Þjóðviljinn - 28.04.1963, Blaðsíða 1
Fulltr. og trúnaðarráðsfundur
Sameiginlegur fundur fulltrúaráðs og trúnaðarmannaráðs Sósíalista-
félags Reykjavíkur verður haldinn annað kvöld, mánudag, kl. 20.30 í
Tjarnargölu 20. Mjög áríðandi mál á dagskrá. —
Stjórnin.
Listi Alþýðubandaiagsins í Norðurlandskjördæmi vestra
Ragnar Arnalds Haukur Hafstað Þóroddur Guðmundsson Pálml Sigurðsson Skúli Magnússon
ViSfal v/ð fðvarð SigurfSsson, formann 1. mai nefndar verkalýSsfélaganna
Mjölnir, blað Alþýðu-
bandalagsins í Norður-
landskjördæmi vestra,
birti s.l. miðvikudag
framboðslista Alþýðu-
bandalagsins í kjördæm-
inu við alþingiskosning-
arnar 9. júní n.k. Listinn
er þannig skipaður:
1. Ragnar Arnalds, Siglufirði
Z. Haukur Hafstað bóndí,
3. Þóroddur Guðmundsson,
Siglufirði
4. Pálmi Sigurðsson verka-
maður, Skagaströnd
Vík Skagafirði
5. Skúli Magnússon verk-
stjóri, Hvammstanga
6. Þórður Pálsson bóndi,
Sauðanesi A-Hún.
7. Haraldur Hróbjartsson
bóndi, Hamri Skagafirði
8. Óskar Garibaldason form.,
Vmf. Þróttar Siglufirði.
9. Hólmfríður Jónasdóttir
form. Vkf. Öldunnar
Sauðárkróki
10. Gunnar Jóhannsson al-
þingismaður, Siglufirði
Öðinn í brösum
við þrjózkan
landhelgisbrjót
Kröfugöngur verou ekki lugðarniður
á 40 áru uhnæli 7. muí
• Þeir menn sem nú
ráðska í nafni Fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélaganna
í Reykjavík hafa rofið
áratuga hefð um undir-
búning há'tíðahaldanna
og hyggjast afnema 1.
maí sem baráttudag og
kröfudag reykvískrar al-1 komu fyrir íhaldið og
þýðu, .en gera hátíðahöld viðreisn þess og Alþýðu-
dagsins að hallelújasam-1 flokksins.
Hneykslisúthlutun Ihalds
og krata
Othlutun byggingarlóða undir /j
14 sambýlishús, sem reist verða tc.
á Háaleiti, fór fram á fundi borg-
arráðs í fyrradag.
Þessi lóðaúthlutun, sem sam-
þykkt var af íhaldinu og full-
trúa Alþýðuflokksins er rakið
hneyksli.
Hér koma örfá dæmi:
1
Þrír bræður, Ingólfur, Aðal-
stcinn og Guðmundur Guð-
mundssynir (kenndir við Hólakot)
fá lóðir undir 40 íbúðir!
2
Leifur Sveinsson timbur-
kaupmaður í Völundi fær
lóð undir 8 íbúðir.
3
Jón Ellert Jónsson bifreiða-
stjóni, Rauðagerði 14, fær
lóð undir 8 íbúðir.
Byggingameistarar, sem eru
utanbæjarmenn og ekki
reykvískir skattþegnar, fá aðild
að Ióðum undir 22 íbúðir.
Byggingasamvinnufélögin, hóp-
ar manna, sem sóttu um lóðir til
að byggja yfir sjálfa sig, svo og
fjöldi reykvískra byggingarmeist-
ara. sem lengi hafa stundað í-
búðabyggingar, fá ýmist lélega
afgreiðslu eða enga. Þannig var
t.d. sniðgengin umsókn frá bygg-
ingarfélaginu Framtak undir 16
íbúðir fyrir félagsmenn þess og
6vipaða sögu er að segja um aðra
umsækjendur.
Listi yfir þessa hneykslanlegu
úthlutun verður birtur hér í
blaðinu eftir helgina. Guðmundur
Vigfússon, fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í borgarráði, neitaði að
eiga nokkra aðild að úthlutun-
inni, þegar séð var, að hverju
fór.
• Reykvísk alþýða
mun þó enn sem fyrr
fylkja sér í kröfugöngu
og á útifund, sem 1. maí
nefnd verkalýðsfélag-
anna boðar til, þar sem
minnzt verður fjörutíu
ára afmælis hátíðahalda
í Reykjavík 1. maí með
því að bera fram kröfur
alþýðu í hagsmunabar-
áttunni og sjálfstæðis-
kröfur þjóðarinnar.
• í viðtali við Eðvarð
Sigurðsson, form. Verka-
mannafélagsins Dags-
brúnar og formann 1.
maí nefndar verkalýðs-
félaganna á 2. síðu blaðs-
ins í dag er rætí um að-
draganda 1. maí og und-
irbúning hátíðahald-
anna.
Um ki. 6 í gærmorgun kcjm
varðskipið Óðinn að brezkum
togara er var að taka inn veið-
arfærj innan landhelgislinunnar
út af Skaftárósi. Varðskipið
reyndi þegar að hafa samband
við togarann en hann fékkst
ekki til að svara því og sinnti
engu aðvörunum varðskipsins.
Sigldi varðskipið togarann uppi
en hann þvældist fyrir og rák-
ust skipin á án þess þó að
alvarlegar skemmdir hlytust af.
Varðskipið hélt sig síðan við
hlið togarans í gær og stóð enn
í stappi milli þeirra er blaðið
hafði samband við landhelgis-
gæzluna síðdegis í gær skömmu
áður en það fór í prentun.
Var brezkt herskip þá einnig
komið á vettvang og fylgdist
með því sem fram fór. Togar-
inn er frá Aberdeen.
Fidel Castro i Sovétríkjunum
—Sjá frétt á 12. síiu
Enn snarpur jarð-
skjálfti nyrðra
Allmikil jarðhræring
varð í nótt kl. 3.43 og
eru upptökin 260 km.
frá Reykjavík og með
samanburði við jarð-
skjálftamæli á Akureyri
má sjá að upptökin
munu vera fyrir mynni
Skagafjarðar, — norður
af Málmey.
Þetta er allmiklu minni jarð-
skjálfti en varð kl. 23.16 þ. 27.
marz en líklega þriðji stærsti
síðan jarðskjálftamir byrjuðu á
þessu svæði. Þessa jarðskjálfta
varð vart á Blönduósi, Sauðár-
króki, Sigíufirði, Ólafsfirði, Dal-
vík, Akureyri, Grenivík og lít-
ilsháttar í Grimsey, Snarpastui
mun hann hafa verið ó Blöndu-
ósi og Grenivík.
Margt fólk á þessu svæði
vaknaði upp með andfælum og
ætlar þetta að verða leið uppá-
koma á Norðurlandi f vetur og
vor.