Þjóðviljinn - 21.04.1963, Síða 4
4 SlÐA
Ctgefandi: Sameimngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk
urínn —
Ritstjórar: ívar H. Jónsson Magnús Kiartansson. Sigurð
ur Guðmundsson (áb)
Fréttaritstjórar: Jón Biarnason Sigurður V Friðbiófsson.
R'tr ' '• -'■■'’,vsingar orentsmifiía Skólávfi’-ðust 19
Simi 17-5nn '5 línur) Áskr1'ftarvprfi kr 65 á mámifii
Réttmmorð
yasistastjórnin á Spáni hefur bætt einu réttar-
morði enn við blóðferil sinn. Þrátt fyrir mót-
mælaöldu sem risið hafði víða um heim gegn því
að spánski verkalýðsleiðtoginn og kommúnistinn
Julian Garcia Grimau væri tekinn af lífi, fram-
kvæmdi Francostjórnin böðulsverkið, og safnar
þar með enn glóðum sektar og dóms að höfði sér.
Minning Julian Grimau, glíma hans við böðlana
sem málsvari hinnar þrautpíndu og kúguðu
spænsku alþýðu, mun verða fasistum Spánar örð-
ug viðureignar. Hugrekki hans og metnaður, yfir-
lýsing hans andspænis böðlum sínum og spænsku
alþýðunnar, að hann hefði lifað sem kommúnisti
og myndi deyja sem kommúnisti, eiga eftir að
hljóma sem heróp og hvatning fyrir þúsundir og
loks milljónir Spánverja sem fyrr eða síðar sam-
fylkja gegn blóðveldi Franco-stjórnarinnar.
Fasismahættan
það er við hæfi að einmitt þessa dagana éndur-
tekur fasistastjórnin spánska áróður sinn fyrir
inngöngu í Atlanzhafsbandalagið. Rök Francos
eru einföld: Var ekki Atlanzhafsbandalagið stofnað
til þess að berjast gegn kommúnismanum? Hefur
það ekki alltaf tálið þá baráttu sér til gildis um-
fram allt annað? Og hefur nokkur staðið sig betur
í þeirri baráttu, en einmitt fasistastjórn Spánar?
Þessi rök hefur Bandaríkjastjóm líka tekið gild,
með því að gera hernaðarbandalag við Spán, kaupa
sér herstöðvar á Spáni, og veita Francostjórninni
alla hugsanlega stoð til þess að hanga í völdum.
Og fleiri aðilar Atlanzhafsbandalagsins hafa gert
gælur við þá hugmynd að fasistastjóm Francos sé
þar verðugur félagi.
þannig gæti það gerzí áður en nokkurn varði að
ísland væri einnig komið í hernaðarbandalag
við fasistaríkið Spán, ef þeir menn á íslandi fara
hér áfram með völd, sem ofurselt hafa ísland Atl-
anzhafsbandalaginu. Morgunbl. fór ekki dult forð-
um daga með aðdáun sína á baráttu fasistanna, sem
myrtu spánska lýðveldið með herforingjauppreisn
og hernaðarmætti Hitlers og Mússolínis. Og nú
hefur Sjálfstæðisflokkurinn innbyrf íslenzku naz-
istana og þeim verið ýtt til mikilla áhrifa í flokkn-
um, enda þótt ekki hafi þótt frambærilegt að láta
aðalnazistasprautuna, Birgi Kjaran, prýða þing-
flokkinn lengur, þó hann fengi að setja fyrir sig
annan nazistafélagsbróður. Það eru sennilega
unglingar sem sendir eru út á göturnar á afmæl-
isdegi Hitlers til að líma á húsin í Reykjavík
miðana með hakakrossi og áletruninni: „Hitler
hafði rétt fyrir sér“. En gömlu nazisíarnir, sem
enn í dag eru jafntrúaðir nazistar og fyrr, hreiðra
um sig í Sjálfstæðisflokknum, undir sérs't’akri
vernd Bjarna Benediktssonar, mannsins sem
þýzku nazistarnir buðu forðum að horfa á aftöku
til dægrastyttingar. Það er í fullu samræmi
við hinn hysteríska áróður íslenzka afturhaldsins
með göbbeJska vígorðinu um „baráttu gegn komm-
únismanum", en undir þeirri sauðargæru eru unn-
in hin verstu níðingsverk gegn lýðræði og frelsi
víða um heim. — s.
