Þjóðviljinn - 06.06.1963, Blaðsíða 1
DHDVIUINN
Fimm'tudagur 6. júní 1963 — 28. árgangur — 124. Sölublað.
KOSNINGARNAR VERÐI SIGUR
ALÞÝDUNNAR OG ÍSLANDS!
C-USTA fUHDUR ,
m
Alþýðubandalagið í Rcykja- mundsson, Geir Gunnarsson, þýðubandalagsfólk í Reykja- :
neskjördæmi heldur almenn- Benedikt Davíðsson, Þuríðxu- neskjördæmi er eindregið
an kjósendafund í Kópavogs- Einarsdóttir, Þóroddur Guð- hvatt til að fjölmenna á !
bíói kl. 9 í kvöld, fimmtudag. mundsson frá Sandi og As- fundinn.
Ræður flytja: Gils Guð- geir Bl. Magnússon. — AI-
»»mim»inimniiniiiiinnmnimiiinmnnmMlmi,HIHM,iM|llHll|||tl|||11|M|||||1|||||||||11|g|i||||M1||)||||ltl||||tMi||w|i|[i||
í fyrstu ræðu útvarpsumræðnanna í gærkvöld
flutti Einar Olgeirsson hvassa ádeilu á stjómar-
far og landssöluáform viðreisnarflokkanna og tók
rækilega til meðferðar lýðskrum og áróður her-
námsmanna frá fyrri hluta umræðnanna.
Einar lýsti í skýrum og ljósum dráttum aðal-
línum þjóðfélagsþróunar á íslandi síðustu ára-
tugina og átökum meginandstæðna þjóðfélagsins,
auðvalds og alþýðu, og lauk ræðunni með áhrifa-
mikilli eggjan til reykvískrar alþýðu að gera Al-
þýðubandalagið að sigurvegara kosninganna á
sunnudaginn, fella með því ríkisstjómina og
hindra að ný afturhaldsstjóm verði mynduð. Með
þeim hætti yrðu úrslit kosninganna sigur alþýð-
unnar og íslands.
A vii marga þorska
„Útgerðarmerm uppskána fljótlega afraksturinn af því að hafa
tryggt sér Emil Jónsson sem sjávarútvegsmálaráðherra. Hann var
þeim á við marga þorska úr sjó.” (Keilir, blað Aiþýðubandalags-
ins í Reykjaneskjördæmi)
Hér fer á eftir síðastj hluti
ræðunnar:
Góðir íslendingar!
Kosningabaráttan er ekki að-
eins barátta vinnandi stéttanna
fyrir mannsæmandi tilveru; hún
er beinlínis barátta fyrir sjálfri
tilveru þjóðar vorrar í friði og
stríði.
Það eru sameiginlegir hags-
munir okkar að verja þetta land
gegn ágangi erlends auðvalds
og hervalds.
Landið okkar er gott land —
eitt hið ríkasta í Evrópu að 6-
nqtuðum auðljndum. Því líta
auðhringarnir það gimdaraug-
um gróðans.
Afköst vinnandi stéttanna í
sjávarútveginum eru hin mestu
í heimi. Því munar auðvaldið í
að fá að arðræna þaer.
Það er engin þörf að hér búi
vinnandi fólk við lægsf tíma-
kaup á Norðurlöndum, við
mestan vinnuþrældóm í Norð-
urálfu.
En til þess að nýta auðtindir
okkar í þágu eigin þjóðar. til
þess m.a. að fullvinna afurðim-
ar, sem við nú flytjum út sem
hráefni, þurfum við að sam-
stilla kraftana, en ekki sundra
þjóðinni með kúgunarpólitík
skammsýnnar yfirstéttar, sem
þar að auki ofurselur landið og
gæði þss erlendu valdi.
Það á að vera okkar stolt að
gera ísland að fyrirmyndar-
landi öðrum þjóðum um frið
og féJagslegt réttlæti. Vér ís-
lendingar óskum vissulega
heiminum friðar. En hernig
haldið þið að hægt sé að við-
halda friði og forðast styrjöld
í hinum stóra heimi ægilegra
mótsetninga auðs og fátæktar,
Framhald á 2. síðu
Athyglisverðar upplýsingar stjórnarb laðanna í gær:
Vinnutími verkamanna jókst
um 203 klukk ustundir 1962
Verðbólgan gleypti allt kaupið fyrir aukavinnuna
Morgunblaðið og Alþýðu-
blaðið skýna frá því í gær að
könnun á aðstæðum 107
Dagsbrúnarverkamanna hafi
leitt í ljós að árið 1962 unnu
þeir að meðaltali 2.748
klukkustundir- Árið 1961 var
vinnutími þeirra hins vegar
2.545 klukkustundir. Vinnu-
tími þeirra hafði þannig
lengzt um 203 stundir frá
árinu áður.
