Þjóðviljinn - 05.07.1963, Page 1
Eykur útfíutningsverðmæti
um 5—7 milljónir krónu
Myndin hér að neðan er
af soðkjarnastöð sem reist
var í vor við síldarverk-
smiðjuna Rauðku á Siglu-
firði en talið er að soð-
kjamavinnslan muni i með-
alári auka útflutningsverð-
mæti verksmiðjunnar um
5—7 milljónir króna og sést
á því að hér er um mikils-
verða endurbót á verk-
smiðjunni að ræða. —
(Ljósm. H.B.).
40 síldveiði-
skipfenguum
20 þús. múl
Síldarflotinn heldur sig nú aðallega út af Mel-
rakkasléttu og á Reyðarfjarðardýpi og var saltað
af miklu kappi á Raufarhöfn og Seyðisfirði í gær.
Á norðaustursvæðinu var vitað um afla hjá 21
skipi með sam’t'als 12320 mál og fyrir austan hjá
21 skipi með samtals 7850 mál.
Þessi skip höfðu eftirtalinn
afla:
Norðaustursvæðið: Fiskaklett-
ur 250. Haraldur AK 350, Halkion
300, Jón Finnsson 600, Hugrún
350, Steinunn 700 Friðbert Guð-
mundsson 120, Björgúlfur EA 350,
Eldey 300, Fákur GK 200, Helgi
Helgason 1500, Akraborg 500. Sæ-
fari EA 850, Þorbjörn 1300, Faxa-
borg 700. Ólafur Bekkur 1900,
Baldur EA 900, Gullborg 300,
Ólafur Magnússon 550 (fékk afl-
ann þar sem önnur skip voru
fyrir og fengu ekkert), Garðar
EA 150, Heimaskagi 100.
Reykjafjarðardýpi: Keilir 100,
Hafþór RE 150, Ver AK 250,
Höfrungur II. 300, Guðmundur
Þórðarson RE 1400. Lómur 300,
Jón Guðmundsson 500, Amar-
nes 400 Sigurbjörg SU 180,
Hringver 300, Halldór Jónsson
1100, Sæúlfur 250, Hoffell 400,
Rán SU 250, Jón Gunnlaugsson
300, Baldvin Þorvaldsson 200,
Sigurkarfi 200, GuUver 700, Ár-
sæll Sigurðsson I. 400, Mánatind-
ur 600.
Miðstjórn pólska
flokksins á fund
VARSJÁ 4/7 — Miðstjóm Sam-
einaða verkamannaflokksins
pólska kom saman á fund í
Varsjá i dag. Framkvæmdastjóri
flokksins, Wladyslaw Gomulka,
hafði framsögu um ideólógiskt
starf flokksins, en hann er ný-
kominn heim frá Austur-Berlín,
þar sem hann ræddi við ýmsa
aðra leiðtoga flokkanna í Aust-
ur-Evrópu, m.a. Krústjoff for-
sætisráðherra.
Kaupfélagsstjóri
ráðinu hjá KR0N
í fyrradag var ráðinn nýr
kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis á
stjórnarfundi félagsins og
varð fyrir valinu Ingólfur
Ólafsson. skrjfstofustj. KRON.
Ingólfur er fæddur 8. ágúst
1927 að Hurðarbaki í Hval-
fjarðarstrandarhreppi og eru
foreldrar hans Þórunn Magn-
úsdóttir og Ólafur Daníels-
son bóndi þar. Ingólfur lauk
prófi frá framhaldsdeild Sam-
vinnuskólans vorið 1951 og
réðst skömmu síðar til Kaup-
félags Suðurnesja í Keflavik
og starfaði þar um tveggja
ára skeið.
Haustið 1955 var liann ráð-
inn skrifstofustjóri hjá KRON
og hefur notið vinsælda í
starfi fyrir prúðmennsku og
dugnað.
Við áttum stutt viðtal vi*
nýja kaupfélagsstjórann i
gær og var hann heldur fá-
máll.
Á þessum erfiðu tímamót-
um vonaðist hann eftir góðu
samstarfi við sfarfsfólk
KRON og að félagsmenn
Ingóifur Ölafsson
stæðu saman um félag sitt.
Hann kvað mikla eftirsjá að
fyrirrennara sínum og erfið
braut framundan að feta í
fótspor þess mikilhæfa
manns
Reikningar Reykjavíkurborgar fyrir árið 1962 afgreiddir í borgarstjórn
Hörð gagnrýni á ýms atriði í
reikningunum og rekstrinum
í gær fór fram í borg-
arstjóm Reykjavíkur
síðari umræða um reikn-
inga borgarinnar fyrir
árið 1962. Flutti Guð-
mundur Vig’fússon þar
harða gagnrýni á ýms
atriði í reikningunum og
í reksfri borgarinnar og
fyrirtækja hennar og
tóku fleiri borgarfulltrú-
ar minnihlutaflokkanna
í sama streng, einkum
varðandi rekstur Raf-
magnsveitunnar. Hér á
eftir verður drepið á
nokkur a’t'riði úr ræðu
Guðmundar Vigfússon-
ar en tillögur sem full-
trúar Alþýðubandalags-
ins fluttu varðandi
reikningana eru birtar í
heild á 10. síðu.
