Þjóðviljinn - 01.05.1963, Qupperneq 1
Miðvikudagui; 1. maí 1963 — 28. árgangur — 97. 'tölublað.
Þrefalt blað í dag - 1. maí
Þjóðviljinn er í dag, 1. maí, samtals 28 síður — tvö 8 síðna blöð
og eitt 12 síðna blað. Lesendur eru vinsamlega beðnir að athuga,
að frá öðru aukablaðinu var gengið og það prentað áður en ákveð-
ið var í gærdag, að sfækka blaðið enn úr 24 síðum í 28 vegna mik
ils magns auglýsinga og efnis. Voru þá ekki 'tök að breyta klaus-
unni efs’t á forsíðu þess blaðs.
VARÐSTAÐA UM MANNRÉTTINDI! - SÓKN TIL BÆTTRA LÍFSKJARA!
ALLIR MEÐ í krðfugöngu
verklýðsfélagunno
1 dag minnist alþýða Reykjavíkur 40 ára afmælis fyrstu kröfugöngunnar, sem farin var
hér á landi með því að f jölmenna í kröfugöngu verkalýðsfélaganna, sem hefst við Iðnó kl.
2 og á útifundinn við Miðbæjarskólann.
Vinnandi fólk fylkir sér um 1. maí-ávarp og kröfur Alþýðusambandsins,' sem 1. maí-nefnd
verkalýðsfélaganna hefur gert að sínum kröfum. í kröfugöngunni verða m.a. bornar þessar aðal-
kröfur: Kauphækkun, styttri vlnnutíma — Burf með yinnuþrælkunina — Dagvinnan verður að
tryggja lífskjörin — Verndum félaga’frelsið — Verndum sjálfstæði íslands — Enga aðild að Efna-
hagsbandalaginu — Engin hernaðarbandalög — Allsherjarafvopnun.
EðvarS Sigiirðsson
Jón Snorri Þorleifsson
Björn Þorsteinsson
Jón Pétursson .
Hannibal Valdimarsson
Mætið öll í kröfu-
göngu verkalýðsfélag-
anna við Iðnó stund-
víslega kl. 2 í dag.
Voldug kröfuganga og ^
glæsilegur útifundur við
Miðbæjarskólann er verðugt
svar við þeirri fyrirætlun
klofningsmannanna að leggja
niður 1. maí-kröfugönguna á
40 ára afmæli hátíðahald-
anna þennan dag. Með þátt-
töku í kröfugöngunni frá
upphafi getur vinnandi fólk
sýnt afturhaldinu að það er
ráðið í að standa vörð um
réttindi sín og sækja fram
til bættra lífskjara.
Hátíðahöld 1. maJ-nefndar
verkalýðsfélaganna hefjast með
því að safnazt verður saman við
Íðnó ki. 2 e.h. og haðan verður
lagt af stað í kröfugönguna.
Gengið verður um Vonarstræti,
Suðurgötu, Aðalstræti, Hafnar-
stræti Hverfisgötu. Frakkastíg,
Skólavörðustíg, Bankastræti og
Lækjargötu að Miðbæjarskólan-
um, en þar hefst útifundur að
göngunni lokinni. Lúðrasveit
verkalýðsins og Lúðrasveitin
Svanur leika fyrir göngunni og
á útifundinum.
Otifundurinn við
Miðbæjarskólann
Ræðumenn á útifundinum
verffa: Eðvarff Sigurðsson, for-
maffur Dagsbrúnar, Bjöm Þor-
steinsson, sagnfæðingur, Jón
Pétursson, símamaður og Hanni-
bal Valdimarsson, forseti AI-
þýffusambands íslands.
Fundarstjóri verður Jón
Snorri Þorleifsson, formaffur
Térsmiffafélags Reykjavíkur.
Merki dagsins merki Alþýðu-
sambands íslands, verður selt á
götum borgarinnar og kostar kr.
10.00.
Mótmælið gerræði
útvarpsráðs
Sérstök ástæða er til þess að
vekja enn athygli á þeirri ó-
svífni afturhaldsins að meina
Alþýðusambandi íslands aðgang
að úfcvarpinu á þessum hátíðis-
degi verkalýðsins og fella niður
ávarp forseta Alþýðusambands-
ins. Rödd verkalýðssamtakanna
má ekki heyrast í útvarpinu á
hátíðisdegi verkalýðsins og mun
það einsdæmi í lýðfrjálsum
löndum. Það er bví enn ríkari
Framhald á 4. síðu.
