Þjóðviljinn - 28.08.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.08.1963, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 28. ágúst 1963 — 28. árgangur — 182. tölublað. VERÐ- HÆKKUN Nýr fískur hækkar / verði um4- 9,5 % í gær var auglýst nýtt hámarksverð á nýjum fiski, og var þar á ferð- inni enn ein verðhækkun- in. Er hér um að ræða þorsk og ýsu og einnig fiskfars og nemur hækk- unin frá rúmlega 4% allt upp í 9,5%. ★ Verðhækkanir þessar eru sem hér segir: Nýr þorskur, siægður, með haus. hækkar úr kr. 3.70 kg í kr. 3.85, hausað- ur kr. 4.80 kg (áður kr. 4.60). Ný ýsa slægð, með haus, hækkar úr kr. 4.90 kg í kr. 5.15 og úr kr. 6.10 kg í 6.45, þegar um hausaðan fisk er að ræða. ★ Þá hækka einnig þorskur og ýsa, slægð og án þunnilda; þorskur í kr. 10.00 kg úr kr. 9.50. ýsa úr kr. 11.50 Itg í kr. 12.80 og firskfars hækkar í kr. 14.00 kg úr kr. 13.00. ★ Eins og sjá má nema hækkanir þessar frá 15 aur- um og allt upp í kr. 1.30 á kg af þessum fisktegundum. eða frá rúmlega 4% upp i 9.5%. Miiwood sleppt úr haldi 1 FYRRADAG kvað Logi Einars- son yfirsaksóknari upp þann úrskurð i Sakadómi Reykja- víkur að togaranum Milwood skuli slcppt úr haldi þegar er lögð hcfur verið fram trygg- ing sem rétturinn metur gilda. TOGARINN hefur sem kunnugt er verið hér i haldi síðan i vor og háfði Hæstiréttur úr- skurðað að héraðsdómur hefði rétt til að halda togaranum til 5. september n.k. en málið á hendur skipstjóranum, John Smith, verður þingfest 2. sept- ember n.k. Hefur skipstjóran- um þegar verið birt stefnan en hann neitaði að taka við henni. GÆR unnu tveir dómkvaddir mcnn að því að meta veiðar- færi skipsins o.fl. og verður upphæð tryggingarinnar byggð á niðurstöðum þess mats m.a. Myndin er frá góðaksturskeppninni á Akureyri og sýnir er knetti er varpað út á götuna í veg fyrir einn bílinn til þess að reyna viöbrögð ökumannsins. — (Ljósm. Gunnl. P. Kristinsson). Góiaksturskeppni nyrðra um hefuina Sl. laugardag efndi Bindindis- félag ökumanna á Akureyri til góðaksturskeppni og er það Tilrauna- landsliðið valið I gær valdi landsliðsnefnd KSf tilraunalandslið sem á að leika gegn liði sem íþróttafréttaritarar velja n.k. sunnudag. Verður sá leikur til undirbúnings lands- leiknum við Englendinga 7. sept n.k. Lið landsliðsnefndar verður þannig skipað: Helgi Daníelsson fA markv.. Árni Njálsson Val, hægri bakv., Bjarni Felixson KR, vinstri bakv., Garðar Ámason KR, hægri framv., Jón Stefáns- son ÍBA, miðframv., Bjöm Helgason Fram vinstri framv., Axel Axelsson Þrótti, hægri úth., Sveinn Jónsson KR, hægri innh., Gunnar Felixson KR. miðframh., Ellert Schram KR vinstri framv., og Sigurþór Jakobsson KR vinstri útherji. Lið íþróttafréttaritara verður væntanlega valið í dag. Finnskir horgarfulltrúar gesfir i Reykjavik Umferðarmálin erfiðust viðfangs í Helsingfors Enn hækkar tóhak- ið og brennivínið IÞessi vika heilsaði heldur kuldalega og er i>ó veðurblíða dag eftir dag. Brennivín og tóbak hækkaði allt í einu um helgina og er þetta for- smekkur að nýrri verðhækkunaröldu með haust- inu að venju. Hingað til lands eru komnir níu gestir frá^ borgarstjórn Helsingfors og munu dvelja hér vikutíma í boði borgarstjómar Reykjavíkur. Er heimsóknin þáttur í samstarfi og gagnkvæmum kynnum forustumanna höfuðborganna á Norður- löndum, en reykvískir borgarfulltrúar heimsóttu Helsingfors á síðasta ári. ® f finnska hópnum er forseti borgarstjómar Helsingfors, Teuvo Aura, og kona hans; fuUtrúar stjómmálaflokkanna. Einingar- flokksins, Sósíaldemókrata, Al- þýðubandalagsins finnska, Sænska þjóðarflokksins og Finnska þjóðarflokksins, enn- fremur borgarstjóri fjármála í Helsingfórs og varaborgarritari. Meðan gestimir dveljast hér munu þeir kynnast 'starfsemi Reykjavíkurborgar og stofnana hennar, einnig fara 1 ferðalag um suðvesturland. Heimleiðis halda þeir næstkomandi sunnu- dag. Samkvaemt viðtali við Jón Kjartansson, forstjóra er hér ver- ið að mæta auknum útgjöldum einkasölunnar og auka ennþá tekjur ríkissjóðs. Þetta er hin opinbera skýring. Við hringdum líka í Sigurð Pétursson, fuiitrúa í Fjármála- ráðuneytinu og sagðist hann ekki ljósta upp ríkisleyndarmálum við blaðamenn. Vildi enga skýringu gefa á þessari hækkun. Sagðist raunar hafa vaknað við vondan draum í morgun. Verðhækkunin er aðallcga á sterkum vínum og vindlingum. Brennivín, hvannarótarbrenni- vín, bitterbrennivín og ákavíti hækka um tíu krónur flaskan Geniver og