ÞI6DVIUINN
Skákþing Islands 1963
Skák'þing íslands 1963 fór
sem kunnugt er fram dagana
5.—15. apríl sl. í Breiðfirðinga-
búð. Þátttaka var óvenjumikil
eða 67 keppendur alls. Gefur
það til kynna, að áhugi fyrir
hinni þroskandi þstgrein, skák-
inni, fer stöðugt vaxandi hér
á landi.
Þátttakendur skiptugt svo í
flokka, að í landsliðsflokki
kepptu 12, í meistaraflctkki 23
í sameinuðum 1. og 2. flokki
18 (þar af 6 1. fl. menn) og
í unglingaflokki 14.
Er sérstaklega ánægjulegt að
sjá, hvernig æskan þyrpist
undir merki skákarinnar.
Sigurvegari í landsliðsflokki
varð Ingi R. Jóhannsson, hlaut
9 vinninga af 11 mögulegum,
tapnði engri skák. Var hann
greinilega öruggasti keppand-
inn. þótt tölulega séð sé sigur
hans fremur knappur.
Hugsanlegt er, að hann hefði
getað náð hærri vinningatölu
ef hann hefði lagt sig fram
af offorsi. en það gat auðvit-
að verið tvíeggjað og jafnvel
kostað hann efsta sætið. Þvi
hefur Ingi vafalaust tekið
rétta stefnu, er hann ákvað
að reisa sér ekki hurðarás um
öxl með því að hafna skynsam-
legri leiðsögu varfærninnar.
Þetta er í fjórða sinn sem
Ingi vinnur titilinn skákmeist-
ari fslands. Hin skiptin voru
árin 1956, 1958 og 1959. Má
ugglaust telja að þegar Frið-
rik Ólafsson er frátalinn. þá
sé Ingi í sérflokki meðal ís-
lenzkra skákmanna hvað styxk-
leika snertir.
Þátturinn hefur svo oft rætt
um Inga R. Jóhannsson. tafl-
mennsku hans. skákstíl. og önn-
ur einkenni að hann fer ekki
frekar út í þá sálma að sinni.
En ekki vill hann láta hjá
lifia,'‘ að ósKa hinum nýja
meistsíra til hamingju með tit-
ilinn.
Hvað viðkemur öðrum kepp-
endum. þ.á er frammistaða
Jóns Kristinsso.nar langathygl-
isverðust, en hann hreppti
annað sætið 0;g hlaut aðeins
hájfum vinningí minna en
sjálfur meistarinn. Glöggir
menn hafa leng} þótzt sjá mik-
ið skákmannsefnj í Jóni, enda
hefur frammistaða hans, skák-
stíll og skapgerð gefið gott til-
Jón Kristinsson
efni til þess. Jón teflir í ró-
■legum stíl, ætlar sér ekki of
mikið, en heldur vel á sínu.
Minnir hann í mörgu á Guð-
mund S. Guðmundsson skák-
meistara, þótt enn sé of
snemmt að spá um það. hvort
hann nær þeim heljarstyrk-
leika, sem Guðmundur bjó yf-
ir á árunum 1945—1955. Flest
rök hniga þó að þvi, að Jóns
bíði mikill frami í skákinni.
Magnús Sólmundarson náði
3. sæti og hlaut 7 vinninga
Magnús hefur stöðugt verið
að sækja á brattann síðustu
3 árin og er nú að komast í
hóp öruggustu skálimanna
okkar. Magnús hefur góða
skákhæfileika og tekur hlut-
verk sitt auk Þess alvarlega
og nær því góðri hæfileika-
nýtingu. Þetta er bezti árang-
ur Magnúsar fram til þessa.
Þeir Benoný, Freysteinn og
Jónas Þorvaldsson urðu jafn-
ir í 4.—6. sæti með 6 vinn-
inga. Munu þeir verða að tefla
til úrslita um 4. sætið, en
landslið okkar er nú einung-
is skipað fjórum mönnum,
sem kunnugt er. Ekki mun
enn afráðið hvenær eða hvar
sú keppni fer fram.
Svo maður víki nánar að
frammistöðu þeirra þremenn-
inga, þá má segja um Benóný,
að hann tæki ekki við sér
fyrr en nokkuð tók að líða á
mótið., Sýndi hann í byrjun
öll merki æfingarleysis og galt
þess í fyrstu skákunum. Mun
stæðmga sína nokkuð, en hon-
um hættir oft til þess.
