Þjóðviljinn - 03.07.1963, Side 10
Þær fljúga norður og austur
EINA KVÖLDSTUND um síð-
ustu helgi stóðu þrír hæru
skotnir kaupsýslumenn á bar
og sötruðu viskí virðulega í
kvöldsólinni. Um barinn sveif
hver bylgjan á fætur annarri
af ljóshærðum beibídollum í
bardottízku og gömul glóð
kviknaði hjá gömlu mönn-
unum og brann hægum eldi
við þessa sýn. Fjórar ungar
stúlkur komu að barborðinu
og hæjuðu á þremennjngana
og spruttu stuttar orðræður
af þessum kynnum. Ein
stúlkan lýsti því nefnilega
yfir stutt og skorinort, að
þær væru að kveðja reyk-
vískt barlíf um stundarsakir
,,pg væru þær stallsystur að
fljúga næsta dag norður á
si'd.
EINN AF þessum heiðurspiönn-
um bráðnaði upp og fór að
rifja upp æskuminningar,
þegar hann var ungur og
blankur á síld fyrir norð-
an og í rósrauðu skýi þarna
við barinn stigu fram kreppu.
áramyndir af síldarstúlkum í
léttum rykfrökkum með spæla
og alpahúfur á ská á
drengjakollum frá charleston.
tímabilinu. Þetta voru e’sku-
legustu stúlkur heimsins. Þá
var ferðazt með göm'u Esj-
unni vestur fyrir land og
þetta voru langar reisur og
hver þurfti að borga fyrir
sig áður en komizt var i
uppgripin á ísafirði. Hólma-
vík Siglufirði eða Hjalteyri.
DAG FARA þessir árlegu
fólksflutningar fram með
mik'um hraða á örfáum dög-
um og þessa daga fljúga marg-
ar flugvélar með síldarstúlk-
ur til Siglufjarðar uw Akur-
eyri, Raufarbafnar um Kóoa-
sker og Seyðisfjarðar um Eg-
ilsstaði.
ÞAÐ ER mlkl’I ys og þys á
Reykjavíkurflugvelli þessa
daga og hver hópurinn leggur
upp eftir annan með pokann
og gitarinn.
ÞÆR HORFA vonglaðar fram
á hýru sumarsins og evu létt-
ar í skaoi og bláturmildar og
biða eftir ævintýrum sum-
arsins.
ÆFR-ferð „út í
bláinn” í kvöld
Hinar vinsælu kvpldferðir
Æskulýðsfylkingarinnar i Rvík
eru byrjaðar aftur. Fyrsta ferðin
út í bláinn verður farin i kvöld
kl. 8 frá Tjarnargötu 20. 1 bæinn
verður komið aftur um miðnætti.
Þátttakendur eru beðnir að mæta
stundvíslega og taka með sér
gesti. ÖIlu ungu fólki heimil
þátttaka. Nánari upplýsingar ■'
skrifstofu Æ.F.R. Tjamargötu 20,
simi 17513.
í?SS^{5?5f5?ft¥í:ív
í
Heimsókn sænskra
norrænufræðinga
I kvöld er vænfcanlegur
hingað til Reykjavíkur 16
manna hópur kennara og
stúdenta í norrænum mál-
um við háskólann í Gauta-
oorg. Hópurinn kemur með
leiguflugvél beint frá
Gautaborg og mun dveljast
hér á landi í þrjár vikur.
Skoðaðir verða helztu sögu- og
merkisstaðir sunnan-, vestan- og
norðanlands. Verður fyrst farið
um Suðurlandsundirlendið og allt
upp að Stöng í Þjórsárdal og
austur í Skaftafellssýslu, síðan
upp í Borgarfjörð, um Snæfells-
nes og Dali og þaðan norður í
land allt austur í Mývatnssveit
a. m.k. Að lokum verður dval-
izt nokkra daga í Reykjavík. —
Ferðaskrifstofa ríkisins hefur
verið með í ráðum um skipu-
lagningu ferðarinnar og annast
margháttaða fyrirgreiðslu við út-
vegun gistingarstaða o.fl.
Venja er, að stúdentar í nor-
rænum málum við sænska há-
skóla fari árlega náms- og kynn-
isferðir undir leiðsögn kennara
sinna, oftast um Svíþjóð, en
stundum til nágrannalandanna.
Aðeins einu sinni áður hefur
slík ferð verið gerð til Islands.
