Þjóðviljinn - 04.05.1963, Qupperneq 4
SfÐA
ÞJðÐVILJINN
Laugardagur 4. maj 1963
Otgefandi;
Ritstjórar:
Fréttaritstjórar
RitStJÓ'^r'
Sameirungarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk
urinn. —
ívar H. Jónsson. Magnús Kjartansson. Sigurð-
ur Guðmundsson (áb)
Jón Bjarnason. Sigurður V Friðbjófsson.
auglýsingar. orentsmiðja: Skólavörðust. 19
Sími 17-500 (5 línur) Á.skriftarverð kr 65 á mánuði
Orlagarik
úrslit
|7nguin hugsandi manni mun blandast um það
hugur, að úrslit alþingiskosninganna, sem fram
eiga að fara hinn 9. júní, komi til með að verða
örlagaríkari fyrir íslenzku þjóðina en nokkru sinni
fyrr. Stjórnarflokkarnir hafa á valdatíma sínum
síðasta kjörtímabil gert hverja árásina annarri
harkalegri á kjör og réttindi vinnandi fólks í land-
inu, óðaverðbólga viðreisnarinnar hefur verið
mögnuð sem mest má verða til þess að rýra kaup-
getu almennings. Allar þessar ráðstafanir eru þó
aðeins fyrsta skrefið að því marki, sem stjórnar-
flokkamir stefna að: Innlimun íslands í Efnahags-
bandalag Evrópu. Viðreisnin átti að sögn að gefa
okkur hlutdeild í hinum „frjálsa viðskiptaheimi“;
vera lítilsháttar sambærileg við efnahagskerfi
landanna í EBE. Það er ekki fyrr en á næsta kjör-
tímabili, sem viðreisnarherramir ætla sér að
hleypa útlendingum endanlega inn í landhelgi ís-
lands og gefa þeim frjálsar hendur til atvinnu-
rekstrar hér á landi, — með öðrum orðum að láta
íslendinga greiða það sem á vantar af ,;aðgangs-
eyrinum“ eins og forsætisráðherra orðaði það á
Alþingi í vetur. *.<**»**?»*«* .
Kað var andspænis þessari hætfu sem yfir vo'fir,
ef núverandi stjórnarflokkar halda meirihluta
sínum áfram, að vinstri menn ákváðu að sameina
krafta sína í baráttunni, sem fram undan er. í
kosningunum í vor verður bariz't um örlög þjóð-
arinnar, íslenzkt sjálfstæði og íslenzka menningu.
Alþýðubandalagið og Þjóðvarnarflokkurinn gerðu
sér þetta ljóst, og einnig þá staðreynd að sundrung
vinstri manna er aðeins va'tn á myllu afturhalds-
ins og hefur greitt því götu til þeirra valda sem
það hefur haft undanfarin ár. Þess vegna hafa
stjómmálasamtök vinstri manna lagt öll smávægi-
leg ágreiningsmál til hliðar, minnug þess, að „á
örlagastundu í lífi þjóðar verða allir heilir menn
að snúa bökum saman og gleyma eða geyma
persónuleg mál og viðhorf. Þau eru smáatriði *
samanburði við sjálfstæði og framtíð þjóðarinnar
í heild“ eins og málgagn Þjóðvarnarmanna, Frjáls
þjóð, benti á í leiðara sínum þann 20. apríl s.l.
A lþýðubandalagið hefur nú birf framboð sín í
öllum kjördæmum landsins og Þjóðvamar-
flokkurinn á sína fulltrúa á öllum framboðslistun-
um. Og sumir þeir sem á sínum tíma létu hæst um
það, að Alþýðubandalagið mundi ekki geta boðið
fram vegna innbyrðis ágreinings, sitja nú eftir
eins og rassskelltir krakkar og hafa ekki enn kom-
ið saman sínum framboðslistum. Það fer heldur
ekki framhjá neinum að afturhaldsöflin, — jafnt
innan stjómarflokkanna sem Framsóknarflokks-
ins, — ótfast samstöðu vinstri manna. Og kjós-
endur þurfa að sýna það á kjördag að sá ótti er
ekki ástæðulaus. Með því móti einu að beygja til
vinstri og fylkja sér um Alþýðubandalagið, ge’ta
vinnandi stéttir tryggt hagsmuni sína og um leið
sjálfstæði íslands og þjóðmenningu. — b.
Listi Aiþýðubandakgsm á VestfjmSmn
Listi Alþýðubandalagsins í
Vestfjarðakjördæmi við alþing-
iskosningarnar hinn 9. júní n.
k. er þannjg skipaður:
1. Hannibal Va’.dimarsson, al-
þingismaður, forseti Al-
þýðusambands íslands,
Reykjavík.
2. Steingrímur Pálsson, um-
dæmisstjóri, Brú, Hrúta-
íirði.
3. Asgeir Svanbergsson, bóndi,
>úfum.
4. Ingi S. Jónsson, verkamað-
ur, Þingeyri.
5. Játvarður Jökuli Júlíusson,
oddviti, Miðjanesi.
6. Haraldur Guðmundsson,
skipstjóri, ísafirði.
7. Davíð Daviðsson, bóndi,
Sellátrum.
8. Guðsteinn Þengilsson, hér-
aðslæknir, Suðureyri.
9. Páll Sólmundsson, sjómað-
ur, Bolungarvík.
10. Skúli Guðjónsson, bóndi,
Ljótunnarstöðum.
V HR f
fe. w& i
Davíð Davíðsson
Guðsteinn Þengiisson
Páll Sólmundsson
Skúljj Guðjónsson
Listj Alþýðubandalagsins í
Austurlandskjördæmi við Al-
þingiskosningarnar hinn 9.
júní n.k., er þannig skipaður:
1. Lúðvík Jósefsson, alþingis-
maður. Neskaupstað.
2. Ásmundur Sigurðsson fyrrv.
alþingismaður, Reykjavík.
3. Helgi Seljan, kennari, Reyð-
arfirði.
4. Sævar Sigbjarnarson bóndi,
Rauðholtj N.-Múl.
5. Steinn Stefánsson, skóla-
stjóri, Seyðisfirði.
6. Sigurður Blöadai skógar-
vörður. Hallormsstað.'
7. Antonius Jónsson bifreið-
arstjóri, Vopnafirði.
8. Guðlaugur Guðjónsson sjó-
maður. Fáskrúðsfirði.
9. Benedikt Þorsteiasson
verkamaður. Hornafirði.
10. Jóhannes Stefánsson fram-
kvæmdastjóri, Neskaup-
stað.
Antonius Jónsson
Guðlaugur Guðjónsson
Benedikt Þorsteinsson
Jóhannes Stefánsson
»