Með miklu viljaþreki og ein-,
beitingu allra krafta tókst
honum að rétta svo hlut sinn
í síðari hluta mótsins, að hann
náði þokkalegri útkomu.
Freysteinn fór allvel af stað.
en varð aflfátt gegn þremur
efstu mönnunum, og tapaði
fyrir þeim öllum. Margir
héldu, að aðalbaráttan myndi
standa millj Inga og Frey-
steins, en sú varð eigi raun-
in. Líklega geldur Freysteinn
þess að nokkru, að hann hef-
ur síðustu árin verið fjarri
skáklifi höfuðstaðarins og
þannig ekki í jafnnáinni snert-
ingu og áður við strauma og
stefnur nýrra tíma.
Hinsvegar mega Norðlend-
ingar vel við una frammistöðu
meistara síns og er Freysteinn
góður fulltrúi góðrar og gró-
innar menningar.
„Ég er sterkastur allra mið-
að við styrkleika". sagði karl-
inn. sem frægt er orðið. Að
nokkru leyti mætti líklega
heimfæra þetta uppá Jónas
Þorvaldsson. með fyrirvara þó,
og án nokkurrar niðrandi
merkingar. Jónas er afburða-
keppnismaður og leggur si§
jafnan allan fram. Styrkleika
sinn nýtir hann því oftast til
hins ýtrasta. Hinsvegar er Jón.
asi ekki sérstaklega létt um
að tefla og ýmis tæknileg
vandamál yalda honum stund-
um óeðlilega mjklum heila-
brotum.
Sjálfsagt getur Jónas bætt
sig verulega, með því að rann-
saka skák meira og vísinda-
legar en hann mun hafa gert
til þessa.
Um úrslit i innbyrðiskeppnj
beirra þremenninga þori ég
engu að spá. Það mun verða
hörð keppni. því eitt eiea þeir
sameiginlegt. þótt ólíkir séu
i mörgu: að láta ekki hlut
sinn fyrr en í fulla hnefana.
Sjöundi varð Helgj Ólafs-
son með 5]Æ vinning. Er þafi
sérstaklega góð frammistaða
þegar tekið er tillit til reynslu-
leysis hans í svo sterkum
mótum. Er ástæða til að spá
honum glæsilegum skákferli,
ef hann gefur sig af alúð við
skáklistinni í framtíðinni.
í 8.—11. sæti urðu svo Björn
Þorsteinsson, Jón Háilfdánar-
son, Gylfi Magnússon og Bragj
Kristjánsson með 4 vinninga
hver.
Ýmsir munu hafa ætlað
Bimi Þorsteinssyni stærfi hlut
og var það ekki að ófyrirsynju,
miðað við það. að hann var
annar á skákþingi íslands í
fyrra. En stríðsgæfan er dá-
lítið völf á stundum, og fékk
Bjöm að reyna það nú.
Hinir ungu meistarar Jón
Hálfdánarson og Bragi Krjst-
jánsson, sækja stöðugt á bratt-
ann, og sama má raunar segja
um Gylfa Magnússon, þótt
hann tilheyri öðrum aldurs-
flokki.
12. með 2 vinninga, skortir
ennþá mjog reynslu og einnig
, skákfræðilega þekJsingu. Il.ins
vegar hefur hann gott auga
fyrir skák og er oft mjög hug-
kvæmur.
í meistaraflokkj urðu þeir
Hilmar Viggósson og Gísli
Pétursson hlutskarpastir með
6V2 vinning hvor.
Fá þeir báðir landsliðsflokks-
réttindi. Af fyrstaflokksmönn-
um varð Ólafur Bjömsson
hæstur með 5% vinning af 7
og flyzt uppi meistaraflokk.
Þeir Andrés Fjeldsted og
Helgi Hauksson urðu efstir af
annars flokks mönnum með
4V2 af 7. Flytjast þeir upp í
1. flokk.
Sigurvegari í unglingaflokki
varð Jón Briem með 6% vinn-
ing af 7 mögulegum.
Mótsstjóri á mótinu var
Gísli ísleifsson. Skákstjóri var
Eiður Gunnarsson. (
— * —
Hér kemur svo skák úr ann-
ari umferð i Landsliðsflokki.
Hvítt: Bragi Björnsson
Svart: Benóný Benediktsson
Spánskur leikur.