þá einnig frá Gautaborg, en nú
eru um 30 ár síðan. Prófessor
Hjalmar Lindroth hafði forgöngu
um þá ferð, en hann er m.a.
kunnur fyrir ágæta bók, er hann
skrifaði um Island (Island —
motsatsemas ö) og út kom 1930
í tilefni af Alþingishátíðinni.
Fyrir hópnum að þessu sinni
er eftirmaður Lindroths, prófess-
or Ture Johannisson, einn þeirra
Framhald á 3. síðu.
Myndirnar
★ Efri myndin er tekin i af-
greiðslusal F.I á Reykjavíkur-
flugvelli og bíður þarna einn
hópurinn eftir flugvél til Eg-
ilsstaða, Hafa stúlkurnar ráðið
sig á síldarplönin Ilafaldan
og Sunnuver á Seyðisfirði í
sumar. 1 gær var fyrsta síldin
söltuð á báðum þessum plön-
um og hafa þær þcgar Ient í
söltun.
★ Neðri myndin er af þremur
reykvískum stúlkum á leið
út í flugvélina til Egilsstaða.
Svona líta þær blessaðar út
í dag. Þær salta hjá Haföld-
unni í sumar. (Ljósm. G.M.).
Miðvikudagur 3. júlí 1963 — 28. árgangur 146. tölublaS
Fundur mennta-
málarábherranna
hófst í gærdag
I gærmorgun hófst í Háskólan-
um fundur menntamálaráðherra
Norðurlanda. Áttu ráðherramir
fyrst stutt viðtal við blaðamenn
en síðan setti Gylfi Þ. Gíslason
menntamálaráðherra Islands
fundinn mcð ræðu. Síðan hófust
fundarstörf í hátíðasal Háskól-
ans.
Á morgunfundi ráðherranna í
gær voru rædd og afgreidd þrjú
mál. Samþykkt var að koma á
fót lýðháskóla í Kungalv í Sví-
þjóð. Þá voru samþykktar starfs-
reglur fyrir norrænan búsýslu-
skóla og loks var rætt um nor-
ræna húsið sem búið er að sam-
þykkja að reisa á háskólalóðinni.
Munu ríkisstjórnir allra Norður-
landanna taka þátt i kostnaðin-
um við bygginguna og hafa
norska og danska ríkisstjórnin
þegar veitt fé til framkvæmd-
anna.
Að loknum morgunfundinum
sátu ráðherramir hádegisverðar-
boð forseta Islands að Bessastöð-
um en aðrir fulltrúar snæddu
hádegisverð í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Síðdegis 1 gær hófst svo
fundur að nýju og var þá rætt
um norræna samvinnu á sviði
menningarmála. — í gærkvöld
höfðu sendiherrar Norðurlanda
boð inni fyrir fulltrúa landa
sinna.
Umræður hefjast að nýju kl.
10 í dag en hádegisverður verður
snæddur í Nausti. Síðdegis heldur
fundurinn áfram en í kvöld hef-
ur Gylfi Þ. Gíslason boð inni
fyrir ráðherrana og aðra full-
trúa.
Á morgun verður farið í ferða-
lag um Suðurland. Hádegisverð-
ur snæddur á Þingvöllum en
síðan ekið að Laugarvatni og
Geysi en á heimleiðinni komið
í Skálholt og Hveragerði. Kvöld-
verðarboð verður í Skíðaskálan-
um.
er
ákomin
Seyðisfirði í gær. — Enski tog-
arinn Dorade liggur hér ennþá
og hefur trygging ekki verið sett
fyrir skipið.
Ensku sjómennirnir sóla sig
og hvíla sín lúin bein. — G.S.
Námskeið fyrir organista
og söngstjóra í Skálholti
Söngmálastjórj þjóðkirkjunnar
Róbert A. Ottósson, ætlar að
gangast fyrir námskeiði í Skál-
holti fyrir kirkjuorganista og
söngstjóra. Námskeiðið á að
hefjast hinn 29. ágúst og standa
til 5. sept. Þar verður íslenzkum
organleikurum gefinn kostur á
að afla sér víðtækari menntun-
ar í því er lýtur að lítúrísk-
um söng. sálmalagafræði og kór-
stjórn auk sjálfs organleiksins.
