Þjóðviljinn - 21.04.1963, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 21.04.1963, Qupperneq 8
Sunnudagur 21. aPríl 1963 ÞJÓÐVILIINN SÍÐA rí Háhýsin bæði óþörf, of dýr og jafnvel heilsuspillandi Á undanförnum árum hafa verið byggð nokkur há- hýsi hér í Reykjavík, en svo kallast orðið þau hús sem eru tíu hæðir eða hærri. í slíkri húsnæðiseklu og þeirri sem við höfum orðið við að búa undanfarin mörg ár er það sjálfsagt að þeir sem fengið hafa íbúð í þess- um húsum hafa prísað sig sæla. En er það nú víst, að rétt sé í okkar landi að byggja á þennan hátt? Nóg er landrýmið og þótt útsýnið kunni að vera fagurt úr efri hæðum þessara húsa, er ekki víst að það vegi upp á móti þeim ókostum sem eru á því að búa þar. Það finnst fólki a.m.k. í nágrannalöndunum og verður hér sagt nokk- uð frá viðhorfi manna þar. Norðmenn sem hafa byggt mikið af slíkum húsum kalla þáu t.d. folkesilo, sem mætti kannski þýða með „manna- hlöðu“ á íslenzku. (silo þýðif því sem næst súrheystum'). Af því orði verður þegar ljóst hverjum augum almenningur í Norogi lítur í slík hús. en þó er eftir að vita hvernig sjálfir íbúar húsanna líta það mál. Enginn veit reyndar neitt með vissu um hvernig fólk kann við sié í slíkum húsum (nema vita- skuld það fólk sem í þeim býr). og því hafa verið gerðar skoð- anakannanir í Svíþjóð og Bret- landi í því skyni að komast að raun um hvað háhýsisbúar hefðu af dvöl þar að segja. Það sem hér fer á eftir er að nokkru leyti byggt á þeim. \í hverju háhýsi? Hvers vegna eru byggð hús uppá tíu hæðir eða meira? Til Andrés önd kynnir krakkamyndir Sæl, krakkar mínir. ! dag ættuð þið að fara með litlu systkinin ykkar í Austur- bæjarbíó klukkan hálftvö, þvi að þar er sýnd bráðskemmtileg og falleg mynd bæði fyrir yngri og eldri krakka. Hún heitir Rauða blaðran og þau ykkar sem lesa Óskastundina kannast þegar við söguþráðinn, en ann- ars ætla fóstrumar sem sjá uni kvikmyndasýninguna í þetta sinn líka að lesa upp sögun.a áður ,en myndin hefst. Fyrir utan Rauðu blöðruna mæli ég svo með myndunum í Hafnarfirði og Kópavogi. Bæjarbíó sýnir ljómandi rúss- neska ævintýramynd í litum. Gamla töframanninn, hún er sniðin eftir sögu úr 1001 nótt og fjallar um anda í flösku, sem strákur nokkur fiskar upp úr ánni Volgu. Myndin er með íslenzkum skýringum og það er myndin í Kópavogsbfó líka. Mjallhvít og dvergamir sjö. sem ég hef talað um áður. Teiknimyndasafn í Hafnar- fjarðarbíó er líka bráðskemmti- leg mynd. Því miður hef ég ekki pláss í blaðinu í dag til að segja ykk- ur nánar frá myndunum í hin- um bíóunum. Ég reyni að segja ykkur betur frá jaeim næst og tel þser bara upp núna. Þetta eru 1001 nótt í Stjörnubíó, Hve glöð er vor æska í Tóna- bíó, Ævintýri indíánadrengs í Nýja bíó. Regnboginn yfir Tex- as (Roy-mynd) í Laugarásbíó og síðast en ekki sízt er svo Barnagamanið í Háskólabíó í síðasta sinn í dag og þang- tír Rauðu biöðrunni. að ætti að leyía litlu börnun- um ef þau hafa aldrei farið. Bless Andrés. Óþörf, of dýr og jafnvei heilsuspiilandi? þess geta legið tvær ástæður: Önnur væri sú (sem er sú skynsamlegri) að slík hús væri ódýrari en önnur hús. Hin væri sú að íbyggjehdur slíkra húsa liði þar betur en í hinum sem færri hafa hæðirnar. Nú er það niðurstaða ný- gerðrar athugunar í Dan- mörku að það borgi sig ekki að byggja hærri hús en 4—5 hæða. Hvað mættum við þá segja sem höfum ódýrustu lóð- ir heims, eða a.m.k. mesta landrými nokkurrar þjóðar-' Því höfuðástæða þess að menn byggja há hús erlendis er sú að lóðirnar eru svo dýrar að það verður að nýta þær. Þótt bankar og aðrar slíkar stofr,- anir kaupi lóðir í miðbænum f.yrir milljónir eða iafnvel tugmilljónir, höfum við nóg landrými, svo að þess vegna væri engin ástæða til að byggia beint upp í loftið. Er það þá ódýrara að byggja uppávið? Á Norðurlöndum hefur há- húsunum verið talið það einna helzt til gildis, að þau spöruðu lóðarkostnað. Ekki ætti því að vera til að dreifa í landi sem er dreifbýlast allra landa í Ev- rópu. Því aöeins er það ódýr- ara að byggja slík hús, að lóða- verðið sé hátt. Samkvæmt því ættu þau háu hús sem hér hafa verið reist að hafa verið byggð í miðbænum. En það hefui veriö öðru nær. Þau standa öli þar sem lóðirnar eru ódýrastar og þeir sem búa í þeim verða síður en svo varir við að þa’.i séu ódýrari en önnur. Grænir fletir og leikpláss Hin ástæðan til bess að há- hýsi eru byggð er sú, að með því ætti að verða -til nægilegt pláss handa börnunum að leik? sér á og handa þeim fullorðn.’ að gleðja sín augu við — að ó- gleymdum bílastæðunum. Svo langt gekk sú hugsun. að einn frumlegasti arkítekt okkar daga lét, byggja hús fyrir bor^ á borð við hálfa Reykjavík. þar sem enginn borgarbúi þarf að ganga út fyrir hússins dyr: séð er fyrir öllum „þörfum" hans innan hússins veggia. í staðinn hafa íbúamir útsýni yfir fagur- græna og sólbakaða fleti. Ibú- endur hárra húsa Re.ykjavík- ur vita hvernig þvi er varið hér — Þótt það sé ef til. vili nokkur bót i máli að fjalla- hringurinn er fagur. Háhýsi „með ski!yrði“ Sennilega gætum við lært nokkuð af Svíum' í þessum efn- um. Þar í landi fær nú enginn að reisa háhýsi nema að hann hafi sannað að slíkur bygging- „aimáti sé sá hagkvæmasti á beim stað. sem um er að ræða. Reynslan hefur sýnt, að það er ákaflega erfitt að færa sannanr ‘ir fyrir því. og það ér trúa þess sem þetta ritar að að værí er.n erfiðara hér á landi. Heilsuspillandi? Danskur iæknisprófessor. Poul Bonnevie. sérfræðingur j Framhald á 9. síðu. Þetta er boröstofusett hinna vandídfu I Teiknsð af Sigvalda Thordarson Framleitt af,, Helga Einarssyni“ Vönduð vinna og valið eíni er ein- kenni þessa glæsilega setts. Það er framleitt úr tekki og reyktri eik. Þetta sett er án efa í flo.kki þess bezta sem hér hefur verið framleitt. Fást hjá HALLARMÚLA — SÍMI 38171. °g Skeifunni KJÖRGARÐI — SlMI 16975.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.