-<*>
Áskorun til reykvískrar alþýðu
1. maí-nefnd verkalýðsfélaga
í Reykjavík ásamt fjölmörgum
forystumönnum verkalýðsfélag-
anna hefur scnt frá sér áskorun
til vinnandi fólks um að fylkja
sér um l.maí-ávarp Alþýðusam-
bandsins með þátttöku I kröfu-
göngunni og útifundinum við
Miðbæjarskólann. — Fer áskor-
unin hér á eftir ásamt undir-
skriftum:
„Við undirrituð skorum á al-
þýðu Reykjavíkur að fylkja sér
um 1. maí-ávarp Alþýðusam-
bands íslands og fjölmenna til
þátttöku í kröfugöngunni ag á
útifundinn við Miðbæjarskólann.
Minnumst þess með voldugri
þátttöku, að í dag cru Iiðin 40
ár frá því að fyrst var farin
kröfuganga á lslandi“.
Fagnar stórsigri
Palmiro Togliatti, leiðtogi ítalska kommúnista-
flokksins, lýsti því yfir í dag að kosningasigur
flokksins hefði verið glæsilegri en beztu vonir
hefðu staðið til. Sagði hann að þetta sanni svo ekki
verði um villzt að allar sögusagnir um ágreining
innan flokksins væru ekki á rökum reistar. —
Sjá 3. síðu.
Eðvarð Sigurðsson, formaður,
Dagsbrúnar
Snorri Jónsson, formaður, Félags
jámiðnaðarmanna.
Jón Sn. Þorleifsson, formaður,
Trésmiðafélags Reykjavíkur
Einar ögmundsson, formaður
Vörubílstjórafél. Þróttar
Haraldur Tómasson, í stjóm
S. M. F.
Kari Árnason, varafprmaður, Fé-
lags bifvélavirkja
Helgi Arnlaugsson, formaður
Sveinafélags skipasmiða
Birgitta Guðmundsdóttir, for-
maður A. S. B.
Magrét Auðunsdóttir, formaður,
Starfsstúlknafél. Sóknar
Lárus Bjamfreðsson, formaður,
Málarafélags Reykjavikur.
Magnús Magnússon, formaður
Félags blikksmiða
Þorsteinn Þórðarson, formaður
Sveinafél. húsgagnabólstrara
Bolli Ólafsson, formaður Sveina-
félags húsgagnasmiða
Halldóra Guðmundsdóttir, for-
maður Nótar
Gísli Einarsson, formaður Rak-
arasveinafél. Reykjavíkur
Sigurður Runólfsson, formaður,
Mjólkurfræðingafél. Islands
Páll Bjömsson, varaformaður,
Iðnnemasambands íslands
Helgi Þorkelsson, formaður,
Skjaldborgar
Magnús Vilhjálmsson, skipa-
smiður
Þórður Gíslason, trésmiður
Hörður Jóhannsson, blikksmiður
Kristján Jóhannsson, verkam.
Guðjón Jónsson, jámsmiður
Hólmfríður Jónsdóttir, fóstra
Bjarnfríður Pálsdóttir, starfs-
stúlka
Margrét Sigurðardóttir, klæðsk.
Leifur Ólafsson, málari
Elín Björnsdóttir, afgreiðslu-
stúlka
Jóhann Elíasson, húsgagnabólst.
Þráinn Þorsteinsson, húsgagna-
smiður.
1. maí-merki Alþýðusambands
Islands verður selt á götum
borgarinnar í dag á vegum 1,
maí-nefndar verkalýðsfélaganna.
Merkið kostar krónur tíu og
verður afgreitt til sölubarna og
annarra á skrifstofu Dagsbrúnar,
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu og
á skrifstofu Félags járniðnaðar-
manna að Skipholti 19. Opið í
báðum stöðum frá klukkan níu
til tólf og klukkan eitt til fimm
eftir hádegL
Listi Alþýðu-
bandalagsins
í Austurlands-
kjördæmi
Gengið hefur verið frá
framboðslista Alþýðubanda-
Iagsins í Austurlandskjör-
dæmi við alþingskosning-
arnar 9. júní næst komandi,
og cr Iistinn þannig skip-
aður:
1. Lúðvík Jósepsson alþing-
ismaður, Neskaupstað.
2. Ásmundur Sigurðsson
fyrrv. alþingismaður,
Reykjavík.
3. Helgi Seljan kennari,
Reyðarfirði.
4. Sævar Sigbjarnarson
bóndi, Raufarholti N-Múl.
5. Seinn Stefánsson skóla-
stjóri, Seyðisfirði.
6. Sigurður Blöndal skógar-
vörður, Hallormsstað.
7. Antoníus Jónsson bif-
reiðastjóri, Vopnafirði.
8. Guðlaugur Guðjónsson
sjómaður, Fáskrúðsfirði.
9. Benedikt Þorsteinsson
verkamaður. Homafirði.
10. Jóhannes Stefánsson
farmkvæmdastjóri, Nes-
kaupstað.
Vegna þrengsla i blaðinu
í dag verður birting mynda
að bíða að sinni.
t