í þessu sambandi kemur til
greina að stofna kirkjumúsik-
deild við Tónskóla þjóðkirkjunn-
ar í sambandi við Tónlistarskól-
ann. Þar gætu framhaldsnem-
endur verið við nám í 2—3 vet-
ur og tekið þá sérstakt kantora-
próf að náminu loknu.
Þetta verður fyrsta námskeið.
ið sem haldið er á vegum söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar fyrir
kirkjuorganleikara og söng-
stjóra, Aðalkennarar verða þeir
Róbert A. Ottósson og Guðmund-
ur Gíslason organleikari á Sel-
fossi og formaður Kirkjukórasam
bands Árnessýslu.
Þátttakendur munu búa í
biskupshúsinu í Skálholti, en hús-
rými er þar nokkuð takmarkað
og því vissara að sækja tíman-
lega um. Deginum verður var-
ið í erindahald. samsöng og
helgiathafnir ýmiskonar. Nám-
skeiðið verður setf fimmtudag-
inn 29. september og stendur í
rétta viku.
Fulltrúar Stokkhólms í boði
horgarstjórnar Reykjavíkur
Fyrsta síldin
B
a
Seyðisfirði
— 1 nótt
á Reyðar-
Fimm fulltrúar frá borgar-
stjórn Stokkhólmsborgar komu
hingað í fyrrakvöld með Flugfé-
lagi Islands. Eru þeir í boði borg-
arstjórnar Reykjavíkur en full-
trúar frá Reykjavíkurborg fóru
í slíka kynnisferð til Stokkhólms
í boði borgarstjórnarinnar þar
sumarið 1961.
Gestirnir frá Stokkhólmi eru
þessir: Bengt Lind ritstjóri, ann-
ar varaforseti borgarstjórnar, |
Gösta Wennström, fyrrv. borgar-
stjóri, varaformaður borgarráðs.
frú Vera Söderström, borgarráðs-
maður, Gunnar Dalgren, borgar-
stjóri menntamála og Hans
Calmfors, borgarritari.
í gærmorgun kynntu gestirnir
sér starfsemi Reykjavíkurborgar
t. d. skipulagsmál borgarinnar
og fóru í hringferð um borgina.
1 hádeginu í gær sátu þeir boð
borgarráðs að Hótel Borg og fóru
síðdegis til Bessastaða í boði for-
seta íslands. 1 gærkvöld sátu þeir
kvöldverðarboði félagsmálaráðh.:
I dag er ráðgert að gestirnir
kynni sér starfsemi Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur, fari í heimsókn
að Árbæ og síðan að Reykjum til
að kynnast Hitaveitunni.
Á fimmtudaginn skoða gestirn-
ir skóla, barnaheimili og íþrótta-
mannvirki og kynna sér starf-
semi Heilsuverndarstöðvarinnar
og um kvöldið sitja þeir þoð
borgarstjómar Reykjavíkur í
Sj álfstæðishúsinu.
Á föstudaginn fara hinir
sænsku gestir austur fyrir fjall.
með viðkomu í Hveragerði og
einnig verða virkjanirnar við Sog
skoðaðar og síðan farið til Þing-
valla. Skilnaðarveizla verður um
kvöldið í Hótel Valhöll.
Gestirnir halda heimleiðis á
laugardagsmorgun.
Seyðisfirði í gær.
var góð síldveiði
fjarðardýpi, 30 til 40 sjómílur I
undan landi. Þar fengu 20
skip samtals 13 þús. mál síld-
ar °S fjölgar óðum skipum á
þessu veiðisvæði af norðaust-
ursvæðinu, en þar var þoka í
nótt. Fyrsta síldin var söltuð
hér í dag og saltaði Sunnu- s
ver 200 tunnur úr m.b. Þor-
láki og Hafaldan 180 tunnur
úr ™b' Dofra BA- Sfldin er
misjöfn og helmingi kastað úr
við söltun.
Síldarbræðslan hefur tekið
á móti 27 þús. málum og búin
að bræða 15 þús. mál. 1 dag
lönduðu þessi skip hjá bræðsl-
unni: Leifur Eiríksson 350,
Freyfaxi KE með 700, Þorlák-
ur IS með 750 Dofri BA með
700, Gissur hvíti SF með 300.
Erfitt er að eiga við sfldina
á þessum miðurn og er hún
stygg og mikill straumur enda
mikið um búmköst í nótt.
Mikið er af norskum skip-
um fyrir utan Seyðisfjörð! —
Gísli.