Við íyrri umræðu reikning-
anna í borgarstjórn fjallaði
Guð-mundur Vigfússo-n um nið-
urstöður reikninganna í heild
en í ræðu sinni í gær fjallaði
hann um nokkur einsfök at-
riði í reikningunum sem hann
taldi athugaverð. Verður drepið I Vesturbæjar 3,8 miilj. króna oglaðeins var unnið á árinu fyrir
hér á hin helztu þeirra. vegna íþróttasvæðisins í Laug- 351 þús. kr. við sundlaugina
Samkvæmt reikningunum ardal 7 milljónir króna eða í Laugardal o-g nemur óeydd
skuldar íþróttasjóður ríkisins samtals 10,8 milljónjr. Þá bera fjárveiting 1962 sem geymd var
borgarsjóði vegna Sundlaugar I reikninga-rnir það með sér að I Framhald á 2. síðu.
KR sigraði finnska liðið HAKA með 6:2
1 íyrri hálíleik stóðu leikar 5:2 — Umsögn um leikinn verður í
blaðinu á morgun.____________________________________
Öngþveiti í lóðarmálum Reykjavíkurborgar:
Aðeins búið að úthluta lóðum
undir 320 íbú&ir á þessu ári
Við umræður í borgarstjórn í gær um lóðaút-
hlutun ben'ti Guðmundur Vigfússon á þá stað-
reynd að enn hefði aðeins verið úthlutað lóðum
undir 320 íbúðir á þessu ári þrátt fyrir loforð
borgarstjóra í febrúar sl. um það að á næstu 3
mánuðum yrði úthluíað lóðum undir 600 íbúðir
og auk þess lóðum undir 200 íbúðir síðar á árinu.
Guðmundur sagði að þetta
væru lélegar efndir og bæru vott
um algera uppgjöf borgaryfir-
valdanna í lóðamálunum. Öum-
deilanlegt væri að það þyrfti að
byggja minnst 600—700 íbúðir ár-
lega hér í Reykjavík til þess að
fullnægja þörfinni og væri á-
standið í lóðamálunum því allt
annað en glæsilegt, þar sem enn
væri ekki búið að úthluta lóðum
nema undir helming beirra íbúða
sem þyrfti að byggja.
Guðmundur benti einnig á að
af lóðaskortinum leiddi síaukið
brask með lóðir og íbúðir í bygg-
ingu, aukinn húsnæðisskortur og
stórhækkað verð á íbúðum. Hér
væri stefnt að algeru öngþveiti.
Sagði hann að borgin yrði að
tryggja sér mannkraft og bá sér-
staklega tæknikrafta til þess að
hægt væri að vinna að undirbún-
ingi lóðaúthlunar eins og nauð-
synlegt væri. Drap Guðmundur
á verkfræðingaverkfallið og sagði
að það væri dýrara fyrir borgina
að láta vinnu tæknimenntaðra
manna falla niður vikum og
mánuðum saman heldur en að
hækka kaup þeirra til þess að
halda þeim í störfum þar sem
allar framkvæmdir borgarinnar
grundvölluðust á störfum þeirra
og stæðu og féllu með þeim.
Að loku flutti Guðmundur eft-
irfarandi tillögu:
„Borgarstjómin lýsir áhyggj-
um sínum yfir því að ekki skuli
á þessu ári hafa verið úthlutað
lóðum fyrir nema um 320 fbúðir
þrátt fyrir þá slaðreynd að í
borginni þarf að byggja um 700
íbúðir á ári til þess að fullnægja
þörfinni fyrir nýjar íbúðir og út-
rýma á alllöngum tíma heilsu-
spillandi húsnæði. Borgarstjóm-
inni er ljóst, að sá skortur á í-
búðum, sem hér er ríkjandi og
nú fer óðum vaxandi, á sinn
stóra þátt í óeðlilega háu verði á
íbúðum og eykur þar með hús-
næðisskostnað borgarbúa.
Borgarstjómin telur því að
leita beri allra tiltækra ráða til
að hraða undirbúningi nýrra
byggingarsvæða. svo að unnt sé
að auka svo úthlutun lóða að
íbúabyggingar þurfi ekki að
dragast eins háskalega saman og
nú horfir vegna lóðaskortsins.
Sérstaka áherzlu leggur borar-
stjómin á að ráðstafanir séu
gerðar til að ljúka hið allra
fyrsta undirbúningi fyrirhugaðra
byggingarsvæða við Kleppsveg og
Elliðavog. svo unnt sé að taka
þau svæði til bygginga á þessu
ári, svo og að hraða skipulaginu
og öðrum undirbúningi Fossvogs-
svæðisins."
Tillögunni var vísað frá með
9 atkvæðum gegn 5.