Þjóðviljinn - 21.06.1963, Page 10
■$ SÍÐA
ÞlðÐVILIINN
Föstudagur 21. júni 1963
GWEN BRISTOW
I
INGJU
LEIT
— Veit silky það líka?
— Nei. Hver hefði átt að
segja honum það?
— Hver sagði þér það?
— Brown kapteinn. Ekki með
berum orðum, en ég skil hálí-
kveðna vísu.
— Segðu mér hvað gerðist
héma í morgun.
Florjnda setti kertið frá sér
í stigann og settist við hliðina
á Garnetu. — Ég var í bamum
ásamt José þegar maður kom
þjótandj og sagði, að einhver
hefði skotið einhvern hjá Est-
ellu. Fleiri náungar komu og
einn sagði þetta og annar hitt,.
en loks urðu þeir sammála um
að það hefðj verið Charies Hale
og það hlakkaði í þeiro yfir því
að slikur hrokagikkur skyldi
hafa verið sxotinn niður á siík-
um stað.
Florinda spennti greipar um
hnén og hélt áfram:
— Ég ætlaði að fara að sækja
Silky og segja honum að við
yrðum að fara þangað í skyndi
þegar strákurinn sá þig ganga
framhjá í fylgd með Brown
kapteiní og svo þaut ég fram í
eldhúsið og hitti þig þar. Þú
seigst niður a bekkinn eins og
sprungin blaðra. Brown kaptenn
kom til min og hvislaði: — Þér
verðið að annast frú Haie. Gæt-
ið þess að hún tali ekki við
neinn fyrr en ég kem til baka.
Hanja taiaoi eins og húsbóndi
sem gefur fyrirskipun. Ég sagð-
ist skyldu annast þig- Ég spurði:
— Drap hún Charles? Hann
sagði: — Maðurinn sem kallar
sig Texas hefur játað að hafa
S'kotið Charles Hale. Texas ligg-
ur fyrir dauðanum. Og ég
sagði: — Brown kapteinn, Tex-
Hárgreiðslu- og
snyríistofa STEINU og DÓDÓ
Laugavegi 18 III. h (lyfta)
Sími 24616.
P E R M A. Garðsenda 21,
sími 33968. Hárgreiðsiu. og
snyrtistofa.
Dömur, hárgreiðsla við
allra hæfi.
TJARNARSTOFAN.
Tjamargötu 10, Vonarstrætis-
megin. — Sími 14662.
HÁRGRFIÐSLU STOFA
AUSTURBÆJAR
(María Guðmundsdóítir)
Laugavegi 13 — sími 14656.
— Nuddstofa á sama stað. —
as er mikilmenni. Það eruð þér
líka.
Hann tók *vo fast í öxlina
á mér að hann beinbraut mig
næstum og síðan stikaðj hann
út eins og hershöfðingi sem
ætlar að fara að vinna stríð.
Garnet dró djúpt andann.
Florinda lagði handlegginn ut-
anum hana. — Líður þér betur
núna. vina min?
— Já, það er rins og losnað
hafi um eitthvað í mér.
— Gott. Farðu nú og legðu
þig og sofðu eins lengi og þú
getur. Ég skal biðja Isabel að
læðast inn til þín og taka
Stefán, svo að þú þurfir ekki
að vakna.
Garnet fór í rúmið. Hún var
svo þreytt að hún sofnaði ioks,
og þrátt f.VTÍr háreystina úti-
fyrir, svaf hún lengi.
Dagjnn eftir fékk hún að vita
að Texas væri dáinn. Húri sat
lengi hnípin á veggbekknum í
skoti i eldhúsinu og hugsaði um
hann. Hún var enn undrandi
yfir tilfinningum sínum. f föð-
urhúsum og í skólanum hafði
hennj verið kennt hvernig hun
ætti að bregðast við ýmsu sem
að kynni að steðja í lifinu. Hún
vissi að manni bar að hryggjast
þegar ástkær vinur kvaddi
heiminn. En hún var ekki
hrygg vegna Texasar og hún
grét ekki. Henni hafði þótt mjög
vænt um þann og hún myn.di
sakna hans sárt, en hún hélt
að hann hefði ekki verið mjög
hamingjusamur í Ijfanda lifi.
Hann haíði að minnsta kosti
ekki harmað það að vera á
förum. Hún vonaði að hann
hefði breytt til hins betra og
henni kom ekki til hugar að
gera sér upp harm, fremur en
henni datt í hug að íinna til
sektar vegna Charlesar. Hún
fann aðeins til innilegs þakk-
lætjs til Texasar venga þess að
hann hafði hlíft henni við af-
leiðingunum af dauða Charles-
ar og hún vonaði að hann hlyti
laun sín á himnum.
