkjunam.
Myndurleg íþróttuhátíð Armunns
SI. sunnudag hélt Glímufélagið Armann fjölbreytta íþróttasýningu á Hálogalandi. Jens Guðbjöms-
son, form. Ármanns, settí hátíðina, en síðan sýndi íþróttafólk úr hinum ýmsu íþróttadcildum fé-
lagsins, m.a. fimleika, glímu, judo og frjálsar íþróttir. Háðir vom kappleikir í handknattleik og
körfuknattleik. Leikstjóri var Þorsteinn Einarsson. Sýningin fór hið bezta fram. Áhorfendur vora
eins marglr og húsrúm frekast leifði, enda einstætt hér á landi að fá tækifæri til að sjá svo fjöl-
breytta íþróttasýningu sem þessa. Myndin er af tveim stúlkum úr fimlelkaðesm fóia<rsins á sýnin*-
unni. (Ljósm. S veinn Þormóðsson)