Það jafngildir sem
næst eðlilegum vinnu-
tíma í heilan mánuð;
verkamenn höfðu neyðzt
til að bæta við sig heils
mánaðar erfiði — aðal-
lega í eftirvinnu, nætur-
vinnu og helgidaga-
vinnu.
Upplýsingar stjómarblaðanna
um aðstæður þessara Dagsbrún-
arverkamanna eru sóttar í skatt-
skýrslumar. Hefur Þjóðviljinn
að sjálfsögðu ekki tök á að sann-
reyna þá vitneskju, þvi skatt-
skýrslur manna eiga að vera
TRÚNAÐARMÁL, þó stjómar-
Framhald á 3. síðu
Enn einn Breti tekinn
UM KL. 14 í GÆR kom varö- I
skipið Óðinn að brezka togar- !
anum Norhern Sky, þar sem
hann var að meintum ólögleg-
um veiðum um 2.5 sjómílur
innan 6 mílna fiskveiðitak- j
markanna í Lónsbug, Þegar I
varðskipið nálgaðist togarann
tók hann inn trollið og hélt
til hafs, en var stöðvaður um
1.2 sjómílur utan markanna.
KIPSTJÓRINN Barry Green
neitaði sekt sinni, en Óðinn
fór til Eskifjarðar með toger-
ann og verður mál skipstjórans
væntanlega tekið fyrlr þar.
NORTHERN SKY er 620 tonna
skip, smíðað í Bremerhaven ár-
ið 1936, hann ber einirennis-
stafina GY 427.
ALÞÝÐU
BANDALAGIÐ
Styrkið
kosninga-
sjóð G-iist■
ans
Allir sem fengið hafa senda happdrættis-
miða frá G-listanum eru vinsamlega beðn-
ir að gera skil nú þegar. Aðrir sem ekki
hafa fengið senda miða en vilja Stðstoða
okkur, komið með framlög ykkar í kosn-
ingaskrifstofuna.
Munið Kosningasjóðinn!
Fjáröflunarnefnd G-listans.
Einkaskuid Gunnars Thor
við borgarsjóð: 100 þús. kri
Nokkru áður en Gunnar
Thoroddsen, núverandi fjár-
málaráðherra, lét af störfum
sem borgarstjóri Reykjavíkur,
fékk hann stórlán úr borgar-
sjóði. Skuldar Gunnar enn kr.
100.611,05.
Stórlán þetta fékk Gunnar
Thoroddsen án þess að málið
væri borið undir borgarráð.
Það var sem sé borgarstjór-
inn Gunnar Thoroddsen sem
veitti einstaklingnum Gunnari
Thoroddsen lánið með aðstoð
undirmanna sinna. embættis-
manna borgarinnar. Myndu
eflaust margir þyggja að geta
greitt úr fjárhagsörðuleikum
sínum á slíkan hátt.
Mildi borgarsjóðs við Gunn-
ar Thoroddsen mun vekja at-
hygli margra útsvarsgreiðenda
sem ekki hafa orðið varir við
þessa hlið á borgaryfirvöldun-
um. Það kemur þráfaldlega
fyrir að launamenn finni fátt
annað í umslögum sínum á
útborgunardegi en kvittanir
frá bænum. Og margar fjöl-
skyldur hafa fengið að kynn-
ast þvi að jafnvel búslóð
þeirra er ekki friðhelg ef
skuld við borgarsjóð dregst
fram yfir gjalddaga. Það er
auðsjáanlega ekki sama hver
1 hlut á.
En að sjálfsögðu mun
Gunnar Thoroddsen standa
skil á skuld sinni. Hann hef-
ur nú verið settur yfir sjóð
sem er margfalt stærri en
borgarsjóðurinn, sjálfan ríkis-
sjóðinm sem hefur margfald-
Gunnar Thor.
azt að krónutölu í tíð við-
reisnarinnar. Einstakhngur-
inn Gunnar Thoroddsen gæti
til að mynda greitt skuldina
við borgarsjóð með því að fá
lán úr ríkissjóði hjá fjármála-
ráðherranum Gunnari Thor-
oddsen, áður en sá embættis-
maður hveriur úr starfi sínu.
»