Hann hafði hlíft henni. Þar
sem Brown kapteinn var fyrsti
liðsforinginn sem komið hafði
á vettvang, var honum falið að
annast rannsókn málsins. Nokkr-
um dögum seinna kom hann til
hennar með afrit af skýrslu
sinni. Samkvæmt henni hafði
frú Hale farið til húss Estellu
til að sitja hjá sjúkum manni
sem hafði reynzt henni vel.
Charles Hale sem vissi ekki
hverra erinda hún var þar,
hafði tekið með sér tvo her-
menn til að ná henni þaðan
burt. Hermennirnir sem stóðu
vörð höfðu heyrt skot og hlaup-
ið inn og fundið Charles Hale
liggjandi í blóði sínu á gólfinu
og colt-byssu í höndinni á Tex-
asj. Þegar þeir spurðu hver
skotið hefði Hale, hafði Texas
samstundis játað að hann hefði
gert það. Hann hafði margend-
urtekið það.
Gamet og Brown kapteinn
sátu á veggbekknum í eldhús-
inu. Þau voru ein, þvi að hann
hafði sagzt vilja yfirheyra hana
í einrúmi. Hún las skýrsluna og
að því loknu sat hún góða stund
án þess að mæla orð. Brown
kapteinn beið þess að hún segði
eitthvað. Loks sagði hún:
— Hvað viljið þér að ég geri
núna. Brown kapteinn?
— Ég vil að þér undirritið
yfirlýsingu sem ég hef meðferð-
is. Mennirnir sem heyrðu Texas
játa, hafa allir gefið skriflega
yfirlýsingu. í þessari yfirlýsingu
stendur aðeins, að þér hafið séð
Texas skjóta herra Hale eins og
hann lýsti yfir sjálfur.
Brown lagði blaðið fyrir fram-
an hana °g setti penna og blek
hjá henni. Garnet sagði:
— Það stendur ekkert i
skýrslunni um, hvers vegna
Texas hafi skotið hann.
— Ég veit ekki hvers vegna
hann skaut hann, sagði Brown
kapteinn. — Enginri veit til þess
að hann hafi átt í útistöðum
við Charles Hale og þvj verður
að ganga út frá þvi að hann
hafi ekki verið með réttu ráði.
Hann talaði svo formlega við
han.a að það var eins og þau
þekktust sáralítið. Meðan á
máli þessu stóð hafði hann all-
an tímann talað við hana á
þann hátt. Hann bætti við:
— Viljið þér nú gera svo vel
að undirrita yfirlýsinguna, frú
Hale.
Garnet tók pennann. Það var
ekki góður penni. Hann var
sjálfsagt gamall og oddurinn
var slitinn og ójafn. Hún horfði
á oddinn og sagði:
— Þér virðizt ekki hafa velt
því neitt fyrir yður, Brown
kapteinn, hvort Texas hafi ver-
ið nógu sterkur til að lyfta
byssunni?
Brown kapteinn tók fram úr-
ið sitt. — Mér þykir það leitt,
frú Hale, en ég hef ekki tíma
til að ræða þetta núna. Viljið
þér gera svo vel að undirrita
skjaljð. svo að við getum lokið
þessu af.
Hún skrifaði nafnið sitt undir.
Penninn frussaði og setti blek-
klessur á blaðið.
„Þökk fyrir“, sagði Brown
kapteinn. Hann tók blaðið, á-
kvað að bíða þess að blekið
þomaði og lagði blaðið frá sér
aftur. Hann brosti vmgjamlega
til hennar. „Rannsókninni er
lokið, frú Kale“, sagði hann.
Gamet horfði beint framan í
hann: „Viljið þér nú að ég segi
yður hvað gerðist í raun og
veru?“
„Ef þér viljið, en þér þurfið
þess ekki“. Bros hans var dálít-
ið glettnislegt, gerólíkt hátíð-
leika undanfarinna daga. „En
nú þegar ég tala ekki lengur
í embættis naíni, langar mig
til að segja yður dálítið"
„Hvað er það?“ sagði Garnet.
„Ég vil ráðleggja yður að lifa
algerlega grandvöru lífi“, sagði
Brown kapteinn. „Þér eruð lé-
legasta leikkona sem ég hef fyr-
ir hitt“.
Hann var hreinskilinn og
sterkur. Gamet sagði:
„Þetta hvílir á mér eins og
mara. Það væri betra ef ég
mætti tala við yður“.
„Leysið frá skjóðunni".
Hún sagði honum frá Char-
lesi og hvemig hann hefði reynt
að ná Stefáni af henni til að
fá umráð yfir arfi Stefáns. Loks
sagði hún frá því þegar Charl-
es kom til Estellu og rétti fram
skjal og hvemig hún hefði skotið
hann þegar hann rejmdi að rifa
af henni bamið.
„Ég brenndi blaðið í eld-
stónni", sagði Gamet. „Ég hélt
ég hefði verið mjög klók, en nú
held ég það ekki lengur, því að
auðvitað gæti ekkja Charlesar
Hale fengið sams konar tilskip-
un frá Stevenson ofursta ef hún
vildi“.