1. e4, e5: 2. Rf3. Rc6: 3 Bb5.
Rc5 (Benóný blæs þama ryk-
ið af gamalli varnarleið í
spænskum leik. sem er senni-
lega ekki sú lakasta).
4. c3. Df6 (Þessi drottning-
arleikur er einkennandi fyrir
Benoný. Drottninain hans
sækir yfirleitt mjög til f6,
þegar hann leikur svörtu
mönnunum. Leikurinn er þó
ekkí heppjlegur. enda er oft-
ast varhugavert að leika
drottningu fram á borðið svo
'nemma tafls.)
5. 0—0 (Skákfræðingar telja
baekvæmara fyrir hvítan að
’eika 5. d4. Á þann hátt not-
færir hann sér betur óheppj-
’ega stnfiu svörtu drottningar-
innar. Td 5 d4. exd4: 6. e5.
Hgfi (nkki fi — — R,xe5 v°gna'
7. De2 O.s.frv.) 7. nvd4 Rh4t-
8. Rc3, d5; 9. 0—0, Rg-e7. 10.
Helgi Ólafsson og Bragi Kristjánsson sitja yfir skák sinni á
Skákþingi Islands.
hann líka hafa vánmetið and-; Bragi Björnssori, sem' várð
Sunnudagur 21. apríl 1963
Ingi R. Jóhannsson
Db3 og hvítur stendur vel.
(Pachmann) ).
5. — — Rg-e7; 6. d3 (Með
þeirri rólegu taflmennsku sem
hvítur beitir, .vanrækir hann
ekki einungis að gera svörtu
drottninguna að skotpúnkti
manna sinna, heldur gerjr
taflmennska hans það að verk-
um. að drottning svarts verð-
ur aðaldriffjöðrin í sterklega
byggðu ígu’virki sem áður en
langt um líður, verður unp-
hafspunktur sóknar gegn
hvítu kóngsstöðunni.)
6----- h6: (Hindrar Bg5 og
undirbýr 35).
7. Be3. Bb6: 8. d4 0—n. 9.
d5 (Það er naumast hag-
kvæmt fyrir hvítan að s]aka
þannig á spennunni á miðborð-
inu. Vjð það fær svartur
friálsari hendur til aðgerða á
kóngsarmi. Betra sýnist að
leika 9 Ra3 'og leika FÍð-sn
riddavanum eftir atvikum til
c4 eða c2)
9. — — Rb8; 10. Rb-d2. d6;
11 Hel g5: (Benoný skvnior
glögglega hvernjg landið 'li.se-
ur. Sóknarmösulejka sést hon-
um sjaldan yfir. þegar ]ínur
eru iafn skvrar bér' er.)
12. Rfl. Rg6: 13. «3 (Plæm
veiking á kóngsstöðunni.
Sennilega var bezt fyrir bv't-
an að skipta á b6 og lejka
síðan Re3).
13. — — Kh7. 14. Rf3-d?.
Hg8; 15. Be2 Rd7: 16 B'-l
(Líklega var ekki laka-ra =>ð
leika 16 Rf3 og siðan eftir at-
vikum Bg2).
16. — — Rc.ð: 17. Bxe8.
Haxc8; 18. Rc4 (Braaa sést vf.
ir beztu varnarúr’áusnina.
enda lætur homim betur að
tefla sókn en vörri. Betra v=r
18. Df3. T.d 18 — — Rf4;
19. gxf4, gxf4t: 20. Khl. Dgfi;
21. Rg3 o.s.frv.)
18. -----Rf4! 19. Bxe5 (Nú
verður kóngsbiskup svarts
m.iög unnábreneiandi 19. D"2
var betra).
19. — — Bxc5 (Nú er neð-
ið á f2 vandræðabarn sem
ekkí verður varið). ■
20. sxf4. sxf4+: 21. KM. Hsfi;
22 Rg3 Bvf2: 23 He? fvs.3.
24. hxg3. Dxg3 — og Bragi
gafst upp.
HIÐ ISLENZKA
B6KMENNTAFELA6
heldur aðalfund í Háskóla. ts-
lands, laugardaginn 27. aprfl.
n.k. kl. 3 e.h.
Dagskrá skv. félagslögum.
STJÓRNIN.
6Icymið ekki að
ntynda barnið
Laugavegl 2.
simi 1-19-8«.
I