vodlta um fimmtán krónur flaskan og brandy um þrjátiu krónur flaskan. Það er átappað hér. Koníak hækkar hinsvegar ekki í verði Það var svo dýrt fyrir. Það finnst nú sumum iíka um aðrar tegundir. öll létt vín, matar- og borð- vín hækka ekki í verði. Jón Kjartansson segir að þetta sé gert til þess að þjóðin hverfi meir að léttum vínum og frá sterku drykkjunum. I Svíþjóð eru ávörp úti í glugg- unum hjá afengisútsölunum, þar sem fólk er beinlínis hvatt til þess að drekka heldur léttu vínin. Það er víst komin upp hreyfing á Norðurlöndum í þessum mál- um.. Sennilega verða Norðmenn og Islendingar erfiðastir viður- eignar. Vindiingar hækka í smásölu um kr. 2.40 pakkinn. Camel kr. 24,05, áður kr. 21,65. Chesterfield kr. 23.90 áður kr. 21.50 Roy kr. 20.45 áður kr. 17.75. Wings kr. 21.20 áður kr. 18.80. en þetta eru fjórar vinsælustu vindlinga- tegundir í Iandinu i dag. Viceroy, Roy og Salem hækka þó um kr. 2.70 pakkinn. Landgræðslusjóður fær tuttugu og fimin aura á pakka og ríkis- sjóður fimmcyringinn fram vfir Framhald á 2. síðu. Umferðarvandamál erfið Reykjavíkurborg hafði í gær hádegisverðarboð fyrir hina finnsku gesti og fulltrúa blaða og útvarps. Þar flutti Geir Halt- grímsson borgarstjóri ræðu og bauð gestina velkomna, en sendi- herra Finnlands á Islandi. frú Tyyne Lilja Leivo-Larsson. bakk- Framhald á 2. síðu. I ■ ' fyrsta þess háttar keppnin sem haldin er úti á landi. Þátttakendur í keppninni voru 14 og hófst hún með því að þeir voru látnir aka um bæinn og voru verðir á 14 stöðum á leiðinni sem athuguðu hvort þeir færu eftir umferðarreglunum. Því næst voru keppendur látnir ganga uiidir ýmis konar akst- ursþrautir á gamla íþróttavellin- um. Gefin voru stig fyrir frammi- stöðuna þannig að dregin voru frá svo og svo mörg stig fyrir hverja villu sem keppendumir gerðp. Beztum árangri í keppn- inn náðu Níéls Hansson og Páll Garðarsson og fengu þeir hvor um sig 41 stig í frádrátt en þriðji í röðinni varð Ingi Þór Jóhanns- son með 43 stig í mínus. Leiðbeinandi um framkvæmd keppninnar var Ásbjörn Stefáns- son læknir formaður Sambands bindindisfélaga ökumanna. ■ Á- horfendur voru allmargir og höfðu góða skemmtun af. KR-ingum afhentur bikarinn Einsog sagt var frá hér í blaðinu i gær unnu KR-ingar Islands- meistaratitilinn í knattspyrnu 1963 með siigrinum yfir Akureyring- um á Akureyri á sunnudaginn. Að loknum leiknum fór fram af- hending íslandsbikarsins, og er myndin tekin er Björgvin Schram formaður Knattspyrnusambands Islands afhenti fyrirliða KR-inga, Herði Felixsyni, bikarinn. — (Ljósm. Gunnl. P. Kristinsson). Námamönnum bjargað / gær NEW YORK 27/8. Bandarísku námumönnunum Henry Throne og David Felling var í dag bjarg- að upp á yfirborð jarðar eftir 14 daga innilokun i námugöngum 100 metra niðri í nánd við Haz- leton í Pennsylvaníu. Björgunarmennimir notuðu gríðarmikla borvél, að hæð á við 10 hæða hús, til að bora 49 sentímetra víða holu niður til námumannanna. Voru þeir síð- an dregnir upp á yfirborðið. Throne var nokkuð þrekaður og strax fluttur í sjúkrahús. v Ekki er vitað um afdrif þriðja námumannsins. Louis Bova, sem lokaðist inni í námunni nokkuð frá hinum tveim og var ekki gengt á milli. Til Bova hefur ekki heyrzt í viku. Maður slasast í Oláfsvíkurenni í fyrrakvöld varö það slys' við vegarlagninguna í Ólafsvikurenni að tveir menn urðu fyrir grjóthruni og meiddist annar þeirra svo að flytja varð hann með sjúkraflugvél til Reykjavíkur í fyrrinótt. Slysið varð um kl. 8 um kvöldið er verið var að sprengja fyrir vegarstæðinu hjá Einbúa. Við sprenging- una mun hafa losnað grjót ofar í hlíðinni og urðu tveir af mönnum sem unnu við að sprengja fyrir grjótflugi. Slapp annar þeirra lítt meiddur en hinn maðurinn. Björgúlfur Þorvaldsson að nafni. fékk allþungt stein- högg á herðarnar og hrasaði nokkra metra niður eftir skriðunni. Læknirinn í Ólafsvík var þegar kvaddur á vettvang og síðan var hinn slasaði mað- ur borinn eftir fjörunni vest- ur með Ólafsvíkurenni. Vildi það til láns að sjór var lítt byrjaður að falla að svo að hægt var að ganga fjöruna. Bifreið f rá Guf uskálum kom á móts við burðarmenn- ina og flutti manninn á flug- völlinn en þangað sótti Bjöm Pálsson hann og ílutti hann hingað til Reykjavíkur. Var Björgúlfs í gærmorgun, og eru Landsspítalann. Gert var að meiðslum Björgúlfs í gærmorgun, og eru þau ekki talin vera hættu- leg. I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.