Hún hafði talað rólega, en
þegar hér var komið fór hún
að titra. Brown kapteinn tók
um hönd hennar.
„Ég held þér þurfið ekki að
óttast neitt slíkt, frú Hale“, sagði
hann.
„Ekki það?“ hrópaði hún. „Af
hverju ekki?“
„Lásuð þér hvað stóð á blað-
inu áður en þér brennduð það?“
spurði hann.
Hún hristi höfuðið.
Hann brosti. „Ef þér hefðuð
lesið það, hefðuð þér sennilega
komizt að raun um að þetta var
ekki annað en kvittun frá vöru-
húsi eða eitthvað þess háttar".
Gamet hrökk við. „Hvað þá?
Eigið þér við —" Hún fann til
ofsalegs léttis og röddin var hás.
„Ég er sannfærður um að
Stevenson ofursti hefur aldrei
gefið nein slík fyrirmæli",
sagði Brown kapteinn. „I fyrsta
lagi held ég naumast að hann
hafi vald til þess og í öðru
lagi þekki ég hann nógu vel til
þess að vita að hann myndi
aldrei gera neitt slíkt. Og
hvenær hefði hann svo sem átt
að gera það? Hann hitti ekki
Charles Hale i gærmorgun. Her-
mennimir tveir sem fylgdu hon-
um fengu fyrirmæli um það hjá
lautinanti sem heitir Fletcher".
Gamet andvarpaði af fegin-
leik. „Kærar þakkir, þetta hefði
ég átt að geta sagt mér sjálf,
en það gerði ég nú ekki“.
„Góða kona, eftir allt sem þér
hafið þurft að ganga í gegnum,
er undravert að þér skuluð geta
hugsað yfirleitt", sagði Brown
kapteinn.
Gamet lét höfuðið síga. Hún
svaraði ekki.
Brown kapteinn þrýsti hönd
hennar fast. „Charles Hale rétti
fram pappírsblað og treysti því,
að þér yrðuð alltof óttasegin til
að lesa það. Og þegar þér
kæmust að því að Stevenson
ofursti nefði aldrei gefið slík
fyrirmæli, væri hann kominn
langleiðina til Boston með
bamið“ .
Gamet leit ekki upp. Henni
fannst hún vera eins og slytti.
Hún hafði reynt eftir megni að
vera róleg og sterk, en henni
fannst sem allt sem komið hafði
fyiir hana síðan hún fór frá
New York, hefði gert sitt til
að brjóta niður þrek hennar.
Svo heyrði hún huggandi rödd
Browns kapteins.
„Viltu ekki leyfa mér að fara
með þig heim, Gamet?“
Hún vissi aldrei almennilega
hvemíg það vildi til. En hun
fann að hún hallaði sér fegin-
samlega upp að honum. Hann
tók hana í fang sér og hann
kyssti varir hennar og augun
og hánð við gagnaugun og
hann sagði:
„Þú hefur sýnt dirfsku a við
tíu herdeildir, en nú þarftu ekld
að berjast lengur. Þú verður að
leyfa mér að annast þig-
Hann sagði heilmargt fleira,
en hún var alltof þreytt og alltof
hissa til að taka eftir orðunum.
En hún skildi hvað í þeim folst
og það var öryggi og friður.
Hann bauðst til að gefa henni
aftur allt það sem hún hafði
S KOTTA
d
Nú ætla ég að tala meðan loft er í lungunum. . .
Síðan talar þú og ég hlusta.
Frá Menntaskólanum
að Laugarvatni
Umsóknir um skólavist næsta vetur, skulu hafa
borist fyrir 7. júlí.
Umsóknir um skólavist næsta vetur skulu hafa
borizt fyrir 7. júlí.
SKÓLAMEISTARI.
NÝKOMNIR
Skapar
í K.S.-bókahillur, 160 cm. langir.
VERÐ kr. 3995,00.
Hentugir sem borSstofu- eöa dagstofuskápar.
Kristján Siggeirsson h.f.
Laugavegi 13 — Sími 13879.
Sýurjwrjónsson &co
JkfhaistnzH 4-
FERÐABÍLAR
17 farþega Mercedes-Benz hópferðabilar af nýjusíu gerð,:
til leigu í Iengri og skemmri ferðir. — Afgreiðsla á
Sendibílastöðinni í síma 24113, á kvöldin og um helgar,
ff sími 20969.
, ^ HARALDUR
EGGERTSSON,
Grettisgötu 52.
Það er sölumaður.
£g kaupi ekkert í dag.
Pönnukökuspaðar.
tÚMAR ALLA
cJÖLSKYLDUNA
SYNNIÐ YÐUR
j | MODEL 1963
ouijj 24204
* CO' P.O. BQX IU* • UYUAVig —
i